NT - 09.02.1985, Síða 23
KL
Laugardagur 9. febrúar 1985
íþróttir
23
Blak:
Þróttarsigur
í baráttuleik
■ Einn leikur var í l. deikl
karla á íslandsmótinu í blaki í
gærkvöld. HK tók á móti Þrótt-
urum í Digranesi í Kópavogi
og er skemmst að segja frá því
að Þróttarar voru ekki góðir
gestir því þeir sigruðu í leiknum
með þremur lirinum gegn
tveimur.
Eins og úrslitin bera með sér
Staðan:
Staðan í 1. deild í hand-
knattleik er nú þessi:
FH 11 10 1 0 301-249 21
Valur 10 7 3 0 237-196 17
KR 10 4 3 3 212-201 11
Vik. 10 4 2 4 245-228 10
Þróttur 11 3 3 5 260-273 9
Stjarnan 11 3 2 6 238-248 8
Þór Ve. 10 3 0 7 202-238 6
Breiðabl. . 11 1 0 10 224-281 2
Markahæstir:
Kristján Arason FH............79
Þorbergur Aðalsteinss. Vik... 69
Hans Guðmundsson FH ..........63
Guðm. Þórðars. Stjömunni... 58
Björn Jónsson Breiðabl.57
þá var leikurinn hnífjafn og
spennandi. Fyrsta hrinan var
löng og ströng og lauk með
sigri HK 15-12. Þá tóku Þrótt-
arar völdin í þeirri næstu og
gersigruðu 15-8. Þriðju hrin-
una unnu Þróttarar einnig, nú
15- 5 en í fjórðu hrinunni þá
hófust lætin og er henni lauk
eftir langan tíma þá stóðu HK-
ingar uppi sem sigurvegarar
16- 14. Síðsta hrinan og úrslita-
hrinan var jafnframt í eigu
Þróttar og sigurinn því þeirra
3-2.
Liðin voru nokkuð jöfn að
getu en reynsla Þróttara vó
töluvert á metunum. HK menn
börðust hinsvegar mjög vel og
voru ekki langt frá því að vinna
leikinn.
Eins og getið er annarsstaðar
í blaðinu þá eru pressuleikir í
blaki í Hagaskóla á sunnudag
og spila konurnar kl. 19 en
karlarnir kl. 21. Skúli Sveins-
son hefur valið karla-„press-
una“ og skipa hana eftirtaldir.
Friðbert Traustason ÍS
Ólafur Traustason Fram
Fridjón Bjarnason ÍS
Stefán Magnússon ÍS
Þröstur Víkingi
Páll Svansson ÍS
Kjártan Busk HK
■ Árni Lárusson snýr hér á nafna sinn úr ÍS. Ámi varð fyrir
Óhappi í leiknum í gær. NT-mynd: Sverrir
Úrvalsdeildin í körfu:
Njarðvíkvann
Frá óbfí Þór frcllaritara NT á Suðumcsjum:
■ Njarðvíkingar áttu ekki í
vandræðum með að sigra Stúd-
enta í „Ijónagryfjunni“ í Njarð-
víkum í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 112-82 og leikurinn reynd-
araldrei mjögspennandi. Stað-
an í hléi var 47-34 og úrslitin þá
nánast ráðin.
Tveir leikmenn urðu fyrir
óhappi í leiknum. Árni Lárus-
son hjá Njarðvík snéri sig illa
ogGuðmundur Jóhannsson hjá
ÍS varð að fara á spítala vegna
meiðsla á háls. Er þetta missir
fyrir bæði liðin.
Isak var bestur heimamanna
og gerði 32 stig. Hreiðar 22,
Valur 17, Helgi Rafnss. 11,
Jónas 9, Árni 8, Gunnar 8 og
Ellert 5. Hjá ÍS gerðu Árni
Guðmundsson og Valdimar 20
hvor, Ragnar 12, Helgi 11,
Þóriró, Guðmundur Jóhanns-
son 5, Jón Indriða 4, Sveinn
Ólafsson og Björn Leósson,
sem nú er að ná sér efti meiðsl,
2 stig hvor.
Þá léku Reynir og ÍBK bar-
áttuleik í 1. deild karla og
sigruðu Keflvíkingar 79-72.
Nánar seinna.
■ Kjartan Busk smassar hér tvo Þróttara af færi.
NT-mynd: Ami Bjarna
Handknattleikur 1. deild:
■I
Oruggur sigur hjá FH
Frá Sigfúsi Guðmund.ssyni frcttaritara NT í
Eyjum:
■ Það fór cins og menn grun-
aði að FH-ingar sóttu 2 stig til
Eyja er liðið mætti Þór Ve. í 1
deildarkeppninni í gærkvöldi.
FH-ingar höfðu yfirburði mest
allan leikinn og lokatölur urðu
27-21 þeim í hag. Staðan í
leikhlé var svipuð eða 14-8.
Leikurinn byrjaði vel fyrir
Þórara, þeir komust yfir 2-1
eftir að FH hafði gert fyrsta
markið. Síðan var jafnt í upp-
hafi leiksins en er staðan var
4-3 fyrir Þórara þá sögðu Hafn-
firðingarnir hingað og ekki
lcngra. Þeirtókuaðsígaframúr
og hægt og bítandi náðu þeir
öruggri forystu. Staðan í leikhlé
var svo 14-8 FH í vil og nánast
séð hvert þessi leikur stefndi.
I síðari hálfleik þá tóku FH
ingar áfram til hendinni drifnir
áfram afgóðri markvörslu Har-
aldar í markinu. Hann varði
alls 14 skot í seinni hálfleik þar
af 2 víti. FH-ingar náðu mest 8
marka forystu 21-13 er seinni
hálfleikur var hálfnaður. Síðari
hluta hálfleiksins þá slökuðu
þeir örlítið á en sigurinn var
aldrei í hættu og lokatölur eins
og fyrr sagði 27-21.
Kristján Arason var marka-
hæstur FH-inga gerði 7 mörk.
Þorgils gerði 6, Hans 5, Jón
Erling og Guðjón Guöm. 4 og
Sveinn Braga I. Hjá Þór skor-
aði Sigurbjörn Óskarsson og
Herbert Þorleifsson 4 hvor ,
Steinar og Elías 3, Gylfi og
Sigurður Friðjónsson yngri 2
en Sigurður Friðjónsson eldri,
Páll Schevingog Stefán Guðm.
1 hver.
Helgarsportið
Handknattleikur:
Nær ekkert er um að vera á handknatt-
leikssviðinu um helgina. Leikið verður í 2.
flokki karla og kvenna svo og 6. flokki karla
og 4. flokki kvenna.
Körfuknattleikur:
í úrvalsdeildinni leika á sunnudaginn KR
og Valur í Hagaskóla kl. 14.00 og Haukar
og ÍR leika í Hafnarfirði kl. 20.00. í 1. deild
kvenna verður einn leikur, UMFN og KR
leika í Njarðvíkum í dag (laugardag) kl.
15.30. Tveir leikir verða í 1. deild karla í
dag. Grindavík og Fram lciku í Njarðvíkum
kl. 14.00 og á sama tíma leika Rcynir og
ÍBK í Sandgerði.
Blak:
Einn ieikur er í 1. deild karla í dag.
Þróttur og ÍS keppa í Hagaskóla kl. 15.15
og á sama stað verður einn leikur í 1. deild
kvenna, ÍS og KA kl. 14.00. Á sunnudags-
kvöldið eur „pressuleikir“ í Hagaskóla.
Konur kl. 19 og karlar kl. 21.
Badminton:
Deildarkeppni BSÍ fer frani í Laugardals-
höll. (Sjá annars staðar í íþróttasíðu).
Skíöi:
Myllu-mót í alpagreinum fer fram í Blá-
fjöllum. Mótið er jafnframt punktamót.
Það hefst í dag kl. 10.30 og á sama tíma á
morgun. Þá er trimmganga á Ólafsfirði í
dag.
Frjálsar:
Meistaramót Íslands fyrir 14 ára og yngri
fer fram í Ármannsheimilinu og í Baldurs-
haga. Keppnin hefst í dag í Ármannsheimil-
inu kl. 12.30 og í Baldurshaga kl. 17.00. Á
morgun verður keppt i Baldurshaga kl.
14.00. Þá er annað stjörnuhlaup FH og hefst
það við Lækjarskóla kl. 14.00.
+
Hvernig starfar Rauði krossinn?
Námsstefna Rauða kross íslands um starf-
semi félagsins og alþjóðasamktakanna
Laugardaginn 16. febrúar verður haldin námsstefna um
starfsemi Rauða kross íslands á innlendum og erlendum
vettvangi og einnig verður starf Alþjóðasamtaka Rauða
krossins kynnt.
Tilgangurinn með þessari námsstefnu er að koma til móts
við þá sem vilja fræðast um Rauða krossinn og hina
víðtæku starfsemi sem fram fer á vegum félagsins og
Alþjóðasamtakanna um allan heim.
Rauði krossinn er nú starfandi í 135 ríkjum heims og eru
félagsmenn um 250 milljónir.
Námsstefna RKÍ er öllum opin og er framhaldsskóla-
nemendum og kennurum sérstaklega bent á þetta tækifæri.
Geta má þess að í vor verður námskeið fyrir verðandi
sendifulltrúa RKÍ og verður sagt frá því og ýmsu öðru er
varðar möguleika ungs fólks til starfa í þróunarlöndunum.
Þeir sem hyggjast taka þátt í námsstefnunni verða að
tilkynna þátttöku til aðalskrifstofu Rauða kross íslands í
síma 26722 fyrir 13. þ.m.
Námsstefnan verður haldin að Nóatúni 21, kl. 14-18
laugardaginn 16. febrúar.
Dagskrá:
1. Yfirlit yfir starfsemi Rauða krossins innan lands og utan
- Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross
íslands.
2. Stofnun og saaa Rauða krossins - Sigurður Magnús-
son, fulltrúi RKI.
3. Með mannúð til friðar - Björn Friðfinnsson, stjórnar-
maður RKÍ.
4. A Plea for Humanity - kvikmynd.
5. Neyðarhjálp/þróunaraðstoð/fyrirbyggjandi aðgerðir -
Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri í alþjóðadeild RKf.
6. Fjármögnun starfsins og nýting söfnunarfjár - Hannes
Hauksson, deildarstjóri í fjármáladeild RKf.
7. Ungliðahreyfing RKI - Hólmfríður Gísladóttir, deildar-
stjóri í félags- og heilbrigðismáladeild RKf.
8. Kynningarkvikmynd RKI.
9. Umræður.
10. Námsstefnuslit.