NT - 09.02.1985, Side 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?
HRINGDU ÞÁ f SflX/IA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Mjólkursamsalan
- skiptar skoðanir um hvort
eigi að flytja allt flug
til Keflavíkur eða festa
Reykjavíkurvöll í sessi!
Á200 km hraða
til Keflavíkur?
■ Einteiningur á 200 km ferð
til Keflavíkur með farþega í
flug? Það er ein af þeim hug-
myndum sem hafa komið fram
til að stytta ferðatímann á milli
ef flugstarfsemin verður flutt.
greinargerð með tillögunum að
það sé orðið mjög aðkallandi að
skipulag flugvallarins komist í
það horf að hægt sé að hefja
framkvæmdir við nokkrar af
þeint byggingum sem þurfa að
rísa þarna og þjóna hinni um-
fangsmiklu starfsemi, sem fram
fer á flugvellinum. Er nefnt í
greinargerðinni að sem fyrst
þurfi að byggja á svæðinu
flugstöð, þjónustubyggingu fyr-
ir Landhelgisgæslu, hús fyrir
Flugbjörgunarsveitina, þjón-
ustubyggingar fyrir flugvöllinn,
þyrluskýli og þjónustubygging-
ar fyrir einkaflugið.
Pétur Einarsson flugmála-
stjóri hefur lýst því yfir að
skipulagstillögurnar taki ekki
afstöðu til þess hvort Reykja-
víkurflugvöllur eigi að vera
staðsettur á þessu svæði til fram-
búðar, eða hvort hann verði
fluttur annað seinna. Þær séu
fyrst og fremst hugsaðar sem
fastur punktur til að ganga út
frá við frekari uppbyggingu
svæðisins.
Ummæli flugmálastjóra
verða ekki véfengd en það er
samdóma álit þeirra sem til
þekkja að allar byggingarfram-
kvæmdir sem farið verður út í,
áður en endanleg afstaða til
fiugvallarins verður tekin, auki
líkurnar á því að völlurinn fest-
ist í sessi á núverandi stað. En
tillögur flugmálastjóra hafa vak-
ið borgarstjórnarfulltrúana af
þyrnirósarsvefni sínum um mál-
efni Reykjavíkurflugvallar og
má væntanlega búast við að nú
hefjist raunhæf umræða um
framtíð Reykjavíkurflugvallar.
■ „Það hefur verið hreyft hugmyndum um flug-
bindingu eða tengingu með einteinungi ef farið væri
út í það að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur,“
sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins er NT innti hann eftir frekari skýringu
á þeim orðum hans að hægt væri að koma á hraðari
samgöngum miili þessara byggðalaga, þannig að
flutningur flugsins þyrfti ekki að lengja þann tíma
sem það tekur nú að komast út á völl.
gætu beðið í Reykjavík þar til
Ijóst væri hvort hægt væri að
fljúga eða ekki. Taldi Sigurjón
eðlilegt að leita allra ráða til
þess að losna við Reykjavíkur-
flugvöll af núverandi stað og
sagði hann Alþýðubandalagið
leggja áherslu á að allir hugsan-
Benti Sigurjón á að svona
tengingar gæfu möguleika á
mjög hröðum flutningi milli
staða og ætti ekki að taka meira
en 10-15 mínútur að komast á
milli. Þyrfti því biðtíminn, sem
nú cr 'Á tími í innanlandsflug-
inu, ekki að lengjast ogfarþegar
legir möguleikar til þess yrðu
kannaðir.
Umræður urn framtíð Reykja-
víkurflugvallar hófust að nýju
cítir að skipulagstillögur af
svæðinu voru kynntar fyrir
nokkru, en í þeim er gert ráð
fyrir að ný flugstöð rísi sunnan
Loftleiðahótelsins og suður-
vestur flugbrautin verði lengd
um 300 metra út í sjó í Skerja-
firði. Það var Teiknistofa Gísla
Halldórssonar sem vann skipu-
lagstillöguna að ósk flugmála-
stjóra og í nánu samstarfi við
hann.
Skiptar skoðanir
um staðsetningu
Hingað til hefur ekki verið
meirihluti í borgarstjórn til að
taka ákvörðun um framtíð flug-
vallarins, hvort eigi að festa
hann í sessi á núverandi stað,
eins og skipulagstillögurnar
gera ráð fyrir, eða hvort eigi að
finna honum annan stað. Skipt-
ar skoðanir eru um þetta mál
meðal fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins og hefur Albert
Guðmundsson lýst því yfir að
flugvöllurinn eigi að fara. Segir
hann að taka verði meira tillit til
mannlífs í borginni en peninga-
sjónarmiða. Davíð Oddsson
borgarstjóri er á öndverðum
meiði og kallar allt slíkt hjal
„vindmyllutal".
Skipulagstillögurnar gera ráð
fyrir að Suðurgatan færi undir
flugbrautina í jarðgöngum, og
hraðbraut. Hlíðarfótur, yrði
lögð meðfram Öskjuhlíðinni úr
Fossvogi sunnan við kirkjugarð-
inn og áfram yfir Vatnsmýrina
að Umferðarmiðstöðinni. Yrði
hraðbrautin aðal aðkomuleið að
hinni nýju flugstöð. ásamt nú-
verandi Flugvallarvegi sem lægi
yfir hraðbrautina á brú.
í deiliskipulagi að svæðinu
hefur verið gert ráð fyrir flug-
minjasafni norðan við Loft-
leiðahótelið en Landhelgisgæsl-
unni er ætlaður staður til fram-
búðar þar sem hún er í dag. Þar
verði reist þyrluskýli og þyrlu-
lendingarpallur. I næsta ná-
grenni Landhelgisgæslunnar er
gert ráð fyrir flugskýlum fyrir
einkaflug.
Þolir ekki lengri bið
Skipulagstillögurnar voru
unnar í mjög nánu samstarfi við
flugmálastjóra og kemur fram í
Góðar stundir
með MS sam-
lokum -hvar
og hvenær
sem er.
Helgarveðrið
Það verður austanátt um allt land og heldur
hægari norðanlands en sunnan. Búist er við
að hvassviðri geti orðið með ströndinni
sunnanlands en kaldi inn tii landsins.
Slydduél á Suðaustur- og Austurlandi en
úrkomulaust að mestu annars staðar.