NT - 14.02.1985, Side 2
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 2
Hundrað þúsund lítrar
af vatni niður á Hlemm
-15 tommu aðalæð vatnsveitunnar í
sundur og klukkutíma tók að skrúfa fyrir
■ Hundrað þúsund lítrar af
vatni eda meira tlæddu niður
Laugaveginn ofan við Hlemm
og um svæðið þar þegar skurð-
grafa rauf 15 tommu aðalæð.
Vatn flæddi í nokkra kjallara og
vitað er um að minnsta kosti
eina kjallaraíbúð sem skemmd-
ist vegna þessa. ísing myndaðist
á gotum og missti einn ökuinað-
ur stjórn á bifeið sinni vegna
þess, ók á grindverk við Laug-
aveginn sunnanmegin og
meiddist lítilsháttar.
Pétur Kristjánsson rekstrar-
stjóri vatnsveitunnar sagði í
samtali við NT að óhappið hefði
orðið þegar verið var að gera
við kaldavatnsheimæð að
Laugavegi 137, rétt ofan við
Hlemm. Grafa þurfti yfir 15
tommu aðalæð og rakst þá
skófla gröfunnar í rörið með
fyrrgreindum afleiðingum.
Þetta átti sér stað um 10 leytið
en það var ekki fyrr en klukku-
tíma síðar að lokið var við aö
skrúfa fyrir vatnsflauminn. Ást-
æða þess er sú að ekki er óhætt
að skrúfa of hratt fyrir því þá
eykst svo þrýstingur á aðrar
æðar að hætta er á að þær
spryngi.
Viðgerð á æðinni stóð í allan
gærdag en vonast var til að
henni lyki fyrir kvöldið. Að
sögn Péturs voru um 77 rúnr-
metrar af vatni í æðinni frá
sprungustað og upp að lokanum
og má reikna með að vatnið,
sem flóði út, hafi verið meira en
það. Vatnsflaumurinn var mikill
og flæddi meðal annars yfir allt
planið á baklóð lögreglustöðv-
arinnar og illfært var fyrir gang-
andi yfir Laugavcg og ofanverða
Hverfisgötu. Eins og fyrr segir
myndaðist fljótt hálka við vatns-
flóðið og sagði Pétur að þeirra
fyrsta verk hafi verið að hringja
eftir saltbíl sem hafi verulega
dregið úr hálkunni.
I'idípírai tikrt eftjHs- -i;
" j....................*;
■ Sökudólgurinn á vettvangi. Það vargröfutönnin sem braut kaldavatnsæðina og olli flóðinu í
gærmorgun.
Léstá
ferdalugi
í Asíu
■ 25 ára Islendingur,
Sigurður Björnsson, lcst
eftir umferðarslys í Kuala
Lumbur í Malaysíu þar
sem hann var á ferðalagi.
Slysið átti sér stað síð-
astliðinn sunnudag þar
sem Sigurður var á leið
til Kelang með langferða-
bíl. Sat Sigurður frcmst í
bílnum þegar honum var
ekið aftan á kyrrstæðan
vörubíl. Hann var fluttur
á sjúkrahús en lést þrem-
ur stundum eftir slysið.
Siguröur var þarna á
ferð með systur sinni og
annarri íslenskri stúlku
en hvorug þeirra hlaut
meiðsli viö slysið. Sigurð-
ur var fæddur 25. des-
ember 1959.
„Viljum blása nýju lífi I
líftryggingastarfsemma“
- segir Ingi R. Helgason, forstj. B.l.
■ F.v. Tore Melgárd aðstoðarforstjóri A/S Storebrand-Norden
gruppen, Ingi R. Helgason, forstjóri, Jostein Sörvoll tryggingastærð-
fræðingur og Stefán Reykjalín stjórnarforinaður Brunabótafélags
íslands. Storebrand-Norden gruppen hefur verið endurtryggingafyrir-
tæki Brunabótafélags Islands í áratugi. MT-mynd: Sverrir
■ „Við lítum svo á að á ís-
lenska líftryggingamarkaðnum
ríki alger stöðnun og hann sé í
dag mjög vanræktur," sagði Ingi
R. Helgason, forstjóri Bruna-
bótafélags íslands, sem í gær
kynnti stofnun sérstaks líftrygg-
ingafélags - BÍ Líftrygging - er
hefur starfsemi í dag. Ingi sagði
að félagið muni leggja höfuðá-
herslu á að veita verðtryggða
vátryggingavernd í öllum grein-
um, bæði fyrir einstaklinga og
hópa. Boðið veröur upp á
söfnunar-, tímabundna-, sam-
eiginlega- og hóplíftryggingu.
Varðandi stöðnun á sviði líf-
trygginga benti Ingi á að saman-
lögð iðgjöld þeirra fimm félaga,
sem bjóða upp á líftryggingu,
nema innan við 1% af heildarið-
gjöldum tryggingarstarfseminn-
ar í landinu. Þetta hlutafall sé
Ættjarðarást
■ Sjálfstæðistilhneigingar
Vestamannaeyinga eru al-
þekktar og föðurlandsást
þeirra hefur gegnurn tíðina
tekið á sig ýmsar myndir. Við
heyrðum það fyrir skömmu
haft eftir kunnum þingmanni
úr Eyjum að hann vildi heldur
deyja en verða jarðaður í
Reykjavík.
Ekki fylgir það sögunni,
hvort hún sé sönn.
Sér grefur gröf
Heildaraflinn um 157 þús. lestir í janúar:
Þorskaflinn um ‘,A0/-
meiri en í
■ Þegar Landsbankinn
keypti togarann Bjarna Herj-
ólfsson á uppboði á dögunum
vakti það athygli sumra að
bankinn skyldi kaupa togarann
fyrir 10 milljónum króna hærri
upphæð en hann hefði sloppið
með til að bjarga eigin skinni.
Glöggir menn fundu þó
fljótlega skýringuna. Tíu mill-
jónirnar svöruðu nokkurnveg-
inn til olíuskulda útgerðar
togarans við 01 ís h.f., seni
aftur hafði þurft að fjármagna
það „lán“ til útgerðarinnar
með „láni" frá Landsbankan-
um. Landsbankinn var því að
I3Í(T
hins vegar frá 35% og upp í
70% á menningarsvæðunum í
kringum okkur. Þá hafi á árun-
urn 1976-1979 líftryggingaskír-
teinum hérlendis fækkað um
15,4%. „Hér viljum við blása
inn nýju lífi," sagði Ingi.
Stofnendur B1 Líftryggingar
eru, auk B.Í., sex núverandi
aðalmenn og varamenn í stjórn
Brunabótafélagsins. Tók Ingi
fram að raunverulega væri ekki
verið að fjölga tryggingafélög-
um, heldur að taka upp nýja
vátryggingargrein sern ekki
veröi rekin nema í sérstöku
félagi lögum samkvæmt.
tryggja sér að Olís gæti borgað
skuld sína við bankann.
Einn bísnessmanna bæjarins
sagði Olís þarna hafa náð kjör-
stöðu hversfyrirtækis-þ.e. að
láta bankann bjarga sér með
því að hann er að bjarga sjálf-
um sér.
Stórifótur!
■ - Óli minn af hverju ertu
að gráta?
- Krakkarnir eru að stríða
mér! Grát-grát.
- Nú og hvað segja krakk-
arnir?
- Þau eru að striða mér og
segja að ég hafi svo stóra
fætur. Snökt-snökt.
- Hvaða vitleysa. Settu nú
skóna þína út í bílskúr og
komdu að borða!
Úr Karphúsinu:
ILéttara
yfir
samninga-
Imönnum
■ Léttara var yfir samn-
ingamönnum í kjaradeilu
sjómanna í gærdag en ver-
ið hefur undanfarið að
sögn Guðlaugs Þorvalds-
sonar ríkissáttasemjara
seint í gærkvöld. Bjóst
hann þá við að fundur
stæði til miðnættis eða
lengur.
Samninganefndin ræddi
í gær um lífeyrismál en
engin formleg tilboð eru
komin fram. Undirnefnd
ræddi í gærdag um sér-
kjaramál sjómanna á
frystiskipum og rækju-
sjómanna. Var skipst á
tilboðum um málefni
sjómanna á frystiskipum.
Þá var seint í gærkvöldi
skipuð ný undirnefnd til
þess að ræða kjör sjó-
manna á stóru togurunum.
Mosfellssveit fái
eigin lögreglustöð
■ Lögð hefur verið fram í
sameinuðu Alþingi tillaga til
þingsályktunar um að ríkis-
stjórnin hlutist til um að komið
verði á fót lögregluvarðstöð í
Mosfellshreppi ásamt tilheyr-
andi búnaði og að fjölgað verði
í lögregluliði sýslumanns-
embættis Kjósasýslu svo unnt
verði að þjóna Kjalaneshreppi
og Kjósahreppi auk Mosfells-
hrepps.
Flutningsmaður tillögunnar
er Salome Þorkelsdóttir.
í greinargerð með tillögunni
kemur fram að sanianlagður
íbúafjöldi þessara hreppa er um
4000 og kalli ört vaxandi byggð
á aukna löggæslu. Þá vex umferð
um Vesturlandsveg og hefur
hreppsnefnd Mosfellshrepps
ítrekað ályktað um þetta mál og
telur virka löggæslu á svæðinu
mikilvirkustu vörnina gegn
hvers konar umferðarslysum í
byggðinni.
Löggæslu á þessu svæði er nú
sinnt frá Hafnarfirði en með
núverandi mannafla og tækja-
kosti er mjög erfitt að sinna þar
lágmarksþjónustu, hvað þá að
halda uppi virkri löggæslu.