NT - 14.02.1985, Page 3
w
Fimmtudagur 14. febrúar 1985
Launakönnun Hagstofunnar í hópi „ hvítf li bbastétta “:
„Rétt kyn“ er verðmæt
ara en „rétt menntun“
Háskólakarlar með 57% hærri laun en háskólakonur á almenna vinnumarkaðinum
■ Háskólamenntaðir karlar
starfandi hjá einkafyrirtækjum
hafa að meöaltali um 57% hærri
laun en háskólamenntaðar kon-
ur á sama vinnumarkaði, sam-
kvæmt launakönnun sem gerð
var á vegum Hagstofunnar.
Miðað við desember s.l. voru
mánaöarlaun karlanna fyrir
fulla dagvinnu og ómælda yfir-
vinnu (sem Hagstofan telur í
mörgum tilvikum erfitt að að-
skilja) tæplega 41 þús. kr. á
mánuöi. Að viðbættum öðrum
yiirvinnugreiðslum, bílastyrkj-
um og ileiri fríðinduin urðu
heildarlaun karlanna að meðal-
tali 51.600 krónur. Samsvarandi
mánaðarlaun kvennanna voru
tæplega 28 þús. í fastakaup og
tæplega 33 þús. í heildarlaun.
Vekur t.d. athygli að bílastyrkur
háskólakvenna er aðeins um
helmingur á við bílastyrk karl-
anna.
Launakönnun þessi náði til
fyrirtækja með alls um 1.600
starfsmenn í fullu starfi, þar af
316 háskólamenntaða. Af þess-
um 316 voru konur aðeins 22,
og hlutfallslega fáar innan
þeirra greina sem greinilega eru
eftirsóttastar á almenna launa-
markaðinum. Skemmtileg
undantekning frá þeirri reglu,
að konur séu almennt verr
launaðar, er t.d. eini kerfis-
fræðingurinn í kvennahópnum
sem er mun betur launuð en
kollegar hennar að meðaltali.
Eina konan í hópi tæknifræðing-
anna hafði sömuleiðis sömu
Launakönnun 27.12.1984 - allir í fullu starfi
Karlar Föst Samtals Konur Föst Samtals
Menntun: fjöldi laun greiðslur fjöldi laun greiðslur
Lægraalm. próf 553 29.122 39.277 345 21.534 25.479
Versl.sk.próf 128 33.037 42.483 63 22.402 26.495
Samv.sk.próf 17 32.024 37.135 5 23.160 27.300
Stúdentspróf 72 34.913 44.080 80 24.266 28.862
Verkfræði 101 43.953 55.100 2 30.350 31.000
Tæknifræði 78 39.395 51.869 1 33.300 51.675
Kerfis-ogtölvu.fr. 8 41.650 52.051 1 54.100 54.600
Viðskiptafræði 67 41.604 50.368 2 29.500 35.100
Hagfræði 6 37.983 47.483 1 43.100 43.500
Lögfræði 12 36.033 48.223 2 29.850 41.750
Náttúrufræði 3 39.633 52.608 2 22.300 22.300
Háskólapr. BA-stig 8 38.538 43.314 6 24.350 29.904
Kennarapróf 6 37.033 43.252 1 40.200 42.300
Arkitektúr 5 32.100 39.330
Aðrir 6 27.950 35.004 5 22.720 27.125
Karlar/konursamt. 1.070 33.329 43.329 516 22.387 26.497
■ Af launakönnun Hagstofunnar sýnist glöggt mega ráða að almenni vinnumarkaðurinn borgar fölki
fyrst og fremst fyrir „rétt kynferði". Á töflunni má sjá meðallaun fólks flokkuð eftir mismunandi
lokaprófum viðkomandi starfsmanna. í fremri launadálkunum eru dagvinnulaun og föst ómæld
yfirvinna. í aftari dálkunum hefur launum fyrir aðra yfirvinnu, ýmsar sporslur og bílastyrkjum verið
bætt við og er áberandi að konurnar verða þeirra fríðinda miklu minna aðnjótandi en karlarnir. í þriðja
lagi sýnist Ijóst að almenni markaðurinn sækist fyrst og fremst eftir háskólamenntun í ákveðnum
greinum og sýnist borga, a.m.k. körlum, úr þeim greinum nokkuð vel. Annað langt og strangt nám er
hins vegar mun verr launað - t.d. virðist BA-próf, kennaramenntun og arkitektúr lítið eða ekkert færa
fólki í launum umfram þá sem látið hafa verslunarskólaprófið, eða stúdentsprófið nægja.
heildarlaun og karlahópurinn
að meðaltali.
Þetta „jafnrétti" brotnar hins
vegar í mask þegar litið er til
verkfræðinganna, þar sem kon-
urnar tvær höfðu um 24 þús.
króna lægri heildarlaun en karl-
arnir. í hópi viðskiptafræðing-
anna var hlutfallið litlu skárra.
Hrikalegsti munurinn finnst þó
mcðal náttúrufræðinganna þar
sem konurnar höfðu aðeins um
42% af launum karlanna.
Barnaskólamenntun heföi tæp-
ast gefið þessum konum færri
krónur í launaumslagið, ef
marka má könnunina í heild.
Að því er ráða má af könnun
Hagstofunnar er það ekki endi-
lega lengd menntunarinnar sem
mestu ræður þegar að launa-
kjörunum kemur á almenna
vinnumarkaðinum, sem sjá má
m.a. af launasamanburöi arki-
tektanna í könnuninni annars
vegar og gagnfræðinganna hins
vegar (lægri alm. próf). Svipað
viröist uppi á teningnum með
kennaraprófin og BA-prófin,
sent skila konunum ekki einu
sinni 30 þús. króna heildarlaun-
um.
Af launakönnuninni' sýnist
mega ráða (bæði af launum og
skiptingu milli menntagreina)
að það eru ákveðnir liópar há-
skólamanna sent almenni vinnu-
markaðurinn sækist eftir og er
tilbúinn til aö greiða nokkuö
góð laun. Þessar stéttir eru:
Verk-, tækni- og viðskiptafræð-
ingar - og þó fyrst og fremst ef
þeir eru karlkyns.
í öllunt samanburði hefur hér
verið miðað viö töflur úr
könnuninni þar sem launþegum
er skipt í flokka cftir menntun.
I könnuninni var liópnum líka
skipt niður eftir starfsheitum,
t.d. í ritara, sölumenn, gjald-
kera, forstöðumenn og for-
stjóra, þarsem launaniðurstöð-
ur vcrða aðrar, enda getur
gagnfræðingur sem best verið
forstjóri með viðskiptafræðing í
gjaldkerastöðu. Súskiptingværi
því efni í annan samanburð.
Óeðlilegt ástand á
útboðsmarkaðinum
■ Astand íslenska útboðsmark-
aðarins er ekki eðlilegt um
þessar mundir. Stafar það m.a.
af því, að útboð Vegageröar
ríkisins í nýframkvæmdum hafa
aukist úr 8% árið 1979 í
Framkvæmdasjóður
fatlaðra:
Viðbótar-
fjárveiting
■ Fjármálaráðherra hefur fallist
á bciðni Alexanders Stefánssonar
félagsmálaráðherra að veita 10
milljóna króna viðbótarfjármagn
til Framkvæmdasjóðs fatlaðra.
Sjóðurinn fékk til ráðstöfunar á
fjárlögum 40 milljónir en auk þess
renna til hans tekjur Erfðafjár-
sjóðs 25 milljónir. Ráðstöfunarfé
sjóðsins verður því eftir þessa
viðbót 75 milljónir.
Framkvæmdasjóður fatlaðra
fjármagnar allar framkvæmdir í
þágu fatlaðs fólks. Umsóknir um
fjármagn úr sjóðnum nema nú um
200 milljónum. en samkvæmt lög-
um um málefni fatlaðra hefði sjóð-
urinn átt að hafa til ráðstöfunar
um 130 milljónir á þessu ári. en
fjármagn til allra fjárfestingasjóða
hefur verið skorið mjög niður sl.
tvö ár.
40-50% áriö 1984. Útboðs-
markaðurinn cr talinn eðlilegur,
þegar verktakar fá hæfilegt
gjald fyrir verk sín, m.a. með
hliðsjón af útlögðum kostnaði,
fyrningu tækja og ágóða.
Þetta er meðal þeirra niður-
staðna, sem komist var að á
ráðstefnu Verktakasambands
íslands um efnið „val verktaka
- lág tilboð", sem haldin var
þann 22. janúar síðastliðin.
Ráðstefnuna sátu rúmlega 160
manns, sem tengjast verktaka-
iðnaði á einn eða annan hátt.
Flutt voru fjölmörg framsöguer-
indi. auk þess. sem fjallað var
um einstaka atriði í umræðu-
hópunt.
Það kom einnig fram á ráð-
stefnunni, aö meðal þeirra or-
saka, sem talið er að geti leitt til
lágra tilboða, séu of íhaldssam-
ar kosntaðaráætlanir, offram-
boð á verktökum og vélum, svo
og eðliegar tækniframfarir,
o.s.frv. Þá komst meirihluti ráð-
stefnugesta að þeirri niður-
stöðu, að ekki bæri að löggilda
verktaka. né heldur vildu menn,
að sérstök lög væru sett um
verktakastarfsemi.
Ráðstefnugestir töldu
jafnframt, að eitt af grundvall-
aratriðum vel heppnaðra verka
væru vönduð útboðsgögn og
eftirlit. Hagur væri að því að
staðla útboðsgögn eins og kost-
ur er.
'
' : 4
. .WkW* ■> 1
' lf5C
Haukur Böðvarsson ÍS 847 hið nýja stálskip Ísfírðinga kemur í heimahöfn 30. jan.
Jóhannes Nordal,
Seðlabankastjóra:
Hvað finnst þér um hugmynd
Alberts Guðmundssonar, fjár-
málaráðherra, um að sameina
Seðlabanka og Landsbanka?
■ „Ég get nú ekki annað sagt
cn að það var rætt um það með
hléurn í fjörtíu ar, frá 1920 til
1960, hvort það væri skynsam-
lcgt, meðal annars með tilliti til
smæðar landsins, að liafa Seðla-
banka og aðalviðskiptahanka
landsins áfram í sömu stofnun,
eins og þá var. Menn greindi á
um hvort það væri hagkvæmt
að sameina þessi tvö hlutvcrk í
sömu stofnun.
Niðurstaðan varð sú, að það
var endanlega ákveöiö aö skilja
viðskiptabankastarfsemina og
Seðlabankastarfsemina að. Var
m.a. byggt á reynslu annarra
þjóða, scm svo til allar höföu þá
skiliö þarna á ntilli. Þetta var þá
einróma samþykkt á Alþingi, og
kom ekki fram nein rödd á
sínum tíma á móti þessu.
Og ég held nú að ekkert hafi
síðan komið fram sem bendi til
þcss aö það sé heppilcgt að
Scðlabankinn sé um leið stærsti
viðskiptabanki landsins."
- Stangast ekki einmitt á
þessi hlutverk Seðlabanka og
viðskiptabanka?
„Jú, mjög verulega. Ég tel að
það sé afar erfitt að samræma
þetta tvennt.
Og finnist mönnum Seðlabank-
inn fyrirferðamikill í landinu
núna, þá veit ég ckki hvað
mcnn segðu ef hann væri um
leið stærsti viðskiptabankinn."
isfirðingar fá nýtt stálskip
búið fullkomnum veiðiútbúnaði
■ Stálskipið Haukur Böðvars-
son 1S 847 var afhent eiganda
sínum, Þorsteini hf. ísafírði, í
Skipasmiðjunni Herði hf. i
Njarðvík í lok janúar. Skipið
kom til ísafjarðar 30. jan. sl.
Skipið er mælt 57 tonn en er
mun stærra hvað tæknilegan
útbúnað snertir. Kaupverö er
um 45 milljónir kr. Þctta skip er
mjög tæknilega fullkomið og er
ekki talið standa skuttogurum
hérlendis að baki í þeim efnum.
I því er m.a. „autotroll" en það
er útbúnaður sem stillir saman
lengd togvíra meðan togað er
þannig að trollið helst rétt í sjó
þó að skipið beygi eða togi í
miklum straumi.
3-4 menn verða í áhöfn til að
byrja með á meðan það er á
rækjuveiðum en fjölgar síðan í 6
þegar farið verður á þorsk.
Galli á fjársöfnun MR-inga
■ Nú stendur yfir fjár-
söfnun meðal gamalla stú-
denta Menntaskólans í
Reykjavík . Það er Skóla-
félag MR sem stendur fyr-
ir söfnuninni og er hún til
að fjármagna viðgcrðir á
Selinu, sem nú er að
nálgast fimmtugsaldurinn
og mun vera í slæmu
ástandi.
Voru gömlum nemend-
um sendir gíróseðlar með
ósk um framlag en þau
mistök urðu við tölvu-
keyrslu um 400 seðla að
ekki voru prentaðar allar
þær upplýsingar sem
nauðsynlegar eru til að
seðlarnir þjóni hlutverki
sínu.
Það sem á vantar er að
í boxið merkt „stofnun og
Hb“ á að koma 0900-26,
og í boxið merkt „við-
skiptastofnun viðtak-
enda" á að koma: Póst-
gíró, Ármúla 6,