NT - 14.02.1985, Page 4

NT - 14.02.1985, Page 4
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 2. umferð afmælismóts Skáksambandsins: Larsen heldur uppi fjörinu Skák ■ Það er til nokkurs að vinna að ná toppsæti á afmælismóti Skáksantbands íslands. Veitt eru 5 verðlaun. I. verðlaun eru 2500 dollarar eða um 105 þús- und íslenskar krónur. 2. verð- laun cru 1800 dollarar, ca. 75000 þúsund krónur, 3. verð- laun 12(X) dollarar eða 50 þús- und krónur, 4. verðlaun 800 dollarar, tæpar 35 þúsund krónur og 5. verðlaun 600 dollarar eða 25 þúsund krónur. En Skáksambandið þarf að leggja út fé fyrir meiru en verðlaununum. Nútíma skák- menn á heimsmælikvarða taka sitt fyrir að taka þátt í skák- mótum. Skáksambandið þarf að leggja út dagpeninga, kosta fæði og uppihald svo og ferðir. „Þetta er milljónafyrirtæki," sagði Þorsteinn Þorsteinsson Skáksambandsforseti við blaðamann NT í gær, og hann sagði að engan veginn væri séð fyrir hvernig sambandið færi út úr mótinu fjárhagslega. Það verður að treysta á auglýsinga- tekjur, svo og aðgangseyri. Áhorfendur greiða kr. I50 fyr- ir hverja umferð, sent reyndar er ekki nema andvirði bíó- miða. Áhorfendur í gær voru frekar fáir framan af en fjölg- aði eftir því sem á leið. Umferðin í gær gaf lítið til kynna um það hverjir munu koma til með að berjast um efstu sætin. Enginn skcr sig úr, nema Larsen, sem sker sig úr hvað varðar frumlcga og oft glæfralega taflmennsku, sem fáir eru tilbúnir að spá að tryggi honum verulega góöan árangur í vinningum talið. Hinu er ekki að neita. að það má nokkurn veginn bóka skeinmtilcgar baráttuskákir þegar hann er annars vegar. Skak hans viö Helga Ólafsson úr l. umferð fór aftur í bið í gær og eru líklegustu úrslitin jafntefli, þótt Helgi sé tveim peðum yfir. skAksambano ARÞí Biðstaða í skák Helga og Larsens, en hún fór aftur í bið í gær. Helgi hefur hvítt. i gærkvöldi öttu þeir saman hestum sínum Larsen og Margeir. Þeir hafa tvisvar mæst áður við skákborðið og hefur Margeir farið með sigur af hólmi í bæði skiptin. Lengi vel töldu menn að Margeir myndi bæta við þriðja sigrinum yfir hinum djarfa danska stór- meistara, en einhvers staðar rann frumkvæði hans út í sand- inn og Ijóst er að biðstaðan er Dananum fremur í hag og flestir áhorfendur spáðu hon- um sigri, þegar skákin fór í bið. Boris Spasský sýndi nú á sér klærnar og vann heimsmeist- ara unglinga, Curt Hansen. Þar mcð hefur hann náð efsta sætinu ásamt Hollendingnum Van der Wiel, sem gerði jafn- tefli í gærkvöldi við Jón L. Árnason. Sá sem þetta ritar fylgdist ekki grannt með þeirri skák nema hvað honum sýndist á tímabili að staða Jóns væri orðin svo þröng að hann gæti sig varla hreyft. Kannske var það misskilningur en svo mikið er víst, að Jón rétti úr kútnum og náði gagnfærum sem leiddu til að meistararnir þráléku. Það blés heldur ekki byrlega fyrir Guðmundi Sigurjónssyni sem hafði svart gegn Rússan- um riðvaxna, Jusupov. Guð- mundur hafði greinilega lakari stöðu lengi vel og eyddi mikl- um tíma en undir lokin bætti hann stöðu sína. Skákin fór í bið og er erfitt að meta hana segja sérfræðingar. Flestir hölluðust að jafntefli, þótt veikleikarnir séu greinilega ennþá Guömundar ntegin. Þá er komið að tveim fremur rólegum jafnteflisskákum, milli Horts og Jóhanns Hjart- arsonar, sem.sömdu snemma á frekar lítt teflda stöðu, og Karls Þorsteins og Helga Ólafssonar sem sömdu einnig á stöðu, þar sem þeir höfðu jafnmörg peð og hvor um sig hrók og riddara. Lítið er hægt að segja um stöðuna vegna fjölda bið- skáka. Ljóst er þó að Spasský og Van der Wiel eru efstir með 1 'A vinning hvor, en Helgi Ólafsson og Jusupov eiga von um að blanda sér í félagsskap- inn. Jóhann Hjartarson, Karl Þorsteins og Curt Hansen hafa einn vinning. Hvítt: Larsen Svart: Margeir Pétursson 1. Rf3 Kf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. d4 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3 1)6 8. cxd5 Rxd5 9. Bxe7 Dxe7 10. Rxd5 exd5 11. Be2 Be6 12. 0-0 Rd7 13. Da4 c5 14. Ilfdl Hfc8 15. Rel c4 16. b3 Rf6 17. Bf3 Re4 18. Bxe4 Bd7 19. Da6 Dxe4 20. Hdcl b5 21. Da5 a6 22. Hc3 Hc6 23. bxc4 dxc4 24. D De7 25. a3 He6 26. Rc2 Hg6 27. Hfl h5 28. HÍ2 h4 29. e4 He8 (Hér töldu menn í skýringa- salnum að Margc-ir léki of rólega og töldu f5 rétta leik- inn.) 30. He3 Dd6 31. Dd2 Dc7 32. f4 Hg4 33. e5 Bf5 34. d5 Bxc2 35. Dxc2 Dc5 36. De2 c3 37. Hxc3 Hxg2t 38. Kxg2 Dxc3 39. HD Dc8 40. f5 Dc5 41. De4 Hvítt: Van der Wiel 30. Dxc6 Dd7 Svart: Jón L. Árnason 31. Ba4 Dxc6 1. e4 c5 32. Bxc6 He7 2. RD d6 33. Hxd6 Be6 3. d4 cxd4 34. Ba5 Bxc4 4. Rxd4 Rf6 35. Hxf6 He6 5. Rc3 Rc6 36. Hxe6 Bxe6 6. Bg5 e6 37. a4 Bb3 7. Dd2 Be7 38. Kfl Bd6 8. 0-0-0 0-0 39. Ke2 Kf8 9. Rb3 a5 40. Kd2 Bc4 10. a3 h6 11. Bxf6 Bxf6 Hér fór skákin í bið. Margeir hugsaði sig um í hálfan tíma áður en hann lék biðleik. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 1 Karl Þorsteins • V2 1/2 2 Helgi Ólafsson '/2 • bið 3 MargeirPétursson • 1/2 bið 4 Curt Hansen • 1/2 0 5 Guðmundur Sigurjónsson • 0 bið 6 Jón L. Árnason • fr. 1/2 7 V. Hort fr. • 1/2 8 VanderWiel 1 1/2 • 9 Jusupov 1/2 bið • 10 B.Spasský 1/2 1 • 11 Bent Larsen bið bið • 12 Jóhann Hjartarson 'A '/2 • 12. Dxd6 Bxc3 13. Dxd8 Bxb2f 14. Kxb2 Hxd8 15. Hxd8t Rxd8 16. Bb5 Kf8 17. Hdl Ke7 18. Rc5 e5 19. Ra4 Be6 20. Rb6 Hb8 21. c4 Rc6 22. Bxc6 bxc6 23. c5 Hf8 24. Hd6 f5 25. Hxc6 fxe4 26. Hc7t Kd8 27. Hxg7 Hxf2t 28. Kc3 Hfl 29. Kd2 Hf2t 30. Kc3 Hfl ...og hér sömdu keppendur um jafntefli. Hvítt: Jusupov Svart: Guðmundur Sigurjóns- son 1. d4 Rf6 2. RD e6 3. e3 c5 4. Bd3 Rc6 5. 0-0 b6 6. b3 Bb7 7. Bb2 Be7 8. Rbd2 0-0 9. a3 Hc8 10. De2 He8 11. Hfdl Bf8 12. dxc5 bxc5 13. Rg5 eS 14. c4 h6 15. Rge4 Rxe4 16. Bxe4 Dc7 17. Dg4 Hb8 18. Bd5 <16 19. Re4 Kh8 20. Rc3 a6 21. DD Kg8 22. Habl Ra5 23. Bal Bc8 24. Be4 Hxb3 25. Rd5 Dd8 26. Hxb3 Rxb3 27. Bc3 Ra5 28. Bc2 Rc6 29. Rf6t gxf6 ...hér fór skákin í bið. Fræði- mennirnir töldu stöðuna frem- ur jafnteflislega, þótt staða Guðmundar sé ívið veikari. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: V. Hort 1. e4 e5 2. RD Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. a4 Bb7 9. d3 0-0 10. Rc3 b4 11. Re2 Hb8 12. a5 Bc8 13. Rg3 Be6 14. Bc4 Dc8 15. h3 He8 16. Be3 Bf8 17. Rd2 Rd7 18. c3 Bxc4 19. jafntefli

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.