NT - 14.02.1985, Side 7

NT - 14.02.1985, Side 7
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 7 ■ Engin sérstök samþykkt hefur verið gert í þá átt að lánveitingar Stofnlánadeildar miðist sérstaklega við þá stöðu sem nú er í íslenskum landbúnaði og allra síst hafa stjórn- völd séð ástæðu til að gera Stofnlánadeildina þannig í stakk búna að hún geti í raun og veru tekist á við ný og brýn verkefni. né öðrum greinum atvinnulífs- ins. Vandamálin snéru miklu rneira að tæknilegum atriðum, verðbólgan og takmarkalaus markaður sáu um hitt. Allt er þetta breytt núna. Erlendir markaðir fyrir kjöt og mjólkurafurðir hafa brugðist. lánsfé ber nú raunvexti, opin- ber stuðningur og opinber skilningur á málefnum land- búnaðarins fer þverrandi og allt þetta gerir það að verkum að samdráttur framleiðslunnar er talinn nauðsynlegur. Vanda- mál bænda eru nú miklu frem- ur rekstrarlegs eða hagræns eðlis en tæknilegs. Peir þurfa í síauknum mæli leiðbeingar um búreikninga. rekstraráætlanir, fjárfestingar, greiðsluáætlanir o.fl. þess háttar, þó leiðbein- ingar með hefðbundnum hætti verði að sjálfsögðu að halda áfram. Nú má spyrja hvort leiðbein- ingaþjónustan sé þannig í stakk búin að hún geti sinnt þessum nýju og breyttu kröfum. Ég veit ekki hvort hægt er að svara þeirri spurn- ingu afdráttarlaust, en ég held að segja megi að svo sé varla, a.m.k. ekki nægjanlega vel. Má í því sambandi nefna nokk- ur atriði: I fyrsta lagi eru ráðunautar almennt ekki menntaðir í rekstrarfræðum að því marki að þeir geti sinnt slíkum leið- beiningum svo fullnægjandi sé. í öðru lagi vantar mikið upp á að leiðbeingaþjónustan sé búin þeim tækjabúnaði og þeirri starfsaðstöðu sem nauð- synleg er. í þriðja lagi hefur of lítil áhersla verið lög á leiðbeining- ar í nýjum búgreinum sem ætlað var að koma í stað sam- dráttar í hefðbundnum grein- um. Ýmsum þykir sem leiðbein- ingaþjónustan með Búnaðarfé- lag íslands í fylkingarbrjósti hafi verið lengi að taka við sér og ég hygg að nokkuð sé til í því. Það er tímabært að leið- beiningaþjónustan verði tekin til endurskoðunar og með það fyrir augum að hún verði gerð skilvirkari. Skipulag hennar byggi á forsendum sem hafa breyst og ekkert varir að eilífu. Lokaorð Hér að framan hef ég í stuttu máli rakið þá stefnu- breytingu sem gerð var í fram- leiðslu búvara 1979 og hvernig brugðist hefur verið við henni á hinum ýmsu sviðum landbún- aðarins. Ég held að flestir geti verið sammála um að „kerfið" hafi í mörgurn, alltof mörgum, til- fellum ekki brugðið við sem skyldi. Ég held líka að landbún- aðurinn sé enn mitt inni á breytingaskeiði og að mikil- ■ vægt sé að hann komi sent sterkastur út úr því gagnvart þjóðfélaginu í lieild. A þ\í veltur í raun framtíð landbún- aðarins sern öflugs atvinnuveg- ar sem keppt getur við annað atvinnulíf um vinnuafl og veitt þeim sem við hann starfa sam- bærileg kjör og aðrir atvinnu- vegir gera. Til að þetta geti orðið er nauðsynlegt að horfst sé mjög ákveðið í augu við þann vanda sem við er að eiga. Það er Ijóst, að ekki eru við núverandi að- stæður möguleikar á að greiða öllum þeim sent hefðbundna búvöruframleiðslu stunda þau laun né veita þeim þau kjör sem viðunandi geta talist. Annað hvort fækkar bændum við þessa framieiðslu verulega eða þeir fara í auknum mæli að stunda aðra atvinnu með bú- skapnum. Spurningin er bara hvort þeir eiga almennt kost á nokkurri ánnarri vinnu og hvort þá sé um nokkuð annað að ræða en að ganga frá eign- um og atvinnu og setjast að á mölinni. Ef koma á í veg fyrir þá þróun, er nauðsynlegt að hefja markvissari nýsköpun at- vinnutækifæra í sveitum og efla þá kosti sem vænlegir eru til vaxtar. Fjármagni þarf að beina í auknum mæli til nýrra búgreina en gæta þess þó jafn- framt að eðlileg endurnýjun geti átt sér stað í hinum hefð- bundnu. Styrki ogframlögsem beinlínis ganga í berhögg viö tilgang framleiðslustjórnunar ber að afnema og bcina því fjármagni til nýsköpunar. Ég tel að alltof stór hluti „kerfisins" hafi nýtt illa þann tíma sem hefur verið til um- þóttunar og nánast hjakki í sama farinu. Á þessu þarf að verða breyting. Stjórnvöld verða að vera reiðubúin til að marka ákveðna stefnu í at- vinnumálum og þ.m.t. stefnu í málefnum landbúnaðarins. Þau verða að hafa þor til að framfylgja þeirri stefnu sem mörkuð er og hinir ýmsu hlutar landbúnaðargeirans verða að haga starfsemi sinni í samræmi við þá stefnu sem ríkir á hverj- um tíma og vera reiðubúnir til að takast á við sífellt ný og breytileg verkefni. Ef þaðerekkigert, þáblasir við stöðnun og stöðnun fylgir hrörnun. Það er því landbún- aðinum lífsnauðsyn að vera sífellt í sókn og hann verður að sækja þangað sem eitthvað er að sækja. ■ Það liggur merkilega vel við okkur að fást við hárfína og flókna hluti. menn í raungreinum fást ekki til kennslu. Enda er það svo hjá okkur að hlutfallslega fáir leggja nú upp í háskólanám í raungreinum, miðað við það sem gerist hjá öðrum „topp- þjóðum". Ef grundvöllurinn er góður Skilaboðin eru sem sagt þessi. Ríkisstjórnin ætti að setja sínar 500 milljónir í það að bæta kjör kennara. Tryggja NT-mynd: Ari. það að okkar hæfasta fólk fáist til að leiðbeina uppvaxandi æskulýð og skapa því góða aðstöðu til þess. Því að ef grundvöllurinn er góður er allt gott, ef hann er slæmur þá hrynur allt. En þetta heitir að hugsa fram í tímann og er fáum gefið. Þó hefur verk- fræðingurinn á stól forsætis- ráðherra sýnt að honum er ekki alls varnað í þeim efnum. Þessi indæla tíð Undanfarnar vikur og mán- uði hafa menn talað um kosn- ingar með sama öryggi og þeir tala um vorkomuna og breytir í sjálfu sér litlu þó að þeir Albert og Steingrimur hafi í varnarskyni verið eins og ný- trúlofaðir í áður umtöluðum sjónvarpsþætti. En núerannar þáttur kominn í spilið sem óneitanlega veröur að taka með íreikninginn. Þaðerþetta dæmalaust góöa veður. Efvor- ið verður jafngott. þá nenna menn ekkert út í kosningar. Það er vonlaust mál á íslandi að ná upp baráttustemmningu þegar veðrið er gott. Áfram- haldandi gott veður kemur sér sem sagt illa fyrir Jón Baldvin og hina valdalausu forystu í Sjálfstæðisflokknum, en vel fyrir flesta aðra. Og þeir sem eiga víxilmál og annað slíkt í dómskerfinu geta andað léttar. í svona góðri tíð ganga öll slík mál hægt. Kerfið sefur. Baldur Kristjánsson. Verð i lausasölu 30 kr. og 35 kr. um helgar. Áskrift 330 kr. Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Magnús Ólafsson (ábm). Markaösstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaösstj.: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guöbjörnsson Skrifstofur: Siöumúli 15, Reykjavik. Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsimar: 686387 og 686306 f tilefni skákmóts ■ Um þessar mundir flykkjast ungir sem aldnir Reykvíkingar á Hótel Lofteiðir, þar sem afmæl- ismót Skáksambands íslands er hafið. Enn einu sinni sannast að íslendingar líta á skákmót, þar sem afburðamenn etja saman kappi,sem menn- ingarviðburð í fremstu röð. Engin íþrótt nýtur jafn almennrar virðingar íslensku þjóðarinnar. Sú staðreynd ásérlanga sögu, sem hefst ekki með núlifandi afreksmönnum okkar. Á síðustu öld varð skákkunnátta íslendinga til þess að vekja athygli á menningu þeirra langt út fyrir landsteinana. Heimsþekktur skákmeistari og málvísindamaður.Daniel Willard Fiske, heillað- ist svo af skákhefð íslendinga að hann skrifaði sögu íslenskrar skáklistar á ensku. Hann stofnaði síðar íslenskt bókasafn við háskólann í íþöku, þar sem nú er að finna stærsta safn íslenskra bóka á erlendri grund. Á þessari öld hefur tvennt einkum orðið til þess að efla almennan áhuga á þessari göfugu íþrótt. Annað var glæsilegur ferill Friðriks Ólafssonar, sem um árabil var í hópi sterkustu skákmanna heims. Hitt er einvígi þeirra Boris Spasský og Roberts Fischer um heimsmeistara- titilinn sem háð var í Laugardalshöllinni sumarið 1972. Sá viðburður fæddi e.t.v. af sér íslenska skákmeistara sem nú bera enga minnimáttar- kennd gagnvart heimsmeistaranum fyrrverandi. Sannleikurin er sá að Friðrik Ölafsson og arftakar hans á sviði skáklistarinnar hafa e.t.v. kennt íslendingum stærri og þarfari lexíu, en menn skyldu ætla í fljótu bragði. Að einstakl- -I ingurinn verður ekki metinn eftir stærð þeirrar þjóðar sem hann tilheyrir. Skákmeistarar okkar ganga á hólm við fremstu menn heimsins á sínu sviði án minnimáttarkenndar, eða þess innan- tóma stærilætis sem stundum sprettur upp af minnimáttarkenndinni. Óskandi væri að þetta viðhorf mótaði öll samskipti íslendinga við aðrar þjóðir og stærri, hvort heldur sem er á sviði menningar, viðskipta, eða stjórnmála. Við segjum um hina erlendu gesti Skáksam- bandsins að þeir séu gamlir kunningjar okkar. Við höfum fylgst með þeim sumum í keppni hérlendis áður og öðrum höfum við fylgst með úr fjarlægð. Fegar öllu er á botninn hvolft kann það að vera meira en innantóm orð að drengileg keppni stuðli að betri og auðugri kynnum þjóða á milli sem síst er vanþörf á í dag. Gens una sumus. Við erum ein þjóð. Þannig hljóða einkunnarorð Alþjóðaskáksambandsins. Von- andi verður það að áhrínsorðum, þótt stundum verði róstusamt í skákheiminum eins og annars staðar. Við óskum Skáksambandi íslands til hamingju með afmælið og mótið og bjóðum erlenda gesti okkar velkomna. Skáksambandinu óskum við góðs gengis í því starfi að efla skákíþróttina, standa að baki afreksmanna og hlú að því mikilvæga uppeldisstarfi, sem það hefur staðið f að.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.