NT - 14.02.1985, Page 8

NT - 14.02.1985, Page 8
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 ur hafí Le: Ul ir it >r ir \r i - þá fækkar séríslenskum drykkjufyrirbrigðum ■ „íslendingur“ skrifar: „Ekki alls fyrir löngu skrif- aði ég lesendadálki NT og ræddi um „Ríkin" á íslandi. Þau eru, eins og alþjóð veit sárafá, þrjú í Reykjavík, ekk- ert í Kópavogi, ekkert í Garða- hæ, ekkert í Hafnarfirði, og lengi mætti þannig telja áfram. Örfáum „Ríkjurn" er svo drit- að niður um landið, einu í hverjum landshluta, á Isafirði, Akureyri, Seyðisfirði, Selfossi, Keflavík og í Vestmannaeyj- um. Áður en lengra cr haldið er rétt aö geta þess að hér er ekki verið að tala um að skipta íslandi upp í mörg sjálfstæð ríki, heldur er veriö að tala um áfengisútsölur. Og þegar manni verður á að minnast á áfengisútsölur standa upp svo og svo margir spekingar og postular sem telja það skyldu sína að hafa vit fyrir öðrum, sjálfsagt vegna þess að þeir hafa ekki þörf fyrir allt sitt vit sjálfir. Pað má ekki fjölga áfengisútsölum, þó í slíku fælist ómæld hagræðing og orkusparnaður, því „fólk á að hafa fyrir því að ná sér í brcnnivín". Og röksemdir þessara sömu vitringa eru á þá lund að ef bjór væri seldur á íslandi ykist drykkjan enn. Skamrnt er hugsað. Flestir eru þessir áfengisvarnapostul- ar aldir upp í því að óttast áfengi eins og pcstina, og vita lítið um hvað er að ræða. Og vandanrálin skapast ekki af of mikilli drykkju hér á landi, heldur vegna of mikillar drykkju á of skömmum tíma. Enda alíslenskt og grænlenskt fyrirbæri að ofurölva menn liggi eða veltist um í ælu sinni. IJað ná allir í þrennivín á ís- landi sem hafa hug á því. Og það kostar mikla fyrirhöfn og peninga scnr fara ekki bara í áfengiskaup, heldur flutnings- kostnað o.s.frv. Ef áfengis- útsölum yrði fjölgað mundi frunrskógarvandamálum í áfengisverslunum fækka. Og utanbæjarmcnn eiga ekki neinn rétt á að troða á Reyk- víkingum með aukinni umferð og bægslagangi, til að komast í Ríkið-hafandi greitt atkvæði gegn slíkum stofnunum í heimabæjum sínum. Leyfum bjórinn. Þá drekka fyllibytturnar, og krakkarnir sem eru að byrja að drekka, Irvort sem bjór er eða ekki, bjór í staöinn fyrir Vodka eða Brennivín. Þá fækkar „sérís- lenskum og grænlenskum drykkjufyrirbrigðum", sem áður voru nefnd. Fólk á rétt á því að ráða því sjálft, þegar það hefur náð lögaldri, hvaö það lætur ofan í sig, en ekki einhvcrjirpostular með vit fyrir sig og alla hina. Það er nefnilega á hreinu að áfengi er í landinu, og verður í landinu. Og fólk lærirekki að umgangast vín á réttan hátt ef það sér bara fyrir sér boð og bönn, sem virðast sett af for- dómafólki. Fólk á rétt á að ráða því sjálft, hvaðþaðlæturofanísig. Endursýnið teiknimyndir ■ Núíhaustbættisjónvarpið stórlega við það efni sem er á boðstólum fyrir börn, en lengi' getur gott batnað. Mér finnst nefnilega, eins og mörgum öðrum að hægt væri að endur- sýna margar skemmtilegar teiknimyndir eins og Jóga björn, Bleika Pardusinn, og Fred Flinstone. Þessir þættir voru geysilega vinsælir hjá börnum og ungl- ingum og meira að segja höfðu margir fullorðnir gaman af þeim. Ég vona að sjónvarpið taki þetta til athugunar. Með kærri kveðju, S.Á. Hægfara dauði ■ Grein með þessari fyrir- sögn birtist í NT 18. jan. s.l. Þar er maður að skrifa um ellilífeyri sem móðir lians fær, - tæpar 12 þús. kr. á mánuði. Segir hann að þrátt fyrir að hún búi í eigin íbúð, dugi tekjurnar ekki til lágmarks- framfærslu. Ég get ekki trúað því að konan geti ekki lifað af þessu. Ég hef talað við margt fólk sem er ánægt með ellilífeyrinn og er ég ein af þeim. Þó fæ ég ekki jafn mikið og áðurnefnd kona. En það heyrist nú síður í þeim sem sem ánægðir eru, en hinum sem alltaf eru að kvarta. Ekki veit ég betur en ellilíf- eyrisþegar fái afslátt af lyfjum. Mér finnst vera gert svo mikið fyrir gamla fólkið. Mörg dval- arheimili hafa risið, þar sem mjög vel er hlúð að því. Og öll orð um það hvort ráðherra ætli að fækka fólkinu með hægfara dauða og annað álíka orðafar, er hreinn viðbjóður. Þá langar mig til að spyrja, hvernig á því stendur að þegar áfengi og tóbak hækkar í verði, er það tekið inn í vísitöluna. Tæplega getur það talist til lífsnauðsynja. Kona af Suðurlandi. Fyrirlestrarkvöld ■ Landfræðifélagið boðar til fyrirlestrarkvölds 14. febr. n.k. Þar mun dr. Eggert Lárusson flytja fyrirlestur um efnið: „Sjávarstaða og jöklabreyt- ingar í lok síðasta jökulskeiðs í Dýrafirði og norðanverðum Arnarfirði og hámarks út- breiðsla jökla á Vestfjörðum." Fyrirlesturinn hefst kl. 20:30 í stofu 103 í Lögbergi Háskóla íslands. Stjórnin Forystumenn í auglýsingum ■ Ósköp finnst mér leggjast lítið fyrir svokallaða forystu- menn þjóðarinnar - stjórn- málamenn og andans fólk - að láta hafa sig út í auglýsinga- starfsemi eins og sjá mátti dæmi um á útsíðum blaðanna um síðustu helgi. Það er vitan- lega allt í lagi að opna allra handa leiktækjasali en forráða- • menn þeirra ættu sjálfir að hafa fyrir að auglýsa þá. Ég held að „forystumennirnir" gefi nógu oft færi á að láta hafa sig að háði þótt þeir fari ekki í auglýsingabransann líka. Einn hneykslaður. Skrifíð til: NT Lesendasíðan Síðumúla 15108 Reykjavík -vf ■■ eda hríngið í síma 686300 millikl. 13og 14 Hægfara dauði

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.