NT

Ulloq

NT - 14.02.1985, Qupperneq 11

NT - 14.02.1985, Qupperneq 11
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 11 Vettvangur Auðunn Bragi Sveinsson: I minningu 1. febrúar ■ Árið l932vorustofnuðsam- tök nemenda í skólum landsins, er höfðu það að markmiði að efla hindindi á áfenga drykki. Mun hreyfingin hafa átt upptök sín í Mcnntaskólanum í Reykja- vík. Drykkjuskapur hafði verið talsverður þar og víðar í skólum fjölbýlisins. Blöskraöi mörgum slíkt. ekki síst skólastjórum framhaldsskólanna. Bindindisfc- lög voru stofnuð í flestum. ef ekki öllum skólum. öðrum en barnaskólum. Mynduöu félög þessi samband. sem nefndist Samband bindindisl'élaga í skólum, skammstafað S.B.S. Málgagn átti samband þetta. er hét Hvöt. Rituðu í það margir ritfærir menn. bæði nemendur skólanna og aðrir. sem leggja vildu bindindismálum lið sitt. Mér cr það minnisstætt frá mín- um skólaárum í höfuðstaðnum, er við nemendur Kennaraskól- ans héldum í nokkra framhalds- skóla á höfuðborgarsvæðinu og töluðum um bindindismál við nemendur. Ég fór ásamt öðrum suður í Fiensborgarskóla í Hafnarfiröi. Einnig dreifðum við Hvöt í skóla og í bókaversl- anir. Var ég í ritnefnd blaðsins eitt ár, ásamt tveimur öðrum. Mikið starf fylgdi þessari blaða- mennsku, en við vorum ungir og horfðum ekki í það að leggja nokkuö á okkur, vitanlega án nokkurs endurgjalds. Margir þeir. sem stóðu að sambandi bindindisfélaga í skólum meðan það var og hét, hafa síðan orðið Núvirðistsemvíman sé lausnarorðið. Nú er ráð að setja upp sem flestar ölknæpur,tilþessað flestir komist í vímu. Hætt er við að á því græði aðeins þeir, sem versla með slíkan varning. þjóökunnir og getið sér gott orð á sviði þjóðfélags- og menning- armála. Égnefni hérengin nöfn í því sambandi. Geta þeir. sem þar um vilja fræðast, lesiö Hvöt. málgagn S.B.S. 1. febrúar var viðurkenndur af fræðsluyfirvöldum unt langa hríð sem opinber baráttudagur gegn áfengisnautn. Var heimilt að verja a.m.k. einni kennslu- stund til boðunar bindindis í skólum landsins þennan dag, og er ég vart í vafa um það. aö slíkt muni hafa verið gert svikalaust. Nú þykir ekki taka því að minn- ast á bindindi, það er algjört bannorð. En ég spyr: Er ckki skylt að fræða nemendur í skól- um landsins um áfengi og önnur vínru- og fíkniefni. að ógleymd- unr reykingum? Ég trúi ekki öðru en að slíkt sé.lagaskylda. Nú virðist sem víman sé lausnarorðið. Nú er ráð að setja upp sem flestar ölknæp- ur. til þess að sem flestir komist í vímu. Hætt er við. að á því græði aðeins þeir. sem versla með slíkan varning. Eróhugn- anlegt að frétta af öllum þeim ölknæpum. er spretta upp á höfuðborgarsvæöinu. Þá er víst í ráði, að ríkiö sctji á stofn gífurlega ölgerð, er ætla mcgi að gefi af sér 900 milljónir króna á ári. Já. skárra er þaö! Illt þykir rnér, ef Framsóknar- flokkurinn ætlar að standa að slíkri vitleysu, Mig minnir, að forráðamenn þess flokks fyrr á tíð hafi allir stutt bindindi. Eða hver gerði það ekki, mér'er spurn? í einum af fyrstu árgöngum Hvatar bitist kvæði eftir bóndason vestan úr Önundar- firði, er hét Guðmundur Ingi Kristjánsson. Varð hann síðar kunnur sem eitt listfcngasta skáld þessa lands. Kvæði Guð- mundar Inga bar hcitiö Fyrsti febrúar. Það er hvatningaróð- ur til æskunnar að ánetjast ekki áfengi eöa öðrum víniu- efnum, er gera menn að ánauð- ugum þrælum nautnasýkinnar. Upphafsorð skáldsins eru þessi: Þú ert, fyrsti febrúar... Þetta kvæöisupphaf kom mér í hug, er ég tók að hugleiða fyrsta febrúar, svo og sögu Hans Tók ég mér það bessaleyfi að nota þetta upphaf að mestu óbreytt. Setti aöeins sögnina að vera í þátíð, líkt og hæfir breyttum aðstæðum í þessu efni. Ekki ætla ég mér þá dul, aö mér takist að feta í fótspor Guömundar lnga skálds hvað Ijóðsnilld áhrærir, en lcyfi mér að Ijúka þessum greinarstúf í ntinningu fyrsta febrúar meö eftirfarandi erindi: Þú varst, fyrsti febrúar, forðum einn af heilladögum. Aðall skólaæskunnar undir þínum merkjum var. Nú er fátt til fagnaðar fái ei Bakkuð ráðið högum. Tæla öflin tískunnar, - tíðum hundin engum lögum. Magnús Óskarsson Hvanneyri: Ný útvarpslög ■ Þriðjudaginn, 15. janúar kornu fimm Reykvíkingar fram í sjónvarpsþætti og ræddu um frumvarp til útvarpslaga sem nú liggur fyrir Alþingi. Allir þátt- takendur voru fröðir um út- varpsmál, en ræddu lítið um skiptingu þjóðarinnar í fárra og margra stöðva fólk, sem erfyrir- sjáanleg ef frumvarpið verður að lögum. Þeir sem búa í Reykjavík og nágrenni ættu trú- lega völ á efni frá mörgum hljóövarps- og sjónvarpsstöðv- uni, en aðrir landsmenn nytu aðeins sendinga ríkisútvarpsins. Á Islandi er menningarlíf á mörgum sviðum meö mestum blóma á Reykjavíkursvæðinu. eins og eðlilegt er. Þar eru flestir fræðimenn og atvinnu- listamenn þjóðarinar. Við sem búum utan landnáms Ingólfs höfum ekki aðgang að listum og fræðum þessa fólks til jafns við íbúa höfuðborgarinnar. Allir landsmenn greiða þó, eftir efn- um og ástæðum, verulegar fjár- hæðir til vísinda og lista. Svo er ríkisútvarpinu fyrir að þakka að það hefur fært öllum lands- mönnum afþreyingarefni, fróð- lcik og fagrar listir, sem er m.a. ávöxtun af menningarstarfsemi í Reykjavík. Þetta hefur jafnað aðstöðu landsmanna og stuðlar áreiðanlega að því að viðhalda heilstevptri íslenskri menningu. Það væri ekki ástæða fyrir okkur sent búum utan Reykja- víkur að öfundast yfir væntan- legum stöðvarfjölda í Reykja- vík. ef ekki væri urn leið nær því víst að starfsemi Ríkisútvarps- ins ntinnkaði vegna minni tekna. í athugasemdum við út- varpslagafrumvarpið er yfirlit vfir tekjustofna Ríkisútvarpsins eins og þeir voru 1980. Þá voru auglýsingatekjur 48.2% af tekj- um híjóðvarps og 23,5% af tekjum sjónvarps. Engin veit hvað þessar tekjur rnuni skerð- ast rnikið af völdum einkastöðva. en þær eru ekki mjög lífvænleg- ar ef þær taka ekki fjórðung til helming af núverandi auglýs- ingatekjum Ríkisútvarpsins. í frumvarpinu er að vísu gert ráð fyrir því að taka aftur upp aðflutningsgjöld á hljóð- varps- og sjónvarpstæki sem Ríkisútvarpið fengi til að bæta upp tekjutapiö. í athugasemd- um við lagafrumvarpiðstendur einnig: „Utvarpslaganefnd lít- ur svo á. að Ríkisútvarpið hljóti að mega hækka útvarps- gjald sem nemur tapi auglýs- ingatekna, og þá fyrst og fremst af þeirri ástæðu. að Ríkis- útvarpinu eru lagðar skyldur á herðar umfrani aðrar út- varpsstöðvar sem standa ber við. óháð aðstæðum að þessu leyti". Ef þessar hugmyndir ná fram að ganga á að skattleggja alla landsmenn til að unnt sé að halda uppi „frjálsu" útvarpi í Reykjavík. Það gæti orðið erfitt fyrir þingmenn dreifbýl- isins að skýra fyrir kjósendum af hverju þeir ættu að borga meira en áður fyrir sömu þjón- ustu hljóðvarps og sjónvarps, eða það sem líklegra er fyrir lakari þjónustu. í útvarpslagafrumvarpinu er gert ráð fyrir aö leyfa megi útvarp fyrir almenning á af- mörkuðum svæðum. Þeir sem barist hafa fvrir einkastöðvum tclja að slíkum stöðvum verði komið upp um allt land. Þeir sem búa utan Revkjavíkur og Akureyrar verja litlu fé til Eitt öflugasta vopnið tilaðverjamenningu okkar fyrir þunga útlendrar fjölmiðlunar er gott íslenskt hljóðvarp og sjónvarp, sem allir hafa aðgang að, og sameini þjóðina frekar en að sundra henni. auglýsinga. Það vita þcir sem reynt hafa að gefa út byggða- blöð og hafa orðið að sníkja auglýsingar hjá aðiljum sem ekki hafa áhuga á að auglýsa. Það er því ólíklegt aö unnt væri að halda uppi útvarps- rekstri, sem stæði undir nafni, utan Reykjavíkur og Akureyr- ar. Fimmmenningarnir í sjón- varpsþættinum bentu á að inn- an tíðar muni sjónvarp, sem sent er um gervihnetti koma á skjái þeirra sem þess óska. Undan þessari þróun getum við ekki vikist. Ástæða cr til að óttast áhrif erlends gervi- hnattasjónvarps á menningu lítilla þjóða eins og okkar. Eitt öflugasta vopnið til að verja menningu okkar fyrir þunga útlendrar fjölmiðlunar er gott íslenskt hljóðvarpog sjónvarp, sem allir hafa aðgang að. og sameinaði þjóðina frekar en að sundra henni. Magnús Óskarsson, Hvanneyri. Björg Finarsdóttir. Gott til minnis Björg Finarsdóttir Úr ævi og starfi íslenskra kvenna I Frindi flutt í Ríkisútvarpið veturinn 1983-1984 Bókrún. Revkjavík 1984. ■ Þetta er mikil bók. 4(10 blaðsíður, - og merkileg. Merkileg er hún vegmi þess að hún scgir frá merkilcgu fólki. Þær konur sem Björg hcfur valið sér að segja frá hafa flestar verið brautryðjendur með einum eða öðrum hætti. Segja má að þær hafi ílestar víkkaö landnám kvcnmi í menningarlífi eða athafnalífi. Um flestar þessar konur á það við að ekki eru aðgengilegir ævisöguþættir þeirra endíi þótt margra þeirra sé getið í mann- fræðibókum. Óhætt mun að scgja aö ekkj munu þeir tifar margir scm svo cru vel að sér um íslenska sögu að þeim séu tiltæk öll aöalatriði úr ævisöguþáttum þcssara kvenna. Því munu langflcstir lescndur þessarar bókar finna þar ýmislegt sem þcim er nýtt. Nú Itefur þegar veriö s;igt að vel sé valiö í bókina og cfniö sé gott. En hvernig er þá með það farið? Því er fljótsvarað. Björg hef- ur unniö verk sitt af clju og samviskusemi. Hún hefur kannað tiltækar heimildir, lesið prcntaðar frásagnir og unniö úr þeim. Stundum hefur henni dugað að gera útdrátt úr einni ævisögu cn miklu oftar hefur þurft að leita fanga víðar. Ég get ekki fundiö nema smámuni að þessum frásögn- um. Viðkunnanlegra væri þeg- ar talað er um stjórnmála- skoöanir Þorbjargar Sveins- dóttur að Valtýingar vildu sætta sig við sérstakan íslands- ráðherra sem sæti í Kaup- mannahöfn, af því að þeir töldu líkur til að það næðist fram en heimastjórn alls ekki. Þorlákur Johnsen geröist að vísu templar en ekki var hann lengi virkur í liöi þeirra. Frá- sögn séra Magnúsar í Vallanesi af víndrykkju Þorláks og við- horfum tengdamóður lians falla mæta vel að mynd Kristín- ar í þætti Bjargar. Vel hefði mátt geta þess þegar rætt er urn tengsl Stefan- íu Guðmundsdóttur viö félags- skap templara að hiin var sjálf íélagsmaöur í liði þeirra 1892, fjórum árum áður en hún gift- ist Borgþóri Jósefssyni. Og snemma fór hún að flytja skemmtiatriöi á funtíum templara. Björg Einarsdóttir hefur hér tekið saman rit sem er ágæt lesbók ungu fólki. Hcr er sagt frá konum sem allar voru merkarog sumarsannar hctjur og gott cr að kynnast þeim öllunt. Og hér er sem sagt gctiö um ýntsa merka áfanga í sögunni um framsokn ís- lenskra kvenna til réttinda og áhrifa. Þessi bók á því mörgum fremur erintli viö þjóð sína. Hér er rifjað upp margt sem ekki á að glcymast og ekki má gleymast. H.Kr. Axel Clausen ■ í dag er aldursforseti reykvískra templara borinn til grafar. Sá maður er Axel Clausen. Hann var fæddur 22. apríl 1888 og var því kominn vel á sjöunda ár yfir nírætt er hann lést 5. þ.m. Axel var sonur Holgers Clausens kaupmanna og Guð- rúnar Þorkelsdóttur konu hans. Hann valdi sér ungur verslunar- störf að viðfangsefni og þau urðu ævistarf hans. Axel Clausen gerðist ungur liðsmaður í félagsskap templ- ara. Vera má að um hríð hafi slaknað á þeim tengslum og hann ekki verið virkur í þeirri hreyfingu. Hafi svo verið var það tímabundið aðeins. Kynni mín við Axel urðu svo til öll á síðustu 10 árum. Hann kom oft á stúkufundi og tók þá tíðum til máls. Stundum voru það gamanmál til hressingar því að honum var lagið að rifja upp spaugileg atvik og láta aðra njóta þeirra með sér. Stundum mælti hann fáein hvatningarorð til félaganna. Fannst mér að- dáunarvert hve vel honum fórst það oftlega því að ræður hans voru stuttar og meitlaðar lengstum. Gönilum mönnum hættir þó oft við að verða lang- orðir og endurtaka sig. Hitt undraði mig ekki þó að mikil reynsla langrar ævi gerði honum tiltæk rök bindindis- hreyfingarinnar. Síðast flutti Axel Clausen ræðu á stúkufundi er stúkan Víkingur minntist 80 ára afmæl- is síns 10. desember s.l. Kom mér þá enn í hug hið forn- kveðna: Samur er í þér hugur- inn, fóstri. Hér er horfinn af sjónarsviði eftirminnilegur maður. Hann var einn þeirra sem fæsta eiga, sína líka. Þeir sem starfað hafa meðal reykvískra templara síðustu ár eiga um hann hugþekkar minningar og kveðja hann með virðingu og þökk. H.Kr.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.