NT - 14.02.1985, Page 14

NT - 14.02.1985, Page 14
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 14 Rás 2 kl. 23. Vör, lítið fallegt orð sem þýðir mjög margt Djassað í Djúpinu - bein útsending ■ Hrafnhildur Valbjörnsdóttir er mikil vaxtarræktarkona, enda er hún íslands- meistari í vaxtarrækt. Þar aö auki hefur hún sýnt tilþrif á hvíta tjaldinu, en hún lék eitt aöalhlutverkiú í kvikmvnd Þráins Bertels- sonar, Dalalíf. ■ Þaö yerða yæntanlega Ijúf- ir og góðir tónar sem berast úr útvarpinu um og upp úr mið- nætti. en þá hefst bein útsend- ing, sem kallast ..Djassað í Djúpinu". Hljóöfæraleikarar eru Guðmundur Ingólfsson, Guðmundur Steingrímsson. Tómas Einarsson og Þorlcifur Gíslason. Kynnir er Vernharður Linn- et en umsjón hcfur Ólafur Þórðarson. Útsendingin stcndúr yfir í 45 mínútur. ■ Vernharður Linnet kynnir í bcinni útsendingu á d jassspili í Djúpinu. ■ Bríet Héðinsdóttir hefur gert margar leikgerðir fyrir svið og útvarp, en leikritið sem útvarpað verður í kvöld er fyrsta leikritiö sem hún semur sjálf. Frumflutt fyrsta leikrit Bríetar Héðinsdóttur ■ í kvöld kl. 20.00 verður frumflutt nýtt íslenskt út- varpsleikrit, „Það var haustið sem...". Höfundur þess og leikstjóri er Bríet Héðins- dóttir og er þetta fyrsta leikrit hennar sem flutt er opinber- lega. Hún hefur þó áður sam- ið leikgerðir fyrir svið, þar á meðal upp úr Atómstöðinni eftir Halldór Laxness og Skáí- holti eftir Guðmund Kamban. Jólin I983 flutti út- varpið leikrit Jóhanns Sigur- jónssonar. Mörð Valgarðs- son, sem Bríet bjó til út- varpsflutnings og stjórnaði. Aðalpersóna leikritsins er Stína, sautján ára, sem hefur lagt stund á píanónám. Hún stendur á nokkrum tímamót- um og verður að gera upp hug sinn hvort hún eigi að halda áfram á listabrautinni en foreldrar hennar hafa fremur takmarkaðan skilning á löngun hennar til að verða listamaður. Inn í sögu Stínu fléttast einnig örlög móður- systur hennar Hildar. sem einnig hafði verið efnilegur píanólcikari en orðið að gjalda listina dýru verði. Leikendur eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Guðrún Ás- mundsdóttir, Pétur Einars- son, Guðrún Þ. Stephensen, Edda Þórarinsdóttir og Guð- björg Thoroddsen. Píanóleik annast Anna Þorgrímsdótt- ir. Tæknimenn eru Friðrik Stefánsson og Áslaug Stur- laugsdóttir. ■ Á dagskrá Rásar 2 í kvöld kl. 23.00-24.00 er þáttur, sem kallast Vör. Umsjónarmenn eru Guöni Rúnar Agnarsson og'Vala Haraldsdóttir. Þarsem nafnið á þættinum vakti for- ■ Það eru þau Guöni Rúnar Agnarsson og Vala Haraldsdóttir vitni okkar. báðum viö Guöna semhafaumsjónmeöþættinum VöráRás2íkvöld. Ni-mynd:s»errir Rúnar að segja okkur örlítiö frá þættinum. „Vör; lítið fallegt orð sem þýðir mjög margt. Það er vör í landslaginu; lítil vík. Það er vör á líkama manna. dýra og blónia. Vörereinnigkona. Og engin vör er eins - þaö gildir um þáttinn. í kvöld verður Ólafur Jó- hann Engilbertsson og Clint Eastwood gestir". Þetta eru heldur dularfullar upplýsingar og því ekki annað ráð vænna en að leitgja viö hlustir á Rás 2 kl. 23.00-24.00 í kvöld. ■ Vilhjálmur Svan er fram- kvæmdastjóri unglinga- skcmmtistaöarins Traffic og hefur lengi sýnt áhuga á því að konia lagi á skenuntanahald unglinga. Hver er maðurinn á bak við opinberu myndina? _ í kvöld kl. 21 eru væntanlegir góðir gestir í þátt Ragnheiöar Davíðsdóttur Nú má ég! á Rás 2. Gestirn- ir eru Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, líkamsræktarkona og kvikmyndaleikari, og Vilhjálmur Svan fram- kvæmdastjóri unglingaskemmtistaöarins Traffic. Ragnheiður fær til sín tvo gesti í þáttinn í hverri viku og fá gcstirnir að vclju sér lög. En Ragnheiður segir þetta ckki bara óskalagaþátt gestanna. heldur er tækifærið notað og garnirnár raktar úr gestunum, í góðu hófi þó, en þetta er yfir- leitt þekkt fólk og Ragnheiður reynir að leiða fram aðrar hlið- ar hjá því en þær sem það er þekktast af úr fjölmiðlum. „Þetta cr mest létt spjall. við reynum aö kynna hlustendum aðcins betur „manninn á b;ik viö opinberu mynd- ina." segir hún. Ragnheiður segir þetta hafa tekist Ijómandi vef, fólk sé frjálslegt og afslappað og þaö inyndist góð stemmning. „Þetta er cins og góðra vina fundur," segir Ragnheiður. Þau Vilhjálmurog Hrafnild- ur lifa og hrærast í músík í starfi sínu og verður áreiðan- lega ekki skotaskuld úr því að velja lög, sem falla hlustendum vel í geð. Og þá er ekki síður forvitnilegt að komast aðeins að því hvaða mann þau liafa að geyma, fyrir utan þá mynd, sem hlustendur hafa fcngið af þeim úr fjölmiðlum. Fimmtudagur 14. febrúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir Bæn Á virkum degi. 7.55 Daglegt mál. endurt. þáttur Siguröar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöur- fregnir. Morgunorö - Valdís Magnúsdóttir talar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Pipuhattur galdramannsins" eftir Tove Jansson Ragnheiöur Gyöa Jónsdóttir byrjar lestur þýö- ingar Steinunnar Briem. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. tón- leikar 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.) Tónleikar. 11.00 Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 „Sagt hefur það verið“ Hjálm- ar Árnason og Magnús Gislason sjá um þátt af Suðurnesjum. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Frétttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Sólveig Pálsdóttir. 13.30 Tónleikar. 14.00 „Blessuð skepnan" eftir James Herriot Bryndís Víg- lundsdóttir les þýðingu sína (6). 14.30 Á frívaktinni Póra Marteins- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Partita i c-moll eftir Johann Sebastian Bach. Roberl Aitken og Greta Kraus leika á flautu og sembal. b. Kaprisa eftir Sebastian Bodin- ius. Roberl Aitken leikur á flautu. c. Trompetkonsert í d-moll eftir Tom- maso Albinoni. Maurice André og Marie-Claire Alain leika á trompet og orgel. d. Sónata nr. 5 í B-dúr eftir Georg Friedrich Hándel. Kenneth Sillito og Enska kammer- sveitin leika; Raymond Leppard stj. 17.10 Síðdegisutvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.55 Daglegt mál. SiguröurG.Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Leikrit: „Það var haustið sem...“ eftir Bríeti Héðinsdóttur Leikstjóri: Briet Héöinsdóttir. Leikendur: Sigrún Edda Björns- dóttir, Guörún Ásmundsdóttir, Pét- ur Einarsson, Guörún Þ. Step- hensen, Edda Þórarinsdóttir og Guöbjörg Thoroddsen. Pianóleik- ari Anna Þorgrímsdóttir 21.15 Lýsing frá landsleik íslend- inga og Júgóslava i handknatt- leik. 21.40 „Þegar miðilshæfileikar min- ir komu í ljós“ smásaga eftir Ólaf Hauk Simonarson. Erlingur Gisla- son les. 22.00 Lestur passíusálma (10) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Rósir og rim“ Umsjón: Anna Ólafsdóttir Björnsson. Lesari meö henni: Árni Sigurjónsson. 23.00 Músikvaka Umsjón: Oddur Björnsson. 24.00 „Djassað í Djúpinu" - (Bein útsending) Hljóöfæraleikarar: Guömundur Ina- ólfsson, Gunnlaugur Briem Tómas Einarsson og Þorleifur Gislason. Kynnir: Vernharöur Linnet. Umsjón: Ólafur Þóröarson. 24.45 Dagskrárlok. íkw Fimmtudagur 14. febrúar 10:00-12:00 Morgunþáttur Stjóm- endur: Kristján Sigurjónsson og Sigurður Sverrisson. 14:00-15:00 Dægurflugur Nýjustu dægurlögin. Stjórnandi: Leópold Sveinsson. 15:00-16:00 Ótroðnar slóðir Kristi- leg popptónlist. Stjórnendur: Andri Már Ingólfsson og Halldór Lárus- son. 16:00-17:00 Jazzþáttur Stjórnandi: Vernharöur Linnet. 17:00-18:00 Gullöldin Lög frá 7. áratugnum. Stjórnandi: Guömund- ur Ingi Kristjánsson. HLÉ 20:00-21:00 Vinsældalisti hlust- enda Rásar 2 10 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 21:00-22:00 Nú má ég! Gestir i stúdíói velja lögin. Stjórnandi: Ragnheiður Davíösdóttir. 22:00-23:00 Rökkurtónar Stjórn- andi: Svavar Gests. 23:00-24-00 Vör Stjórnendur: Guöni Rúnar Agnarsson og Vala Har- aldsdóttir Föstudagur 15. febrúar 19.15 Á döfinni Umsjónarmaöur Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 19.25 Krakkarnir í hverfinu 9. Feðg- arnir Kanadískur myndaflokkur i þrettán þáttum, um atvik í lifi nokkurra borgarbarna. Þýöandi Kristrún Þórðardóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 60 ára afmælismót Skák- sambands íslands Skákskýr- ingaþáttur. 20.55 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður: Sigrún Stefánsdóttir. 21.25 Skonrokk Umsjónarmenn: Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.