NT - 14.02.1985, Side 20
Utlönd
Forseti Zambíu:
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 20
Kjötkveðjuhátíð í Ríó
■ Þær voru fáklæddar stúlkurnar á kjötkveðjuhátíúinni í Rio De Janiiro í Brasilíu í gær eins
og þessi mynd ber meö sér. Þótt veörið hér á Islandi hafi verið afhuröagott aö undanförnu er
víst ekki nægjanlega hlýtt til aö fósturlandsins freyjur geti gengiö um í svipuöuni klæöum og
kvnsystur þeirra í Ríó.Simamtnd-POi.FOTO
■ Kenneth Kaunda.
Kvikmyndaleik-
stjórinn Henry
Hathaway látinn
Los Angeles-Reuter
■ Bandaríski kvik-
myndaleikstjórinn Henry
Hathaway lést í fyrradag
86 ára að aldri.
Hathaway leikstýrði
meira en sextíu kvikmynd-
unt um æfina. Strax á
barnsaldri fór hann að
leika í kvikmyndum og
áriö I932 lcikstýrði hann
fyrstu kvikmynd sinni.
Hann leikstýrði kvik-
myndinni „True Grit" sem
John Wayne fékk Óskars-
verölaun fyrir að leika í.
Meðal annarra frægra
mynda, sem hann hefur
leikstýrt má nefna „The
Livesofa Bengal Lancer",
„Rawhide", „The House
on 92nd Strcct" og „Brig-
ham Young".
Hathaway skyldi eftir
sig 53 ára gamla eigin-
konu. Blanche og son.
Fordæmir stefnu USA
í málefnum S-Afríku
lofar stefnu Svía sem banna fjárfestingar þar
Herforingjar hóta byltingu
Montevideo, Uniguav-KeuteT
■ Ríkisstjórn hersins í Uru-
guay fór formlega frá völdum á
þriðjudag, en miklar varúðar-
ráöstafanir eru viðhafðar í land-
inu vegna setningar þings Uru-
guay á morgun. Þingið veröur
hið fyrsta sem kjöriö er í al-
mennum kosningum í 11 ár.
Óeirðalögregla og sérstakar
hersveitir slógu vörð um þing-
húsið og forsetahöllina jiegar
ríkisráðið, sérstök löggjafar-
stofnun hcrsins, samþykkti af-
sögn forsetans Gregorio Alvar-
ez og ráðherra hans.
Ríkisráðið skipaði forseta
hæstaréttar, Rafacl Adieggo, í
embætti forseta til bráöabirgða
en hefur ekki skipaö bráða-
birgðastjórn enn. að sögn em-
bættismanna.
Þrátt fyrir að þingið komi
saman á morgun mun Adieggo
gegna embætti forseta. Frant-
bjóðandi miö- og hægriflokka,
Julio Sanguinetti sver embættis-
eið sem forseti I. mars n.k.
Unt leið og herinn fór form-
lega frá völdum á þriöjudag
hótuðu hershöfðingjar nýrri
herforingjabyltingu ef stjórn
þingsins leiðir stjórnleysi yfir
landið.
„Viö höfum ekki ráðgert bylt-
ingu, og við viljum ekki setja
byltingu á sviö, en ef við neyð-
umst til þess og sömu forsendur
skapast og 1973, þá munum við
ekki liika viö," sagði Hugo
Medina yfirhershöfðingi á
blaðamannafundi.
Herinn hrifsaöi völdin 1973
eftir að hafa brotið skæruliða-
hrcyfinguna Tupamaro á bak
aftur. Hershöfðingjarnir sögðu
þá að landið væri að sökkva í
kviksyndi efnahagslegs og
stjórnmálalegs stjórnleysis.
Aövörun Medina kom fram
aðeins örfáum mínútum eftir að
ríkisráð hersins hafði samþykkt
afsögn forsetans Alvarez og
ríkisstjórnar hans.
Slokkhólmur-Rcutcr
■ Forseti Zambíu, Kenneth
Kaunda, fordæmdi í gær stefnu
Bandaríkjamanna í málefnum
Suður-Afríku og varaöi við að
stefna þeirra gæti leitt til spreng-
ingar sem myndi gera frönsku
byltinguna 1789 að „pikník-
ferð“ í samanburðinum.
Kaunda lauk tveggja daga
opinberri heimsókn í Svíþjóð í
gær, en hann sagði þá á blaða-
mannafundi að aðeins vestræn
ríki og sérstaklega Bandaríkin
gætu komið í veg fyrir hörmu-
lega atburði í Suður-Afríku.
„Beita verður Suður-Afríku
efnahagslegum þvingunum, að
öðrum kosti sýður upp úr innan
tveggja til þriggja ára,“ sagði
Kaunda.
Uruguay:
Þjóðþingið kemur
saman á morgun
Hann lýsti stefnu Bandaríkj-
anna sem þeir kalla „uppbyggi-
leg afskipti" og sagði hana ógn-
vekjandi. Hann lofaði hins veg-
ar stefnu Svía eftir viðræður við
Olof Palme. Svíar hafa bannað
fjárfestingar sænskra aðila í
Suður-Afríku síðan 1979.
Kaunda kemur í dag til Oslo,
en hann verður einnig í opin-
berri heimsókn í Danmörku á
mánudag n.k.
Umsjon: Ragnar Baldursson og Ivar Jónsson
Medina gagnrýndi kröfur um
að pólitískum föngum verði
veitt frelsi, en í landinu eru yfir
300.000 pólitískir fangar. Hann
gagnrýndi einnig hugmyndir um
að ofbeldisverk hersins verði
rannsökuð. Hann sagði: „Ef
veita á föngum frelsi og sakar-
uppgjöf sem hafa á samviskunni
níu til tíu morð þá get ég ekki
séð neina ástæðu til að rannsaka
herinn sérstaklega."
Margir telja að hótun Medina
um herforingjabyltingu sé til að
koma í veg fyrir rannsókn á
ofbeldisverkum hersins síðustu
11 ár.
Ólympíumeistarinn Moses:
Vildi kaupa
vændiskonu
- sem reyndist dulbúin lögreglukona
Los An}>clcs-Kcutcr
■ Lögreglukona sem bjó sig í
gerfi gleðikonu sagði á þriðju-
dag að gull-verðlaunahafinn á
Ólympíuleikunum, Edwin Mos-
es hafi boðið sér ÍOQ dollara
fyrir tvenns konar kynferðisaf-
brot.
Moses sat niðurdreginn og
horfði á Susan Gonzales þegar
hún vitnaöi gegn honum fyrir
dómstóli í Los Angeles.
Moses krefst sýknunar cn
dómur í máli hans gæti hljóðað
upp á allt að sex mánaða fang-
elsi og 1000 dollara sekt.
Lögreglukonan sagði réttin-
unt að hún hafi stillt sér upp á
götuhorni í gerfi vændiskonu og
hafi Moses komið auga á hana
og spurt hvað klukkutíminn
kostaði. Hún Itafði sagt það
vera háð því hvað væri beðið
um. Moses bað um samfarir og
„munnlegt sex" fyrir 100 doll-
ara. Lögreglan handsamaði
Moses síðan þcgar þau voru á
leið til dyngju Gonzales.
Moses hlaut gullverðlaun á
Ólympíuleikununt 1976 og 1980
í 400 metra grindarhlaupi.
■ Edwin Moses (t.h.) kemur hér í réttarsalinn á mánudag s.l.
ásamt verjanda sínum. Hann er ákærður fyrir að hafa viljað kaupa
þjónustu vændiskonu sem reyndist vera dulbúin lögreglukona.
Símamynd-POLFOTO
Kínverjar:
Taka aftur upp
skömmtun á kjöti
■ Kínversk yfirvöld hafa aftur
tekið upp kjötskömmtun í flest-
um helstu borgum í Kína,
þ.á.m. í Peking og Shanghai.
Markntið kjötskömmtunar-
innar er sagt vera að tryggja að
allir fái nóg af kjöti. Skömmtun
á kjöti var afnumin fyrir nokkr-
um árum þegar kjötframleiðsl-
an fór að aukast mjög mikið
eftir að Kínverjar tóku upp
breytta landbúnaðarstefnu sem
gaf bændum nánast frjálsar
hendur við framleiðsluna og
byggði á einkaframtaki.
Kjötframleiðslan er ennþá að
aukast en eftirspurnin hefur
aukist enn hraðar. þrátt fyrir
aukið framboð á kjöti hefur það
ekki hrokkið til að mæta stór-
aukinni eftirspurn. Þess vegna
ákváðu ktnversk stjórnvöld að
taka aftur upp kjötskömmtun
nú um áramótin. Að sögn er
þetta gert m.a. til að tryggja
nægjanlegt magn af kjöti við
vorhátíðina, sem markar upp-
haf nýs árs samkvæmt hinu
gamla tunglalmanaki Kínverja.
I ár liefst vorhátíðin 20. febrúar
og eru þá mikil veisluhöld í
Kína.
Pekingbúum hefur verið út-
hlutað skömmtunarmiðum sem
samsvarar því að þeir geti neytt
sem svarar 21 kílói af kjöti nú í
ár. Meðalneysla Pekingbúa af
kjöti á síðasta ári var um 19
kíló. Eftir sem áður er hægt að
kaupa tilbúna kjötrétti í
veitingahúsum án þess að nota
skömmtunarmiðana og nú fyrir
vorhátiðina fá allir auka-
skammt.