NT - 14.02.1985, Side 21

NT - 14.02.1985, Side 21
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 21 40 ár frá árásinni á Dresden ■ Fyrir 40 árum síðan vörpuðu 800 sprengjuflugvélar 650.000 eldsprengjum á Dresden. Daginn eftir, 14. febrúar 1945, komu 1350 sprengjuflugvélar til viðbótar og vörpuðu sprengjum. A.m.k. 35.000 manns létust og 85% bygginga í borginni voru jafnaðar við jörðu. Borgin þótti áður ein fegursta borg Evrópu, en hún var ekki talin hernaðarlega mikilvæg og árásin á hana er af mörgum talin lýsa hefndarþorsta og miskunnarleysi banda- manna við lok heimsstyrjaldarinnar. Símamvnd-Poifoio. Nígeríumenn hafna skilyrðum Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins Lagos-Reuter. ■ Herstjórnin í Nígeríu hefur þvertekið fyrir að fallast á skil- yrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir 2,5 milljarða dollara láni sem Nígeríumenn höfðu farið fram á. Næstæðsti maður í nígersku stjórninni, Tunde Idiagbon yfir- hershöfðingi, sagði fyrr í þessari viku að þótt hann kunni alls ekki við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn, hvorki almennt séð né í reynd, muni Nígeríumenn halda áfram samningaviðræðum við sjóðinn og reyna að fá frá honum lán með þeim kjörum sem þeir geti fellt sig við. Eftir árangurslausar samningaviðræður við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn á síðasta ári skýrði stjórnin í Nígeríu frá því að sjóðurinn vildi að gengi gjaldmiðils Nígeríumanna yrði fellt, niðurgreiðslum á eldsneyti hætt og slakað á innflutnings- höftum. Stjórnvöld í Nígeríu hafa ekki viljað fallast á þessar tillögur sjóðsins. Samningar við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn eru taldir skilyrði fyrir því að Nígeríumen fái gjaldfrest á viðskiptalánum sem nema um tveimur milljörðum dollara. Kastro spáir byltingum vegna skuldakreppunnar - fái Ameríkuríki ekki greiðslufrest á lánum talinu og sagði það þjóðsögu að þar væru öll fangelsi full af pólitískum föngum. Hann sagði engan handtekinn fyrir póiitísk- ar eða trúarlegar skoðanir einar saman. Aðeins tæplega tvö hundruð manns væru í fangels- vegna stjórnmálastarfsemi New York-Keuter ■ Fidel Kastro, forseti Kúbu- manna, spáði því í sjónvarps- viðtali við bandaríska sjón- varpsstöð í fyrrakvöld að fái ríki Mið- og Suður-Ameríku ekki tíu til tuttugu ára greiðslu- frest á lánum sínum megi búast við „byltingarsprengju" í þess- um heimshluta. í viðtalinu, sem bandaríska sjónvarpsstöðin Public Televis- ion hafði við Kastro, sagði hann m.a. að svo kynni að fara að þessi byltingarsprenging yrði ekki bundin við einstök lönd heldur myndi hún ná til margra landa ef þjóðir Mið- og Suður- Ameríku yrðu neyddar til að greiða allar skuldir sínar á til- skildum tíma. Kastro sagði að ástandið í Brasilíu. Perú og sérstaklega í Chile bæri öll merki undanfara byltingar. Hann hélt því fram að bandarísk stjórnvöld gerðu sér fullkomna grein fyrir því hvernig ástandið væri í Chile og vildu því gjarnan að Pinochet léti af völdum þar. Annars myndu Bandaríkjamenn hugs- anlega þurfa „að fást við nokk- uð sem væri jafnvel verra en Nicaragua". Kastro varði mjög ákveðið þjóðfélagskerfið á Kúbu í við- urn sem hefði m.a. falist í skemmd- arverkum og sprengjutilræðum að undirlagi Bandaríkjanna. Treholt reiður og sár - eftir lestur bókar eiginkonu hans Frá Amþrúði Karlsdóttur, frcttaritara NT í Osló. ■ Arne Treholt hefur mót- mælt harðlega útgáfu bókar- innar Góða ferð til Parísar, sem eiginkona hans Kari hefur skrifað, en bókin kom út á laugardaginn var. „Treholt er bæði í senn reið- ur og eyðilagður eftir að hafa lesið hvernig eiginkona hans Eiginkona Arne Treholts: Marg- milljóner á einum mánuði Frá Arnþrúdi Karlsdóttur. frcttarit- ara NT í Osló. ■ Áður en mál Arne Treholts verður tekið fyrir í réttarsal 23 í þinghúsinu mun kona hans, Kari, að öllum líkindum þéna yfir 80 milljónir á bókinni um mann sinn. Scan-fact fyrirtækið hef- ur gert könnun í vikunni sem sýnir að 140.000 Norðmenn eru þegar á- kveðnir í að kaupa bók Kari. Jafnframt kom fram að 84% aðspurðra í könnun- inni telja að bókin hafi ekki átt að koma út nú, en 13% telja rétt að gefa hana út nú. Kari Doraker hefur afhjúpað einkalíf þeirra hjóna." Þetta segir, verjandi Treholts eftir að hafa móttekið langt bréf frá Treholt í fyrradag. Treholt hefur notað síðustu daga til að lesa bók eiginkonu sinnar en hann hefur ekki sýnt nein viðbrögð við útkonru bókarinnar fyrr en í bréfinu. Verjandinn sagði að ef Treholt hafi hvatt hana til að skrifa bók þá sé þessi bók vissulega ekki sú sem hann óskaði eftir. Verjandi Treholts bætti við að það sé nú rúmt ár síðan Treholt var handtekinn og þaö séu takmörk fyrir því hvað menn þoli. Treholt er m.a. mjög leiður vegna þess að eiginkona hans afhjúpar einkalíf þeirra og vegna þess að hún segir frá því hvernig sjö ára sonur þeirra bregst við þegar hann veit að faðir hans er í fangelsi. Treholt er reiður vegna birt- ingar á 30 bréfum, sem hann skrifaði henni, en þau segir hann að hafi ekki verið skrifuð til að hún græddi á þeim. Hún birtir útdrætti úr bréfunum sem margir telja að ótvírætt bendi til að hann hafi stundað miklar njósnir fyrir sovésku leyniþjónustuna. Hún segir í bókinni að það sé óumdeiian- legt að hann hafi verið njósn- ari. Verjandi Treholt telur að útgáfa bókarinnar geti haft veruleg áhrif á framgang málsins. ■ Kim Dae-Jung sést hér lesa dagblöð á heimili sínu meðan á kusningum stóð á þriðjudag. Honum er haldið í stofufangelsi á heimili sínu í Seoul. Kosningarnar í Suður-Kóreu: Stjórnarandstæðing- ar auka fylgi sitt Fidel Kastro, forseti Kúbu- manna. Seoul, Suður-Kóreu-Rcuter ■ Lýðræðislegi réttlætisflokk- urinn, flokkurChun Doo Hwan forseta vann þingkosningar samkvæmt úrslitum talningar í gær. Flokkur Kim Dae-Jung, Nýi lýðræðisflokkur Kóreu, sem stofnaður var aðeins fyrir mán- uði vann stórsigur. Þegar 96% atkvæða höfðu verið talin hafi flokkur Hwan forseta fengið 80 þingsæti en flokkur Jung42. Lýðræðisflokk- ur Kóreu sem áður hafði verið helsti sljórnarandstöðuflokkur- inn hlaut aðeins 21 þingsæti. Flokkur Kim Dae-Jungerþví orðinn aðalstjórnarandstöðu- flokkurinn í landinu þrátt fyrir að svo skammt sé um liðið síðan hann var stofnaður. Jung er í stofufangelsi og þó svo hann sé leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins hef- ur hann ekki leyfi til að taka sæti á þingi fyrr en 1988, en hann hefur verið í útlegð. Umhverfismálaráðstefna Asíu: Eftirlit með efnafram- leiðslu verði stóraukið Bankok-Reutcr. ■ Kyrrahafsþjóðir og þjóðir í Asíu kröfðust í gær að reglur um framleiðslu í efnaiðnaði yrðu verulega hertar í þeirra heimshluta. Við lok tveggja daga ráð- stefnu um umhverfismál á veg- um Sameinuðu þjóðanna lýstu ráðherrar frá 22 ríkjum áhyggj- um vegna notkunar efna í iðnaði í Asíu-löndum sem bönnuð eru í iðnaði á Vesturlöndum. Stephen Yong, vísinda-, tækni- og umhverfismálaráð- herra Malasíu sagði á blaða- mannafundi að slysið í efna- verksmiðju Union Carbide í Bhopal á Indlandi sem leiddi til dauða 2500 manna væri alvarleg aðvörun fyrir ríki sem framleiða efni til útflutnings. Slysiðminnti menn á þá ábyrgð sem á þeim hvílir að koma í veg fyrir slíka harmleiki. Umhverfismálaráðherra Indó nesíu, Amil Salim sagði að as- ískar þjóðir vonuðust til að framfarir í vísindum myndu smám saman minnka notkun efna eins og DDT, sem á mörg- um svæðum væri eina gagnlega tækið í baráttuni gegn ntalaríu. Hann sagði að fátækt, ör fólksfjölgun og iðnþróun væru helstu vandamálin í Asíu. Dóminikanska lýðveldið: Verðlækkanir eftir mótmæli Santo Domingo-Reutcr. ■ Forseti Dóminikanska lýðveldisins, Salvador Jorge Blanco, tilkynnti í fyrrakvöld að verð á nokkrum mikilvægum fæðutegundum yrði lækk- að aftur til þess að koma í veg fyrir frekari mótmæla- aðgerðir almennings. Miklar verðhækkanir á matvælum og aðhald í efnahagsmálum í síðasta mánuði leiddu til mót- mælaöldu í Dóminikanska lýðveldinu seni náði há- marki í allsherjarverkfalli og mótmælaaðgerðum á mánudag þar sem fjórir menn létu lífið. Aðhaldsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar voru á- kveðnar vegna þrýstings frá Alþjóðagjaldeyris- ■ sjóðnum. Forseti lýðveld- isins sagði í sjónvarpsræðu í fyrrakvöld að verð á mjólk, brauði, matarolíu og fleiri matvælum yrði lækkað um 18 til 20% og hann sagðist hafa lagt til við þingið að öll laun yrðu hækkuð um 10%.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.