NT - 14.02.1985, Page 22

NT - 14.02.1985, Page 22
22 Enskir punktar: Hvað verður um þá á gamalsaldri? Fimmtudagur 14. febrúar 1985 Milutinovic, þjálfari Mexík- ana, segir að Frakkar með Michel Platini í hroddi fylking- ar, eigi mesta möguleika á að halda í við Ameríkuliðin. Wolfisberg segirað leikmenn sem eru taldir „latir" í Evrópu en hafa yfir geysilegri tækni að ráða muni reynast best í Mexíkó og undir þaö taka margir fleiri þjálfarar Evrópskra landsliða. ■ Ian Rush skoraði eitt mark fyrir Liverpool gegn Arsenal. ■ Brassarnir á æfíngu: Verða þeir heimsmcistarar eins og 1970 þegar keppnin var einnig haldin í Mexíkó? HM í Mexíkó 1986: Standa lið f rá rómönsku Ameríku best að vígi? - það telja þjálfarar landsliða í Evrópu ■ Þjálfarar knattspyrnu- landsliða frá Evrópu scm líkleg eru til að komast í úrslitakeppni HM í Mexíkó á næsta ári, hafa töluverðar áhyggjur af því að miösumarhitinn og lega lands- ins hátt yfir sjávarmáli muni verða liðum frá rómönsku Ameríku mjög í hag, alveg eins og I970 í Mexíkó. Eftir leiki evrópskra liða fyrir skemmstu viö vígslu leikvangs- ins í Queretaro sem notaður veröur í IIM, hafa þessir menn sagt aö þcir verði að breyta algerlega um leikstíl til að halda velli. „Þaö verða ekki baráttuliöin sem mun ganga best, heldur munu teknisk liö sem geta hald- ið boltanum lengi, blómstra," sagði þjálfari svissneska liðsins. Wolfisberg, en Svisslendigar voru einmitt þátttakendur í vígslumótinu, ásamt Búlgaríu og Póllandi. auk heimamanna. Queretaro-leikvangurinn er einn af I2 sem notaöir veröa í HM og allir eru þeir meira en 1800 mctra yfir sjávarmáli. Wolfisberg telur hitann verða mcira vandamál fyrir Evrópu- menn en skort á súrefni. Svisslcndingar liafa leikið undanfarið í Bogota í Kólomb- íu sem er um 2400 metra yfir sjávarmáli og síðan tvo leiki í Queretario og að sögn Wolfis- bergs fundu leikmennirnir ekki fyrir neinum vandræðum vegna súrefnisskorts. Ekki var það heldur raunin hjá Pólverjum að sögn forráöamanna liðsins, þrátt fyrir að þeir hafi tapaö()-5 fyrir Mexíkönum. Leikmenn beggja þcssara liða kvörtuðu hinsvegar sáran yfir hitanum. Leikir HM næsta sumar Itefj- ast flestir um hádegi eða stuttu eftir þaö þegar hitinn í Mexíkó, sérstaklega norðarlega í land- inu, getur farið uppundir 40 stig á Celsíus. Brasilíumenn, Argentína og Uruguay 'fnunu hagnast á hitan- um, enda eru leikmenn þessara liða vanir slíkum hita. Evrópumcnn, sérstaklega Bretar, V-Þjóðverjar og aðrar þjóöir norðarlega í Evrópu. munu hinsvegareiga íerfiðleik- um með baráttuknattspyrnu sína í slíkum hita. „Frjótt ímyndunarafl mun duga vel í Mexíkó. Liðin sem hafa frjótt ímyndunarafl munu fyrst sigra aöstæöurnar en síðan andstæðingana," sagði Wolfis- berg. Frá Orra Ýrari Smárasyni á Selfossi: ■ Það er oft gaman að velta fyrir sér hvað verður um leik- menn sem detta út úr liðum st'num í efri deildunum og eru seldir til liða í neðri hluta ensku knattspyrnunnar. Margirfrægir leikmenn eru enn að og spila um allt England með liðum sem eru ntisjafnlega þekkt. Sumir þessara manna voru í eldlínunni fyrir nokkrum mán- uðum og árum. Voru hetjur sinna liða í I. deild en hvareru þeir nú? Hér á eftir er drepið á nokkra fræga leikmenn og sagt hvar þeirala manninn unt þess- ar ntundir: Trevor Cherry, margfaldur landsliðsmaður og Leedsari er nú leikmaður og framkvæmda- stjóri hjá Bradford. Kevin Hird, fyrrunt Leedsari, Tommy Hutchinson sem spilaði með Manchester City og walski landsliðsmaöurinn Bryan Flynn eru allir hjá Burnley. John Robertson, kantarinn snjalli hjá Forest hér áður fyrr og Eric Steele sem var mark- vörður hjá Watford er þeir fóru upp í I. deild, eru báðir hjá Derby í 3. deild. Terry Coch- rane fyrrum N-írskur landsliðs- maður er á kantinum hjá Gill- ingham. Brian Horton, fyrrum fyrirliði Brighton og Luton, er nú framkvæmdastjóri og leikmaður hjá Hull City. Ne- ville Chamberlaine, bróðir Marks hjá Stoke, spilar með Newport í 3. dcild. David Johnson, fyrrurn Liverpoolari og Evertonari, er nú ásamt Paul Wilkins, bróðir Ray hjá AC Mílanó. hjá Preston sem rak Gordon Lee frá sér til KR! Jimmy Rimmcr Evrópu- og Englandsmeistari með Aston Villa, Paul Price bikarmeistari með Spurs og Derek Parlane markahæsti leikmaður Man. City í fyrra leika nú allir nieð Swansea. Mike Walsh sem lék síðast með írska landsliðinu gegn íslendingum í Dublin og vann sér það til frægðar að slasa Pétur Ormslev, er nú hjá Blackpool. Martin Dobson lengi fyrirliði Everton, walski landsliösmaðurinn Leighton James, scm fór illa með Sævar Jónsson í fyrsta landsleik Sæ- vars á Laugardalsvellinum, eru báðir hjá Bury. Roger Os- borne, sem var hetja Ipswich í bikarúrslitalcik gegn Arsenal fyrir nokkrum árum, er nú hjá Colchester. Paddv Roch, sem lengi var varamarkvörður hjá Man. Utd. er nú hjá Halifax. Ray Kennedy sem var enskur landsliðsmaður hjá Arscnal og Liverpool er nú að njóta knatt- spyrnunnar hjá Hartlepool. Ally Brown sem skoraði mikið fyrir WBA á sínum tíma cr nú hjá Port Vale Trevor Whymark sem var félagi Roger Osborn í framlínunni hjá Ipswich í bikarleiknum gegn Arsenal er nú hjá Southcnd. Lou Macari leikntaður með Man. Utd. og skoska landsliöinu er nú hjá Swindon sem framkvæmda- stjóri og leikmaður. Þá eru markverðirnir Dai Davies og Jim Platt sem voru landslið- smarkverðir hjá Wales og N- írum báðir hjá Tranmere. Eftir slíka upptalningu þá sjáum við að menn hætta ekki að leika knattspyrnu þó þeir eldist eða detti úr I deildar fornti. Enska knattspyrnan: Arsenal steinlá Neal bætti öðru marki við áður en lan Rusli brenndi af víta- spyrnu. John Luckic markvörð- ur Arscnal náði að verja skot Rush sem stefndi í markið alveg út við stöngina. Ronnie Whevvlan tryggði sigurinn á 87. mínútu með góðu marki. Þessi sigur lyfti Liverpool í 7. sætið í deildinni og eru þeir nú 10 stigum á eftir Everton, hinu Liverpool liðinu. - á Anfield Road ■ Arsenal steinlá fyrir Livcrpool í 1. deild ensku knattspyrnunnar í fyrrakvöld 0-3 og þar nteð eru meistara- vonir Arsenal endanlega orðn- ar að engu. Það var markamaskínan welska, Ian Rush, sem kom meisturunum á bragðið á 32. mínútu. Varnarmaðurinn Phil Larry Holmes, heimsmeistari í boxi: Vill berjast við Tingstad - sem er Evrópumeistari í þungavigt Frá Samúel Frni í Færeyjuin: ■ Færeyska blaðið „Allt om ítrótt" segir frá því og hefur eftir norska blaðinu „Bergens Tidende" að heimsmeistarinn í þungavikt í hnefalcikum, Larry Holmes segist vera tilbúinn til að bcrjast við norska Evrópu- meistarann í þungavikt í hnefa- leikum Stefan Tangstad um heimsmeistaratitilinn. Larry Holmes hefur varið heims- meistaratitil sinn alls 46 sinnum og stefnir á að verja hann 50 sinnum og slá þar með met „Rocky" Marciano. Holmes mun slást við Davide Bey í Las Vegas þann 15. ntars og eftir það einvígi segist hann vera tilbúinn að mæta Tangstad, svo fremi sem hann sigri. Tangstad á að berjast um Evrópumcistaratitilinn við Sví- ann Anders „Lillen" Eklund og takist honurn að sigra og verja þannig meistaratitilinn er ekkert úr vegi að hann mæti Holntes. Þess má geta að hnefaleikar eru bannaðir í Noregi og heimavöllur Tangstad er í Köben. Slaney og Moorcroft úr leik ■ Eins og NT sagði frá i gær voru allar líkur á þvi að Mary Slaney hefði meiðst meira en talið var í fyrstu er hún varð að hætta keppni i 1500 metra hlaupi innanhúss um helgina. Sá grunur reyndist á rökum reistur því eftir læknisskoðun kom i ljós að hún verður frá keppni i nokkra mánuði. David Moorcroft, heimsmethafi í 5000 metra hlaupi, frá Bretlandi mun á næstunni gangast undir uppskurð vegna meiðsla. Hann reiknar með að verða kominn á hlaupabrautina seint á þessu ári. Moorcroft hefur ekkert keppt síðan hann varö siðastur i úrslitum 5000 metra hlaupsins á ólympiuleikun- um í sumar. Hann sagði: „Þetta er aðgerð sem hefur heppnast vel á nokkrum bestu knattspyrnumönn- um Evrópu svo ég kvíði engu"... „Myllumótið“ ■ Um helgina fór fram „Myllu- mótið" í svigi og stórsvigi karla og kvenna í Bláf jöllum. Var þetta fyrsta bikarmótið í skíðaiþrótt- unum á þessum vetri. Á mánudaginn var aðeins sagt frá úrslitum i svigi en hér koma heildarúrslit á mótinu: Stórsvig karla: Guðmundur Jóhannsson, ísafirði Árni Þór Árnason, Reykjavik ólafur Harðarson, Akureyri Stórsvig kvenna: Snædis Úlriksdóttir, Reykjavík Tinna Traustadóttir, Akureyri Signý Viðarsdóttir, Akureyri Svig karla: Guðmundur Jóhannsson, ísafirði Helgi Geirharðsson, Reykjavik Rúnar Ingi Kristjánsson Svig kvenna: Guðrún H. Kristjánsdóttir, Akureyri Bryndis Viggósdóttir, Reykjavík Signý Viðarsdóttir, Akureyri

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.