NT - 01.03.1985, Side 2
IU'
ÁBÓT
yVkrATfr^tfemTjTiTfi
Búlgaría og
Bournemouth
■ Ferðaskrifstola Kjartans
Helgasonar er með Búlgaríu á
sínuni snærum. Þangað hafa
íslendingar ferðast á hverju
suniari uni nokkurra ára skeið.
Jafnframt hefur Ferðaskrif-
stofa Kjartans séð fólki fyrir
skólavist í Bretlandi í tengsluin
við sumarleyli, ekki síst ungu
fólki sem vill læra ensku „á
staðnum". Auk enskunáin-
skeiða standa til boða knatt-
spyrnu- og íþróttaskólar.
Ólína Kjartansdóttir hjá
Ferðaskrifstofu Kjartans sagði
í samtali við NT, að Búlgaríu-
fcrðirnar hcfðu hyrjað árið
1977. Flogið er í áætlunarflugi
hcðan til Luxemborgar, og
þaðan beint til Varna á Svarta-
hafsströnd Búlgaríu.
Tvær baðstrcndur skammt
frá Varna eru hclstu bæki-
stöðvar íslenskra fcrðalanga í
Búlgaríu. Þær hcita Zlatni Pja-
satsi (Gullna ströndin) og
Drushba, en þar stendur citt
mesta lúxushótcl í landinu,
Grand Hotcl Varna, byggt af
Svíum fyrir fáeinum áruni.
Þeir scm síður vilja búa á
liótcli gcta fengiö inni í sumar-
húsum örskammt frá Grand
Hotel Varna.
- Eru pantanir farnar að
streyma inn?
- Við crum nýbúin að koma
sumaráætluninni út og crum
aö hcfja kynningu á henni, svo
að þetta cr að fara af stað. En
fólk er fariö að panta og þaö
eykst dag frá dcgi.
- Segðu mér frá þessum
skóluni sem þið hafið uniboð
fyrir.
-Já, tungumálaskólarnireru
í Bournemouth á Englandi.
Annar skólinn heitir Anglo-
Contincntal og við höfum ver-
ið með hann í um það bil tíu
ár. Hann starfar allt árið, og
þar er hægt að fara á ýmisskon-
ar sérhæfð námskcið, scm cru
vcnjulega þriggja vikna löng,
að lágmarki. Svo cr að sjálf-
sögðu hægt að vera mun
lcngur, cf mcnn vilja.
Aðalnámskeiðin, sem ung-
iingar sækja hcöan til
Englands, og ckki bara ung-
lingar, heldur fólk frá fjórtán
ára til scxtugs, - cru svokölluö
„Basic" - námskeið, það cr
vcnjuleg cnskukennsla, án
nokkurs sérnáms.
Svo erum við með unglinga-
skóla, scm er eingöngu sumar-
skóli. Þar er hægt að bæta við
viku léikjanámskeiði í Cornw-
all á undan enskunámskeiðinu,
og ef menn vilja, má Ijúka
dvölinni í viku cða tólf daga í
Skotlandi.
- Er dýrt að sækja þessi
námskeið?
- Nei, a.m.k. er ckki um að
ræða mikla hækkun frá í fyrra.
Almcnnu námskeiðin kosta
með ferðum, gistingu og fæði
um 31 þúsund krónur í þrjár
vikur. Þá er miðað við 20
kcnnslustundir á viku.
- Er tekið á móti folki við
komuna til London?
- Já, á sumrin cr það gert,
og síðan er fólki ekið til Bour-
ncmouth. - Auk enskuskól-
anna erum við mcð sveitahús,
„cottagcs" í Bretlandi, og „flug
og bíl“.
- Svo við víkjum aftur að
Búlgaríu, - er aðsóknin þang-
að alltaf jafn mikil?
- Hún hefur minnkað síð-
ustu tvö árin cða svo, - eins og
gcrst hefur víða á sólarströnd-
um, síðan fcrðamátinn „flug
og bíll" varð vinsæll. En Búlg-
aríuferðir cru aftur á uppleið
núna.
- Hver er fararstjóri í Búlg-
aríu?
- Margrét Sigþórsdóttir.
Föstudagur 1. mars 1985 2 Blsð II
■ Sumarskólarnir í Englandi
njóta vinsælda.
■ Grand Hotel Varna er eitt
glæsilegasta hótelið við
Svartahafið, með j
góðri aðstöðu til
heilsuræktar.
■ Búlgaríuferðirnar eru aftur
á uppleið núna, sagði Ólína
Kjartansdóttir hjá Ferðaskrif-
stofu Kjartans.
Sólarlandaferðir
í áætlunarf lugi
■ Flugferðir - Sólarflug var
stofnað haustið 1981, og eins
og nafnið bendir til, er áhersla
lögð á ferðirtil sólarlanda. Við
spjölluðum stundarkorn við
forstjórann, Eyþór Heiðberg.
- Hvaða sólarlandaferðir
eruð þið með í ár?
- í vetur höfum við vcriö
með ferðir til Tencrife á Kan-
arícyjum. í sumar höldum viö
áfram ferðum þangað, en að
auki förum viö til Costa Brava
■ Við höfum umboö fyrir
þýsku járnbrautirnar, sagði
Eyþór Heiöberg hjá Flugferð-
um.
á Spáni og Mallorca. Einnig
bjóðum við upp á ferðir til
Möltu og Grikklands. Allar
þessar ferðir eru í áætlunar-
flugi.
- Eru íslenskir fararstjórar á
þessum stöðum?
-Já.áMallorcaogTenerife.
Eyþór sagði, að mikil að-
sókn hefði verið í ferðir til
Kanaríeyja í vetur. Að jafnaði
hefðu dvalist þar fjörtíu til
fimmtíu manns á vegum Flug-
ferða. Dvalartíminn er hálfur
mánuður til þrjár vikur.
- Bjóðið þið upp á einhver
greiðslukjör?
- Ekki almennt, en við semj-
um við hvern og einn við-
skiptavin um það sérstaklega.
- Eruð þið með einhverjar
fleiri ferðir á dagskrá?
- Við höfum umboð fyrir
þýsku járnbrautirnar. og það
gildir líka fyrir Luxemborg.
Hjá okkur má kaupa ýmiss-
konar afsláttarkort fyrir þess-
ar járnbrautarferðir.
- Hafa íslendingar áhuga á
að ferðast með járnbrautum?
- Já, það hefur færst nokkuð
í vöxt að menn geri það.
■ Flugferðir bjóða sólar-
iandaferðir í áætlunarflugi á
hinar ýmsu strendur.