NT - 01.03.1985, Qupperneq 4
Vinsældalistinn
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
2) Tobeornottobe
1) Benny Hill show
■) Scarface
9) 48 hours
-) Húsið
5) Flóttinn frá New York
4) Maður, kona og barn
6 Venom
10 Whywouldllie?
3) Educating Rita
11 TwoofaKind
7) Lies
■) TheThing
12) Silent Partner
Mommie dearest
Stingll
14 Winter of discontent
8 AuguLáruMars
•) Cujo
16) EvilthatMando
Listinn er unnmn i samráði við 10 myndbandaleigur.
\\i' Föstudagur 1. mars 1985 4 Blðð II
lil Videomarkaður
■ Ég vona að lesendum
síðunnar hafi líkað breytingin
sem ég gerði á
myndbandasíðunni. Eins og
vonandi allir eru farnir að gera
sér grein fyrir er ohugsandi
að segja nákvæmlega til um
20 vinsælustu myndirnar hér á
landi, fyrir hverja viku. Þær
myndir sem eru nálægt því að
fara inn á listann eru því alltaf
taldar upp, og geri ég það til
þess að fólk geti fylgst með
því, t.d. hvort þær komast inn
á listann næst o.s.frv.
Ég er með fleiri hugmyndir í
sambandi við breytingar sem
munu líta dagsins Ijós síðar.
Enski vinsældalistinn er birtur
fyrir þá sem vilja fylgjast með
því sem er hvað vinsælast á
markaðnum og einnig til þess
að hægt sé að bera íslenska
og enska listann saman. Nú á
framhaldslistann fara allar
myndir sem eru á fleiri en einni
spólu.
Snúum okkur nú að 20
vinsælustu myndunum. Aftur
var hörð barátta um fyrsta
sætið og Mel Brooks hafði
betur í keppninni við Benna
vin sinn. f 3. sæti er myndin
Scarface sem nýkomin er
textuð á markaðinn. Með
aðalhlutverkið í þessari löngu
sakamálamynd (ca. 3 tímar)
fer Al Pacino og hann fer svo
sannarlega á kostum í þessum
velgerða „Thriller". Þaðvirðist
sem margir hafi misst af
myndinni: „Húsið" þegar hún
var sýnd í Háskólabíói, hún
hefur alltaf verið nálægt því að
fara inn á listann og tókst það
nú svo um munar.
í 13. sæti og 18. sæti eru á
ferðinni góðar hrollvekjur. í
15. sæti er mynd sem fjallar
um líf leikkonunnar Joan
Crawford. í 16. sæti er mynd
sem nýkomin er á markaðinn,
Sting II. Þeir sem sáu Sting I,
fóru ekki vonsviknir heim eftir
að hafa horft á þá frábæru
mynd. Sting II er einnig mjög
góð og meinfyndin á köflum.
Myndir sem voru nálægt því
að fara inn á listann eru: Act of
passion, Why did you pick on
me, Lady from yesterday, To
Catch a King, Seduced,
Deadly Encounter, Super
Cops, Mystery of Paradise,
Over the Brooklyn Bridge o.fl.
góðar myndir. Lítum næst á
myndirnar á
framhaldslistanum.
Chiefs rétt hélt fyrsta sætinu
en hinn nýi njósna- og
sakamálaþáttur Hunter, sem
er nýkominn á markaðinn
gerði harða hríð að fyrsta
sætinu. Falconinn hefur enn
betur í keppninni við Dynasty
en mesta stökkið (smá stökk
reyndar!) á stríðsmyndin:
„Stríðsins blóðuga helvíti".
Þar sem Lace dettur út af
listanum, eflaust vegna þess
að fólk hikar við að taka
spóluna því hún er svo
nýkominn á markaðinn vil ég
benda á að hér er á ferðinni
góð mynd sem óhætt er að
drepa tímann með.
Nú Manions (3 spólur) skilst
mér að sé hryllingsmynd og
hún ku vera nokkuð góð (að
sögn Kvikmyndaeftirlitsins,
(smá grín). Mér skilst að á
næstunni séu svo væntanlegir
fleiri framhaldsþættir frá hinum
ýmsu rétthöfum. Að lokum
óska ég ykkur lesendum NT
góðrar helgar og bið ykkur vel
að lifa.
J.Þór
The Ninja **i/2
strikes back
Leikstjóri: Bruce Le og Joseph
Kong
Aðalleikarar: Bruce Le og
Wang Jang Lee
■ Mynd þessi fjallar um tvo
frábæra Ninja bardagamenn
sem eru góðir vinir og vinna
báðir hjá sama aðila. Einn
daginn eru þeir sendir á stefnu-
mót við aðra glæpamenn til að
skiptast á töskum. Hinirglæpa-
mennirnir reyna að svindla á
þeim og hefja skothríð á þá
sem leiðir til þess að Bruce fær
skot í fótinn og nær ekki að
flýja af vettvangi áður en lög-
reglan kemur á staðinn. Hann
er því handtekinn en losnar
fljótlega úr fangelsinu en
Bruce líkar ekki við vinnuna
sem hann er látinn leysa af
hendi og ákveður því að hætta.
Hann tilkynnir yfirmanni sín-
um að hann sé hættur en sá
kann ekki að meta það og
skipar að Bruce skuli drepinn.
Fyrrum vinur hans fær það
hlutverk og mistekst það æði
oft. Lögreglan biður Bruce um
að hjálpa sér og hann er til í
það að vissu marki, en þegar
Ninja kapparnir drepa óvart
kærustuna hans í staðinn fyrir
hann þá má segja að djöfullinn
sé laus. Bruce tekur að sér að
frelsa stúlku sem lögreglan hef-
ur árangurslaust reynt að
frelsa. Þegar Bruce kemur á
heimaslóðir bíða hans slæmar
fréttir, faðir hans dáinn og
búið er að ræna systur hans.
Þeir sem þetta gerðu eru þeir
sömu og eru með fyrrnefnda
stúlku í haldi. Bruce ræðst til
atlögu gegn þeim og mikið er
barist í lokin, hver stendur svo
uppi sem sigurvegari er svo
annað mál. Þeir sem hafa gam-
an af karate myndum ættu að
sjá þessa mynd, hún er góð en
það vantar meiri húmor! J.Þór
Mommie dearest
Leikstjóri: Frank Perry
Aðalleikarar: Fay Dunaway,
Steve Forrest, IWara Hobel og
Diana Scarwid.
■ Myndin hefst á hátindi
frægðar Joan Crawford. Líf
hennar snýst fyrst og fremst
um útlit og frægð. Allt verður
að vera flekklaust, bæði heima
og heiman. Útlitið er það sem
skiptir leikkonuna öllu. Hún
álítur sig fullkomna og á það
við jafnt í einkalífi sem í
„stúdíóinu".
En það ber einn skugga á líf
hennar. Henni hefur ekki
auðnast að eignast börn og
hún sækir um að taka barn í
fóstur af munaðarleysingja-
heimili. Hún fær neitun og
ástæðan fyrir neituninni er sú
að hún er tvífráskilin og á ekki
eiginmann. En með aðstoð
góðs vinar fær hún því fram-
gengt að hún fær tvö börn til
ættleiðingar, fyrst stúlku og
síðan dreng. Stúlkan, Christ-
ine Crawford. er sú sem ritar
sögu móður sinnar síðar og
hún dregur ekkert undan.
Myndin tekur fyrir tímabil
Christinu Crawford frá barns-
aldri til fullorðinsára. Eða þar
til móðir hennar hverfur af
leiksviði jarðar. Þetta er mynd
sem fjallar af raunsæi um goð-
sögnina og kvikmyndastjörn-
una Joan Crawford, hvernig
hún barðist fyrir lífi sínu og
leikferli og gegn ástríðum í
einkalífi.
J.Þór
★★
i. 1) Chiefs 6. 7) Celebrity
2. ■) Hunter 7. 6) Ninja Master
3. 2 F« ilcon Crest 8. •) Manions
4. 3 D] rnasty 9. 5) Mistral's Doughter
5. 9 St ríðsins / U ■ I /■ 1 10. 8) Master ot the Game
blóðuga helvíti
Listinn er uninn í samráði við 10 myndbandaleigur.
25vinsælustu
myndirnar
vestanhafs
árið 1984
Millj/dala
1. Ghostbuster 127
2. Indiana Jones-.Temple of Doom 109
3. Gremlins 78,5
4. Beverly Hills Cop 58,5
5. Terms of Endearment 50,25
6. The Karate Kid 41,7
7. StarTrek III 39,0
8. Police Academy 38,5
9. Romancing the Stone 36,0
10. Sudden Impact 34,6
11. Footloose 34,0
12. Splash 34,0
13. PuipleRain 32,0
14. The Natural 25,0
15. Scarface 23,1
r