NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 05.03.1985, Qupperneq 3

NT - 05.03.1985, Qupperneq 3
 EE Þriðjudagur 5. mars 1985 3 Fréttir Norðurlandaráðsþing: Samstarf um efnahagsþróun og skipulagsbreytingar - yfirgripsmestu málin sem ráðherranefnd Norðurlanda leggur fyrir Norðurlandaráðsþingið að þessu sinni ■ Yfirgripsmestu malin sem ráðherranefnd Norðurlanda leggur fyrir Norðurlandaráð að þessu sinni eru annars vegar samstarfsáætlun um efnahags- þróun og fulla atvinnu sem unn- ið hefur verið ötullega að á síðasta ári og hins vegar tillögur um skipulagsbreytingar á starfs- háttum Norðurlandaráðs. Þetta kom fram í ræðu Matthí- asar Á. Mathiesen viðskiptaráð- herra og formanns ráðherra- nefndarinnar við upphaf um- ræðna á þingi Norðurlandaráðs sem hófst í Þjóðleikhúsinu í gær. Gerði ráðherrann grein fyrir sérstökum fjárveitingum í fjáriögum Norðurlandaráðs til viðbótar fjárveitingum eins- takra aðildarríkja til að stemma stigu við atvinnuleysi svo og til að endurbæta og samhæfa ráð- stafanir til atvinnuaukningar. Um skipulagsmál Norður- landaráðs hefur mesta athygli vakið sameining alntennu fjár- laganna og menningarfjárlag- anna og sameining þeirra tveggja skrifstofa sem starfrækt- ar eru á vegurn ráðherranefnd- arinnar í eina skrifstofu í Kaup- mannahöfn. Þá hefur einnig ■ Matthías Á. Mathíesen við- skiptaráðherra í ræðustól við upphaf almennra umræðna á Norðurlandaráðsþingi í gær. NT-mynd: Sverrir. ■ Páll Pétursson, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs ávarp- ar þingheim og býður gesti vel- komna til íslands til starfs og leiks. NT-mynd: Sverrir Breiðholtsbúum sárnar við Katrínu Fjeldsted ■ Þau orð Kartrínar Fjeldsted, formanns heil- birgðisráðs Reykjavíkurborgar, að borgarbúar og samtök þeirra mættu láta eitthvað frá sér heyra um hið alvarlega ástand í heilsugæslumál- um í Reykjavík, hafa valdið nokkrum viðbrögð- um meðal íbúa í Breiðholti III. Sambandið sýnir byggingavörur - fyrst fagmönnum síðan almenningi Ummæli þessi, sem fram komu í þættinum „Kastljós“ í sjónvarpinus.l. föstudagskvöld, hafa orðið til þess að Framfara- félag Breiðholts III hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að það sé ósanngjarnt að forsvarsmenn heilsugæslumála í HEILSUGÆSLUSTÖÐ í BREIÐHOLTI III ER MEIRA EN BARA HÚS ■ Bæklingurinn sem Fram- farafélag Breiðholts III dreifði til að vekja athygli íbúa og yfírvalda á aðbúnaði heilsugæsl- unnar í Breiðholti III. Reykjavík geri lítið úr þeim aðilum sem láta heilsugæslumál- in til sín taka. í fréttatilkynningunni er greint frá því að sérstakur starfs- hópur á vegum Framfarafélags- ins hafi unnið að því frá því í haust að vekja athygli íbúa hverfisins og yfirvalda á stöðu heilsugæslumála í Breiðholti. Undirskriftum var safnað, gef- inn var út bæklingur og bréf voru send fjárveitingarnefnd Alþingis og þingmönnum öllum, þar sem athygli var vakin á ástandi heilsugæslumála í hverf- inu. Árangur starfs þessa leit síðan dagsins ljós er fjárveit- ingamefnd Alþingis kannaði að- stöðu heilsugæslustöðvarinnar í Asparfelli og á fjárlögum var ákveðið að verja 4,1 milljón króna til byggingar heilsugæslu- stöðvar við Gerðuberg. „Við í stjórn Framfarafélags Breiðholts-III teljum okkurhafa unnið vel að þessu máli, þó svo það hafi ekki farið hátt“ segir í lok fréttatilkynningarinnar, og eru fleiri hvattir til þess að láta heílsugæslumálin til sín taka. ■ í vikunni var opnuð sýning á byggingavömm á vegum Bygginga- vörudeildar Sambandsins í Holta- görðum við Holtaveg. Haukur Hauksson deildarstjóri innflutn- ingsdeildar sagði að til sýningar- innar væri efnt til að vekja athygli á starfsemi deildarinnar, en hún selur byggingavörur til allra kaup- félaga landsins, verktaka, og bygg- ingavöruverslana. Á sýningunni er kynnt ný lína af Damixa blöndunartækjum og í því sambandi hafa verið sett upp þrjú sýningarbaðherbergi á staðnum. Einnig eru þar Gustavs- lOáraátakí jarð-ogtrjárækt ■ Ráðherranefnd Norðurlanda hefur lagt fram tillögur fyrir Norður- landaráðsþingið um 10 ára samstarfsverkefni á sviði jarðræktarogskógræktar. Auk þess að hlynna að frumframleiðslugreinun- um og stuðla að gróður- vernd er með tillögunni markvisst stefnt að því að mennta fólk til rannsókn- arstarfa og auka alla rann- sóþnarstarfsemi. verið samþykkt að koma á fót iðnþróunarmiðstöð í Osló og flytja Norræna iðnþróunarsjóð- inn þangað. Mun sameining skrifstofanna auðvelda meðferð mála sem spanna fleiri en eitt svið og stuðla að markvissari stjórnun. Er hún raunar fors- enda fyrir því að hægt sé að ráðast í viðamikil verkefni á vegum Norðurlandaráðs en mikið af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið á norrænt samstarf á undanförnum árum hefur einmitt beinst að því hversu seint hlutirnir komast í framkvæmd. Almennu fjárlögin hjá Norðurlandaráði hækka um 17,8% vegna fyrirhugaðrar samstarfsáætlunar um að efla hagvöxt og atvinnu en þrátt fyrir aðhaldssemi í efnahags- stefnu aðildarríkjanna hefur tekist að útvega fjármagn til verkefnisins án þess að skerða önnur verkefni Norðurlanda- ráðs. Af öðrum málefnum sem ráð- herranefndin og samstarfsráð- herrarnir hafa sérstaklega látið til sín taka má nefna frumkvæði þeirra að alþjóðasamvinnu til að stemma stigu við því að skógar spillist af brennisteins- mengun. Tuttugu þjóðir hafa nú einsett sér að hafa komið brennisteinsinnihaldi í útblæstri frá orku og iðjuverum í 30% árið 1993oghefurbreska stjórn- in eindregið verið hvött til að gera slíkt hið sarna, en breskur iðnaður er sagður uppspretta mikils hluta þeirrar mengunar sem við er að glíma í Skandin- avíu. berg hreinlætistæki, Huppe sturtu- klefar ásamt margs konar öðrum byggingavörum. Fyrstu dagana er fagmönnum og fulltrúm kaupfélaganna boðið á sýninguna, en um næstu helgi er áætlað að hafa hana opna fyrir almenning. Hreinlætistæki eru m.a. kynnt í uppsettum baðherbergjum. NT-mynd: Sverrir. Bjórdýr í búskapinn ■ Eldi á svokölluðum fenjabjór (Nutriu) til loð- skinnaframleiðslu er með- al þeirra mála sem Búnað- arþing lagði fyrir stjórn Búnaðarfélags íslands að kanna hvort hagkvæmt gæti verið fyrir bændur. Er þetta afgreiðsla þingsins á erindi Búnaðar- sambands Austurlands en eins og fram hefur komið í NT fór ráðunautur á þess vegum til Mið-Evrópu síðastliðið sumar og kynnti sér ræktun ýmissa smádýra sem lifa fyrst og fremst á grasi og heyi. Vöktu einkum bjórdýr þessi og andartegundin Carina 2000 athygli hans, svo og kanínutegund til pels og kjötframleiðslu. Carina öndin er ræktuð vegna kjötsins og sömu- leiðis má nýta kjöt fenja- bjórsins. Þá eru í munni bjórsins tvær rauðar tenn- ur sem nýttar eru til skart- gripaframleiðslu. I greinargerð með álykt- un Búnaðarþings segir meðal annars að fyrst og fremst skuli litið til Nutriu skepnunnar „... en minna þykir liggja á að fjölga tegundum, til kjötfram- leiðslu eins og sakir standa“.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.