NT - 05.03.1985, Blaðsíða 4

NT - 05.03.1985, Blaðsíða 4
Þriðjudagur 5. mars 1985 4 Við lok Búnaðarþings 1985: ■ Það eru nú boðaðar stórvægilegar breytingar í landbúnaðarmálum, meðal annars boðaðar hjá ykkurI NT, sagði Ásgeir Bjarna- son formaður Búnaðarfé- lagsins og kvaðst hann því alveg eins eiga von á því að setjast aftur í stól þingfor- seta á árinu. Með Ásgeiri á myndinni sem er þriðji frá vinstri eru Ólafur E. Stefáns- son skrifstofustjóri Búnað- arþings, Axel Magnússon ritari gjörðabókar, Sigurð- ur J. Líndal skrifari og Jón Kristinsson sem gegndi skrifarastarfí í forföllum Egils á Seljavöllum. Gæti komiðtil auka- búnaðarþings á árinu Segir Asgeir Bjarnason formaður Búnaðarfélags Islands ■ „Það gæti komið til þess að við boðuðum til aukabúnaðar- þings á árinu því það eru nú boðaðar stórvægilegri breyting- ar en verið hcfur í áratugi í landbúnaðarmálum,“ sagði Ás- geir Bjarnason formaður Bún- aðarfélags íslands þegar NT ræddi við hánn nú að afstöðnu Búnaðarþingi 1985. Aðspurður sagði Ásgeir stærstu breytingarnar felast í væntanlegum breytingum á framleiðsluráðslögum, jarð- ræktarlögum og bankaráðslög- um m.a. með breytingum á Stofnlánadeild Landbúnaðar- ins. „Það er því á mörgum víg- stöðvum sem verður barist á næstunni. Það er líka ekkert vitlaust að stjórnvöld hafi bænd- ur með í ráðum. Bændastéttin vill gera sitt besta og vill vera með í ráðum,“ sagði Ásgeir. Aðspurður hvort meiri svart- sýni virtist gæta hjá búnaðar- þingsfulltrúum nú en áður þegar Búnaðarþing hefðu verið haldin sagði Ásgeir: „Það er ekki hægt að segja það að svartsýni gæti upp á framtíðina. En bændur eru í miklu mejri fjárhagsörðugleikum núnaen verið hefur. Þessa gætir líka hjá þeirra afurðavinnslufyr- irtækjum og öll Kaupfélögin eru í fjárhagsþröng vegna slæmrar stöðu þeirra viðskipta- vina.“ Þið óttist þá ekki að með nýrri stefnu í landbúnaðarmálum fari heilu byggðalögin í eyði? „Það fara auðvitað alltaf ein- hverjir bæir í eyði en maður vonar í lengstu lög að ekki fari heilu byggðalögin í eyði. Við berjumst gegn því og teljum það ekki mál okkar bænda ein- göngu að koma í veg fyrir að svo fari.“ Þá sagði Ásgeir að færi svo að fyrrnefnd lagafrumvörp yrðu lögð fyrir Alþingi á þessu þingi mætti búast við því að bændur kölluðu til aukaþings áður en Aiþingi afgreiddi þau sem lög. Búnaðarþing 1985 stóð í 14 daga og voru þingfundir 18 talsins. Alls voru 49 mál lögð fyrir þingið og afgreiddi Búnað- arþing 45 þeirra. Er þetta þing því álíka viðamikið og stóð jafn lengi og Búnaðarþing hafa gert hin seinni ár. Aðspurður hvort þetta þætti ekki langur tími til þingstarfa benti Ásgeir á að þau hefðu fyrir nokkuð mörgum árum verið stytt úr því að vera í 6 vikur í tvær og þætti nú mörgum sem mál væru keyrð í gegnum þingið með of miklumj hraða. NT mun gera málum Búnað- arþings ýtarleg skil innan skamms. Kór Langholtskirkju: Söngferðalag um Mið-Evrópu - kynnir ef nisskrána fyrir Reykvíkingum ■ Kór Langholtskirkju ætlar að gera víðreist nú á ári tónlist- arinnar og mun í sumar halda tónleika víða í Evrópu. Loka- undirbúningur fyrir þessa ferð felst í þrennum tónleikum í Reykjavík þar sem efnisskrá Evrópuferðarinnar verður flutt. Fyrstu tónleikarnir verða á morgun í Langholtskirkju kl. 17.00. Kórinn syngur þá íslensk og skandinavísk kórlög og barr- okktónlist. Einsöngvari verður Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Kórinn syngur án undirleiks eins og í ferðinni í sumar. Tónleikaröðinni verður þannig háttað á hverjum tón- leikum koma fram aðrir flyt- jendur með helming efnisskrár. Á morgun flytur Nýja strengja- sveitin alkunna svítu Bachs í h-moll nr. 2 fyrir flautu og strengjasveit. Einleikari verður Bernhard Wilkinson. Kórinn byrjar tónleikahald sitt í sumar í Vínarborg, og einnig syngur hann fyrir austur- ríska útvarpið og á kórahátíð í Pernitz skammt frá Vín og í Krems. Þá koma tónleikar í Salzburg, og Múnchen og Inns- bruck og upptökur fyrir þýska útvarpið. Þaðan verður haldið til Feneyja þar sem kórinn syng- ur í hinni frægu Mark- úsarkirkju. Ekki Nýja heldur nýja ■ I NT í gær var skýrt frá viðureign bílstjóra Hreyfils við ökumenn Sendibíla hf., sem er bílastöðin sem rekin er á Steindórsplaninu og tók til starfa nýlega. 1 fréttinni var talað um „nýju sendi- bílastöðina“ og er rétt til að fyrirbyggja allan misskilning að ekki er um „Nýju Sendi- bílastöðina" að ræða. Nýja Sendibílastöðin tók til starfa 1950, er til húsa að Knarrar- vogi 2, og hefur um 100 bíla. Sendibíiastöðin á Stein- dórsplani heitir sem sé „Sendibíiar hf.“. ■■■■■■■■ .ssagnia Krabbameinsfélag Reykjavíkur: Námskeið um reykbindindi ■ Krabbameinsfélag Reykja- víkur hefur ákveðið að efna til námskeiðs í reykbindindi í apr- ílmánuði næstkomandi. Nám- skeið þetta miðast við það, að þátttakendur hafi þegar drepið í síðustu sígarettunni, og er ætlast til að það verði gert hinn 2. apríl. Til þess að auðvelda væntan- legum þátttakendum reykbind- indið, verða haldnir tveir undir- búningsfundir í mars, þann 14. og þann 20. og eru allir skyldað- ir til að mæta, nema óviðráðan- leg forföll komi til. Innritun á námskeiðið er þeg- ar hafin, og leiðbeinandi verður Ásgeir R. Helgason fræðslufull- trúi Krabbámeinsfélags Reykja- víkur. Utfararþjónusta á Suðurlandi ■ Nú hefur verið stofnað fyrirtæki sem ber heitið „Útfararþjónusta Suður- lands“ og veitir alhliða útfararþjónustu. Eigandi fyrirtækisins er Jón Helgi Hálfdánarson, meðhjálp- ari í Hveragerðiskirkju sem jafnframt annast allan rekstur fyrirtækisins. Út- fararþjónustan er gerð út frá Hveragerði og hefur hún yfir að ráða Toyota bifreið sem hefur verið sérbúin til líkkistuflutn- inga. Tölvusýning í Laugardalshöll: Örtölvuver fyrir sýn- ingargesti ■ Tövlusýning verður sett upp í anddyri Laugardalshallar fimmtudaginn 7. mars og stend- ur fram á sunnudag. Ber hún heitið „Tölvur 85“ og er í umsjá tölvunarfræðinema við Háskóla íslands. Fjölmörg fyrirtæki taka þátt í sýningunni og munu þau bjóða upp á margt nýtt og fróðlegt. Mikið verður af islenskum hug- búnaði á sýningunni en hugbún- aðariðnaður er í mikilli fram- sókn hér á landi. Bryddað verð- ur uppá þeirri nýjung að setja upp örtölvuver með einkatölvur sérstaklega fyrir sýningargesti þar sem þeir geta sest niður og prófað sjálfir hinar ýmsu tölvu- tegundir og hugbúnað. í tengsl- um við sýninguna verður staðið fyrir fyrirlestrum og mun hver dagur hafa sérstaka yfriskrift. Meðal þess sem tekið verður fyrir er netkerfi, tölvur og löggjöf, íslenskur hugbúnaðar- iðnaður og tölvufræðsla á ís- landi. Sauðárkrókur: Ölvun og óspektir ■ Mikið var um ölvun og óspektir á Sauðárkróki aðfaranótt laugardagsins. Farið var í tvo bíla og þeir skemmdir og stolið úr þeim,einnigivarslett máln- ingu yfir annan þeirra. Þá var riðlast á girðing- um í kringum hús og þær brotnar og sagði lögreglan á Sauðárkróki að óvenju annasamt hefði verið hjá þeim. Ölvun hefði verið mikil allt frá fimmtudegi og virtist vera mikill los- arabragur á bæjarlífinu en allir togarar eru í höfn og Fjölbrautarskólinn erekki starfandi eftir að kennarar gengu út þann 1. mars sl. Tölvubanki í Garðabæ ■ Iðnaðarbankin hefur opnað nýjan tölvubanka í útibúi sínu í Garðabæ og eru þeir nú orðnir fimm talsins. Nýmæli íþjónustutölvubank- anna er að nú geta þeir sem hafa lykilkort séð stöðu reikninga sinna, tékka og sparireikninga á skjá tölvubankans eins og hún var í lok síðasta opnunardags. Um helgar sýnir tölvubankinn stöðuna eins og hún var á föstu- dagsmorgni, og því geta við- skiptavinir athugað stöðu reikn- inga sinna hvenær sem er sjálfir, í stað þess að þurfa að biðja um hana hjá starfsfólki bankans.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.