NT - 05.03.1985, Blaðsíða 6

NT - 05.03.1985, Blaðsíða 6
IU' Þriðjudagur 5. mars 1985 6 T ekst Frjálsly nda f lokknum í Vestur-Þýskalandi að halda velli? Þórarinn Þórarinsson skrifar: stjóraefni sósíaldemókrata í Vestur-Berlín, og Oskar Lafon- taine, sem er leiðtogi sósíal- demókrata í Saar, telja sam- vinnu við Græningja útilok- aða. Lafontaine hefur vakið mikla athygli í kosningabarátt- unni. Hann er rétt fertugur, en hefur verið borgarstjóri í Saar- brúcken í 10 ár. Hann er nú lalinn mesti ræðugarpur sós- íaldemókrata. Hann hampar mjög gömlu ' vígorði Reagans og spyr kjósendur, hvort þeir búi nú við betri kjör en meðan Helmut Schmidt fór með stjórnarforustuna. Hins vegar er hann mjög andsnúinn Reag- an í varnarmálum og berst fyrir því, að öll kjarnavopn verði gerð útlæg frá Vestur- Þýskalandi. Hann erdómharð- ur í garð Bandaríkjastjórnar og segir efnahagsbatann vestra byggjast á fjárflótta frá Vestur- Evrópu og arðráni í þriðja heiminum. Því er spáð, að það geti haft mikil áhrif á stefnu sósíaldem- ókrata, ef Lafontaine sigrar í Saar. Kosningarnar í Saar og Vestur-Berlín geta orðið sögulegar ■ Á SUNNUDAGINN kemur fara fram kosningar til fylkisþingsins í Saar og borg- arstjórnarinnar í Vestur- Berlín. Kosningabaráttunni á báðum þessum stöðum hefur verið veitt sérstök athygli og þá aðallega með tilliti til þess, hvort Frjálslyndi flokkurinn muni þurrkast út á báðum stöðunum, en það gæti orðið upphafið að endalokum hans, sem yrðu þá að líkindum í kosningunum til sambands- þingsins í Bonn fyrri hluta árs 1987. Til þess að flokkurinn haldi áfram að eiga fulltrúa á fylkis- þinginu í Saar og í borgar- stjórninni í Vestur-Berlín þarf hann að fá 5% greiddra at- kvæða. Hann fékk 5.6% at- kvæðanna í seinustu borgar- stjórnarkosningum í Vestur- Berlín og 6.9% í seinustu fylk- isþingskosningum í Saar. Nú spá skoðanakannanir honum ekki nema 3% fylgis á báðum þessum stöðum. Útlitið var því allt annað en glæsilegt, þegar flokkurinn hélt þing sitt um fyrri helgi. Samt reyndu fulltrúarnir að vera bjartsýnir og telja sér a.m.k. trú um, að flokkurinn myndi alltaf halda velli í þing- kosningunum 1987. Sú stefna, sem var mörkuð á þinginu, miðaðist við það. Það er margt, sem veldur því, að Frjálslyndi flokkurinn hefur búið við andstreymi að undanförnu. Fyrst eru þaö Græningjarnir, sem hafa náð til sín vinstri sinnuðu fólki sem áður hallaðist að Frjálslynda flokknum. Næst koma svo samvinnuslitin við sósíaldemó- krata og stjórnarsamvinnan við kristilegu flokkana. Þá yfir- gáfu allmargir vinstri sinnaðir menn flokkinn. Loks hefursvo komið til sögunnar ýms um- deildur fjárstuðningur gróða- fyrirtækja og varð einn aöal- leiðtogi flokksins, Otto Lambsdorff, að láta bæði af ráðherradómi og þingmennsku vegna þess. ÞAÐ bjargaði vafalítið Frjálslynda flokknum í þing- kosningunum 1983, að ýmsir kjósendur kristilegu flokkanna snerust til liðs við hann til þess, að hann dytti ekki út úr þing- inu. Þeir töldu kristilegu flokk- ana ekki líklega til að fá einir meirihluta á þingi. Þess vegna væri nauðsynlegt, að Frjáls- lyndi flokkurinn væri þar áfram, en hann hafði þá fyrir nokkru hafið stjórnarsam- ■ Oskar Lafontaine vinnu við kristilegu flokkana. Þetta átti mikinn þátt í því, að flokkurinn fékk talsvert meira fylgi en skoðanakannanir höfðu spáð honum. Hann hélt því vel velli. Það kom glöggt í Ijós á flokksþinginu, að þennan leik ætlar flokkurinn að leika aftur. Stefnan, sem þingið markaði, er meira til hægri en áður. Hans-Dietrich Genscher utan- ríkisráðherra, sem lét af flokksforustunni eftir að hafa gegnt henni í ellefu ár, var harðorður í garð vinstri manna í flokknum. Hinn nýkjörni for- maður, Martin Bangemann efnahagsmálaráðherra var þó enn harðorðari og vísaði þeim óbeint úr flokknum. Það er bersýnilega markmið flokks- forustunnar eins og nú háttar að afla flokknum fyrst og fremst fylgis hægri sinnaðra kjósenda. Hún treystir því bersýnilega ekki að geta keppt með góðum árangri við Græningja og sós- íaldemókrata á vinstra vængnum. Þess vegna verður reynt að ná fylgi frá kristilegu flokkunum. Kristilegu flokkarnir gera sér þetta vel ljóst. Þeir reyna áreiðanlega að sporna gegn þessu, en eiga ekki hægt um vik, þar sem ekki er líklegt að þeir haldi þingmeirihluta, án Frjálslynda flokksins. ÞANNIG eiga stjórnarflokk- arnir í Vestur-Þýskalandi við vanda að stríða. En þeir eru ekki einir um það, heldur gildir þetta einnig um sósíaldemó- krata, sem eru helsti stjórnar- andstöðuflokkurinn. Þeim stafar vaxandi hætta frá Græn- ingjum, sem safna um sig ýms- um andspyrnuhópum og ó- ánægðu fólki. Fylgi þeirra fer hraðvaxandi, án þess að þeir hafi nokkra ákveðna stefnu, þegar umhverfismál eru undanskilin. Þannig spá skoð- anakannanir því, að þeir tvö- faldi fylgi sitt í Vestur-Berlín og næstum eins mikið í Saar. Kristilegu flokkarnir fara nú með völd bæði í Vestur-Berlín og Saar með stuðningi Frjáls- lynda flokksins. Þeir missa þessi völd, ef Frjálslyndi flokk- urinn þurrkast út. Þá kemur að sósíaldemókrötum að reyna að vinna með Græningjum. Það hefur ekki gefist vel, þar sem það hefur verið reynt. Bæði Hans Apel fyrrverandi fjár- málaráðherra, sem er borgar- ■ Hans Bangemann og Hans-Dietrich Genscher Um pólitískar mannaráðningar og einkaútvarp viðskiptajöfra ■ Það er ansi fróðlegt viðtal 'við Ævar Kjartansson í NT í gær en Ævar hefur eins og kunnugt er sótt um stöður innan útvarpsins án þess að fá, þrátt fyrir að hafa stuðning samstarfsmanna sinna í þær. Ævar og viðmælandi hans blaðamaðurinn Egill Helgason eru ekki í neinum vafa að þarna ráði pólitísk sjónarmið, að Ævar sé út í kuldanuin af pólitískum orsökum. Ævar líkir þessu kerfi okkar við erfðastéttirnar á Indlandi. „Þarna ert þú kominn, og það er vonlaust fyrir þig að komast í stöðu þar sem þú telur að hæfileikar þínir og reynsla muni njóta sín. Þetta er nátt- úrlega eitt skýrasta dæmið af mýmörgum um óeðlileg tök stjórnmálaflokkanna á Ríkis- útvarpinu. Það er í hæsta máta óeðlilegt að útvarpsráð skuli vera með puttana í manna- ráðningum, enda hefur það margoft sýnt sig að fagleg sjón- armið eru látin víkja fyrir flokkspólitískum hagsmun- um.“ Gætu þeir sem ráðnir eru pólitískt...? Þarna er miklu máli hreyft. Nú er það ekkert óeðlilegt að þingkjörið Útvarpsráð hafi með mannaráðningar að gera. Þingmenn eru jú fulltrúar okkar, almennings í landinu og tæplega til önnur og betri leið. Væri t.d. betra að starfs- fólk sjálft réði því hverjir kæmu til starfa hjá Útvarpinu. Er tryggt að hjá því, t.d. útvarpsstjóra réði faglegt mat. Nú er t.d. útvarpsstjóri harður fr j álshyggj usj álfstæðismaöur. Eru nokkrar líkur til að hann yrði ópólitískur í manna- ráðningum, og eftir því sem hann réði fleiri sjálfstæðismenn yrðu auðvitað meiri líkur á því að fleiri sjálfstæðismenn yrðu ráðnir. Spurningin er kannski þessi: Eru starfs- mönnum Útvarpsins, sem ráðnir eru pólitískt, treystandi til að ráða ekki nýja menn eftir einhverju öðru en pólitískum línum? Hitt er svo rétt hjá Ævari að þó að Útvarpsráð velji menn er náttúrlega ótækt hvað ráðið gerir það oft og einatt á pólitískum forsend- um og er mál hans mjög gott dæmi um það. En mér finnst ekki önnur lausn en að kalla á betra siðferði í pólitíkinni. Engin lausn að færa valdið frá þingkjörnum fulltrúum okkar. Tvennskonar stjórnmálamenn Annars má í grófum dráttum skipta íslenskum stjórnmála- mönnum í tvennt. Það eru þeir sem líta á það sem hlutverk sitt í stjórnmálum að koma flokksbræðrum og vinum í ör- ugga höfn um leið og þeir vinna að því að pólitískir skoð- anabræður nái rótfestu sem víðast. Fyrir þessum hópi, sem er miklu fjölmennari en hinn, eru stjórnmálaflokkarnir hags- munatæki í þröngri merkingu þess orðs. Leið til fjár og frama í samfélaginu. Hinn hópurinn lítur ekki á flokk sinn eða stöðu sem hagsmuna- tæki fyrir vini og vandamenn heldur telur sig hafa fengið umboð til að stjórna þessu landi af mannviti og þekkingu. Slíkir sijórnmálamenn, og víst eru þeir til, ganga ekki frá mannaráðningum í fjöl- skylduboðum, heldur reyna að láta réttsýni og faglegt mat ráða gerðum sínum. Báðir hóparnir eru þó bundnir

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.