NT - 05.03.1985, Síða 11

NT - 05.03.1985, Síða 11
Þriðjudagur 5. mars 1985 11 Texti: Bjarni Harðarson, blaðamaður byrjun 1979 eða rúmum sjö árum eftir að kaupsamningur var gerður. Frá þeim tíma höfðu greiðslur fyrir íbúðina legið á bankabók og voru nú orðnir harla verðlitlir pening- ar. Samkvæmt mati nam féð hálfu verði íbúðarinnar þann 30. maí 1979. Og enn héldu áfram mála- ferli þvi næsta skref þeirra mæðgina í þessu máli var að fara fram á skaðabætur frá ríkinu vegna þess að það hafði valdið þeim Svövu og sonum hennar, fjárhagslegu tjóni. Bæjarþing Reykjavíkur sýkn- aði ríkissjóð af kröfu stefnanda og sama gerði hæstiréttur. En þar skilaði einn dómara sérat- kvæði þar sem hann telur að dómsmálaráðuneytið hafi með drætti á afgreiðslu málsins brugðist svo skjólstæðingum sínum, sonum Svövu að bóta- skylt væri. Hæstiréttur byggir dóm sinn á fyrri niðurstöðu þess efnis að afgreiðsla dómsmálaráðuneyt- ■ is hafi verið „lögmæt stjórnar- athöfn.“ Þá segir í dómi undir- réttar, sem hæstiréttur stað- festir, að samningsaðilar hafi mátt gera ráð fyrir að öflun leyfis dómsmálaráðuneytis gæti tekið nokkurn tíma. Sé hugsað til ummæla Þorsteins Thorarensens yfirfjárráðanda er ekki hægt að ætla að nokkur hafi búist við þeirri 22 mánaða töf sem varð. Sigurgeir Jónsson hæstarétt- ardómari skilaði sératkvæði í málinu og segir þar að hann sé sammála því að um lögmæta stjórnaathöfn hafi verið að ræða. En á móti vitnar hann í lagagrein þar sem segir að lögráðamaður skuli varðveita fé skjólstæðings síns og bæta „tjón af lögráðamannsstörfum sínum, ef hann veldur þeim af ásetningi eða gáleysi.“ Telur Sigurgeir að í kaupsamningi hafi legið fyrir allar upplýsing- ar sem snertu málið varðandi söluverð og greiðslukjör. „Hafi skoðun húsnæðisins ver- ið nauðsynleg bar ráðuneytinu að hlutast til um að yfirfjárráð- andi framkvæmdi hana eða léti framkvæma. Einu upplýs- ingarnar sem ég get séð að kynni að hafa vantað til þess að æðsti stjórnandi fjárráða ómyndugra gæti tekið afstöðu til þessa máls, eru um það, hvað gera átti við söluandvirð- ið. Um það atriði gat kaupandi eða lögmaður hans trauðla veitt upplýsingar.“ í þessu síð- asta atriði felst gagnrýni Sig- urgeirs á að eftir að upplýs- ingaskorti hefur verið borið við af ráðuneytinu verður samtal við kaupanda íbúðar til þess að salan er heimiluð. „Hinn 23. maí synjar ráðu- neytið beiðni um samþykkt sölunnar „eins og málið liggur nú fyrir.“ Hinn 3. ágúst 1973 neitar ráðuneytið enn að sam- þykkja söluna „að svo búnu“, en hinn 26. apríl 1974 sam- þykkir ráðuneytið söluna „eftir að lögmaður kaupenda hafði gengið í málið,“ segirennfrem- ur í sératkvæði Sigurgeirs. Niðurstaða Sigurgeirs í þessu máli er því skýlaus að sinnu- leysi ráðuneytisins hafi hér valdið tjóninu. Störf við tölvuskjái verða að vera mannleg ■ Nýlega var haldið í Dussel- dorf í Vestur-Þýskalandi fyrsta heimsþingið um vinnuumhverfi og voru meginmálefni þingsins um hönnun tölvuskjáa ', lykla- borða, skrifstofuhúsgagna sér- hæfðra fyrir tölvu „terminala" og vinnuherbergi. Umræðan gekk einkum út frá þeirri stað- reynd að í dag er fengist við rúmlega 80% af öllum upplýs- ingum með sjónskynjun. Komið hefur í ljós, að fyrri áhyggjur um að tölvuskjáir hefðu skaðleg áhrif a' sjón þeirra, sem við þá vinna, eru mjög ýktar.En það hafa einkum verið slæmar líkamsstellingar við tölvuskjáina tímunum saman, sem hafa haft slæmar afleiðingar fyrir starfsfólkið. Það er því nauðsynlegt að upp- lýsingar á tölvuskjám séu þann- ig framsettar að líkamlegt erfiði sé í lágmarki. Nú þegar eru í gildi almennar reglur til að tryggja að vinnu- staðir fullnægi kröfum um vinnu- aðbúnað. Til dæmis skal fjar- lægð starfsmanns frá skjánum vera a.m.k. 1,20 metrar og nægilegt pláss verður að vera fyrir bréfsefni. Umhverfið skal vera sem á- kjósanlegast. Hendur starfs- mannsins verða að hvíla á- reynslulaust á lófajöðrunum og lærleggur verður að vera í lárétt- ri stöðu. Þumalfingursreglan er því þunn borðplata og lágt lyklaborð. Skrifstofan á að vera mjög vel lýst þó enn séu deildar meiningar um lýsingu sjálfra vinnuborðanna. Reyndin hefur verið sú, að samhæfð hefur verið loftlýsing, sem beint er að skrifborðinu, og svo viðbótar- ljós á borðinu sjálfu. Ófullnægj- andi lýsing er aðalkvörtunarefni starfsfólks, og kvartar það í því sambandi yfir höfuðverk, augn- þreytu og að það sjái tvöfalt. Almennt séð, þá ætti lýsing að samsvara skilyrðum dagsbirtu. Það hefur gefið góða útkomu þegar starfsmaður horfir við vinnu sína frá glugganum og þá meira inn í vinnuherbergið sjálft. Það er óæskilegt að geyma skjöl í plasthulstrum, sem endurvarpa ljósinu og það verða að vera sterkar andstæður í bréfsefni eins og á tölvuskjánum sjálfum. Ef svo ber við, þá er nauðsynlegt að ráðfæra sig við sjónglerjasérfræðing. Ef starfs- maður þarfnast sérstakra gler- augna við vinnu sína þá ber vinnuveitanda að sjá honum fyrir slíkum gleraugum. Margir sérfræðingar halda því fram að vinna við tölvuskjái ætti að vera takmörkuð og vinnu- staður, þar sem sömu starfs- menn sinntu mismunandi störf- um væri ákjósanlegastur. Aftur á móti hefur þessi staðhæfing ekki enn sem komið er verið vísindalega sönnuð. Einar Hannesson: 50 fiskeldis- og hafbeit- arstöðvar hér á landi Fljótalax h.f. Þá er að geta um Fljótalax h.f. að Reykjarhóli í Haganes- hreppi, sem er í eigu sam- nefnds hlutafélags. Fram- kvæmdir hófust 1982 og hefur stöðin verið í uppbyggingu síðan. Þar er m.a. 1.000 fer- metra eldishús. Stöðin nýtir lindarvatn og heitt vatn sem er þarna, en unnið er að borun til að tryggja aukið vatnsrennsli til stöðvarinnar. Fljótalax hef- ur alið upp laxaseiði, selt gönguseiði til annarra, m.a. til Noregs, til áframhaldandi eldis, og staðið fyrir hafbeitar- tilraun í samvinnu við aðra. Fljót h.f Þetta er hafbeitarfélag sem fyrrnefnd stöð Fljótalax, stendur að ásamt Sambandi ísl. samvinnufélaga, Kaupfé- lagi Skagfirðinga og Veiðifé- laginu Flóka. Starfsemi þessi er á vatnasvæði nefnds veiði- félags, sem tekur til vatna- svæðis Flókadalsár í Haganes- hreppi. Heimtur hafa fengist af sleppingu gönguseiða á veg- um félagsins undanfarin ár. Austurland Um stöðu fiskeldismála á Austurlandi þarf ekki að hafa mörg orð, vegna þess að þar er engin fiskeldisstöð. Austur- land býr, eins og kunnugt er, illa að nýtanlegum jarðhita, en aðgangur að heitu vatni er lykilsatriði í fiskeldi í fersku vatni, eins og kunnugt er. Um eldi á laxi í sjó gegnir öðru máli þó að hitastig sjávar ráði auðvitað mestu um, hvort að unnt sé að stunda fiskeldi í sjó. Fleira kemur til en hagstætt hitastig sjávar. Aðstaða þarf að vera góð fyrir netkvíar; aðdjúpt og skjólgott. Tilraun með laxeldi í sjó á Fáskrúðs- firði var gerð um miðjan sein- asta áratug.'Laxiijn varfóðrað- ur í netkví samfleytt í nokkur misseri. Framkvæmd þessi varð fyrir ýmsum skakkaföllum vegna veðurs og vinda. Sýnt er að hitastig sjávar við Austur- land leyfir ekki fiskeldi í sjó árið um kring. Vafalaust verð- ur sumareldi á laxi eða um lengri tíma tekið upp á Austur- landi þegar þróun í fiskeldi í sjó er lengra á veg komin, en nú er. Suðvesturhornið Fyrr hefur verið hér í NT rætt nokkuð um laxahafbeitina á Reykjanesi. Fyrsta Iaxaklak- ið hér á landi var sem kunnugt er á Reynivöllum í Kjós árið 1884. Elsta samfellda starfsem- in af þessu tagi er hjá Klakstöð Rafmagnsveitu Reykjavíkur við Elliðaár eða í rúmlega 50 ár. Eldi sumaralinna laxaseiða hófst í stöð RR 1953 og eldi gönguseiða af laxi síðar. Árið 1951 hófst fiskeldisþáttur með dönsku sniði, ef svo má að orði komast, þegar fiskeldisstöðin að Laxalóni hóf eldi regnboga- silungs til slátrunar og sölu á erlendum markaði, en stöðin hefur selt bæði fyrr og síðar hrogn og regnbogasilung til annarra landa, og innanlands, silung til matar. Síðar hófst á Laxalóni eldi á laxi og silungi ■ Laxeldisstöð að Húsatóftum í Grindavík. ■ Laxeldisstöð Hólalax h.f. í Hjaltadal. til fiskræktar, hafbeitar og áframhaldandi eldis. Þegar Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði kom til sögunnar 1961, komst verulegur skriður á laxeldið. Þá hófst fóðrun laxaseiða allt upp í göngustærð og hafist var handa um ýmsar nýjungar í laxeldi og hafbeit. Eldisstöðin að Keldum hóf starf síðari hluta sjöunda ára- tugarins, en sú stöð var fyrst í eigu dr. Snorra Hallgrímsson- ar og félaga og síðar Tilrauna- stöðvar -Háskólans í meina- fræðum að Keldum. Seinustu átta árin hafa tekið til starfa nokkrar fiskeldisstöðvar á Reykjanesi, elst er stöð Eldis h.f. í Grindavík, sem Sigurður St. Helgason að Húsatóftum stendur fyrir, þá Pólarlax h.f. í Straumsvík, sem fyrr hefur verið nefnd, Klakstöðin við Myrkurtjörn í Mosfellssveit og Laxeldisstöð SVFR að Skógarnesi í Reykjadal. Nýjustu fiskeldisstöðvarnar eru: FiskeldiGrindavíkurh.f., íslandslax h.f. og Sjávargull h.f., allar í Grindavík. Laxeldi í sjó Fiskifélag íslands var með tilraunir í laxeldi í sjó í smáum stíl fyrir um 10 árum. Þær hófust í Hvammsvík í Kjós og lauk í Höfnum á Reykjanesi. Tilraunir voru gerðar í Lax- eldisstöð ríkisins í Kollafirði í þeim tilgangi fyrst og fremst að kanna seltuþol laxaseiða úr stöðinni. Mikilvægar upplýs- ingar fengust með þessu, er tryggði góð sjógönguhæf laxa- seiði. Sjóeldi h.f. í Osabotnum í Höfnum hefur verið með sjókvíar og selt eldislax úr þeim á markað, eins og kunn- ugt er. Hringferð lokið Með grein þessari er lokið hringferð um landið, hvað snertir fiskeldis- og hafbeitar- stöðvar. Botn er því sleginn í verkefni þetta, sem vonandi hefur upplýst lesendur nokkuð um stöðu fiskeldismála hér á landi. Fiskeldisstöðvar eru orðnar býsna margar, þó að enn sjáist merki um hversu ung þessi búskapargrein er í landinu.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.