NT - 05.03.1985, Qupperneq 14
Uthlutun bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs í Háskólabíói
■ í kvöld kl. 19.30 hefst
í útvarpi bein útsending
■ Finnska rithöfundinum
Antti Tuuri verða afhent bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs í Háskólabíói í kvöld.
frá Háskólabíói, en þar
fer fram hátíðleg athöfn,
þegar bókmenntaverðlaun
ráðsins verða afhent. Sú
útsending stendur til kl.
21, en þá hefst barna- og
unglingaleikritið Landið
gullna Elidor.
Sem kunnugt er og trú-
lega hefur farið framhjá
fáum stendur þessa dag-
ana yfir þing Norðurlanda-
ráðs í Reykjavík og því
margt um góða gesti hér á
landi þessa dagana. Auð-
vitað verður margt um
dýrðir í sambandi við þing-
haldið, en einn fastur liður
þinghaldsins er einmitt
veiting bókmenntaverð-
launa ráðsins. í ár er það
finnski rithöfundurinn
Antti Tuuri, sem varð þess
heiðurs aðnjótandi og
mun hann veita verð-
laununum viðtöku í Há-
skólabíói í kvöld.
Þriðjudagur 5. mars 1985 1 4
■ Bjarni
Ingvarsson
■ Gunnar Rafn
Guðmundsson
■ Vilborg
Halldórsdóttir
Hvað sá Róland út
um bréfalúguna?
■ í kvöld, þriöjud. 5. mars
kl. 21.00 verður á dagskrá út-
varpsins 7. þáttur framhalds-
leikritsins „Landið gullna Eli-
dor." Sá þáttur heitir „Skila-
boð frá Malebron".
í 6. þætti gerðust ýmis dul-
arfull atvik. Hvað eftir annað
heyrðu krakkarnir og foreldrar
þeirra þrusk fyrir utan útidyrn-
ar, en þegar að var gáð var þar
enginn. Róland hafði tekið
eftir því, að fuglarnir virtust
forðast að koma nærri rósa-
runnanum þó að brauðmolar
lægju þar.
Kvöld nokkurt þegar Ró-
land kom heim úr skólanum sá
hann aftur skuggana tvo, sem
hann hafði séð þegar hann
sótti dýrgripina frá Elidor upp
á háaloft í gamla húsinu þeirra.
Um nóttina læddist hann niður
og kíkti í gegnum bréfalúguna
á útihurðinni. - Þá blasti við
honum landslag Elidor, háar
fjallshlíðar þar sem hópar
veiðimanna í fornum klæðum
voru á ferð með úlfhunda. En
rétt fyrir utan dyrnar sat varð-
maður við bál.
Allt í einu varð Róland ljóst,
að útsendarar hins illa í Elidor
ætluðu að nota dyrnar sem
inngönguleið yfir í nútímann
og hann ákvað að reyna að
afmá þær í huga sér.
Nú heyrum við í 7. þætti
hvernig þetta fer og einnig
hvaða skilaboð koma frá Male-
bron.
Leikendur í 7. þætti eru:
Viðar Eggertsson, Emil Gunn-
ar Guðmundsson, Kjartan
Bjargmundsson, Kristján
Franklín Magnús, Sólveig
Pálsdóttir, Hrönn Steingríms-
dóttir, Bjarni Ingvarsson, Vil-
borg Halídórsdóttir og Gunnar
Rafn Guðmundsson.
Tónlist samdi Lárus
Grímsson, leikstjóri er Hall-
mar Sigurðsson. Tæknimenn
eru Vigfús Ingvarsson og Ás-
laug Sturlaugsdóttir.
Útvarp kl. 19.30:
■ Þúsundir íslendinga fylgdust með komu tilraunageimferjunnar Enterprise hingað til lands í maí 1983. Hún er sömu gerðar og
Kólumbía.
Sjónvarp kl. 19.25:
Geimferjan Kólumbía
■ 1 kvöld kl. 19.25 verður
sýndur í sjónvarpi fyrri hluti
norskrar sjónvarpsmyndar fyr-
ir börn og unglinga um banda-
rísku geimferjuna Kólumbíu
og undirbúning geimferðar.
Síðari hlutinn verður sýndur
eftir viku.
Það vakti ekki litla athygli,
þegar bandaríska tilrauna-
geimferjan Enterprise kom
hingað til lands 19. maí 1983 á
baki breiðþotu af gerðinni
Boeing 747. Þotan lenti á
Keflavíkurflugvelli, en hafði
áður flogið yfir Reykjavík og
fylgdust þúsundir borgarbúa
með ferð hennar. Ferð til-
raunageimferjunnar var heitið
á flugsýningu í París, en hún
var notuð til aðflugsprófana
áður en geimferjunni Kólum-
bíu var skotið á braut. Var
Enterprise í engu frábrugðin
Kólumbíu að útliti og þyngd
hennar svipuð.
í sjónvarpsmyndinni er
sýndur búnaður inni í geim-
ferjunni, sá búnaður sem til
þarf að koma henni á loft og
þær aðstæður sem geimfararnir
þurfa að búa við, þjálfun þeirra
að nokkru leyti, frostþurrkun
matar, sem þeir hafa með sér,
o.s.frv.
Þýðandi er Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
Þriðjudagur
5. mars
07.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdi-
mars Gunnarssonar frá kvöldinu
áöur
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöur-
fregnir Morgunorð Bryndís Víg-
lundsdóttir talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Pipuhattur galdrakarlsins" eft-
ir Tove Jansson Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir les þýöingu Stein-
unnar Briem (14).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.)
10.45 „Man ég það sem löngu leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.15 Við Pollinn Umsjón: Ingimar
Eydal. (RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Anna
Ringsted. (RÚVAK).
13.30 „Kántrý-söngvar"
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot Bryndís Víglunds-
dóttir les þýöingu sina (19).
14.30 Miðdegistónleikar David Ger-
ingas leikur á selló meö Útvarps-
hljómsveitinni í Berlín; Lawrence
Fostér stjórnar. a. „Melódía“ op.
20 nr. 1 eftir Alexander Glasunow.
b. „Rondó" op. 94 eftir Antonín
Dvorák.
14.45 Upptaktur Guðmundur Bene-
diktsson
15.30 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir
16.20 Siðdegistónleikar a. Sinfónia
nr. 2 eftir Hilding Rosenberg. Fíl-
harmóníusveitin i Stokkhólmi leik-
ur; Herbert Blomstedt stjórnar. b.
„Iris", sinfóniskt tónverk eftir Per
Nörgaard. Sinfóniuhljómsveit
danska útvarpsins leikur; Herbert
Blomstedt stjórnar.
17.10 Síðdegisútvarp 18.00 Fréttir
á ensku. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar
19.30 Frá afhendingu bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs í
Háskólabíói.
21.00 Barna- og unglingaleikrit:
„Landið gullna Elidor“ eftir Alan
Garner 7. þáttur: Skilaboö frá
Malebron. Utvarpsleikgerö: Maj
Samzelius. Þýðandi: Sverrir Hólm-
arsson. Leikstjóri: Hallmar Sig-
urðsson. Tónlist: Lárus Grímsson.
Leikendur: Viðar Eggertsson, Emil
Gunnar Guömundsson, Kjartan
Bjargmundsson, Kristján Franklin
Magnús, Sólveig Pálsdóttir, Hrönn
Steingrímsdóttir, Bjarni Ingvars-
son, Vilborg Halldórsdóttir og
Gunnar Rafn Guömundsson.
21.30 Útvarpssagan: „Morgun-
verður meistaranna" eftir Kurt
Vonnegut Þýðinguna geröi Birgir
Svan Simonarson. Gísli Rúnar
Jónsson flytur (23).
22.00 Lestur Passíusálma (26)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldtónleikar Óratorian
„Sál“ eftir Georg Friedrich Hándel.
Flytjendur: Thomas Hemsley, Hel-
en Watts, Herbert Handt, Jennifer
Vyvyan, Laurence Futoit, Peter
Wimberger, Margareta Sjöstedt,
Erling Thorborg, Anton og Erna
Heiller, Drengjakórinn i Kaup-
mannahöfn og Sinfóniuhljómsveit-
in í Vinarborg; Mogens Wöldige
stjórnar. Kynnir: Guömundur
Gilsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Én
Þriðjudagur
5. mars
10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn-
andi: Páll Þorsteinsson.
14:00-15:00 Vagg og velta. Stjórn-
andi: Gisli Sveinn Loftsson.
15:00-16:00 Með sínu lagi. Lög leikin
af islenskum hljómplötum. Stjórn-
andi: Svavar Gests.
16:00-17:00 Þjóðlagaþáttur. Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson
17:00-18:00 Frístund. Unglingaþátt-
ur. Stjórnandi: Eðvarö Ingólfsson.
Þriðjudagur
5. mars
19.25 Geimferjan Kólumbia -fyrri
hluti Norsk sjónvarpsmynd fyrir
börn og unglinga um bandarisku
geimferjuna Kólumbíu og undir-
búning geimferöar. Þýðandi: Jó-
hanna Jóhannsdóttir. (Nordvision
- Norska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Skyndihjálp Annar þáttur af
sex um markvissa skyndihjálp
geröur í samvinnu viö Rauöa kross
Islands. Umsjónarmenn: Ómar
Friöþjófsson og Halldór Pálsson.
20.50 Heilsað upp á fólk 9. Sigriður
Sigurjónsdóttir, Hurðarbaki. Á
haustmánuöum heilsuðu sjón-
varpsmenn upp á Sigriöi Sigur-
jónsdóttur frá Álafossi, nú hús-
freyju á Huröarbaki á Borgarfiröi.
Sigríöur var áöur landskunn sund-
drottning og forstjóri Sundhallar
Reykjavíkur. Umsjónarmaður:
Ingvi Hrafn Jónsson.
21.30 Derrick 8. Tilræði við Derrick.
Þýskur sakamálamyndaflokkur í
sextán þáttum. Aöalhlutverk: Horst
Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi:
Veturliöi Guðnason.
22.30 Kastljós Þáttur um erlend mál-
efni. Umsjónarmaöur: Ögmundur
Jónasson.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.