NT - 05.03.1985, Blaðsíða 20

NT - 05.03.1985, Blaðsíða 20
Yfirbyggður hjá Ragnari Valssyni. Fullklæddur, með sóllúgu bg toppgrind, litað gler, útvarp, litur: hvítur og rauður. Verð kr. 580.000,-. Skipti möguleg á ódýrari bíl. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SIMI 35200 ■ Landamæri Spánar og Gíbraltar. Nú er liðinn mánuður frá því að landamærin voru opnuð aftur eftir sextán ára hlé. Síðan hefur verið stöðugur straumur ferðamanna yfir landamærin. Símamynd-POLFOTO Yolvo Lapplander árg. 1980 fór á skrá 1984. Spánverjar og Bretar ræða um Gíbraltarflug MatliM-Revter ■ Embættismenn frá Bret- landi og Spáni hittust í Madrid í gær til umræðna um flugsam- göngur bresku nýlendunnar f Gíbraltar. Markmið umræðnanna var m.a. að ræða tillögur um sam- vinnu milli Spánverja og Breta um rekstur Gíbraltarflugvallar auk |>ess sem Bretar hafa farið fram á að Spánverjar létti af takmörkunum sem þeir hafa sett á flugsamgöngur nýlend- unnar. Nú er aðeins einn mánuður frá því Spánverjar heimiluðu samgöngur á milli Gíbraltar og Spánar eftir sextán' ára sam- göngubann. Spænskir og bresktr embættismenn hittust í seinasta mánuði í Genf og ræddu um framtíð nýlendunnar sern Spánverjar krefjast að fá aftur yfirráð yfir. Jarðskjálftar í Chile: Verstu náttúruham farir í fimmtán ár Santiago-Reuter ■ Að minnsta kosti 124 létust og tvö þúsund særðust í miklum jarðskjálfta í miðhéruðum Chile í fyrrinótt. Stjórnvöld segja jarðskjálftana verstu nátt- úruhamfarir í Chile í 15 ár. Stjórnvöld segja að næstum því 8000 manns hafi misst heim- ili sín í jarðskjálftanum og blaðamenn í landinu segja að í sumum smábæjum mitt á milli höfuðborgarinnar Santiago og hafnarborgarinnar Valparaiso hafa allt að 70% allra húsa eyðilagst. Mikil skelfing greip um sig í Chile við jarðskjálftann. Sjúkl- ingar voru fluttir úr sjúkrahús- um og mörg þúsund íbúar Sant- Þriðjudagur 5. mars 1985 20 Kínverskir þingmenn heimsækja Sovétríkin Moávi-Rwfef ■ Kínversk þingmannasendi- nefnd er nú í tíu daga heimsókn í Sovétríkjunum í fyrsta skipti í tuttugu ár. Heimsókn nefndarinnar, sem er undir forystu Zhang Chengxi- an, félaga í fastanefnd Komm- únistaflokks Kína, er talin sýna batnandi samskipti Kínverja og Sovétmanna sem slitu öllum vináttutengslum fyrir rúmum tveimur áratugum. Á undanförnum árum hafa Sovétmenn margoft lýst því yfir að þeir vilji bæta samskipti sín við Kínverja. Kínverjar hafa sett þrjú skilyrði fyrir bættum samskiptum. Þau eru: Sovét- menn fækki í um hálfrar milljón manna herliði við landamæri Kína, þeir kalli heim hermenn sína í Afganistan og hætti stuðn- ingi við hersetu Víetnama í Kambódíu. Sovétmenn hafa ekki orðið við þessum skilyrðum og Kín- verjar hafa dregið nokkuð úr kröfum sínum. Þeir hafa gefið í skyn að það sé nóg að Sovét- menn komi aðeins að nokkru leyti til móts við skilyrðin, t.d. með því að fækka nokkuð í hernum við kínversku landa- mærin eða minnka hernaðarað- stoð við Víetnama. Sovéska fréttastofan Tass hafði það eftir Zhang Chengxi- an eftir komu hans til Moskvu að hann væri ánægður með það að sambandið milli sovéska og kínverska þingsins hefði nú ver- ið tekið upp að nýju. Slíkt væri mikilvægt fyrir samskipti þess- ara tveggja ríkja. Yfirmanni UPI fréttastofunnar vikið úr embætti WasMnfton-Reæéer ■ Tveir aðaleigendur alþjóða- fréttastofunnar UPl hafa rekið forstjóra fyrirtækisins og til- kynnt að þeir muni draga úr áhrifum sínum á stjórn fyrir- tækisins til að tryggja framtíð bess. Douglas Ruhe og William Geissler náðu völdum í UPI árið 1982. Þeir segjast hafa rekið Luis Nogales forstjóra fyrirtækisins og Ray Wechsler fjármálaráðgjafa til að auðvelda breytingar á því hverjir skuli eiga fyrirtækið. Eftir 20 ára taprekstur sýndi UPI loksins 1.1 millión dollara hagnað á seinasta ársfjórðungi 1984 eftir að starfsfólk fyrir- tækisins samþykkti 25% kaup- skerðingu. Áðaleigendur UPI segjast nú vilja fá meira fjár- magn inn í fyrirtækið til að tryggja áframhaldandi vöxt þess. iago bjuggu um sig undir berum himni af ótta við að nýja og harðari jarðskálfta. Framleiðsla við hluta ríkis- rekna koparfyrirtækisins, Co- delco, stöðvaðist og hafnar- mannvirki skemmdust. En at- vinnurekendur segja að fram- leiðslan muni komast í samt lag innan þriggja daga. Fyrsta jarðskjálftahrinan stóð í einar fjórar mínútur en síðar fylgdu nokkrir smærri kippir. Flestir létust eða særðust í Santiago þar sem rúmlega þriðjungur 12 milljón íbúa Chile á heima. ■ Þessi strætisvagn var illa leikinn eftir jarðskálftann í Santiago í Chile. Múrsteinar hrundu úr byggingum og brutu yfirbyggingu vagnsins. simamvnd:POi.FOTO Sviss: Pólitískir brennuvargar Genf-Reuter: ■ Áðuróþekkturstjórn- málahópur „Óháðu sell- urnar“ hefur á undanförn- um mánuði kveikt fimm sinnum í opinberum bygg- ingum og byggingum stjórnmálaflokka til að leggja áherslu á andstöðu gegn bæði fasisma og kommúnisma. Hópur þessi hefur lýst á hendur sér ábyrgð á íkveikju í höfuðbækistöð svissneska kommúnista- flokksins og hann hefur einnig kveikt í sönghöll, komið fyrir sprengju fyrir utan lögreglustöð og kveikt í lestarvögnum á aðaljárnbrautarstöðinni í Genf. Nýjasta árás hópsins var fólgin í því að kveikja í sex herbílum fyrir utan herbúðir í Genf. Þetta er jafnframt sjötta árás Óháðu sellanna. Nicaragua: 190 féllu íbardögum Managua-Reuter: ■ Um 190 skæruliðar og óbreyttir borgarar féllu í síðasta mánuði í átökum við hægrisinnaða skæru- liða sem njóta stuðnings Bandaríkjamanna. Talsmaður varnarmála- ráðuneytisins sagði um helgina að skæruhðar hafi myrf 20 óbreytta borgara, og rænt 66. Stjórnarher- menn felldu 166 skæruliða í síðasta mánuði og særðu 80. Hann upplýsti ekki um mannfall í stjórnarhern- um.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.