NT - 21.03.1985, Síða 1
markaður
Reynsluakstur: Honda Accord • Superkart •
Saga japönsku bílaverksmiðjanna: Mitsubishi •
Mengunarvarnir
11. tölublað
2. árgangur
Fimmtudagur
21.mars1985
Umsjón:
Ari Arnórsson
■ Ekki verður af Fiero skafíð að hann lítur fallega út.
■ MR2 stendur fyrir Mid engine Runabout 2 seater, eða 2 sæta miðjumótors uinhlaupari í beinni
snörun. Heimildir NT kveða hann vera sannan sportbíl í akstri.
Sportbílar á hvers manns disk
■ Þaðvantarekkifjölbreytn-
ina þegar úrval nýrra bíla er
skoðað. Þó virðist endalaust
vera hægt að finna nýjar glufur
og gloppur og hanna nýja bíla
sem fylla skörð í markaðnum.
Háþekjubílar, fjórhjóladrifs-
bílar, kraftabílar, ofurbílar,
hvað næst?
Ódýrir sportbílar.
Það tók forráðamenn
hönnunardeildar Pontiac mörg
erfið ár að sannfæra GM
vindilpúara á efstu hæðum að
áætlanir þeirra um lítinn
tveggja manna bíl eins og Fiat
X '/> væru raunhæfar og seljan-
legar. Á endanum hófst fram-
leiðslan undir því yfirskyni að
Fiero væri ekki sportbíll heldur
„personal commuter", eigum
við að segja „einstaklings
snattbíll", og eftirspurnin varð
margfalt fram yfir áætlanir.
Vélin er þverstæð fyrir aftan
ökumann og farþega, í ramma
sem tekinn er óbreyttur með
fjöðrun og öllu saman úr
framdrifnu „X" bílum GM,
Chevrolet Citation o.fl., bara
þarf að skrúfa stýrisarmana
fasta. f þennan litla bíl er 2,5
lítra vélarrúmtak yfirdrifið nóg
ef vélin væri önnur en gamli
„Járngreifinn", Kanar kalla
hana „Iron Duke". Rúmtakið
deilist niður á fjóra strokka í
gamaldags hæggengri pott-
járnsvél og þungur þreyttur
puðarinn á illa heima í sportbíl
þó hann standist allar mengun-
arkröfur.
Tvennt gerðist nú á sama
tíma: Fiero fékk vél (2,8 lítra
Chevrolet V6 með innspýt-
ingu) sem betur hæfir: 140 hö.
snúa nú afturhjólum 1211 kílóa
þungs bílsins í stað 92. Með
fylgja breytingar á fjöðrun til
að færa aksturseiginleikana
nær því senr ætlast er til af
sportbíl með vélina í miðjunni.
Annað: Fiero fékk keppi-
naut sem fer nú um allan heim,
bíl ársins í Japan. Frá öðrum
stærsta bílaframleiðanda
heims, Toyota sem meiri
áherslu hefur lagt á algjört
bilanaleysi en algjöra aksturs-
eiginleika kemur MR2 eldaður
eftir sömu uppskrift og Fiero
og Fiat X 'A. Fyrir 3 vikum var
í BNT sagt frá framdrifinni
Corolla GT með 1600 rúmsm.
vélina þverstæða fram í, um
leið hönnuðu Toyotamenn
annan með sama kramið knýr
afturhjól MR2. Ameríkanar
fengu hann á undan Evrópubú-
um og segir Motor Trend áður
en það blað valdi MR2 besta
innflutta bílinn ’85: Hinn full-
komni æfingabíll fyrir verð-
andi kappaksturshetjur og
fleira í þeim dúr. Evrópubúar
taka MR2 með meiri stillingu,
gaman verður að sjá hvar hann
lendir í kosningunni um bíl
ársins í Evrópu, hafandi tekið
bæði heimalandið og Banda-
ríkin. Betra býðst ekki sönnum
ökumönnum fyrir um 700.000
kr. sem bíllinn myndi kosta
hér.
Af Fiat X'/v, forföður allra
hinna er það að frétta að hann
veröur endurreistur á næstunni
sem Bertone X lA, losaður við
klumbustuðarana sem lýttu
hann svo mjög og gefinn gler-
kúpull yfir afturendann. Það
sem helst þurfti var meiri kraft-
ur og lægra verð en hvorugt
rætist. Ekki eru því horfur á aö
Bertone X1/; veiti MR2 harða
keppni nema á heimamarkaði
þar sem japanskir bílar eru
bannaðir.
Hörð kcppni kentur fyrst
þegar Mazda og Nissan senda
út sínar útgáfur af framdrifs-
kram-fært-afturí sporturum,
það kostar ekki mikið þegar
allt er til staðar í hillunum og
aðeins þarf að hanna nýja
boddýskel. Erfiðast verður að
selja og framleiða nógu marga
til að ævintýrið borgi sig, Fiat
gafst upp á X'/) og konr honum
á Bertone, hafði þá tapað stór-
um summum.
Toyota notar litla ótölvu-
vædda verksmiðju til fram-
leiðslu á MR2 og takmarkast
framleiðslan við 60.000 eintök
á ári. Ef Ameríkönum líkar
útlitið verður það allt of lítið
eins og Pontiac konrst að þegar
100.000 btla ársframleiðslan af
Fiero seldist upp fyrir mitt árið
í fyrra. Því miður er gengi
dalsins svo óhagstætt að verðið
hér yrði svinrandi hátt, og
hefur umboðið, Bílvangur, því
ckkert hugleitt innflutning P.
Samúelsson, Toyota umboðið
sér heldur ekki stóran markað
fyrir sinn, en reynist nægur
áhugi er hægt að flytja nokkra
inn. Fiat umboðiö getur boðiö
Bertone X 'A seinna á árinu en
þar er hætt við að sama verði
upp á teningnum, of fáir sem
vilja leggja fé sitt í tveggja sæta
miðjumótorssportbíla án al-
mennilegs farangursrýmis.
Það að þeir eru nú fram-
leiddir er þó úppörvun, og
áskorun til njótenda góðra
bíla. AA
WMGIobusn
Lágmúla 5, Keykjavik,
síini 81555.
©
©
(X
Bílasala Garðars
Borgartúni 1 sími: 19615
©
Mercedes-Benz
RÆSIR HF
Skúlagötu 59. Simi 19550
bilcS
©
BILA-OG VELASALAN
HÖFÐATÚNI 2 SÍMI 2-48-60
©
M
BILASALA HINRÍKS
SÍMI93-1143
AKRANESI
©
JOFUR HF
NYBYLAVEGI2
KOPAVOGI
SIMI 42600
©
©
BHVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
©
BÍLASALA SELF0SS ©
BILABORG HR
Smiðshöfða 23 sími 812 99
Arnbergi
Sími 99-1416.