NT - 21.03.1985, Blaðsíða 3
ABÓT
■ Ventlalokið er fallegt fyrir augað
með upphleyptum stöfum: Honda 12
Valve. Eins og vant er í japönskum
bilum er rúmt um vélina og gott að
komast að.
Fimmtudagur 21. mars 1985
3-Blaðll
Mengunarvarnir
í íslenska bíla?
■ Mengunarvarnir er eitt
aðal umræðuefnið í Evrópu
þessar vikurnar. Bílum er
kennt um hið súra regn sent
brennir skóga Evrópu niður
hægt og bítandi. Allir kcpp-
ast við að setja bíla sína á
ntarkað með „mengunar-
kút“, kút sem með hita og
eðalmálma sent hvata breyta
skaðlegum efnunt í afgasittu
í ó-eða lítt skaðlega. Kútur-
inn hækkar verð bílanna,
vélarorka minnkar í flestum
tilfellum og eyðsla eykst, en
eitthvað verður að gera.
Þjóðverjar ætla að ganga á
undan löndunum allt í
kring og skylda notkun
mengunarkúta frá 1986, get'a
þeim skattaafslátt sent útbúa
eldri bíla sína nteð mengun-
argræjunt og fleira. Ekkert
blý má vera í bensíni „Kat"
- bílanna sem Þjóðverjar
nefna svo (stytting úr Katal-
ysator) því þá stíflast og
eyðilcggjast kútarnir, en
nteinið er að blýlaust bensín
er illfáanlegt í Evrópu. Suntir
draga upp dökka mynda af
hinni hefðbundnu Ítalíuferð
þýskrar fjölskyldu, þannig
að við landamærin þurfi að
leggja nýja bílnunt og labba
niður að strönd þar sem ekki
fæst rétt bensín á Ítalíu.
En hvað um okkur íslend-
inga, kemur ntengunarvarn-
arlöggjöf á bílana eins og
reykingafólk, og þurfunt við
að fara að kaupa og hirða
mengunargræjur?
Svcinn Ingvarsson hjá
Bifreiðaeftirliti Ríkisins
sagði enga hreyfingu í þá átt.
Enginn hefði lýst áhuga á
þessu, enda er ntengun frá
bílum ekki vandamál sé hún
ekki verri en nú. Fylgst er
með þróuninni enda fara
evrópskir bílar bráðum að
koma svona útbúnir.
Vinir vorir Tékkar þutfa
að hugsa sig betur um, hjá
þeint er skógardauði ekki
minna vandamál sumsstaðar
en annarsstaðar í Evrópu.
Fyrstu hreinsikútaútbúnu
Skodarnir koma frá þeint í ár
og skref fyrir skref munu
tékkneskir bílar verða
þannig, ekki þó fyrr en 1990
í fyrsta lagi. Sovétmenn eru
í sömu stöðu að útflutnings-
markaðirnir krefjast meng-
unarvarna en þar standa þeir
betur að vígi vegna þess að
þeir hafa flutt Lödurnar sínar
á Kanadamarkað mcð meng-
urnarhreinsikútum.
„Alljr eru að gera það,
allir eru að gera það,“ nenta
við og megum prísa okkur
sæla fyrir það. A.A.
búnar og ekki út í bláinn. Það sannast
af því að fleiri fylgja dæmi þeirra.
Toyota og Mitsubishi nú þegar og
fleiri á næstunni.
Accordinn hóf göngu sína árið 1976
að mig minnÍBsem „meðallítill" bíll,
og þrátt fyrir ýmsar breytingar,
skott aftan, nýtískulegan framenda,
betri innréttingu, meiri útbúnað,
stærri vél o.s.frv. er bíllinn jafn stór
og áður. Fyrir ökumann og framsætis-
farþega er ekki yfir neinu að kvarta,
sætin eru líka mikið stillanleg en svo
dýr og vel útbúinn bíll og Accord
EXR er á maður von á að bjóði betra
rými fyrir þá sem aftur í sitja. For-
stjórinn ekur Accord sjálfur, frekar
en að sitja afturí. Úr þessu verður
bætt seinna á árinu þegar Honda HX
(um nafnið er ekki vitað ennþá)
kemur á markaðinn. HX verður mun
stærri en Accord og loksins þá verður
hægt að fá hina frægu V6 vél sem
byggð er á Formúlu kappasktursvél-
inni. Samstarf við hönnunarvinnuna
hefur verið náið við Austin-Rover
ríkisverksmiðjurnar i Bretlandi og
sjá þær um framleiðslu fyrir EBE
löndin í stað núverandi Rover 3500.
Fyrir Honda verður HX hrein viðbót
og teygir arminn inn á veiðilendur
Mercedes-Benz 260E, BMW 528i og
Audi 200. Þangað til heldur Accord-
inn áfram að narta neðan í þann
markað, en eiginlega er hann á sínum
skika, fremur lítill og sparneytinn en
útbúinn og hagar sér eins og stærri
bíll. Fyrir þær 723.000 krónur sem
prufubíllinn okkar kostaði fást ýmsir
bílar en engir alveg sambærilegir.
Verðið háir Hondum í sölu hér á
íslandi, en það á eftir að lagast.
Víst er um það að fyrir peningana
fær maður þann japanska bílinn sem
líkastur er evrópskum í hönnun,
Civic línan, nýjasta útspilið, er eitt
besta dæmi um frumleika í bílahönn-
un. Þrátt fyrir nýjar hugmyndir og
nýtískulegt útlit leggja Hondamenn
gífurlega áherslu á að bílar þeirra líti
ekki bara út fyrir að vera vandaðir,
það hefur unnið þeim ófáa kaupend-
ur, heldur verði þeir að vera vandað-
ir. Gæðaeftirlit er strangt og frá-
gangurinn er fyrsta flokks. Sama má
segja um skiptingu 5 gíra kassans,
stöngin flýgur milli gíra án fyrirstöðu
eða hljóðs. Auðvitað er fáanleg sjálf-
skipting ef menn vilja, en heldur vildi
ég halda gírskiptingunni mér til
ánægju.
Já, það er ekki bara verðið sem er
við hæfi forstjóra, sumir kalla Hondu
japanska Bensinn þótt það sé langt
gengið. Vilji menn minnka við sig án
þess að missa þægindabúnað er Acord
EXR sá rétti. AA.
Ford Fiesta er vandaour og rúmgóður bíll með nýtískulegt útlit.
Hann er framdrifinn og býður upp á góða aksturseiginleika. Góð
þjónusta og lítill rekstrarkostnaður hafa haldið Ford Fiesta í hærra
endursöluverði en þekkist um sambærilega bíla hér á landi.
Nú bjóðum við hinn sívinsæla Ford Fiesta á verði sem erfitt er að
líta framhjá.
Aðeins kr. 289.000.-
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifan 17 Sími: 685100