NT - 21.03.1985, Page 6
ff¥7 Fimmtudagur 21. mars 1985 6 - Blað II
ui ÁBÓT Bílamarkaður
Beöið eftir að allt verði klárt.
■ Ýtt í gang. „Svona kveiktu nú, tíkin þín, það eru allir að
fara framúr.“
Heimsmeistarakeppnin í Superkart:
Að nálgast þriðja hundraðið með tærnar upp úr plasthlífinni.
Formúla 1 fátæka mannsins
■ Þegár blaðamuður BNT
kom síðast við á kappaksturs-
brautinni í Le Mans í Frakk-
landi var þar nóg að gerast:
Kartmenn héldu heimsmeist-
aramót í rigningunni.
Hvað er Kart? Þessi oggo-
litlu apparöt eru upprunnin í
Bandaríkjunum um 1962 og
áttu sitt blómaskcið á þeim
áratug. Kart er í rauninni eins
lítið og hægt er að komast af
með en halda samt einkennum
bíls, eins og fjögur hjól, stýri,
bremsur, vél og sæti fyrir full-
vaxinn mann. Óþarfa eins og
fjöðrun og yfirbyggingu er
sleppt.
Sumir lesendur NT hafa
prófað svona tæki á sólar-
ströndum Suður-Evrópu, aðrir
séð þetta annarsstaðar. Þeir
sem á annað borð hafa nokkuð
gaman af akstri eða léku sér
með leikfangabíla þegar þeir
voru litlir/litlar hafa eins og ég
fengið bakteríu sem ekkert fær
úr því drepið. Þetta er hrein-
asta form akstursánægju,
„beint í æð."
En þróun á sér stað í ein-
földu deildinni eins og annars
staðar. Flest-öll tilbrigði við
grunnstefið hafa verið reynd
og hér sést toppurinn í dag:
Superkart. í Superkart er
keppt í tveimur flokkum, 125
og 250 rúmsentimetra véla.
Þér kann að þykja þetta litlar
vélar, en hvað segirðu þá um
að ná 230 kílómetra hraða
með rassinn 5 sentimetra yfir
jörðu? Já, þótt hestöflum vél-
anna sé haldið í skefjum með
því að banna Yamaha Power
Vale og slíkt gefa tveggja
strokka Rotax tvígengiskrílin
(margar fleiri tegundireru not-
aðar en Rotaxinn er algengast-
ur) 65 til 70 hestöfl þegar allt
passar saman. Dekkin eru með
slitbana úrsvo mjúkuog klístr-
ugu gúmmíi að það er hægt að
hnoða milli fingra sér en samt
horfði maður upp á þá spóla út
annan og áfram í þriðja af 6
gírum! Þegar byrjaði að rigna
var svo hægt að spóla að vild.
Tveir af fremstu keppendun-
um snerust og runnu samtímis
eins og í æfðum dansi í dans-
skóla út af beygju og skullu
afturábak inn í hálmbaggana
sem af forsjálni og reynslu
hafði hafði verið komið þar
fyrir.
Keppnin var ein sú allra
mest spennandi og ekta sem ég
hef séð, hreinn og ómengaður
kappakstur, eða eins og Steve
Styrin, einn fremsti kartari
heims orðaði það á sinni kok-
andi ensku: „The cheapest and
purest form of Racing, mon.
that’s why I’m still in it.“
„Ódýrasta og tærasta form
kappaksturs, m’ar, þess vegna
er ég ennþá í þessu.“ Styrin
tókst þó ekki að ná heims-
meistaratitlinum að þessu
sinni, fór útaf í úrslitunum,
það hnoss hreppti Svíinn
Lennart Bohlin á Zip Kart
með Rotax.
Keppendur í þessu spenn-
andi móti voru frá mörgum
löndum, öllum Vestur-Evr-
ópulöndum og Bandaríkjun-
um, en mest frá Frakklandi og
Bretlandi. Kart hefur í gegn
um tíðina verið fyrsta skref
verðandi Ein-formúlunga í
stiganum og mannaskipti eru
ör. Sumir halda þó tryggð við
Kartið þótt völ sé á að klifra
„hærra,“ því þeim finnst ekki
bjóðast neitt betra þótt meiri
peningar rúlli annarsstaðar.
Þannig er til dæmis um Lennart
Bohlin sem ók gamla innrétt-
aða rútubílnum sínum með
tvo hjólasleða, vélar og vara-
hluti með kunningjum sínum
sem önnuðust viðhald heiman
frá sér til Vestur-Frakklands.
Ég horfði upp á úrbræddar
vélar rifnar í frumeindir úti í
rigningunni, skipt um steiktar
legur og rifna sveifarása, allt
sett saman og skellt í á mínút-
um.
Aðrir höfðu tjald, forhengi
eða annað slíkt til að vinna í en
andinn var allsstaðar léttur og
góður, allir virtust reiðubúnir
til að að aðstoða hver annan.
Hvílík hátíð miðað við
stressað, grimmt andrúmsloft-
ið í kring um Formúlu 1 keppn-
ir sem eru þegar allt kemur til
alls ekkert skemmtilegri.
Kart braut geta íslendingar
komið sér upp fyrir lítið fé, og
innkaup og rekstur Kart er
ekki meiri en svo að hér gæti
Fichtel & Sachs verksmiðjurn-
ar vestur-þýsku eru leiðandi
framleiðendur á gas- og olíufyllt-
um höggdeyfum í allar helstu
tegundir evrópskra og japanskra
bifreiða.
Hjá Fichtel & Sachs sitja gæðin
í fyrirrúmi, enda nota Mercedes
Benz, BMW, SAAB, Volvo og
nær 40 aðrir vandfýsnir bifreiða-
framleiðendur Sachs höggdeyfa
í bifreiðar sínar.
Eigum fyrirliggjandi höggdeyfa í
algengustu gerðir evrópskra og
japanskra fólksbíla.
ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM
FYRIRVARA ALLA FÁANLEGA
HÖGGDEYFA í FÓLKS-, VÖRU-
OG LANGFERÐABIFREIÐAR.
■w-NTJ
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
©
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
F Alki n n
FYRIR SACHS HÖGGDEYFA SACHS SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670
■ Þeir hjá Mitsubishi eru að vonum stoltir yfir að hafa framleitt fyrsta
al-japanska fólksbílinn - Model A árgerð 1917.
■ Þessari greinaröð er ætlað að
sýna að japanskar bílaverksmiðjur
eiga sér engu ómerkari sögu en aðrar,
og bakgrunnur þeirra er þess virði að
kynna sér. í stafrófsröð, hér er sú
fjórða: Mitsubishi.
Mitsubishi getur rakið ættir sínar
allt aftur til 1870 þegar Ytaro Iwasaki
stofnaði lítið útgerðarfyrirtæki, Tsuk-
uma Shokai. Mjór er mikil vísir, því
í dag er Mitsubishi stærsta fyrirtækja-
samstæða Japans og teygir anga sína
inn á nær öll svið mannlegrar starf-
semi. Bíladeildin er tólfta stærsta
fyrirtæki heims á sviði fólksbílafram-
leiðslu, ofar ef vöru- og
fólksflutningabílar eru taldir með.
Á þeim uppgangstímum sem fylgdi
í kjölfar Meiji endurskipulagningar-
innar 1863 var megináhersla lögð á
iðnvæðingu og aðrar framfarir í liinu
vanþróaða Nihon. Yamanouchi fjöl-
skyldan volduga lagði fé í Iitlu skipa-
útgerðina hans Iwasaki árið 1873 og
breyttist nafniö þá úrTsukumo Shok-
ai í Mitsubishi Shokai. Mitsubishi
þýðir þrír demantar og er dregið af
merki félagsins sem sett er saman úr
fjölskyldumerkjum Yamaouhi og
Iwasaki ættanna. Mitsubishi þandist
út og varð fljótt að einu að hinum fáu
stóru „zaibatsu” sem ekki á sér alveg
hliðstæðu á Vesturlöndum. „Za-
ibatsu” var lausbundin keðja fyrir-
tækja sem spönnuðu allt hugsanlegt
sem starfa mátti við. Kjarni Zaibatsu-
anna var banki og lánastofnun sem
vakti yfir öngunum og hlúði að vexti
þeirra. Með í hringnum voru verslun-
arfyrirtæki sem sáu um að selja þann
varning sem framleiðslufyrirtæki za-
ibatsuins framleiddu og með þessari
samtryggingu var hægt að taka þátt í
hverju því sem peninga mátti græða á.
Eitt af því töldu ráðamenn Mits-
ubishi vera bílaframleiðsla. Árið 1917
hófst fyrsta fjöldaframleiðsla (á þeirra
tíma mælikvarða) á japönskum bíl,
Mitsubishi Model A. Það ævintýri
endaði að vísu fljótlega og fólksbíla-
framleiðslan lagðist niður til 1960.
Flutningabílar voru auðveldari við-
fangs og brýnni þörf fyrir þá. Vörubíl-
ar Mitsubishi (undir nafninu Fuso)
áttu þegar árið 1925 hlut í að endur-
reisa Tokyo eftir Kanto jarðskjálft-
ann mikla sem lagði borgina í rúst.
Fyrsti vörubíll Japans með díselvél
var líka Fuso ‘35 módel og á þessari
reynslu byggir Mitsubishi Motors
flutningabílaframleiðslu sína í dag. í
Japan eiga þeir stóra sneið markaðar-
ins og sækja á á útflutningsmörkuð-
um.