NT - 21.03.1985, Side 7
■ Svona á að nota útileguborð - til þess að geyma á bíla inni í
tveggjamanna tjaldi. Takið eftir felgunuin - þær eru úr plasti...
þetta blómgast. Ekki bara á
sumrin. Norðurlandabúar
keppa enn meira á veturna og
þá á ísilögðum vötnum með
ísgadda. Þar er eitthvað fyrir
áhorfendur. AA
Myndir og texti:
Ari Arnórsson
Fimmtudagur 21. mars 1985 7-Blaðll
■ Kart keppandi tyllir scr í plast skelina sem
heldur honum á pínulitlum hjóiasleðanum. Að
skondra hringinn í kring um ósle'tta Circuit Bugatti
brautina í Le Mans á allt yfir 200 kílómetra hraðaí
ausandi rigningu... er nokkuð skemmtilegra til, ha?
■ Ef rignir fær maður sér bara regnhlíf til að skýla bílnum sínum.
Saga japönsku bílaverksmiðjanna:
Mitsubishi
Seinna stríðið varð afdrifaríkt fyrir
„zaibatsuin" Mitsubishi, Mitsui, Sumit-
omo og fleiri. Hernámslið Amerík-
ana braut þau upp í smátt og bannaði
með lögum í krafti einokunarlaga.
Svo stórar og voldugar samsteypur
gátu haft allt of mikil áhrif töldu
Ameríkanar. Þegar þeir slepptu
hendi sinni af Japan leið ekki á löngu
þar til Mitsubishi Aircraft, Mitsubishi
Shipbuilding og Mitsubishi Heavy
Industries sameinuðust í eitt undir
nafni þess síðastnefnda. Út frá því
bákni var bíladeildin klofin 1970 og
Mitsubishi Motors Co. stofnað. Um
leið byrjaði útflutningur fyrir alvöru
með fyrsta Galantinum.
Fólksbílaframleiðslan hafði hafist
áratug fyrr (ef frá er talinn Model A)
Með Mitsubishi 500, skrípilegum
rassmótor smábíl í anda áætlana ríkis-
ins um bíla handa almenningi. Minica
með vél fram í fylgdi 1962, Colt 1000
tók við af Colt 600 1963, 1964 var
Debonair hannaður fyrir flutning á
fyrirfólki og embættismönnum. 1973
kom svo bílinrf sem setti Mitsubishi
meðal hinna stóru, Lancer. Tveim
árum áður keypti Chrysler Corp. hlut
í MMC og útflutningur til Bandaríkj-
anna hófst. Chrysler á nú 15% hluta-
fjár í MMC (MMC á hlut í Chrysler
á móti) og bílar Mitsubishi voru seldir
sem Dodge og Plymouth. Ákveðið
hefur verið að hætta þeirri iðju, og
MMC byjaði að koma sér upp eigin
söluneti í Bandaríkjunum 1981, en
enn má t.d. fá Mitsubishi Starion sem
Plymouth Conquest ef menn vilja
frekar kaupa ameríska bíla en jap-
anska þótt enginn munur sé á jDeim
tveim nema nafnið.
Mitsubishi Motors er eins og Su-
baru deild í risastórum hring og hefur
það auðvitað áhrif á starfsemina.
Allar meiriháttar ákvarðanir þurfa að
fara upp í gegn um valdapýramída og
framkvæmdin aftur niður eftir honum
öfugt við t.d. Honda sem vegna
■ Mizushiina 1946. Þríhjól svipuð
þessu unnu mikið starf við endurreisn
Japans eftir seinna stríðið.
„lárétts“ stjórnkerfis síns getur tekið
ákvarðanir fljótar en risafyrirtæki. Á
móti kemur að fjárráð og styrkur er
nær óþrjótandi og flýtir fyrir þegar
ráðast þarf í stórræði að hafa beinan
aðgang að fjármagni í gegn um Mits-
ubishi Bank (sem meðal annars hefur
lánað íslenska ríkinu stórar summur
í gegnum tíðina).
Það má segja að „zaibatsu" kerfið
hafi verið endurvakið enn voldugra
en áður, og stefnan er alltaf.sú sama:
stækkun, útþensla. Hingað til hefur
Mitsubishi hringnum tekist það vel,
og enn meira áberandi verður að
vegna hinnar óvenjulegu stefnu að
nota sama nafnið á allt frá blýöntum
til risaolíuflutningaskipa, geimflauga
og vatnsaflsvirkjana (sbr. Kröflu).
Vesturheimskir aðhringir eru yfirleitt
í miklum feluleik með starfsemi sína
og eru skipulagðir þannig að miðfyr-
irtækiðsem á að raka saman fé í vasa
einstaklings eða einstaklinga á dótt-
urfyrirtæki sem eiga dótturfyrirtæki
o.s.frv. Mitsubishi, Mitsui, Fuji.
Sumitomo og fleiri eru skipulögð röð
eða hringur og fer arðurinn jafnóðum
út í starfsemina í stað þess að safnast
á einhvern einn Howard Hughes eða
Rockefeller til kaupa á spönskum
miðaldaköstulum og fiskivötnum í
Skotlandi.
Þess vegna er andstaða almcnnings
ekki merkjanleg við þessi nýmóðins
Zaibatsu, þau hugsa líka vel um sína.
Mitsubishi er í rauninni lítið félag
■ Gamli seigi Lancerinn opnaði
leiðina inn á útflutningsmarkaðinn.
innan þjóðfélags með sína eigin
skóla, heilbrigðisþjónustu, bað-
strendur og annað sem tilheyrir til
afnota fyrir starfsfólk sitt.
Bílarnir hafa verið einir sterkustu
og bilanafríustu af níu bílategundum
Japans, enda einfaldir. Enginn Mits-
ubishi sem nú er boðið upp á er þó
eldri en frá 1982.
Mitsubishi vill fá á sig orð fyrir
framþróaða tækni og beitir þar helst
fyrir sig afgasforþjöppunni. Mark-
miðið er að allir Mitsubishi bílar fáist
með forþjöppu að vild og munar má
segja engu að það standist í dag,
meira að segja 550 rúmsentimetra
krílið fæst útbíaður í Turbo merkjum
fyrir þá Japani sem vilja skera sig úr
öllum hinum skattspörurunum. Með
nýjabruminu hefur skærasti glansinn
nuddast af tískuorðinu Turbo en það
verður tryggur förunautur MMC inn
í framtt'ðina, á þessu ári er von á
forþjöppum með keramik spöðum
(auðvitað framleitt af einu Mitsubishi
fyrirtækjanna) og fleira nýtt er í
bígerð innan þessa stóra hrings. Þótt
salan á heimamarkaði gangi illa núna
sem (kennt er um að aðalbílarnir
Tredia og Cordia séu ekki nógu
spennandi fyrir japanskan almenn-
ing, er framtíðin ekki annað en trygg.
Umboðið á íslandi hefur Hekla hf.
ásamt VW-Audi og Austin-Rover.
AA
Fyrsta díselvélhjólið
■ Indverjar eru sér á parti í farartækjaframleiðslu. Þar
í landi er komið á markað mótorhjói með einsstrokks
loftkældri 350 rúmsentimetra - díselvél. 7 hestöfl telst
þessi einstaka vél framleiða með viðeigandi látum, en á
móti kemur að eyðslan nemur um einum lítra af hráolíu
á 100 kílómetra. Tankurinn tekur 15 lítra, svo möguleiki
á að vera að komast 1.500 kílómetra á tankinum. Það er
sko heimsmet...
SCANIA 815 1977
Finnskt Delta Plan hús. Svefn-
sæti fyrir 41.
M.BENZ 1319 1980
Yfirbyggður hjá Þingvallaleið. 41
manns.
SCANIA 110 1973
Sindra pallur 5.85. Góð dekk.
VOLVO N10 1977
Upptekin vél. Nópa pallur 5.20
Gæti verið með nýjum palli.
M. BENZ 1419 1974 M.BENZ 113 1974
360 vel. Ný dekk. 54 manna. 352 vél. Sterkt hús. 32 manna.
MITSUBISHI ROSA 1980
Ekinn 74 þús. km. Ný dekk. 20
manna.
STEYPUDÆLUBÍLL
M.Benz 808 1972. 14-15.5 m.
Bóma- Wibo 1114 dæla
VOLVO F10 1978
Nýupptekin vél. Pallur 5.30.
rúmmetra steyputunna.
VOLVO F610 1982
Ekinn 60 þús. km. Ný dekk.
Borgarneskassi 6 m.
BILA-OG VELASALAN
HÖFÐATÚNI 2 SÍMI 2-48-60