NT - 28.03.1985, Page 3
Fimmtudagur 28. mars 1985 3
iilr--------
Einar Ólafsson:
Hver er ofalinn á
20 þús. kr. launum?
- svari því hver sem vill
■ Það kveður við harðan tón
í ályktun aðalfundar Starfs-
mannafélags ríkisstofnana sem
haldinn var sl. þriðjudag. NT
spurði Einar Ólafsson formann
félagsins hvort verkfallstónn-
inn hefði verið gefínn fyrir
haustið.
Tvímælalaust, meiningin er
ekkiönnur. Þærkjarabætursem
við fengum út úr verkfallinu í
haust eru svo gott sem horfnar
og eins og komið er í kjaramál-
um opinberra starfsmanna lifir
stærstur hluti þeirra ekki af
sínum launum.
Nú talið þið um 20 þúsund
króna lágmarkslaun?
Miðað við yfirlýsingar for-
sætis- og fjármálaráðherra
vegna kennaradeilunnar þá
hefði ég haldið að þessi 20 þús.
, króna krafa væri of lág. Er það
ofalinn maður sem fær 20 þús.
króna laun? Svari því hver sem
vill.
Hefur SFR ekki tekið þátt í
samráði undanfarið?
„Hvorki SFR eða BSRB hef-
ur verið kallað til til þess að
leysa vanda launþega. BSRB er
hins vegar stundum kallað til til
að leysa vanda óstjórnarinnar."
Nú talar aðalfundurinn um
að velferðarsamfélagið sé í
hættu?
„Það er náttúrlega fyrst að
telja að heimilin eru í hættu, en
eins og hefur komið fram í
fjárlögum þá er tilhneiging til
þess hjá ríkisvaldinu að skera
niður samneysluna t.d. heil-
brigðisþjónustuna. Það er skor-
ið niður og sparað í stað þess að
snúa sér að raunverulegri hag-
ræðingu.“
Þið talið um að sameinuð
launþega hreyfíng þurfi að snú-
ast til varnar.Er verkalýðshreyf-
ingin sameinuð?
1977 lyftu launþegar grettis-
taki þegar 100 þúsund króna
krafan var borin fram til sigurs.
Við þurfum á sams konar átaki
að halda nú og árangri nær
verkalýðshreyfingin ekki nema
hún standi sameinuð.“
Nú eru tæplega 5000 félags-
menn í SFR, er hiti í mönnum?
„Það var einhugur um þessa
ályktun á aðalfundinum og áður
hafði 100 manna trúnaðar-
Fá fyrirtæki á ís-
landi betur stæð en
Sementsverksmiðjan!
■ „Þetta frumvarp vefst fyrir mér og ég sé ekki
tilganginn með því en það læðist sá grunur að mér að það
séu steypustöðvarnar sem með þessum hætti vilji eignast
aðild að fyrirtækinu,“ sagði Eiður Guðnason í umræðu í
efri deild í gær um frumvarp til laga um stofnun hlutafélags
um Sementsverksmiðju ríkisins.
■ Einar Ólafsson, formaður
SFR. NT mynd Ari
mannafundur samþykkt þessa
stefnu samhljóða.“
Nú tala stjórnmálamenn um
kollsteypu sl. haust. Leiða þess-
ar kröfur ekki til nýrrar koll-
steypu í haust?
„Frá því að ég man eftir hafa
stjórnmálamenn ekki talað um
annað en að allt sé að fara fram
af hamrinum. Við vitum það
hins vegar að tekjur þjóðfélags-
ins eru það ríflegar að menn
eiga að geta lifað hér mannsæm-
andi lífi. Á því er ekki nokkur
vafi. Verkalýðshreyfingin hefur
ekki stjórnað fjármálum þessa
þjóðfélags fram að þessu.“
Kom fram hjá Eiði að sjálf-
sagt væri að setja nýja löggjöf
um Sementsverksmiðju ríkisins
en það væru engin rök sem
hnigju að hlutafélagsbreytingu.
Benti Eiður enn fremur á að
fram hefði farið úttekt á Sem-
entsverksmiðjunni á vegum
ráðuneytisins, sem ennþá væri
leyniplagg, en ýmsir hefðu
áhuga á að sjá það plagg og væri
ekki allt jafn gáfulegt sem þar
kæmi fram.
Skúli Alexandersson deildi
hart á frumvarp iðnaðarráð-
herra og sagði rök fyrir breyt-
ingunni mjög vandfundin. Hér
væri Sjálfstæðisflokkurinn að
hverfa frá stefnu Ólafs Thors og
Péturs Ottested, sem báðir
hefðu verið fylgjandi því á sín-
um tíma að Sementsverksmiðj-
an væri ríkisfyrirtæki. Benti
Skúli á að farið væri fram á
stjórnunarbreytingu á fyrirtæk-
inu án þess að fyrir lægi hvort
nokkrir vildu kaupa þessi 20%
hlutabréfa. Um fullyrðingu þess
efnis að Sementsverksmiðjan
þyrfti á nýju fjármagni að halda
benti Skúli á að skuldir verk-
smiðjunnar væru um 120 mill-
jónir meðan mannvirki og
tæki væru bókfærð á 377 mill-
jónir, sem væri einungis brot af
nýbyggingarverði slíkrar verk-
smiðju. „Staðreyndin er sú að
það hníga engin rök að því að
selja þurfi eignarhluta í Sem-
entsverksmiðjunni vegna þess
að skuldstaða fyrirtækisins sé
vond. Þau eru ekki mörg fyrir-
tækin á íslandi í dag sern geta
státað sig af jafngóðri eignafjár-
stöðu og Sementsverksmiðjan,"
sagði Skúli. Taldi hann að allar
upplýsingar og þá fyrst og
fremst saga fyrirtækisins, núver-
andi staða og framtíðarmögu-
leikar mæltu gegn snmþykkt
frumvarpsins.
Sverrir Hermannsson tók
fram að hann væri þeirrar
skoðunar að ríkið ætti ekki að
selja meirihlutaeign sína í Sem-
entsverksmiðjunni, hún væri
einokunarfyrirtæki þeirrar teg-
.undar sem ríkið þyrfti að eiga
meirihluta í. Hann sagðist ekki
hafa verið beittur neinum þrýst-
ingi, síst frá steypustöðvum, um
að selja Vs af hlutafé og hann
vildi taka það fram að fyrirtækið
yrði ekki gefið. Hann teldi að
tengsl þess við atvinnulíf yrðu
til bóta. Um úttektina á rekstri
Sementsverksmiðjunnar sagði
Sverrir að það væri ekkert
leyndarmál að Kaupþing hefði
unnið hana en beðið væri með
að birta hana þar til stjórn
fyrirtækisins og ráðgjafarfyrir-
tækið hefðu komið saman.
„Skýrslan var mér fagnaðarefni
að mestu," sagði Sverrir og
Sementsverksmiðjan er í góðu
lagi og rekstur í góðu lagi.
Málinu var vísað til 2. umræðu
og iðnaðarnefndar.
Fyrir þann vandláta
Vupen leoh
ARC-44
Veröiö kemur á óvart
aöeins 10.900 stgr.
:v ■ :,.t'
Bíltaeki með sámbyggt útvarp og segulband- Hefur 2*25 watta hljómmögnun, 5 banda tónjafnara
I® 5t?reQ (Rás 2), auto stoþ og med því fylgja 40 watta (AL-lpj híjómgóölr hátalarar. ý;
Fyrir þann Hagsýna
l/úperlech
Þetta bíltækjasett
er aðeins á 5.950 stgr.
Sambyggt bíltæki, segulband og útvarp. Hefur 2x7 watta hljómmögnun, FM sterep (Rás 2) og auto stop,-
30 watta |AL09| hátalarar fylgja meO.
"N'ýVÁ,
Umbodsroenrt um land allt.
Lágmúia 7 ^fieykjavík
Sími 66 S3 33
v;í »v«■*