NT - 29.03.1985, Page 6

NT - 29.03.1985, Page 6
 TY7 Föstudagur 29. mars 1985 6 L JJ Vettvangur Tekur Mitterrand upp hlutfalls- en það hefur veikt stöðu hans að Miðfylkingin reyndist fylg- ismeiri í kosningunum nú en Gaullistar. Það getur hins veg- ar hert baráttuna innan hennar, því þar keppa þeir fallskosningar í stórum kjör- dæmum muni reynast stjórn Mitterrands betri en núgild- andi fyrirkomulag. Sennilegt þykir, að Mitter- rand muni reyna að tefla Fabí- us forsætisráðherra sem mest fram í sambandi við þingkosn- ingarnar. Hann fól Fabíus for- sætisráðherraembættið á síðasl. sumri og kom það mörgum á óvart, þar sem hann var ekki mikið þekktur og tiltölulega ungur eða 38 ára. Ýmislegt virðist benda til, að Fabius sé heldur að vinna á og geti því reynst sósíalistum heppilegur leiðtogi í kosninga- baráttunni. ÚRSLITIN í.fyrri umferð' héraðsstjórnarkosninganna nú ■ Mitterrand. ■ Jean-Marie le Pen fékk alls staðar fullt hús á kosninga- fundum sínum, þótt borga þyrfti aðgangseyri. ÚRSLIT þingkosninganna 1986 geta haft veruleg áhrif á úrslit forsetakosninganna, sem fara fram tveimur árum seinna eða 1988. Það getur styrkt aðstöðu Mitterrands þá, ef hann sækir um endurkjör, að hörð barátta verður um for- setaefni hægri flokkanna og miðflokkanna. Chirac sækist mjög eftir að hreppa hnossið, Giscard fyrrv. forseti og Barre fyrrv. forsætisráðherra um að vera í framboði fyrir hana. Staða Mitterrands er því engan vegin eins slæm og hún virtist vera um skeið sam- kvæmt skoðanakönnunum. Það mun engin áhrif hafa á fyrirkomulag forsetakosning- anna, þótt teknar verði upp hlutfallskosningar til þingsins. Verður Jean-Marie le Pen hjálparhella Mitterrands? ■ MIKLAR líkur benda til þess, að Mitterrand forseti geri róttæka breytingu á fyrirkomu- lagi kosninga til þingsins fyrir þingkosningarnar, sem eiga að fara fram næsta vor. Þetta þarf ekki að koma á óvart, því að bæði fyrir og eftir forsetakosn- ingarnar síðustu, þegar Mitter- rand var kosinn forseti, hefur hann lýst yfir því, að liann muni beita sér fyrir því, að teknar verði upp hlutfallskosn- ingar í stórum kjördæmum. Nú er kosið í einmennings- kjördæmum. Til þess að ná kjöri, þarf frambjóðandi að fá 50% atkvæða. Kosið er aftur, ef enginn nær þeirri atkvæða- tölu og keppa þá þeir tveir, sem hafa fengið flest atkvæði. Líklegt þykir, að úrslit hér- aðsstjórnarkosninganna, sem fóru fram fyrr í þessunt mán- uði, geri Mitterrand enn ákveðnari í þeirri fyrirætlun sinni að taka upp hlutfallskosn- ingar í stórum kjördæmum. Allt bendir til þess, að það verði ávinningur fyrir flokk lians, Sósíalistaflokkinn. í þingkosningunum, sem Mitterrand efndi til í júní 1981 eða rétt eftir að hann var kjörinn forseti, græddi flokkur hans á núverandi fyrirkomu- lagi, því að bandalag var milli hans og kommúnista í síðari umferðinni. Sósíalistaflokkur- inn fékk þá hreinan meirihluta á þinginu. Engar líkur eru til þess, ef hliðsjón er höfð af héraðs- stjórnarkosningum á dögun- um, að sósíalistar haidi meiri- hlutanum í kosningunum á næsta ári, að óbrcyttu kosningafyrirkomulagi. Hins vegar virðist mögulegt, að hann gæti haldið meirihlutan- um með stuðningi banda- manna, ef teknar væru upp hlutfallskosningar. urðu þau, að Sósíalistaflokkur- inn fékk 25% greiddra at- kvæða, Kommúnistaflokkur- inn 12.7% og aðrir vinstri flokkar 3.3%. Vinstri flokk- arnir svokölluðu fengu þannig rúmlega 40% greiddra at- kvæða. Milli hægri flokkanna og miðflokkanna skiptist fylgið þannig, að Miðfylking Giscard og Barres fékk 19.3%, Gaul- listar (fylgismenn Chiracs) 16.9%, Þjóðfylkingin (flokkur Jean-Marie le Pen) 8.7% og aðrir hægri tlokkar og mið- flokkar 12.9%. Afgangurinn skiptist milli græningja og svip- aðra smáflokka. Samkvæmt þessu fengu hægri flokkarnir og miðflokk- arnir samtals nær 60% greiddra atkvæða og vinstri flokkarnir rúm 40%, eins og áður segir. í síðari umferð kosninganna urðu úrslitin nokkuð hagstæð- ari vinstri flokkunum. I þeim kjördæmum, þar sem kosning- ar fóru aftur fram, fengu vinstri flokkarnir samtals 46.3% greiddra atkvæða, en hægri flokkarnir og miðflokkarnir samtals 53.5%. Samkvæmt þessum úrslitum er bilið minna en fyrri kosningarnar gáfu til kynna. Ef teknar verða upp hlutfalls- kosningar er líklegt, að margs konar klofningur muni valda hægri flokkunum og miðflokk- unum verulegum erfiðleikum. Hin hægri sinnaða Þjóðfylking Jean-Marie le Pen er þá líkleg til að eflast, því að hún getur þá sýnt fram á, að atkvæði hennar muni nýtast til fulls. Nú fékk hún ekki nema einn héraðsstjórnarmann kjörinn, þótt hún fengi nær 9 % at- kvæðanna í fyrri umferðinni. Ef Þjóðfylkingin eflist, yrði það á kostnað Gaullista og Miðfylkingarinnar og myndi sennilega útiloka að þessir tveir tlokkar gætu náð þing- meirihluta saman. Þá má búast við, að ýmsir smáflokkar, sem teldu sig standa nálægt miðju, gætu komið til sögu og ekki útilok- að, að þeir leituðu samstarfs við sósíalista, ef þeir fengju þingmenn kjörna. Þegar þannig er á málin litið, virðist líklegt, að hlut- kosningar til þingsins? Látum hendur skipta! ■ Nú er talað fjálglega um hátækniiðnað, nýsköpun og upplýsingaiðnað. Iðnaðaráð- herra segist vilja 10.000 störf í upplýsingaiðnaði um aldamót. Upplýst er að verslun með innlendan tölvubúnað nam á síðasta ári 150 milljónum króna. Menn glöddust fram á góu vegna alls þessa. Hins vegar væri kannski ráð að setjast niður og velta því fyrir sér hvernig framtíðin verður - ekki bara að tilkynna hvernig menn vilja að hún verði. Nú standa öll spjót á sjó- efnavinnslunni á Suðurnesj- um, verksmiðju sem hefur til- raunaframleiðslu með höndum - en skilar ekki arði, og má þola hallarekstur. Þeirri verk- smiðju vill iðnaðarráðherra loka - 1-0 fyrir nýsköpun. Upplýst er að ný steypustöð hlaut 35-40 milljónir úr opin- berum sjóðum þrátt fyrir að starfandi steypustöðvar anni fyllilega eftirspurn - 2-0 fyrir nýsköpun. Skólakerfið hefur verið meira eða minna lamað seinni- part vetrar vegna kjaradeilu kennara, og vinna við kennslu þykir lítt eftirsóknarverð-3-0 fyrir nýsköpun. Verður næsta kynslóð tilbúin? Menn í Bandaríkjunum hafa nú áhyggjur af því að næsta kynslóð þar í landi verði verr menntuð en fyrri kynslóð. Þetta, ef satt reynist, þýðir að blað er brotið í sögu þessa framsækna lands, þarsem kyn- slóðirnar hafa ætíð bætt við þekkingu sína. Það liggur í hlutarins eðli að ætli menn að sækja atvinnu- tækifæri á mið hátækni og vitsmuna, þá verður að hlúa að þeim jarðvegi sem slíkt sprett- ur af. Ekki er nóg að gapa um tækniframfarir og fljóta síðan sofandi að feigðarósi, sæll í sæluvímu. Hlutverk þeirrar kynslóðar er nú stjórnar á landi hér er ekki aðeins að reka þjóðarbúið eins og eitt farlama frystihús, heldur einnig að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir. Við fengum landið ekki í arf

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.