NT - 29.03.1985, Blaðsíða 20

NT - 29.03.1985, Blaðsíða 20
1 a Föstudagur 29. mars 1985 20 Útlönd „Við erum auðmýktir“ segja pakistanskir flóttamenn í Svíþjóð ■ „Við héldum að í Svíþjóð ríkti réttlæti og virðing fyrir manneskjunni. En sem flótta- menn höfum við verið auðmýkt- ir og niðurlægðir. Hvað sem er er betra en þetta,“ segja tals- menn 150 flóttumanna ahm- adiya-múhameðstrúar frá Pak- istan sem hafa í örvæntingu sinni dregið til baka umsóknir sínar um pólitískt hæli í Svíþjóð. Þeir hafa ennfremur yfirgefið flóttamannastofnanir þær sem þeir dvöldu og leitað skjóls í moskum og hjá einkaaðilum. Lögum samkvæmt er nú heimilt að vísa þeim umsvifalaust aftur til Pakistan. Ástæðan fyrir því að flótta- mennirnir gripu til þessa ráðs er sú að stofnunin sem sér um málefni innflytjenda hefur enn ekki viðurkennt þá sem flótta- menn og hefur umsóknum flestra þeirra verið vísað frá. Ahmadiyar eru trúarlegur minnihlutahópur 4 milljóna manna í Pakistan, en þar búa alls 70 milljónir manna, og eru þeir trúboðar múhameðstrú- armanna. Meðlimirnirerueink- um menntamenn og velstætt fólk og vilja þeir aðlaga trúna breyttum tímum. Áhmadiyar hafa annað veifið sætt ofsóknum og í apríl í fyrra setti einræðisstjórn hersins lög sem banna þeim að iðka trú sína. Síðan hafa þeir þurft að klæð- ast sérstökum fötum og bera merki, eins og gyðingastjörnu, á enninu. Yfirvöld í Pakistan beina reiði almennings að þess- um trúarhópi með því að kenna þeim um bókstaflega allt sem ! miður fer í landinu. Hamid Ullah, einn af leiðtog- um hópsins í Pakistan, segir að innflytjendastofnunin hafi neit- að honum um hæli á þeirri forsendu að hann hafi haft of litla peninga undir höndum og að hann hafi ekki haft vega- bréfsáritun og hafi auk þess ekkert að óttast í Pakistan. „En ég kom ekki hingað sem túristi - ég flúði til þess að bjarga lífi mínu.“ Annar flóttamaður hefur það til marks um meðferðina sem þeir sæta í Svíþjóð að í flótta- mannastofnuninni hafi hvað eft- ir annað verið borið á borð fyrir þá svínakjöt þótt alkunna sé að múhameðstrúarmönnum er bannað að leggja sér slíkt til ■ Khalid Munir, Hamid Ullah og Abdul Quadeer - talsmenn ahmadiya-múhameðstrúarmannanna sem hafa nú í örvæntingu sinni dregið til baka umsóknir sínar um pólitískt hæli í Svíþjóð. En í Pakistan bíða þeirra ofsóknir. munns. Og svarið sem þeir fá þegar þeir kvarta er: „Við báð- um ykkur ekki um að koma hingað.“ Sami flóttamaður gagnrýnir einnig meðferð lögreglunnar á sínu fólki, segir hana hafa að- skilið foreldra og börn dögum saman og fólk hafi ekki fengið að þrífa sig svo dögum skipti. Auk þess hafi lögreglan vanvirt trú þeirra með því að grýta trúarriti þeirra, Kóraninum, í gólfið og kalla það bölvað kjaft- æði. En nú vona hinir 150 ahma- diyar að sænska ríkisstjórnin breyti afstöðu sinni svo þeir neyðist ekki til að leita til ann- arra landa. Suður-Afríka: Stevie Wonder bannaður í sjón- varpi og útvarpi Jóhannesarborg-Rcuter París: Stuttu pilsin snúa aftur París-Reuter: ■ Suður-afríska útvarpsstöðin hefur lýst því yfir að hún muni stöðva allan ílutning á tónlist bandaríska blökkusöngvarans Stevie Wonders bæði í útvarps- og sjónvarpsþáttum. ■ Fréttastofa Nígeríu skýrði frá því í gær að fyrrverandi ríkisstjóri í Norður-Kadunaríki í Nígeríu hefði verið dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir spillingu og fjárdrátt. Abba Musa Rimi var ríkis- stjóri í Norður-Kadunaríki árið 1982. Hann var sekur fundinn Útvarpsstöðin skýrði frá því í fréttum að Wonder, sem hlaut Óskarsverðlaun í fyrrakvöld fyrir besta kvikmyndalagið árið 1984, væri settur í bann vegna þess að hann sagðist ætla að tileinka Nelson Mandela verð- fyrir að hafa tekið við mútum, dregið sér fé og sjálfur mútað þingmönnum. Margir tugir fyrrverandi stjórnmálamanna hafa verið handteknir og dæmdir fyrir spillingu frá því að herinn tók völd í Nígeríu í desember árið 1983. ■ Tónlist Stevie Wonders mun ekki skemmta íbúum Suð- ur-Afríku í bráð, a.m.k. ekki á öldum Ijósvakans, því út- varpið þar hefur nú bannað hana. launin. Mandela er leiðtogi aðalskæruliðahópsins sem berst fyrir því að afnema yfirráð minnihlutans í Suður-Afríku. Mandela var fangelsaður fyrir 20 árum sakaður um að skipu- leggja byltingu. Enn er víða litið á hann sem leiðtoga afríska þjóðarráðsins, sem er bannað. Mandela hafnaði fyrir skömmu boði stjórnarinnar í Suður-Afríku um frelsi að því tilskildu að hann afneitaði notk- un ofbeldis til að breyta póli- tísku ástandi. Stevie Wonder hlaut Óskars- verðlaunin fyrir lagið „I just called to say I love you“, úr kvikmyndinni „Woman in red.“ ■ Mini-pilsin eru komin aftur og því styttri því betra, ef marka má nýjustu hönnun Yves Saint Laurent sem sýnd var á tískusýningu í París í gær. Fötin sem Saint Laurent hef- ur teiknað fyrir næsta haust og vetur - það er ekki ráð nema í tíma sé tekið! - bera með sér að efnisrýr pils sitja í fyrirrúmi en þykkum svörtum sokkabuxum er ætlað það hlutverk að verja kvenþjóðina fyrir vetrar- hörkunum. Um 200 sýningarstúikur kynntu nýju línuna, mini-pils úr öllum hugsanlegum efnum frá stórköflóttu skosku ullarrefni til skínandi leðurs. Tvö kynþokkafyllstu fata- plöggin á þessari átta daga tískusýningu eru sköpunarverk Saint Laurent - stuttir pallí- ettuskreyttir kvöldkjólar með víðum blússum úr einhvers kon- ar hýjalíni utan yfir og breiðum satínlindum. En til þess að vera trúr smekk franskra fatahönnuða fyrir andstæðum eru flestar kápur Saint Laurent af síðu gerðinni. Saint Laurent leggur meiri áherslu á kjóla en jakkaföt og sækir hugmyndir til austurs í kímonó-kjóla með litríku af- strakt- eða blómamynstri. Hann verður með sýningu í Penkin í maí og austrænu áhrifin eru greinileg í notkun hans á satíni en hann er líkt og aðrir, einnig hrifinn af leðrinu. Oreind skírð í höfuðið á Mao ■ Bandaríski Nóbelsverð- launahafinn Sheldon Glas- how hefur skírt nýuppgötv- aða öreind Mao í höfuðið á hinum látna leiðtoga Kín- verja. Glashow, sem fékk Nób- elsverðlaun í eðlisfærði árið 1979, segist hafa ákveðið að skíra öreindina eftir Mao vegna þess hvernig Mao lýsti atóminu í ræðu á fundi kommúnistaflokka í Moskvu fyrir mörgum ára- tugum. Þá sagði Mao meðal annars: „... atómið erflókin eining andstæðna. í því er eining tveggja andstæðna, kjarna og rafeinda. I kjarn- anum er einnig eining and- stæðna á milli róteinda og nifteinda. Hvað varðar rót- eindirnar eru bæði til rót- eindir og andróteindir og auk nifteinda eru til andnifteind- ir. í stuttu máli sagt er eining andstæðna alls staðar fyrir hendi.“ Glashow segir að þessi skoðun Maos, að náttúran samanstandi úr endalausum lögum þar sem stöðugt má finna minni hluti í hverju lagi, hafi orðið til þess að hann ákvað að heiðra Mao með því að kalla öreindina eftir honum. Fyrrverandi ríkis- stjóri fangelsaður Lagos-Reuter Finnsku yeggskápasamstæðurnar vinsælu eru komnar aftur. Yerð 29. 850.- með ljósum. HÚSGÖGN OG '** ^2 kX INNRÉTTINGAR fiO cn OO ''■■^^Né^suðurlandsbraut 18 OO 03 vrvf Melina Mercouri: Menningarhátíð í Aþenu Aþena-Reuter: ■ Rokktónleikar, forn- minjar og 17. aldar málverk verða á meðal þess sem boð- ið verður upp á á listahátíð sem hefst í júní í Aþenu og mun standa yfir í sex mánuði, að því er Melína Mercouri menningarmálaráðherra Grikklands sagði í gær. Vonast er til að Francois Mitterrand verði viðstaddur opnun hátíðarinnar, ásamt leiðtogum fleiri Efnahags- bandalagsríkja, en hátíð þessi er yfirlýsing um það að Aþena sé menningarleg höf- uðborg, eins og Mercouri sagði fréttamönnum. Á síðasta ári komu menn- ingarmálaráðherrar Efna- hagsbandalagslandanna .sér saman um það að borgir í hinum tíu aðildarlöndum bandalagsins skuli skiptast á um að vera menningarlegar höfuðborgir og er hátíðin í Aþenu fyrsta skrefið í þá átt. Á hinni sex mánaða dagskrá verða m.a. Breska þjóðleikhúsið og Covent Garden óperan, Fílharmón- íuhljómsveitin í New York, Schaubúhne leikhúsið í Berlín, Nouveau leikhúsið í Belgíu og Piccolo leikhúsið í Mílanó. Mercouri sagði dagskrána endurspegla friðarvilja grísku sósíalistastjórnarinn- ar og fylgi hennar við afvopn- un. „Við getum ekki lifað af á þessari plánetu nema friður sé tryggður og menningin mun tryggja friðinn,“ sagði kvik- myndaleikkonan fyrrverandi við fréttamenn. Á dagskránni verður enn- fremur sovésk rokkópera, djasstónleikar Miles Davis og einnig verða flutt verk Hándels og Bachs, en á þessu ári eru 300 ár liðin frá fæð- ingu þeirra. Á meðal sýninga verða höggmyndir frá Rodin safn- inu í París, hollenskt lands- lag frá 1600-1800 og fundur þýska fornleifafræðingsins Heinrich Schliemanns (1822- 90), sem sannar sögulegan bakgrunn Hómers-sagna um Trjóuborg. Mercouri, sem berst nú fyrir því að Bretar skili marmarahöggmyndum, sem Eigin lávarður hafði á brott með sér frá Aþenu í byrjun síðustu aldar, sagðist vera sérstaklega þakklát Bretum fyrir aðstoðina við undibún- ing hátíðarinnar. „Sambandið við Bretland er mjög vinsamlegt,“ sagði hún fréttamönnum, „það er bara þessi litli þyrnir og ég held að br^ska þjóðin vilji gjarnan leysa það vanda- mál.“ Breska ríkisstjórnin hefur neitað að skila feng lávarðar- ins sem geymdur er í British Museum. Stein- aldar- forn- minjar í Tíbet ■ Kínverskir forn- leifafræðingar hafa að undanförnu grafið upp gamla bein- og lcirmuni skammt frá Lhasa í Tíbet. Munirnir eru frá því á nýsteinöld og sagðir um þrjú þúsund ára gamlir. Fornminjar þessar eru mikilvægur vitnis- burður um mannavist til forna í Tíbet en rituð saga Tíbeta nær aðeins 1.300 ár aftur í tímann. Meðal þeirra muna, sem fornleifafræðing- arnir hafa grafið úr jörðu, er öx búin til úr jaðe, stór beinnál, steinskóflur og leirker.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.