NT - 01.04.1985, Blaðsíða 24
HRINGDU ÞÁ f SÍMA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavik, simi: 686300, auglýsinciar 18300
Kvöldsimar: áskrift og dreifing 686300 é ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Sigurður Sveinsson í samtali við NT:
„Staðráðinn í að
verða markahæstur"
- segir Sigurður sem gerði 13 mörk um helgina
■ Sigurður Sveinsson átti enn
einn stórleikinn í v-þýska hand-
knattleiknum er lið hans Lemgo
spilaði gegn stórliði Grosswald-
stadt. Sigurður skoraði 13 mörk
í leiknum en það dugði þó ekki
til sigurs því Grosswaldstadt
sigraði með23 mörkum gegn 20.
Sigurður hóf leikinn af mikl-
um krafti og er 20 mínútur voru
liðnar af honum þá var staðan
8-7 fyrir Lemgo og Sigurður
hafði gert 6 mörk. Þjálfari
Grosswaldstadt tók þá til þess
ráðs að setja „yfirfrakka" á
Sigurð. Grosswaldstadt náði þá
að jafna leikinn og var jafnt á
öllum tölum fram að hléi. Stað-
an í hálfleik var 12-12.
Lemgo byrjaði af krafti í
síðari hálfleik og komst í 16-14.
Þetta forskot hvarf þó eins og
dögg fyrir sólu er leikmenn
Grosswaldstadt sigu á með
góðri áðstoð dómaranna.
Leiknum lauk svo með þeirra
sigri 23-20 eins og fyrr greinir.
Sigurður gerði alls 13 mörk í
leiknum og var mjög góður
þrátt fyrir að hafa á sér „yfir-
frakka“ allan leikinn.
Siguröur sagði í samtali við
NT eftir leikinn að hann hefði
fundið sig mjög vel. „Við hjá
Lemgo erum staðráðnir í að
halda sæti okkar í deildinni og
Víkingur-Barcelona:
Dómurunum
mútað???
■ Spönsk dagblöð liöfðu það
eftir Bogdan Kowalczyk þjálf-
ara Víkings í gær, að júgóslavn-
esku dómurunum hefði verið
mútað til að dæma Barcelona í
hag í leik Víkings og Barcelona
í Barcelona á laugardag. Leikn-
um lauk meö sigri Barcelona,
22-12, og eru Víkingar þar nteð
fallnir út úr Evrópukeppni bik-
arliafa.
NT náði ekki sambandi við
Bogdan í gær vegna þess máls,
en ræddi við tvo forráðamenn í
handknattleiksdeild Víkings
sem voru á Spáni. „Það er mín
skoðun, og reyndar margra
Spánverja sem ég hef heyrt í, að
það hafi verið eitthvað gruggugt
á bak við þetta," sagði Jakob
Bjarnason liðsstjóri. „Það er
verið að athuga þessa hluti
núna.“
„Það hefur svo sem aldrei
þótt sómi að því að kenna
dómurum um ef illa fer,“ sagði
Guðmundur Gíslason gjaldkeri
handknattsleiksdeildarinnar.
En margt af því sem þessir
dómarar gerðu iief ég aldrei séð
í handknattleik, þó sumt af því
sjáist í öðrum íþróttagreinum.
Það er svo sem ekkert brenglað
við að gruna svona menn um
græsku, þó ég vilji ekki segja af
eða á um það. Svo voru ólæti
áhorfenda til skammar."
ég er staðráðinn í því að verða
markahæsti leikmaður deiidar-
innar,“ sagði Sigurður ennfrem-
ur.
Kiel, lið Jóhanns Inga, náði
að sigra Reinfuchse með 29
mörkum gegn 22 og heldur liðið
sér þannig í toppbaráttunni.
Önnur úrslit:
Massenheim-Gummersbach..... 18-22
Dankensen-Handewitt........ 22-22
Huttenberg-Bergkamen ..... . 25-21
Þetta voru slæm úrslit fyrir
Atla og félaga og dregur þá enn
á ný niður í fallsvað deildarinn-
ar.
Liverpool lá
gegn United
Frá Heimi Bergssyni i'réttanuinni
NT í Fnglandi:
■ Skallamark Frank
Stapleton eftir sendingu
frá Nonnan VVhiteside
réð úrslitum í leik Liv-
erpool og Manchester
United á Anfield Road í
gær. Annars átti Liver-
pool allan leikinn, en
sterk vörn United og
glámskyggn dómari
tryggðu gestunum sigur.
Dómarinn var sá eini
sem ekki sá þegar Steve
Nicol var skellt kylliflöt-
uni innun vítateigs í lok
fyrri háiileiks, og er bolt-
inn fór í hönd McGrath
varnarmanns Man. Utd
innan vítateigs í þeim síð-
ari. En ekkert var dæmt.
Hanna Lóa Friðjónsdóttir íslandsmeistari í fimleikum kvenna 1985.
NT-mynd ARI
íslandsmeistaramót í fimleikum:
YNGSTIMEISTARINN
- sem við höfum eignast í fimleikum kvenna
■ Yngsta stúlka sem orðið
hefur Islandsmeistari í fimleik-
iim kvep.na, samanlögðunt
greinum, varð það um helgina.
Hún heitir Hanna Lóa Friðjóns-
dóttir úr Gerplu, og er aðeins 12
ára gömul. íslar.dsmeistari -í
samanlögðu hjá körlum varð
Innanhússmeistaramót í sundi:
Heimsmet!
■ Jónas Óskarsson íþróttafé-
lagi fatlaðra Reykjavík varð í
áttunda sæti í 100 metra bak-
sundi karla á Innanhússmeist-
aramóti íslands í sundi í gær,
Tími Jónasar, 1:13,20 mínút-
ur, er undir gildandi heimsmeti'
fatlaðra, og engin ástæða til að
ætla annað en að heimsmetið
verði staðfest.
Eðvarð Þ. Eðvarðsson
Njarðvík sigraði í sundinu, og
setti nýtt íslandsmet í 50 metra
baksundi um leið, synti á 27,89
sekúndum. Eðvarð átti gantla
metiö sjálfur, 28,25 sekúndur.
Eðvarð setti einnig íslandsmet
á laugardag, þá í 200 metra
baksundi, en þá féllu þrjú ís-
landsmet: Þá sigraði Eðvarð
einnig Tryggva Helgason í úr-
slitum 100 metra bringusunds-
ins, en Tryggvi hefur hingað til
verið talinn besti bringusunds-
maður þjóðarinnar. Eðvarð
leggur hins vcgar áherslu á
baksund og á þar fjölda ís-
landsmeta. - Sjá um Innan-
hússmeistamótið á bls. 23.
Davíð Ingason Ármanni.
Önnur í kvennaflokknum
Váfo Krisíín Gísiadóttir Gerpiu,
fyrrum íslandsmeistari, og
þriðja Dóra Óskarsdóttir
Björk. Annar í karlaflokki varð
Heimir Gunnarsson Ármanni,
og þriðji Atli Thorarensen Ár-
manni. Keppni í samanlögðu
lauk á laugardag, en í gær var
keppt til úrslita á einstökum
áhöldum.
Hanna Lóa sigraði í æfingum
á tvíslá og áslá. Húnvarð önnur
í æfingum á gólfi. Kristín Gísla-
dóttir varð íslandsmeistari í
gólfæfingum, og önnur í stökki
og á slá. Dóra Óskarsdóttir
sigraði í stökki, og varð þriðja á
tvíslá, á slá og í gólfæfingum.
Fjóla Ólafsdóttir Armanni varð
önnur á tvíslá, og Sigríður Arna
Ólafsdóttir Ármanni þriðja í
stökki.
Heimir Gunnarsson Ármanni
varð íslandsmeistari í gólfæfing-
um, á bogahesti og í stökki, og!
annar á tvíslá. Davíð varð ís-
landmeistari á svifrá, en varð að
láta sér lynda annað sætið í
hringjum og á bogahesti, og
þriðja sæti á tvíslá og í gólf-
æfingum. Atli Thorarensen Ár-
manni sigraði í æfingu á tvíslá
og í hringjum, og varð þriðji á
svifrá og á bogahesti. Guðjón
Gíslason Ármanni varð annar í
gólfæfingum og á svifrá, Arnór
D. Hjálmarsson Ármanni varð
annar í stökki, og Kristmundur
Sigmundsson Ármanni briðji.
Áðaigeir Sigurðsson ÍBÁ varð
þriðji í æfingum í hringjum.
Landsliðið
í sundi valið,
bls. 23
Soffía setti
þrjú íslands*
met, bls. 19
íþróttir
ábls. 19-24