NT - 16.04.1985, Blaðsíða 1

NT - 16.04.1985, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 16. apríl 1985 -100. tbl. 69. árg. Stjórnarfrumvarp um Framleiðsluráð landbúnaðarins: Stiglækkandi útflutnings- I ■ . ...... bætur en ekki afnumdar! ■ Drög að frumvarpi til nýrra Fram- leiðsluráðslaga verða afhent stjórnar- andstöðuþingmönnum í dag en stjórn- arþingmenn hafa nú haft drögin í nokkra daga og á morgun tekur aukaþing Stéttarsambands bænda frumvarpið fyrir. Meðal efnisatriða frumvarpsdrag- anna eru meðal annars stiglækkandi útflutningsbætur landbúnaðarafurða úr þeim 10% af heildarverðmæti afurða sem þær eru í dag í 4% árið 1990, en ekki er gert ráð fyrir að afnema þær alveg. 1986 verða þær 7%, þá 6% og næstu tvö ár 5%. Á sama tíma rennur bróðurpartur þess sem sparast til uppbyggingu nýrra búgreina eða 2% 1986, 3% það næsta, þá 4% og 5% 1990. Einhverjar breytingar eru þó á þeim viðmiðunum sem nefndar hundraðstölur eru reikn- aðar með senr lækka bótaréttinn jafn- vel enn meir. Af öðrum atriðum frumvarpsdrag- anna má nefna að vald sexmanna- nefndar verður minnkað þannig að ný nefnd mun ákveða heildsöluverð landbúnaðarvara og er oddamaður. verðlagsstjóri. Sexmannanefndin mun sem fyrr ákveða verðið til bænda. Þær breytingar verða svo á Græn- metisversluninni samkvæmt drögun- um að Framleiðsluráð hættir rekstri hennar í júní á næsta ári og verður heimilað að bændur yfirtaki rekstur hennar en ríkið mun áfram eiga fasteignir verslunarinnar. útvarps- lagafrum- varpiö? Draumar, sýnir, æskuæði... ■ „Ameríski draumurinn“ hefur, að því cr virðist, náð tökum á þessum saklausu íslcnsku ungmennum sem „dimmitcruðu" ásamt skólasystkinum sínum í Menntaskólanum í Reykjavík í gær og glöddust yfir að löngu og umhleypingasömu kennsluári væri senn að Ijúka og stúdentshúfan, þetta eftirsótta menntatákn, á næstu grösum! NT-m.vnd: Svcrrir ■ Ef að líkum lætur verður útvarpslagafrumvarpið afgreitt frá menntamálanefnd neðri deildar til þriðju umræðu í dag, að sögn Olafs Þ. Þórðarsonar varaformanns nefndarinnar. Hljótt hefur verið um frumvarp þetta, síðan fyrir páska er at- kvæðagreiðsla fór fram að lok- inni annarri umræðu, en þá drógu flutningsmenn breyting- artillagna þær flestar til baka, en hyggjast leggja þær fram að nýju við þriðju umræðu. Halldór Blöndal formaður nefndarinnar lét þau orð falla í samtali við NT á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að útvarps- lagafrumvarpið væri komið úr nefnd fyrir Vt mánuði síðan en vegna veikinda Ólafs Þ. Þórðar- sonar og utanlandsferðar for- sætisráðherra hefði þingflokkur Framsóknarflokksins ekki enn tekið málið fyrir. Það væri ástæðan fyrir því að frumvarpið hefði ekki verið tekið fyrir á Alþingi. Þorskkvótinn aukinn um 12.500 tonn: UU hefði heldur viljað geyma þorskinn í sjónum Léleg afkoma batnar ekki nema með aukinni verðmætasköpun, segir sjávarútvegsráðherra ■ „Égheldekkiaðþessiaukn- ing skipti sköpum fyrir okkur og hugsanlega hefði þessi fiskur verið betur geymdur í sjónunt." sagði Ágúst Einarsson hjá LÍÚ þegar NT leitaði álits hans á aukningu þorskkvótans sent sjávarútvegsráðuneytið ákvað í gær. Þorskkvótinn var aukinn um 5% frá upphaflegu afla- marki sem skiptist í réttu hlut- falli milli allra sem áður hafa fengið kvóta á þorsk. Ágúst Einarsson sagði enn- fremur að LÍÚ hefði þegar lagt til að kvótinn yrði ekki aukinn á árinu og því gæti hann ekki fagnað þessari ákvörðun. Sagði Ágúst að með þessu stefni allt í það að þorskaflinn verði 290- 300 þúsund tonn á árinu og miðað við þá fiskgengd sem verið hefur á helstu hrygningar- svæðum orkaði ákvörðunin tví- mælis. Halldór Ásgrímsson sagði þegar NT bar undir hann um- mæli Ágústs að hann hefði trú á að útgerðarmenn myndu kapp- kosta að gera sem mest úr þeim kvóta sem þeir fengju. Sömu- leiðis væri kvartað undan lélegri afkomu sem myndi ekki batna nema verðmæti ykjust og staða sjávarútvegsins í lancknu væri mjög slæm. Þá sagði sjávarútvegsráð- herra eina ástæðu þess að þessi ákvörðun var tekin vera að markaðshorfur í ár væru mjög góðar og til dæmis væru líkur á að það myndi vanta saltfisk á markaði okkar síðar á árinu og mjög óskynsamlegt að láta það gerast. „En það má alltaf deila um það hvað á að taka í ár og hvað á. næstu árum,“ sagði Halldór. í samtali við NT sagði Jakob Jakobsson forstjóri Hafrann- sóknarstofnunar að þessi aukn- ing væri ekki að þeirra tillögum en þeir hefðu gert grein fyrir að þorskurinn hafi þyngst meira en áætlað var. „Við teljum að það sé þegar of hörð sókn en 5% til eða frá skipta ekki þeim sköpum að stofninn þurrkist út,“ sagði Jakob. Aflakvóti þorsks eykst núna úr 250 þúsund tonnum í 262 þúsund tonn en ekki er reiknað með að til frekari aukningar á þorskaflamarki komi á árinu. Öll skip fá 5% aukningu á kvóta sínum, hvort sem er afla eða sóknarmark og smábátar sömu aukningu á sínum sameiginlega kvóta. Útflutningsverðmæti þessar- ar kvótaaukningar munu nema 900 milljónum króna. Suður-Afríka: Kynllf í svart/ hvítu — bls. 20. Siðlaus blaða- mennska: Sjá Itíma og Sjómannadeilan á Vestfjörðum: Ekki séð fyrir endann ■ Sáttafundi á milli Sjómannafélags fsafjarðar og Útvegsmannafélags Vestfjarða verður haldið áfram núna kl. 9.30, en fundi, sem hófst kl. 13 í gær var frestað laust fyrir kl. 22. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissátta- semjara, sem er vestur á ísafirði, skiptust aðilar á tilboðum og eru þau til umræðu. Guðlaugur sagði, að málin hefðu skýrst eftir viðræðurnar í gær, en ekki sæi þó enn fyrir endann á deilunni. Sáttafundur með Al- þýðusambandi Vestfjarða og útvegsmönnum vegna sjómanna annars staðar á Vestfjörðum hefur svo verið boðaður síðdegis í dag.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.