NT - 16.04.1985, Blaðsíða 5

NT - 16.04.1985, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16. apríl 1985 1 5 Jafnt vægi atkvæða samþykkt á landsfundi Sjálfstæðismanna: Fundarmenn af landsbyggðinni vissu ekki hvað þeir gerðu! ■ Þótt Sjálfstæðismcnn hafi stillt saman strengi sína á nýliðn- um landsfundi kom samt greini- lega í Ijós að það eru ýmis mál sem verulegur ágreiningur er um innan flokksins. Tillaga alls- herjarnefndar um að atkvæði í þingkosningum ættu að vera jafnvæg, óháð búsetu, var sam- þykkt og virtist sem fundar- menn af landsbyggðinni hefðu ekki gert sér grein fyrir hvað þeir voru að samþykkja fyrr en nokkru eftir atkvæðagreiðsl- una. Tillagan hljóðaði á þá leið, að landsfundurinn beindi því til þingflokksins að hann beitti sér fyrir því að endurskoðun á stjórnarskrá lýðveldisins ýrði lokið hið fyrsta og það væri í samræmi við þá grundallarreglu flokksins um jafnan rétt ein- staklinganna að það væri ófrá- víkjanleg krafa að allir kjósend- ur væru jafnréttháir og vægi atkvæða væri j afnt óháð búsetu. Þegar landsbyggðarfulltrú- arnir gerðu sér grein fyrir hvað í raun hefði verið samþykkt varð uppi fótur og fit og þess var krafist að tillagan yrði tekin aftur á dagskrá. Pálmi Jónsson þingmaður var þar fremstur í flokki og lagði til að áður sam- þykktri tillögu yrði vísað frá en það var Þorsteinn Pálsson sem tók af skarið um að málið yrði tekið fyrir aftur. Einar Guð- finnsson úr Bolungarvík lagði til að ályktun allsherjarnefndar yrði vísað til miðstjórnar og þingflokksins og var það úr eftir snarpar umræður. Lofaði Þor- steinn Pálsson því að skipa nefnd til að kanna málið. Mál þetta vakti mikinn úlfa- þyt og var ein ástæðan fyrir því að það var tekið uþp aftur sögð sú, að atkvæðagreiðsla hefði farið fram meðan margir fulltrú- ar voru uppteknir við nefndar- störf. Mikill ágreiningur er urn þetta mál innan flokksins, aðal- lega milli fulltrúa af landsbyggð- inni annars vegar og höfuðborg- arsvæðisins hins vegar, en einn- ig munu vera meiri skilningur fyrir þessari tillögu meðal yngra fólksins innan Sjálfstæðisflokks- ins. Þótti sumum sem for- manninum, sem fylgdist með atkvæðagreiðslunni, hefði verið það í lófa lagið að fresta málinu, þar til nefndarstörfum væri lok- ið til að komast hjá þessari óþægilegu uppákomu. ■ Sjálfstæðismönnum var svo mikið í mun að sýna fram á það á landsfundinum að þeir gengju í takt allir sem einn að fulltrúar landsbyggðarinnar sofnuðu á verðinum og samþykktu tillögu um jafnt vægi atkvæða, óháð búsetu, án þess að vita hvað þeir gerðu. NT*mynd: Sverrir crp> w Félagsfundur verður haldinn fímmtudaginn 18. apríl 1985 kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskra: 1. Félagsmál 2. Önnur mál. 3. Erindi: Framtíð málmiðnaðar á íslandi. Ingj- aldur Hannibalsson forst. I.T.I. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaöarmanna. Kosning til mið- stjórnar á iands* fundi Sjálf* stæðisflokks: Davíð ervin- sæll! ■ Davíð Oddsson borg- arstjóri í Reykjavík hlaut lang flest atkvæða við kosningu fulltrúa til mið- stjórnar á landsfundi sjálf- stæðismanna, sem lauk á sunnudaginn, en þrír nýir fulltrúar koma inn í stjórn- ina meðan að einn, Jón Magnússon.fellur út. Nýliðar í miðstjórn eru Gunnar Ragnars forstjóri á Akureyri, Erlendur G. Eysteinsson bóndi Stóru- Giljá og Sigurður Einars- son útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum. Aðrir sem hlutu kosningu voru Björg Einarsdóttir Reykjavík, Bjöm Þórhallsson Reykja- vík, Davíð Sch. Thor- steinsson Garðabæ, Einar K. Guðfinnsson Bolung- arvík, Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra, Jónas H. Haralz Kópavogi og Katrín Fjeldsted Reykja- vík. Út féll Jón Magnús- son lögmaður í Reykjavík en tveir fyrrverandi fulltrú- ar gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. ■ Jakob Bjömsson orkumálastjóri flytur ávarp við setningu Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna í gær. NT-mynd: Svemr. Jarðhitaskóli HSÞ settur í gær: Ellefu nemendur frá fimm löndum - á þessu starfsári ■ Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna var settur í sjötta sinn í gær. Á þessu starfsári verða ellefu nemendur við sérhæfða starfsþjálfun í skólanum, þrír frá Eþíópíu, þrír frá Kenýa, þrír frá Kína, einn frá Thailandi og einn frá Tyrklandi. Nemendur Jarðhitaskól- ans hafa verið 47, að með- töldum þeim, sem nú stunda þar nám, og hafa þeir komið frá 15 þróunarlöndum, en auk þess hafa komið fjórir einstaklingar frá V-Evrópu- löndum á eigin kostnað. Nám við skólann tekur 6 mánuði, en 19 manns hafa jafnframt komið í styttri námsferðir, allt frá tveimur vikum til þriggja mánaða. Nemendur skólans starfa allir við ríkisstofnanir í heimalöndum sínum og margir fyrrum nemendur eru í leiðandi stöðum í jarð- hitamálum heima. ísland og Sameinuðu þjóðirnar skipta með sér kostnaði við rekstur Jarð- hitaskólans og er litið á framlag íslands sem hluta þróunaraðstoðar. Skólinn er rekinn innan Orkustofn- unar og kennarar við hann eru flestir sérfræðingar við Jarðhitadeild Orkustofnun- ar. Á þessu ári munu fleiri sérfræðingar koma þar við sögu m.a. frá Háskóla íslands. fyrir tað og seigfljótandi mykju. Aratuga reynsla á íslandi. Tvær stærðir Spr 3,0m3 verð kr. 82.500,- Til afgreiðslu strax Spr 4,2m3 verð kr. 103.600.- Til afgreiðslu nú þegar. Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar nánari upplýsingar G/obus/f LÁGMOLI 5, SlMI 81555 # HOWARD Keðjudreifari

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.