NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 16.04.1985, Qupperneq 10

NT - 16.04.1985, Qupperneq 10
f Þriðjudagur 16. apríl 1985 10 1 M 0 3 3 ■i 3 Ifi Framhaldsskólinn - hvert ber að stef na? Erindi Gerðar Steinþórsdóttur á ráðstefnu um uppeldi og nám í breyttu þjóðfélagi ■ Þróun framhaldsskólans hefúr orðið mjög ör á síðustu árum. Segja má að skólakerfið hafi sprungið á miðjum sjöunda áratugnum, þegar eftirspurn eftir framhaldsnámi óx. Ekki komst nema hluti hvers árgangs inn í menntaskóla og aðrir skól- ar sem völ var á, eins og iðnskól- ar, virtust ekki fullnægja þörf- inni. Til þess að svara eftirspurn og auka fjölbreytni voru stofnaðar framhaldsdeildir gagnfræða- skóla 1969 og voru þær starf- ræktar við 30-40 skóla. Þessi úrlausn var þó hvergi fullnægj- andi. Segja má að stofnun MH marki tímamót í málefnum framhaldsskóla hér á landi. Hann tók til starfa árið 1966 og árið 1972 var tekin upp nám- skipan sem víða hefur rutt sér braut, svokallað áfangakerfí. Með fræðslulögunum 1946 var menntaskólunum skipað í þá stöðu sem þeir eru í, þ.e. 4 ára skóla. Með tilkomu áfanga- kerfisins kom ný gerð stúdents- prófs til sögunnar gerólík hinni eldri að allri gerð. Nú var náms- efni skipt í áfanga sem lauk með prófi ístaðlöngu upplestrarleyf- anna og einkunnarkvarðinn gerður grófari. AB. Markmið áfangakerfisins var og er að gera skólann sveigjanlegri, þar sem komið er til móts viö nem- cndur með mismunandi náms- hæfileika og áhugasvið. Þar er hægt að endurtaka próf í einum áfanga sem ncmandinn hefur ekki staðist en halda áfram í öðrum þar sem þekking nem- andans er fullnægjandi. Einnig er farið mishratt yfir námsefnið í hópunum og nokkurt frjáls- ræði í vali. Guömundi Arnlaugssyni fyrsta rektor MH fórust svo orð á ráðstefnu á vegum BHM (kenn.blað mars ’84): „Reynsla okkar í MN af áfangakerfinu fyrstu árin sannfærði mig um að við værum á réttri braut. Sitt- livað kom á óvart, ekki síst það hve munurinn á námsgetu og vinnuhraða nemenda var mikill, miklu meiri en mig hafði órað fyrir" (bls. 9). Fyrir 10 árum tók svo Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti til starfa á grundvelli laga um stofnun og rekstur fjölbrauta- skóla frá 1973. Starfsvið skólans var mjög víktækt; en til að geta boðið upp á verulega fjölbreytni í námsvali þarf nemendafjöldi að vera töluverður. (1450) Nú starfa fjölbrautaskólar í öllum landsfjórðungum. í stuttu erindi er ekki hægt að gera ítarlega grein fyrir svo risastóru verkefni sem fram- haldsskóli og háskóli er. Má nefna að á skólaárinu 1982-83 stunduðu .um 14 þús. nemendur framhaldsnám í 73 stofnunum um landiðallt. Þáerathyglisvert að 30% allra framhaldsskóla- nema stunda nám utan þess kjördæmis sem þeir eiga lög- heimili í. Það var brýnt í kjölfar grunn- skólalaganna 1974 að huga ræki- lega að framhaldsskólanum. Það ár skipaði þáverandi menntamálaráðherra Vilhjálm- ur Hjálmarsson nefnd til að semja frumvarp til laga um framhaldsskóla, og lagði það fram á Alþingi í fyrsta sinn 1976. Frumvarp þetta heíur verið lagt fram 6 sinnum með nokkrum breytingum hverju sinni síðast 1982. (VH 3, RA 1, IG 2). Það sem einkum kom í veg fyrir samþykkt frumvarpsins er, að sögn, ágreiningur um skiptingu skólakostnaðar, milli ríkis og sveitarfélags. Þetta ákvæði var tekið út úr frumvarpinu 1982 en það var þá lagt fram í þinglok fremur til kynningar en af- greiðslu. í greinargerð sem fylgir síð- ustu gerð frumvarpsins stendur: „Á þeim tíma sem frumvarpið hefur verið á döfinni höfur þörf- in á samræmdri löggjöf um framhaldsskólastigið orðið æ brýnni.” Er tvennt nefnt því til staðfestingar: framkvæmd grunnskólalaganna og sú stað- reynd að veruleg þróun hefur átt sér stað á sviði framhalds- skólanáms víða um land, bæði er varðar framboð menntunar svo og starfshætti skóla. Því miður virðist ekki blása byrlega nú fyrir þessu frum- varpi. Af ummælum núverandi menntamálaráðherra, Ragn- hildar Helgadóttur, má ráða að hún telji að frumvarpiö miði að því að steypa alla skóla í sama mót og því sé hún andvíg. Þessi ummæli eru villandi og gefa alranga mynd. Af lestri frumvarpsins og ítar- legri greinargerð sem því fylgir er deginum Ijósara að um engar þvingunaraðgerðir er að ræða. I greinargerð segir m.a.: „í þessu sambandi ber aö hafa hugfast að frumvarpi því sem hér er lagt fram er ætlað að stuðla að því að Alþingi setji „rammalög- gjöf“ sem rúmi frelsi og sveigj- anlcika án þess að slakað sé á kröfum um nauðsynlega sam- ræmingu framhaldsskólastigsins í heild." Með frelsi og sveigjanleika er átt við að skólar, geti starfað áfram í svipaðri mynd. í grein- argerðinni er þetta orðað svo: „engin ákvæði í frumvarpinu hindra það að einstakir skólar geti starfað áfram með svipuð- um hætti og þeir gera nú. Af því sem hér hefur verið sagt ættu meginmarkið frum- varpsins að vera ljós. En þar sem hér cr mikið í húfi mun ég drepa á nokkur ákvæði frum- varpsins. (10. k, 31. gr). Hér er um samræmdan framhaldsskóla að ræða en strax í upphafi er sleginn varnagli með orðinu en einstakir skólar geta borið sér- stakt nafn, t.d. tengt stað, hefð eða sérstöku hlutverki." Námið skal fara fram á mis- löngum námsbrautum og vera undirbúningur undir starf eða áframhaldandi nám. Leggja skal áherslu á tengsl verklegra og bóklegra þátta námsins og auk skyldunámsefnis skal gefinn kostur á frjálsum valgreinum. Af öllum námsbrautum skulu vera leiðir til framhaldsnáms og einnig markaðar sem greiðastar leiðir milli námsbrauta. Um skólaskipan segir að brautirnár geti verið mismun- andi innan sömu stofnunar, eða skipulagslega tengdar brautir í aðskildum stofnunum eða að- skildar brautir í sérgreinum. Það er mcnntamálaráðuneyt- ið sem hefur forgöngu um gerð áætlana um umbætur í starfi skóla, rannsókna og tilrauna í skólum, námskrárgerð, samn- ingu námsefnis eftir því sem þörf krefur svo eitthvað sé nefnt. Þá er kafli um fullorðins- fræðslu þar sem kveðið er á um kvöldskóla fyrir 19 ára og eldri og almennar deildir án til- skilinnar undirbúnings- menntunar. Sérstakt frumvarp til laga um fullorðinsfræðslu hefur verið lagt fram á þingi en ekki náð fram að ganga. í kaflanum um starfslið er t.d. ákvæði um náms- og starfs- ráðgjöf, félagslega ráðgjöf og- sálfræðiþjónustu. Þá er ákvæði þess efnis að í hverjum lands- hluta skuli vera eins fjölbreytt val námsbrauta og við verði komið. Verður hér látið staðar numið, en spurt hvað vinnist við samþykkt þessa frumvarps, því að ljóst er að framhaldsskólinn hefur þróast í þá átt sem hér er lýst. Svarið er að ýmsir lausir endar eru nú í framhaldsskólun- um, námsbrautir eru mismun- andi uppbyggðar í skólunum sem leiðir til efasemda um rétt- indi nemenda auk þess sem nemendur eiga á hættu að fá ekki nám sitt viðurkennt ef þeir flytjast milli skóla. (Dæmi: nemandi sem var einn vetur í Iðnskólanum, síðan í MH, fékk ekkert af náminu viðurkennt). Þau ummæli menntamálaráð- herra að hún vilji láta semja lög um hvern skóla en varpa þar með þessu frumvarpi fyrir róða, er skref aftur á bak til 7. ára- tugarins. Ég mun nú fjalla um hlutfall nemenda eftir kynjum í fram- haldsskólum og val þeirra á námsbrautum. Aðgengilegastar upplýsingar eru til um stúdents- próf. Ef miðað er við árið 40 frá stofnun lýðveldisins, þá voru konur lengi fjórðungur þeirra sem útskrifuðust, en þá voru í raun fáir útvaldir sem tóku stúd- entspróf, smám saman jókst nemendafjöldi og hlutfall kvenna og á síðasta áratug þessa tímabils urðu konur fleiri til að Ijúka stúdentsprófi. Árið 1944 útskrifuðu 2 skólar stúdenta en núna eru skólarnir 19. En þegar litið er á val námsbrauta kemur fram sláandi munur eftir kynjum, þótt konurnar sæki vissulega fram. 1981-82 luku 214 konur stúdentsprófi á mála- braut á móti 52 körium (4-1), en á raunvísindabraut luku 192 stúlkur prófi á móti 308 körlum (2-3), konur voru helmingi fleiri á félagsbraut en mesta jafnvæg- ið var á viðskiptabraut. í 19. júní, ársriti KRFÍ 1981 eru viðtöl við konur sem hafa brotið af sér hlekki vanans. Þar segir Hrönn Hjaltadóttir, loft- skeytamaður og nemi í útvarps- virkjun, m.a. „Ég man t.d. að í Kennaraskólanum yrti stærð- fræðikennarinn aldrei á okkur stelpurnar, jafnvel ekki þær sem voru áhugasamar og duglegar í stærðfræði. Það er alveg Ijóst að hefð og fordómar í garð kvenna eiga hér stóran hlut að máli en æ fleiri konur láta slíkt lönd og leið. Ef litið er á Iðnskólann i Rvík er kyngreiningin glögg. Skólaár- ið 1970-71 voru konur 10% nemenda, eða 95 talsins en 10 árum síðar 18% eða 198 talsins, þar af 90 í hársnrytingu, en sjá má að þær leita á ný mið s.s. í húsgagnabólstrun tréiðnir og út- varpsvirkjun, 1981 hafði ein kona lokið námi frá Vélskólan- um, 1 lokið námi frá Stýri- mannaskólanum, 1 lokið fram- haldsnámi í fisktækni frá Fisk- vinnsluskólanum, sem veitir réttindi til að sjá um stjórn frystihúsa. Hins vegar höfðu 15 konurog 166 karlar (11%) lokið námi við Fiskvinnsluskólarm sem gefur réttindi til verkstjórn- ar í frystihúsum og vera matsmenn. Á sama tíma eru aðrir skólar kvennaskólar, eins og Fósturskólinn, Þroskaþjálfa- skólinn og Iítið sem bendir til breytinga þar í náinni framtíð. Ekki er hægt að ganga hér fram hjá fullorðinsfræðslunni, og minna á að „svo lengi lærir sem lifir.” Þeir aðilar sem lengstan feril eiga í þessum málum eru Námsflokkar Rvíkur og Bréfaskólinn (’39 og ’40). Þátttaka kvenna er meiri í full- orðinsfræðslu en á færri sviðum. Ef litið er til öldungadeild- anna hafa þær komið konum fremur til góða en körlum, 453 konur hafa útskrifast þaðan frá upphafi og 186 karlar. Það hefur vissulega margt gerst á 8. ára- tugnum til bóta, en ekki allt smollið saman sem skyldi enda þensla snögg. Löggjöf um fram- Tialdsskólann og fullorðinsfræð- slu ætti að vera stórt skref fram á við. Mér þykir rétt að gera nokkra grein fyrir háskólastiginu jafnframt: Kennaraháskólan- um, Tækniskóla íslands og Há- skóla íslands. Kennaraskólanum var breytt í háskóla með einu pennastriki, ef svo má segja, árið 1971. Vönduð kennaramenntun er þjóðinni örugglega mikilvægari en flest annað. Góðir skólar eru satt að segja óhugsandi án menntaðra, áhugasamra og gagnrýninna kennara. I Kennaraskólanum náðist fyrst jafnt hlutfall kvenna og karla og á 7. áratugnum komust konur í meirihluta og eru núna 70-80% af heildar nemendafjölda Kenn- araháskólans. Ég tel það miður að kennarastéttin verði kvenna- stétt, ekki vegna þess að konur séu ekki jafnhæfar og karlar, heldur er nemendum hollt að kynnast konum og körlum jafnt sem uppalendum. Æskilegt væri að KI og HÍ hefðu meiri sam- vinnu sín á milli í uppeldisfræð- um og endurmenntun. Vitað er að þessir tveir aðilar hafa ræðst við en þriðja aðila vantar frá menntamálaráðuneytinu til að koma skrið á málið. Að þessu atriði vék Jónas Pálsson fyrrv. rektor KÍ í ávarpi á 75 ára afmæli KÍ 1982. í þessu ávarpi lagði Jónas áherslu á að frumvarp til endur- skoðaðra laga um KI næði fram að ganga en það var lagt fram á tveimur þingum (1976-7 og 1977-8), endurskoða þyrfti námskrá skólans, styrkja kennslufræðina, minntist á mikilvægi rannsókna og fagnaði því að Rannsóknastofnun upp- eldismála væri í þann veginn að taka til starfa. Talaði um mikil- vægi eins árs framhaldsnáms í flestum greinum. Á sama tíma og kennarastétt- in er að verða kvennastétt hefur 1 kona lokið prófi frá Tækni- skóla íslands sem tengist iðnaði, María Jóna Gunnarsdóttir. All- ar aðrar konur frá TÍ eru meina- tæknar (218/5). í viðtali í 19. júní 1981 kemurfram áhugavert viðhorf hjá Maríu, sem rétt er að huga að: „Tæknifræðin er... með barnavagn" bls. 28). Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það yrði þjóðfélag- inu til góðs og hagsbóta að konur hösluðu sér völl á öllum sviðum og karlar tækju sinn skerf í umönnunar- og þjón- ustuhlutverkinu. Ein kona í starfi skiptir ekki sköpum en hún vísar öðrum leið, vinnur starf brautryðjandans sem aldr- ei getur orðið létt verk. Ég tel að Jafnréttisráð eigi að hafa forystu í þessu máli, en til þess skorti það nú mannafla. Er þá komið að HÍ og mun ég fyrst lesa samantekt (stytta) sem einn þátttakandi í undirbún- ingshópnum, Sigurður Stein- þórsson prófessor gerði, og byggir að nokkru á Skýrslu Þróunarnefndar H.í. sem kom út á liðnu ári: „Fram á miðjan... utan við H.í.“ Valdimar K. Jónsson prófessor átti sæti í þróunamefndinni og seg- ir í grein í BHM blaðinu (okt ’84) að verði ekki bætt úr verði Hl sýndarmennsku háskóli eða fara verði þá leið að loka skólanum fyrir fjöldanum og halda uppi mannsæmandi staðli fyrir fáa útvalda. Bæta má við að rædd er sú leið að taka upp skólagjöld til að greiða laun kennara. Að lokum nokkur orð um val í námsbrautir við HÍ. Konur eru 40% þeirra sem Ijúka námi, en þær fara í styttra nám en karlar. Þær eru í meirihluta í tvcimur deildum: heimspeki- deild og félagsvísindadeild og er það í samræmi við námsval í framhaldsskólanum sem áður var vikið að. í læknadeild hefur orðið fjölgun en þar ræður mestu hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun (51/3). 1 kona á móti 3 körlum lýkur læknis- fræði. í verkfræði- og raunvís- indadeild eru karlar yfir 90% í byggingaverkfræði, vélav., raf- magnsverkfr. og fl., en konur eru yfir 40% í landafræði, jarð- fræði og efnafræði jafnvel í matvælafræði. En segja má með rétti að konur hafi unnið á í nánast öllum deildum. Háskóli íslands Fram á miðjan 7. áratuginn fjölgaði nemendum í H.í. til- tölulega liægt: kenndar voru hinar hefðbundnu embættis- greinar, guðfræði, læknis- og lögfræði, auk viðskiptafræði og fyrrihluta verkfræði og lyfja- fræði svo og tungumála-, sögu- og norrænunáms heimspeki- deildar. Árið 1969 voru þar nýinnritaðir um 450 og heildar- fjöldi stúdenta 1250. Þá byltingu, sem í Háskólan- um varð skömmu fyrir 1970, má að mestu leyti rekja til sam- þykkta sem gerðar voru á ráð- stefnu um mál háskólans og æðri menntunar tæpum 10 árum áður, og sem framkvæmdar voru kerfisbundið árið þar á eftir. Meðal þeirra samþykkta mun hafa verið stofnun Vísinda- sjóðs, og flutningur ýinissa námsgreina inn í landið, sem áður höfðu verið sóttar til út- landa. Af þessum sökum hefur orðið gífurleg fjölgun nemenda við skólann, m.a. tekin upp kennsla til lokaprófs í verk- fræði, til BS-prófs í raungrein- um, og ýmsar nýjar hugvísinda- greinar (t.d. félagsfræði og heimspeki) til BA-prófs). í spá um nemendafjölda o.fl. til aldamóta, sem birtist í nýút- kominni 5-ára þróunaráætlun H.Í., er gert ráð fyrir að jafn- vægi í nemendafjölda náist upp úr 1985, nýinnritaðir verði þá um 1800 á ári, nemendafjöldi um 5200, og 37% hvers árgangs Ijúki prófi. Framan af þessu fjölgunar- tímabili gekk nokkuð með ný- byggingar háskólans, en hin síð- ari ár hefur gengið mjög illa með þær af ýmsum ástæðum. Kunnugir segja að (a) háskól- inn hafi nú u.þ.b. helming þess húsnæðis, sem stofnun af hans stærð þyrfti að hafa og (b) 200 milljónir (eitt togaraverð) á ári frá ríkinu myndu tryggja eðli- legan byggingahraða. Ástand húsnæðismála háskól- ans er nú slíkt að hann er dreifður á yfir 30 staði í bænum, engin aðstaða er fyrir fjölmenna fyrirlestra, og vantar tilfinnan- lega stóra sali, og verk-kennsla er í verulegum ólestri í mörgum greinum. (Þannig eru l.-árs æfingar í eðlisfræði nú kenndar í 14 hópum, þ.á.m. bæði á laugardögum og sunnudögum, en í lífefnafræði er verkleg kennsla í 9 hópum.) Launakjör háskólakennara eru slík að þeir neyðast til þess að kenna miklu meira en þeim eða stúdentum er hollt, margir leiðast út í vinnu utan háskólans til að drýgja tekjur sínar. Auk þess er aðstaða til rannsókna - en rannsóknir eru taldar undir- stöðu- og skilgreiningaratriði há- skólastarfs samanborið við aðra kennslu - í mörgum greinum engin eða ófullnægjandi. Allt þetta - húsnæðisskortur, að- stöðuleysi, bág launakjör og lágt hlutfall fastra kennara mið- að við fjölda stúdenta og alltof hátt hlutfall stundakennara miðað við fasta ógna háskólan- um sem fyrsta flokks mennta- stofnun. Fyrir fáeinum árum skilaði nefnd um rannsóknir við há- skólann áliti; þar voru m.a. tillögur um stórfellda eflingu Vísindasjóðs. Svo hefur lengi verið, að beinar fjárveitingar til rannsókna hafa verið mjög af skornum skammti, og hefur Vísindasjóður, svo veikur sem hann er, verið meginstoð ýmissa nýrra rannsókna, auk þess sem erlendir aðilar hafa iðulega styrkt rannsóknir hér. í þeim áætlunum, sem gerðar voru af þróunarnefnd, er ekki reiknað með ýmsum nýjungum í kennsluháttum eða námsgrein- um við Háskólann. Þar ber að nefna tvennt: Að tekið verði upp formlegt framhaldsnám, til MÁ/MS eða doktorsprófs, í vissum greinum, og að greinar, sem nú eru ekki við háskólann verði teknar upp, t.d. húsagerð- arlist og tónlist. Húsagerðarlist sækja Islendingar algerlega til útlanda, en ýmis rök eru fyrir því að sérstakar íslenskar rann- sóknir ætti að stunda á þessu sviði, m.a. m.t.t. séríslenskra aðstæðna í veðurfari, sólarhæð, húshitun, byggingarefnum o.fl. Veðurfræði er ekki kennd hér og ekki fiskifræði. Við Tónlist- arskólann í Reykjavík mun vera unnið að BS-námi, sem er alger- lega utan við H.í.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.