NT - 30.04.1985, Page 1

NT - 30.04.1985, Page 1
■ íslandsmótið í vaxtar- rækt var haldið um helgina í Broadway. Hér sést Hrafn- hildur Valbjörns, íslands- meistari í fyrra í sýningar- atriði sínu sem var liður í dagskránni. Nánar er fjallað um keppnina í spegli í dag, sjá bls. 14-15. NT-mynd: Árni Bjarna. Þriðjudagur 30. apríl 1985 -111. tbl. 69. árg. Hraut í rúmi húsfreyjunnar ■ Konu nokkurri sem býr í Vesturbænum í Reykjavík brá illilega þegar hún kom heim í íbúð sína eftir að hafa verið á skemmtistað aðfara- nótt laugardagsins síðasta, því úr svefnherberginu, sem hefði átt að vera autt, heyrð- ust miklar hrotur. Þegar konan kannaði mál- ið kom í Ijós að bláókunnug- ur maður hafði lagst til hvíld- ar í rúmi konunnar. Konan hringdi á lögregluna og hún kom að vörmu spori og vakti manninn upp. Gesturinn reyndist þá vera utanbæjar- maður sem sótt hafði á mikill svefn eftir drjúga skemmtun á veitingastöðum höfuðborg- arinnar. Einhverra hluta vegna komst hann inní íbúð konunnar, sem var ólæst, og lagðist þar til svefns. Að sögn lögreglu var til- gangur mannsins ekki annar með innbrotinu en að leggj- ast fyrir til hvíldar. mmm I barn í sjúkrabíl ■ Hraustlegur drengur leit heiminn fyrst augum í sjúkra- bifreið sem var á leið með þau mæðginin á sjúkrahús á Selfossi. Sá stutti var ekki á þeim buxun- um að bíða eftir því að sjúkra- bíllinn kæmist á Selfoss og kom hann í heiminn klukkan 21.15 í fyrrinótt rétt við bæinn Kjartansstaði í Flóa. Arnór Egilsson læknir var í bílnum og tók á móti barninu. Móðurinni sem er frá Hellu heilsast vel ásamt syninum. Borgarnesskák: Jansa og Hansen enn efstir ■ Jansa og Hansen eru enn efstir á alþjóðlega skákmótinu í Borgarnesi. Þeir hafa hlotið 5 vinninga að aflokinni 7. umferð- inni, sem tefld var í gær. Næstir koma svo Guð- mundur og Mokry með 4 1/2 vinning. Úrslit 7. umferðar voru sem hér segir: Magnús vann Dan, Jansa og Guð- mundur gerðu jafntefli, sömuleiðis Mokry og Lein og Hansen og Sævar. Karl vann Hauk, en skák Mar- geirs og Lombardy fór í bið. Heilsugæslulæknar í kjarabaráttu: Vaktir felldar niður um kvöld og helgar - þar til semst um greiðslur fyrir þær í biðsal f rægðarinnar ■ Sannkölluð Hollywoodstemmning ríkti í Iðnó í gær- kvöldi, þegar rúmlega eitt hundrað unglingsstúlkur komu til þess að láta prófa sig fyrir stórt hlutverk í söngleik Kjartans Ragnarssonar, Land niíns föður. Stúlkurnar voru prófaðar í leik, söng og dansi undir vökulum augum Kjartans Ragnars- sonar, Stefáns Baldurssonar, Atla Heimis Sveinssonar og Auðar Bjarnadóttur. Ekki var annað að sjá en mikil eftirvænting ríkti hjá stúlkunum, þegarljósmyndari NT smellti mynd af þeim í biðsal frægðarinnar í gærkvöldi. NT-niynd: Árni Bjarna ■ Læknar á heilsugæslustöðv- unum í Asparfelli, Fossvogi og á Seltjarnarnesi hafa ákveðið að fella niður kvöid- og helgar- vaktir frá og með 3. maí næst- komandi, þar sem ekki hefur tekist að semja við yfirvöld um greiðslu fyrir þjónustu þessa. Lúðvík Guðmundsson læknir á heilsugæslustöðinni á Seltjarn- Af húddinu og undir bílinn ■ Ungur niaður viðbeins- brotnaði og hlaut önnur meiðsli, þegar hann varð undir bíl í Álfabakka í gærkvöldi. Slysið varð með þeim hætti, að maður- inn sat ofan á vélarhlíf bílsins, þar sem hann ók í suðurátt. Þegar ökumaöur bifreiðarinn- ar hemlaði skyndilega féll „far- þeginn“ fram fyrir og í götuna. Ókumanni tókst hins vegar ekki að stöðva farartæki sitt i tæka tíð, og því fór sem fór. Þegar NT fór í prentun i gærkvöldi, voru meiðsli manns- ins ekki fullrannsökuð, en þau munu ekki Itafa verið alvarleg. arnesi sagði í samtali við NT, að læknar hefðu sjálfir tekið upp vaktir til að bæta þjónustuna við bæjarbúa, en formlega væru þær ekki til á pappírunum. „Við höfum verið að reyna að fá þær viðurkenndar af yfirvöldum, bæði formsins vegna og einnig til þóknunar, en því hefur verið vísað alveg frá. Við erum því í rauninni að leggja niður hlut, sem er ekki viðurkenndur sem slíkur af yfirvöldum,“ sagði Lúðvík. Þjónusta þessi var tekin upp á heilsugæslustöðinni í Aspar- felli fyrir 7 árum, í Fossvogi fyrir 3 árum og á Seltjarnarnes- inu síðastliðið haust. Eina þóknunin, sem hefur komið fyr- ir hana eru greiðslur frá sjúkl- ingum fyrir vitjanir og stofuvið- töl, upp á 210 krónur. Læknarnir, sem starfa á heilsugæslustöðvunum eru 10 talsins og þjónustu þeirra njóta 17-18 þúsund manns. Kvöld- og helgarvaktirnar verða ekki teknar upp aftur fyrr en samist hefur um greiðslur fyrir þær. Á meðan svo er, verða sjúklingar að leita til bæjarvaktarinnar í Reykjavík.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.