NT - 30.04.1985, Page 22

NT - 30.04.1985, Page 22
 k\V>. t ’i'íoia ,OC'i'íEt.bijjén'l Þriðjudagur 30. apríl 1985 22 Utlönd Evrópsku söf nin varin fyrir veldi dollarans ■ Evrúpuráðið mun leggja til að settar verði hömlur á útflutning lista- verka sem tilheyra hinum evrópska menningararfi. Carlo Ripa de Meana, yfirmaður menningardeild- ar ráðsins, skýrði blaða- mönnum frá því að hann muni leggja þar að lútandi fyrir næsta fund menn- ingarmálaráðherra Efna- Metkorninnflutning ur í Sovétríkjunum London-Reuter ■ Alþjóðahveitiráðið áætlar að Sovétmenn muni á árinu 1984-85 flytja inn 53 milljón tonn af korni sem er meira en nokkru sinni áður. Mikill korninnflutningur Sov- étmanna er sagður stafa af því að kornuppskeran í fyrra var sú versta í áratug og uppskeran árið 1983 var litlu skárri. Inn- flutta kornið er bæði notað til • manneldis og sem dýrafóður. Ársinnflutningurinn er mið- Víetnam: aður við tímabilið frá því 1. júlí 1984 til 30. júní í ár. Á sama tímabili 1983-84 fluttu Sovét- menn inn unr 33 milljón tonn af korni. Sovétmenn flytja aðal- lega inn korn frá Bandaríkjun- um, Efnahagsbandalagi Evr- ópu, Kanada og Argentínu. Mesti korninnflutningur Sov- étmanna fram til þessa var árið 1981-82 en þá fluttu þeir inn 46 milljón tonn. Kornuppskera þeirra árið 1984 mun aðeins hafa verið um 170 milljón tonn ef marka má áætlanir erlendra ríkja og stofnana þar sem Sovét- menn hafa ekki gefið upp neinar opinberar tölur um uppskeruna. Árið 1983 mun uppskeran hins vegar verið um 195 milljón tonn. Sovétmenn eru nú þegar farn- ir að hafa áhyggjur af uppskeru næsta árs þar sem sáning hefur gengið illa og seint vegna lélegs árferðis. hagsbandalagslandanna 28. maí næstkomandi. Hann skýrði ekRi frekar frá væntanlegum tillögum sínum, en talsmaður sósíalista á Evrópuþinginu sagði að de Meana liafi nýlega skýrt frá því að hann vildi reisa ókleifa múra til að koma í veg fyrir að listaverk verði flutt út til landa utan Efnahagsbandalagsins. Talsmaðurinn sagði að bresk- ir stjórnmálamenn hafðu fagnað tillögunum og lagt til að til sérstakra aðgerða verði gripið í Bretlandi, þ.á.m. skattaíviln- ana til verndar listaarfi þjóðar- innar. Aðgerðir þessar til verndar evrópska menningararfinum fylgja í kjölfarið á sölu málverks eftir Mantegna frá Bretlandi til; Getty-safnsins í Malibu, Kali- forníu, fyrir 9,7 milljónir doll- ara. Pykir tími til kominn að evrópsk söfn verði varin fyrir veldi dollarans. ■ Reagan Bandaríkjaforseti hefur lengst af þótt glöggskyggn á hvað fellur í kramið hjá almenningi en nú virðist honum farið að förlast því að sú ákvörðun hans að hætta ekki við heimsókn í vestur-þýskan stríðskirkjugarð eftir að í Ijós kom, að þar lágu nokkrir nasistar undir grænni torfu, hefur mælst einstaklega illa fyrir og aflað honum óvinsælda jafnt heima fyrir sem erlendis. Þýskalandsheimsókn Reagans: í kirkjugarð- inn skal hann ■ Vestur-þýsk stjórnvöld hafa þvertekið fyrir að brcyta fyrir- koinulagi heimsóknar Rcagans Bandaríkjaforseta síðar í þess- ari viku þannig að hann fari ekki í þýskan stríðskirkjugarð í Bitburg þar sem 49 SS-hermenn nasista eru m.a. grafnir. Talsmaður vestur-þýsku stjórnarinnar, Peter Bönisch, skýrði fréttamönnum frá því í gær að heimsókn Reagans í kirkjugarðinn, þar sem hann Imun leggja krans við minnis- 10 ár f rá f lótta síðasta bandaríska hermannsins ■ í dag eru liðin tíu ár frá því að seinasti bandaríski hermaðurinn klifraði upp í herþyrlu á þaki bandaríska scndiráðsins í Saigon í Suður- Víetnam eftirað Bandaríkja- menn og bandamenn þeirra í Suður-Víetnam höfðu beðið ósigur í stríðinu við samfylk- ingu kommúnista og þjóð- ernissinna. í Víetnam er flótta síðasta bandaríska hermannsins minnst sem mikils sigurs. Sa- igon heitir ekki lengur sínu gamla nafni heldur var hún endurskírð í höfuðið á frels- ishetju víetnamskra komm- únista og heitir nú Ho Chi Minh-borg. Fljótlega eftir sigurinn yfir Bandaríkja- mönnum tóku norður-víet- namskir kommúnistar öll völd í Suður-Víetnam og lýðræðissinnaðir bandamenn þeirra í þjóðfrelsisfylking- unni hafa lítil sem engin völd. Margir Bandaríkjamenn minnast Víetnamstríðsins og ósigursins fyrir kommúnist- um sem einhverrar mestu niðurlægingar í sögu Banda- ríkjanna. Sumir hafa reynt að gleyma stríðinu og margir muna ekki einu sinni hvort Bandaríkjamenn studdu Norður eða Suður-Víetnama í stríðinu. Flestir Vesturlandabúar jafnt sem Víetnamar sjálfir bjuggust við því að eftir að stríðinu við Bandaríkjamenn og leppstjórn þeirra í Suður- Víetnam lyki myndi renna upp tímabil velsæídar og frið- ar í Suður-Víetnam. En reynslan af síðustu tíu árum er samt nokkuð önnur. Ví- etnömsk stjórnvöld hafa haldið áfram að efla her sinn og þeim hefur gengið illa að brauðfæða sig. Víetnamar hafa nú um 180.000 ntanna herlið í Kambódíu og um 40.000 í Laos. Margir ásaká Víet- nama um að stefna að því að innlima þessi ríki í veldi sitt en víetnömsk stjórnvöld neita þessu og segja her sinn einungis vera að aðstoða þessa nágranna sína við að friða lönd sín. En þrátt fyrir þessa neitun Víetnama á því að þeir vilji sölsa undir sig reyna að sölsa undir sig óeðli- leg áhrif í Víetnam og hófu ofsóknir gegn mörg hundruð þúsund Kínverjum sem voru búsettir í Víetnam og höfðu jafnvel átt heima þar í nokkr- ar kynslóðir. Pessum Kín- verjum var nú skipað að taka upp víetnamskan ríkisborg- ararétt og skólum þeirra var lokað. Stór hluti Kínverj- anna kaus að flýja fremur land en aó ganga að þessum kostum enda töldu þeir sig ekki tryggða gegn ofsóknum þótt þeir tækju upp víetn- ■ Tveir bandarískir hermenn eftir viðureign við kommún- íska skæruliða í Víetnam. nágrannaríkin eróumdeilan- legt að áhrif þeirra á stjórn og menningu þeirra eru mikil og fara vaxandi. Fljótlega eftir sigurinn yfir Bandaríkjamönnum fór einnig að bera á ósamkomu- lagi á milli Víetnama og Kínverja sem höfðu verið mjög nánir bandamenn víet- namskra kommúnista á með- an á stríðinu stóð. Víetnam- ar ásökuðu Kínverja um að amskan ríkisborgararétt. Kínversk stjórnvöld héldu því líka fram að Víetnamar væru í bandalagi við Sovét- menn gegn Kína og ryftu öllum samningum um efna- hagsstuðning við þá. Kín- verjar sögðu að Víetnamar væru að byggja upp hernað- armannvirki við kínversku landamærin sem væru ógn- un við Kína. Sjálfsagt voru þessar ásakanir Kínverja ■ Merki stríðsins eru enn mjög greinileg tíu árum eftir lok þess. Þessi stúlka stendur við leifarnar af bandarískri herþyrlu. ’• mjög ýktar en þær urðu þeim átylla til árásar inn fyrir landamæri Víetnams árið 1979. Það er því langt frá því að sá friður og velsæld sem Víet- nama dreymdi um að kæmi í kjölfar sigursins yfir Banda- ríkjamönnum yrði að veru- leika. Þvert á móti hafa þeir næstum því stöðugt verið í stríði öll þessi tíu ár. Víetnömum hefur heldur ekki gengið eins vel á efna- hagssviðinu og þeir höfðu gert sér vonir um. Bændur í Suður-Víetnam hafa átt erf- itt með að sætta sig við strangt framleiðsluskipulag samyrkjubúa og stjórnvöld hafa neyðst til að gefa bænd- urn þar aftur meira frelsi til merki, sé fastur liður í Pýska- landsför hans sem verði ekki breytt. Ákvörðun Reagans um að hætta ekki við heimsóknina til kirkjugarðsins þrátt fyrir mót- mæli áhrifamikilla leiðtoga gyð- inga , í Bandaríkjunum og margra annarra er einhver óvinsælasta ákvörðun hans frá upphafi forsetaferils hans. WBHORF Ragnar Baldursson skrifar: einstaklingsbundinnar rækt- unar. Það var ekki fyrr en árið 1983 að Víetnamar gátu framleitt nægjanlega mikinn mat handa öllum þeim 57 milljónum manns sem nú eiga heima þar. Breytingar í átt til frjáls markaðskerfis fyrir landbúnaðarafurðir eru taldar eiga mikinn þátt í þessu. Víetnamar stefna að því að framleiða um 19 millj- ón tonn af hrísgrjónum á þessu ári en frantleiðslan var 18 milljón tonn á seinasta ári. Petta er samt rétt nægjanlega rnikil matvæla- framleiðsla til að koma í v ,;g fyrir hungursneyð í þessu fjölmenna landi. Skuldir Víetnama erlendis eru gífurlegar. Pað er áætlað að þeir skuldi nú um 6 millj- arða dollara og vegna stöð- ugs vöruskiptahalla aukast skuldirnar stöðugt. Þeir versla aðallega við sósíalísku ríkin í Austur-Evrópu enda hafa mörg vestræn ríki lítinn áhuga á að versla við Víet- nama á nteðan þeir hafa fjölmenn herlið í nágranna- löndunum. Kambodíu og Laos. Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn áætlar að vöru- skiptahalli Víetnama á þessu ári niuni nema um 900 millj- ón dollurum og hann muni halda áfram að aukast að óbreyttu ástandi þótt Víet- narnar séu nú orðnir sjálfum sér nógir um matvæli. Undanfarin tíu ár hafa því ekki verið neinn dans á rós- um fyrir Víetnama. Og sem stendur er fátt sem bendir til þess að næstu tíu ár verði þeim auðveld heldur.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.