NT - 10.05.1985, Side 1

NT - 10.05.1985, Side 1
Tankanaburt! - en OLÍS setur á lögbann ■ Bensínstöð Olís í Fellsmúla hefur verið lokuð í nokkra daga vegna breytinga. Breytingarnar eru umtalsverðar, þar sem Hreyfill ætlar að fjarlægja húsið af planinu, og alla tanka og dælur í eigu Olís. Hreyfill á planið og hefur verið rekstrar- aðili og greitt þeim mönnum kaup sem unnið hafa við stöð- ina. Hreyfill hefur þegar samið við Esso um að þeir taki við Fellsmúlastöðinni og setji upp sín tæki. Skurðgrafa var mætt í gærdag klukkan eitt í þeim tilgangi að grafa upp tanka Olís. Ekki tókst þó að Ijúka því verki þar sem klukkan fjögur í gær barst lög- bannsúrskurður frá Olís og verður sá úrskurður tekinn til athugunar á morgun. Aðdragandi þessa máls er sá að 1. janúar runnu út samningar þar sem Olís veitti Hreyfli rétt til þess að reka, sem umboðsað- ili, bensínstöðina í Fellsmúl- anum. Samningar tókust ekki aftur milli fyrirtækjanna þrátt fyrir samningaumleitanir í fimm mánuði. Einar Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri Hreyfils sagði í gær í samtali við NT að 20. mars hefði Hreyfill lagt fram sínar tillögur. „Þann 11. apríl fengum við bréf frá Olís, þar sem farið var fram á að við greiddum okkar viðskiptareikn- ing við Olís, en þeir myndu í staðinn fjarlægja sínar eigur af lóðinni. Við sendum Olís bréf með ávísun fyrir okkar skuld, og gáfum þeim frest til þess að fjarlægja sínar eigur fyrir klukk- an tólf í gærdag. Það gerðu þeir ekki, og því kom grafan," sagði Einar. Bjórfrumvarpið til umræðu: Kennarar úr BSRB ■ Fullvíst má nú telja að Kennarasamband íslands yfir- gefi BSRB um áramótin. { gær- kvöldi hafði þorri atkvæða fé- lagsmanna í kosningunni um BSRB aðild verið talin og voru 1484 hlynntir útgöngu en 673 á móti. Auðir seðlar voru 143 og einn ógildur. Ótalin voru 200 atkvæði sem blandað verður saman við atkvæði sem hugsan- lega eiga eftir að berast, en síðustu förvöð að póstleggja atkvæði voru 3. maí. Ef aðeins eru talin atkvæði með og móti eru 68% hlynntir útgöngu, en 32% á móti. Ef auðir seðlar og ógildir eru taldir með eru 66% með útgöngu og 34% á móti. 6616% atkvæða þarf til að samþykkja úrsögn sambandsins úr BSRB. „Þetta er skaði fyrir samtök- in,“ sagði Albert Kristinsson varaformaður BSRB í samtali við NT í gær. „Kennarar hafa kosið að vera utan við heildar- samtökin og stefna eigin framtíð • í óvissu, kjaralega og samninga- lega.“ 1 Kennarasambandi Islands eru 3200 meðlimir af 18000 í BSRB. Það orð hefur reyndar legið á kennurum að þeir væru virkast hópurinn innan samtak- anna, sem reyndar sannaðist í verkfallinu í haust. Hins vegar má telja fullvíst að ekki muni allir meðlimir Kenn- arasambandsins yfirgefa BSRB. Félag sérskólakennara verður væntanlega áfram innan sam- takanna og sama má fullyrða um ýmsa einstaklinga. Hatton Rockall: Reglugerð um réttindi íslands — sjá bls.2 Fréttamenn útvarps mútuþægir? - og þingmenn vanhæf ir vegna eiginhagsmuna? ■ Eru fréttamenn ríkisfjölmiðlanna mútuþegar? Eiga alþingismenn beinna fjárhagslegra hagsmuna að gæta varðandi samþykkt bjórfrumvarpsins? Þessum spurning- um varpaði Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður fram við umræður um bjórfrumvarpið á Alþingi í gær, er hann mælti fyrir minnihlutaáliti allsherjarnefndar. Ólafur réðst harkalega að umfjöllun útvarps og sjónvarps. um bjórmálið sem hann sagði einhliða. Hann sagði eina mynd birtast í þessum fjölmiðlum, þegar bjórinn væri annars vegar; „það eru kátir menn og fréttastofu útvarps vegna svo- kallaðs bjórsamlags, sem hann taldi einhliða auglýsingu og spurði hvort opinberir starfsmenn þægju mútur. Þá spurði hann hvort einstakir þingmenn ættu fjárhagslegra hagsmuna að gæta vegna hugs- anlegra umboðslauna og spurði hvort eðlilegt gæti talist að þeir greiddu atkvæði um málið. Þá veittist hann að flutningsmönn- um bjórfrumvarpsins fyrir að vera ekki viðstaddir umræðuna og reiknaði þeim það til heiguls- skapar. „Það skyldi þó ekki vera.“ sagði hann, „að einhver þeirra hefði búið sig undir að þiggja umboðslaun fyrir áfengt öl ef frumvarpið verður að lögum." Flutningsmenn bjórfrum- varpsinseruJón Baldvin Hanni- balsson, Friðrik Sophusson, Guðmundur Einarsson, Guð- rún Helgadóttir og Ellert B. Schram. „Ég tek ekki meira mark á þessu en öðru, sem frá Ólafi Þ. Þórðarsyni kemur,“ sagði Friðrik í samtali við blaðamann NT. „Ég hef engra hagsmuna að gæta, ég lit á mig sem fulltrúa neytenda í þessu máli,“ sagði Jón Baldvin. Sjá bls. 3. glaðir að drekka úr bjórkollun- um. Það er ekki verið að sýna menn illa á sig komna á leið heim til sín. Það er ekki verið að segja frá mönnum sem hafa þurft í afvötnun," sagði Ólafur. Hann talaði um umfjöllun ■ Þessi mynd af barnungum og ráðvilltum hermanni gæti verið tekin hvar sem er, en hún er reyndar tekin í Reykjavík 10. maí 1940, fyrír réttum 45 árum. Þá var einangrun íslands endanlega rofin með hernámi breska hersins. Þessi dagur markaði að margra dómi stærrí timamót í 20. aldar sögu íslands en nokkur annar. Sjá bls. 5, leiðara og baksíðu. Hvers vegna er ég hér? Helgarábót: Hin nýja Marþ anne - bls. 1 Helgin fram- undan -bls.2-3 Kokteila- keppni Barþjóna- klúbbsins -bls.4-5 Útvarp - sjónvarp -bls.6-7 Hreinsunar- dagarí Breiðholti - bls. 8

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.