NT - 10.05.1985, Síða 2
Landgrunn Islands (---1
Miólina milli landa
200 sjómilna mork------
350sjómilna mork--------
Hatton-Rockall svæðið:
Island vill fá hluta
af landgrunnskökunni
- utanríkisráðherra gaf út reglugerð um réttindi fslands í gær
■ Utanríkisráðherra Geir
Hallgrímsson, gaf í gær út reglu-
gerð varðandi afmörkun land-
grunnsins, þar sem lýst er yfir
réttindum íslands á Hatton-
Rockall svæðinu.
Fyrir skömmu gáfu Danir út
yfiríýsingu þar sem þeir lýstu
kröfum sínum til mikils hluta
þessa svæðis sem landgrunns
Færeyja, en í júní sl. var fulltrú-
um Dana, Breta og íra afhent
greinargerð þar sem skýrt var
frá því hvað ríkisstjórn íslands
teldi vera eðlileg mörk íslenska
landgrunnsins. Síðan þá hafa
íslendingar, DanirogFæreying-
ar átt viðræður um sameiginlega
hagsmuni sína en engar form-
legar viðræður hafa átt sér stað
við Breta og íra, þar sem þeir
vísuðu kröfum íslendinga ein-
dregið á bug, en áöur höfðu átt
sér stað óformlegar viðræður.
Það kom fram hjá utanríkis-
ráðherra á blaðamannafundi í
gær að með þessari reglugerð
væri verið að gæta hagsmuna
íslendinga og réttar en þess væri
gætt í öllu að fara að lögum.
Eyjólfur Konráð Jónsson, for-
maður utanríkismálanefndar
Alþingis, sagði við sama tæki-
færi að þetta væri lokasókn
strandríkja til að helga sér land-
grunnið. Það gerðu Islendingar
líka og reyndu að fara eins langt
út og hægt væri, enda væri það
hans skoðun að þeir sem fengju
yfirráð yfir landgrunninu hefðu
líka yfirráð yfir hafinu yfir því.
Landgrunn íslandserafmark-
að svo sem sýnt er á meðfylgj-
andi mynd og er ákvæði 76. gr.
hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna lögð til grundvallar til
að ákveða þessi mörk.
FÆREYJAR
*
*
ALL
SKOTLAND
ENGLAND'
Föstudagur 10. maí 1985 2
Samband sunnlenskra kvenna:
Gaf rúma milljón til líkn-
ar og menningarmála í fyrra
kvenna nýlega. En svipuð til-
mæli og áskoranir hafa að
undanförnu verið samþykktar
af fleiri kvenfélögum og sam-
böndum.
Af 2,3 milljóna króna tekjum
Sambands sunnlenskra kvenna
á sfðasta ári gáfu þau rúma eina
milljón króna til líknar- og
menningarmála. Ákveðið' var á
fundinum að gefa legudeild
Sjúkrahúss Suðurlands 100 þús.
krónur úr jólakortasjóði sam-
bandsins til kaupa á sjúkrarúm-
um. Einnig var ákveðið að stofna
Ferðasjóð SSK sem hefði
það hlutverk að styrkja félags-
konur til að sækja fundi og orlof
Húsmæðrasambands Norður-
landa.
Viðurkenningar í samkeppni
Ferðaþjónustu bænda og SSK,
um minjagripi sem hægt væri að
hafa til sölu á sveitabæjum sem
eru með ferðaþjónustu voru
afhentar á aðalfundi SSK.
Ekkert
gekk
■ Árangurslausir fundir um
kaup og kjör leiðsögumanna
annars vegar og starfsmanna
skógræktarinnar hins vegar
voru haldnir hjá ríkissáttasemj-
ara í vikunni. Nýir fundir hafa
ekki verið boðaðir.
Sjómenn:
Enginnár-
angur á
sáttafundi
■ Sjómannafélag Reykjavík-
ur og útvegsmenn héldu árang-
urslausan sáttafund í gær vegna
bátasamninganna, sem voru
felldir í atkvæðagreiðsiu í apríl.
Sjómannafélagið fer fram á að
fá það sama og aðrir sjómenn
hafa fengið, t.d. starfsaldurs-
hækkanir og lengingu uppsagn-
arfrests.
Nýr fundur hefur ekki verið
boðaður.
■ Tilmæli til heilbrigðisráð- kerfisbundinni leit að brjóst- grafi) - og það eins tljótt og
herra um að styrkja Krabba- krabbameini hjá konum, með unnt er - var samþykkt á aðal-
meinsfélg íslands til að koma á brjóstamyndatöku (mammo- fundi Sambands sunnlenskra
Framsýn:
Tölvusumarbúðir í Varmalandi
tölvutegundar.
Auk tölvukennslunnar, fer
frani skipulögð íþróttakennsla
þar sem börnin verða þjálfuð í
algengum íþróttagreinum, svo
sem fótbolta, handbolta, auk
helstu greina frjálsra íþrótta. Þá
geta gestirnir notfært sér nýlega
og snyrtilega útisundlaug, sem
er við skólann.
Þann tíma, sem skipulögð
kennsla fer ekki fram, geta
nemendur notað til útiveru alls
konar, eða til dvalar í
tómstundaherbergi Varma-
lands, þar sem frammi liggja
bækur og tímarit. Þar eru einnig
tölvur til æfinga og leikja og
margt fleira. A kvöldin verða
haldnar kvöldvökur í umsjón
unglinganna og starfsfólks
sumarbúðanna.
Námskeiðsgjaldið er 8700
krónur og er allur kostnaður
innifalinn í því, svo sem ferðir,
uppihald, námsgögno.fl. Innrit-
un er hafin í Tölvuskólanum
Framsýn.
Veðdeildinni stendur alla
jafna vanskilalán frá Hús-
næðisstofnun ríkisins, í þessu
tilfelli væntanlega vegna van-
skila við Byggingarsjóð ríkis-
ins. Uppboðsþolinn (Jón
Baldvin) er í hópi þeirra
íslendinga sem hvað hávær-
astar kröfur hefur sett fram
um aukið fé í Byggingarsjóð
- en sjóðurinn hefur sem
kunnugt er átt í miklum erf-
iðleikum með útborgun lána
til húsbyggjenda undanfarna
mánuði vegna peninga-
skorts, m.a. vegna vanskila
fyrri lántakenda á greiðslum
í sjóðinn.
Sýnist Dropateljara að Jón
Baldvin hefði átt að ganga á
undan með góðu fordæmi og
greiða af eigin láni áður en
liann hóf sína háværu kröfu-
gerö á aðra um fjárframlög í
Byggingarsjóð í nafni ungra
húsbyggjenda.
Hver á Vestur-
götu 38 í kvöld?
- Jón Baldvin í Reykjavík!
■ Hver á Vesturgötu 38 í
kvöld? - Jón Baldvin Hanni-
balsson átti að vísu þetta hús
í gær, en samkvæmt auglýs-
ingu frá Borgarfógetanum í
Reykjavík var þar í morgun
kl. 10.30 haldið uppboð eftir
kröfu Veðdeildar Lands-
banka íslands.
Að baki uppboðskröfu frá
•g ætla að fá tvo og hálfan metra takk.
■ Félagsmálaráðherra hélt í gær blaðamannafund þar sem hann
m.a. kynnti áfangaskýrslu um skráningu og úttekt á húsakosti
ríkisins m.t.t. fatlaðra, en gróft talað þá er ekki mikið tillit tekið til
þessa þjóðfélagshóps. Þessi mynd sýnir hvað gerist þegar þoka
hugsunarleysis ræður ferðinni. Borgin var að leggja nýtt teppi á
Hverfisgötuna og þannig var búið um hnúta að hjólastólar verða
klossstopp á mótum götu og gangstéttar. Hvernig var það var ekki
borgastjóri í hjólastólaralli um daginn. Hann ætti að reyna að fara
yfir HverfÍSgÖtuna í hjÓlastÓI. Ljósm. Karl Brand.
■ Tölvuskólinn Framsýn efnir
til sérstakra tölvusumarbúða
fyrir börn og unglinga á aldrin-
um 9-14 ára að Varmalandi í
Borgarfirði í sumar. Námskeið-
in, sem standa í viku hvert,
hefjast í byrjun júní og standa
til júlíloka.
Sumarbúðagestunum verða
kennd ýmis grundvallaratriði
tölvunotkunar, forritunar og
notkunar tilbúinna notenda-
forrita. Við kennsluna verða
notaðar tölvur af ýmsum
gerðum, enda markmiðið ekki
að kenna notkun ákveðinnar
Skipstjór-
inn talar
■ I sýningarferð fyrir
blaðamenn um norska
skemmtiferðaskipið Black
Prince, sagði skipstjórinn -
Thor Fleten m.a. þessa sögu.
Eitt skiptið sem skipstjóri á
skemmtiferðaskipi sigldi yfir
Biscaya flóa, þá kallaði hann
upp farþega sína og sagði
þeim að skipið hefði farið
yfir þveran flóann á 22
tímum. Einn farþeganna
kallaði þá „Is this a record".
Skipstjórinn svaraði á móti.
„No this is not a record. This
is the captain speaking."
Mest lenna bók landsins:
Komin út í
kílómetra