NT - 10.05.1985, Síða 4
TS7 Föstudagur 10. maí 1985 4
L JJ Fréttir
togararnir afskrifaðir að fullu
■ Dráttarvél og dollaragrín - fá sömu þjónustu - 1. flokks
þjónustu lofa þeir hjá Breiðverk.
Bíla- og búvélaverkstæðið Breiðverk:
Starfsemin blóm-
leg f rá áramótum
Frá fréttaritara NT í Borgarfirði, M.M.:
■ Starfsemi bíla- og búvéla-
verkstæðisins Breiðverk í Reyk-
holti hefur verið með miklum
blóma frá síðustu áramótum og
má það m.a. þakka nýjum verk-
stjóra sem þá var ráðinn til
fyrirtækisins, Vilhjálmi Sigurðs-
syni úr Hafnarfirði. Að sögn
Vilhjálms hefur tækjakostur
Breiðverks verið stóraukinn og
verkstæðið sé nú vel búið til
hvers konar viðgerða á bílum,
landbúnaðartækjum og rútubíl-
um.
Breiðverk var stofnað árið
1982 upp úr bílaverkstæði Guð-
mundar Kjerulf, sem starfrækt
var hér í sveit um árabil. Hlut-
hafar eru: Reykholtsdalshrepp-
ur, Hálsahreppur og Kaupfélag
Borgfirðinga auk ýmissa ein-
staklinga.
Á verkstæðinu sagði Vil-
hjálmur fullkomna aðstöðu til
sprautunar á bílum og öll tæki
til yfirbygginga. Nefndi hann að
á s.l. ári hafi verið byggt yfir
nokkra Lapplanderbíla hjá
Breiðverki. Vilhjálmur kvaðst
óska eftir góðu samstarfi við
ferðamenn og íbúa nágranna-
byggðarlaga enda væru starfs-
menn fyrirtækisins tilbúnir að
veita 1. flokks þjónustu hvenær
sem er. Við verkstæðið er og
fullkomin Esso-smurstöð.
Tónlistarskóla Rangæinga slitið:
Barnakórinn fer
í söngferðalag
vestur um helgina
■ Tónlistarskóla Rangæinga
var slitið þann 28. apríl síðast-
liðinn. Vetrarstarfið var með
hefðbundnu sniði, en nemendur
voru í færra lagi, eða 189.
Kennarar voru 10 og var kennt
á 9 stöðum í sýslunni.
Nemendurluku 136 stigspróf-
um á starfsárinu, þar af lauk
einn nemandi 6. stigi í píanóleik
og annar 5. stigi í básúnuleik.
Allir nemendur skólans léku á
vortónleikunum, sem voru
þrennir að vanda. Hinir síðustu
voru haldnir í tengslum við
skólaslitin, en þar komu fram
þeir nemendur, sem lengst eru
komnir í námi, ásamt kammer-
sveit skólans og lúðrasveit undir
stjórn Viðars Alfreðssonar.
Barnakór Tónlistarskóla
Rangæinga leggur af stað í
heimsókn til Vestfjarða laugar-
daginn 11. maí. Kórinn heldur
tónleika í ísafjarðarkirkju
sunnudaginn 12. maí kl. 14 í
Hólskirkju í Bolungarvík sama
dag kl. 21 og í Suðureyrarkirkju
í Súgandafirði á mánudaginn
kl. 21. Á heimleiðinni stoppar
kórinn í Borgarnesi og heldur
tónleika í Borgarneskirkju á
þriðjudag kl. 21.
Barnakór Tónlistarskóla
Rangæinga var stofnaður árið
1976. Hann hefur frá upphafi
haldið uppi öflugu starfi, sent
frá sér hljómplötu og haldið
fjölda tónleika og skemmtana
víða um land og erlendis.
Stjórnandi kórsins frá upphafi
er Sigríður Sigurðardóttir skóla-
stjóri.
landinu öllu
■ Rekstur Kaupfélags Fá-
skrúðsfirðinga stóð í járnum á
árinu 1984, þ.e. skilaði 83 þús.
króna hagnaði. Hins vegar varð
rúmlega6,l milljónkrónahagn-
aður af rekstri Hraðfrystihúss
Fáskrúðsfirðinga, sem er í eigu
kaupfélagsins. Velta beggja
fyrirtækjanna nam 356,1 millj.
króna, sem var 28% hækkun frá
1983. Þegar afkoma félagsins á
árinu er metin er mönnum bent
á að hafa það í huga að upphaf-
Bandalag jafn-
aðarmannaáNorð-
urlandi eystra:
Jafnt vægi
atkvæða á
■ Kjördæmisfundur Banda-
lags jafnaðarmanna á Norður-
landi eystra hefur sent frá sér
ályktun þar sem valddreifing er
talin grundvöllur breytinga til
batnaðar í þjóðfélaginu og að
aukið vald heimamanna í héraði
sé grundvöllur að skynsamlegri
nýtingu fjármuna.
Þá lýsir fundurinn því yfir að
vægi atkvæða eigi að vera jafnt
fyrir kjósendur á landinu öllu
og hvetur stuðningsfólk Banda-
lags jafnaðarmanna til virkrar
þátttöku í stefnumótun fyrir
komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar.
■ Vilhjálmur Sigurðsson, verkstjóri hjá Breiðverk í Reykholti.
legt stofnverð togaranna Ljósa- var að hefja útgáfu fréttabréfs Eygló Aðalsteinsdóttir, Kristín
fells og Hoffells hafi að fullu og voru kosin í ritnefnd þau Eide og Stefán Stefánsson.
verið afskrifað í uppgjöri 1983
og afskriftaliður aö upphæð 14
millj. króna falli því út á árinu
1984.
Á árinu komust 478 manns á
launaskrá félagsins. Launa-
greiðslur fyrirtækjanna beggja
námu um 71,1 millj. króna eða
um 20% af heildarveltu þeirra á
árinu.
Félagið fjárfesti á árinu fyrir
9,2 milljónir króna. Helstu
framkvæmdir eru þær að hafin
er bygging 500 fermetra vél-
averkstæðis, en einnig er hafinn
undirbúningur að endurbótum
á togurum félagsins.
Sérmál aðalfundar Kaupfé-
lags Fáskrúðsfirðinga að þessu
sinni var þátttaka kvenna í sam-
vinnuhreyfingunni. Ákveðið
■ Bronco-jeppi sem nýiokið var við að alsprauta og virðist
sannarlega koma glæsilegur úr höndum Breiðverksmanna.
Hjólbarða-
þjónusta
fyrir allar stæröir og geröir
af bílum, fólksbíla,
vörubíla og sendiferðabíla.
Höfum mikið magn af
kaldsóluðum, heilsóluðum
og radíaldekkjum á lager.
Öll hjólbarðaþjónusta
innanhúss. Komið og
reynið viðskiptin í nýju
húsnæði okkar.
Ath. Gegn framvísun
þessarar auglýsíngar
veitum við 5%
kynningarafslátt.
Kaldsólunhf.
Dugguvogi 2. Simi: 84111
Sama húsi og Ökuskólinn.
ekki taka nema stuttan
tíma, þannig að hún komi
ekki í veg fyrir að verkið
geti hafist í júní eins og
gert er ráð fyrir.
FÍB leggur sérstaka
áherslu á, að varanleg
vegagerð á fjölförnum
leiðum er nauðsynlegasta
og arðbærasta fjárfesting
sem kostur er á hér á
landi. Þeir vegakaflar,
sem lýst er í tilboði Hag-
virkis hf., skila góðri arð-
semi og besti kaflinn nær
70%.
Fjáröflun til fram-
kvæmdanna er einnig með
nýju sniði, að því leyti að
þarna er fólki gefinn kost-
ur á að ávaxta fé sitt með
góðum kjörum, þar sem
fjármagn nýtist til ákveð-
inna arðbærra fram-
kvæmda. Það skal tekið
fram að hér er um annað
mál að ræða heidur en
þegar boðin eru út ríkis-
Félag íslenskra bifreiðaeigenda:-
Fagnar tilboði
Hagvirkis í vega'
gerðina norður
Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda hefur sent frá
sér samþykkt þar sem
fagnað er tilboði Hagvirk-
is hf. varðandi varanlega
vegagerð á leiðinni Reykja-
vík - Akureyri og það sagt
alger nýmæli, bæði hvað
framkvæmdir og fjáröflun
snerti, og hér sé tekið á
nauðsynlegu máli sem
þjóðin hefur beðið eftir í
áratugi.
FÍB telur að athuga
þurfi tilboð Hagvirkis hf.
nákvæmlega, en það felur
í sér að verkið verði unnið
fyrir 3A hluta kostnaðar og
því verði lokið á 216 ári í
stað 9 ára. Vera kann að
bjóða þurfi þessar fram-
kvæmdir út með venjuleg-
um hætti eða kanna hvort
nokkrir aðrir aðilar í land-
inu geti unnið verkið
skjótar og hagkvæmar en
það er skoðun stjórnar
FÍB að sú könnun megi
skuldabréf án þess að til-
taka nýtingu fjármagns-
ins.
Framkvæmdir, sem fel-
ast í tilboðinu, mundu
styrkja og flýta langtíma-
áætlun um vegagerð, en
alls ekki raska henni á
neinn óhagkvæman hátt.
Þá er rétt að minna á að
útboð vegaframkvæmda,
sem gerð voru á síðasta ári
skiluðu hagkvæmum ár-
angri og juku raunar fram-
kvæmdamátt vegafjár
verulega, þannig að þá var
lagt meira af bundnu slit-
lagi en nokkru sinni hefur
áður verið gert á einu ári.
Félag íslenskra bifreiða-
eigenda treystir því að
ríkisstjórn og Alþingi taki
þetta merka mál til skjótr-
ar og jákvæðrar athugunar
og hrindi því í framkvæmd
nú í sumar bifreiðaeigend-
um og þjóðinni allri til
hagsbóta og heilla um
ókomin ár.
Borgin í jarðarkaupum:
Heitt vatn fyr
ir framtíðina
■ Reykjavíkurborg hefur
uppi áform um að kaupa
hluta af jörðinni Ölfusvatni
í Grafningi fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur, og voru drög
að kaupsamningi lögð frarn á
fundi borgarráðs á þriðju-
dag. Kaupverðið er 60 millj-
ónir króna og stærð landsins
ríflega 1600 hektarar.
Land Ölfusvatns liggur að
Nesjavöllum. sem Reykja-
víkurborg á og þar sem jarð-
hiti verður virkjaður á næst-
unni. Ekki er vitað hversu
rnikill jarðhiti er í Ölf-
usvatnslandinu, en hann
verður notaður sem orku-
sjóður fyrir framtíðina.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga:
Gróði á f rystihús-
inu um 6 milljónir