NT - 10.05.1985, Síða 21
Föstudagur 10. maí 1985 29
El Salvador:
Skæruliðar ræna
8 borgarstjórum
San Salvador-Reuter
■ Vinstrisinnaðir skæruliðar í
E1 Salvador hafa að undanförnu
rænt átta bæjar- og borgarstjór-
um að sögn hernaðaryfirvalda í
E1 Salvador. Skæruliðarnir eru
sagðir hafa skotið tvo þessara
borgarstjóra og sleppt einum
lausum en fimm eru ennþá í
haldi.
Bæjarstjórarnir eru allir frá
bæjum í austurhluta landsins.
Þeir voru nýlega kosnir til em-
bætta sinna og höfðu aðeins
gegnt þeim í um viku þegar
þeim var rænt. Skæruliðarnir
munu hafa rænt þeirn í hefndar-
skyni fyrir að stjórnin náði
Suður-Afríka:
Stjórnin dregur úr
nauðungarflutningum
Höfðaborg-Reuter
■ Stjórnvöld í Suður-Afríku
skýrðu frá því í gær að þau
myndu ekki neyða þá a.m.k.
700.000 svertingja sem búa í
borgum til þess að flytja á sér-
stök svæði, sem þau ætla svert-
ingjum, eins og fyrirhugað hafði
verið og tilkynnti einnig áætlan-
ir sínar um blandaðar sveitar-
stjórnir.
Ráðuneyti það sem fjallar um
samstarf, þróun og menntun og
er ábyrgt fyrir málefnum svartra'
sendi frá sér lista yfir 52 þorp
blökkumanna sem samkvæmt
fyrri áætlunum stjórnvalda og
aðskilnaðarlögunum átti að
Pólland:
Nauðgari
vill skipta
umkyn
Varsjá-Reuter
■ Pólverji nokkur sem
sakaður er um að hafa
nauðgað og myrt níu kon-
ur hefur beðið um að gerð
verði á sér kynskipta-að-
gerð til þess að koma í veg
fyrir að hann haldi áfram
að vera hættulegur samfé-
laginu.
Réttarhöldin yfir hinum
39 ára gamla Alojzy Tuc-
hlinow, sem leynilögreglu-
mennirnir sem eltu hann
kölluðu „Sporðdrekann",
hófust í hafnarborginni
Gdansk í fyrradag.
Konurnar sem hann er
sakaður um að hafa myrt
voru á meðal 20 kvenna
sem hann er sagður hafa
nauðgað á Gdansk svæð-
inu frá árinu 1975 og þang-
að til hann náðist árið
1983.
Opinbera fréttastofan
PAP sagði að sálfræðingar
hefðu tjáð réttinum að
Tuchlinow, sem er faðir
tveggja unglinga, sé heill á
geðsmunum. Ennfremur
var skýrt frá því að hann
hafi reynt að fremja sjálfs-
morð í fangelsinu nýlega
og lagt fram tvær tillögur
við fangelsisyfirvöld.
Hin fyrri hljóðaði upp á
að á honum yrði gerð
aðgerð sem breytti honum
í konu en hin síðari var á
þá leið að hann yrði látinn
laus til þess að hann gæti
haldið til vinnu á býli sínu
sem telur sex hektara.
PAP fréttastofan greindi
ekki frá viðbrögðum fang-
elsisyfirvalda.
flytja á afmörkuð svæði svert-
ingja.
Sheena Duncan, formaður
mannréttindahóps svertingja,
var fremur varkár í fögnuði
sínum yfir þessari yfirlýsingu og
sagði að hundruð þúsundir
blökkumanna ættu enn yfir
höfðum sér nauðungar flutninga
á vegum ríkisstjórnar hvíta
minnihlutans.
Mannréttindahópar telja að
um þrjár milljónir blökka-
manna hafi þegar verið fluttar
nauðugar síðan 1960.
Ríkisstjórnin birti þinginu í
gær uppkast að löggjöf um
blandaðar sveitarstjórnir sem
svartir og hvítir eiga að skipa og
taka sameiginlegar ákvarðanir
um staðbundin málefni.
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir
því að svartir meðlimir sveitar-
stjórnanna verði kosnir úr hópi
þeirra blökkumanna sem sitja í
stjórnum sinna þorpa en þeir
njóta ekki mikils trausts og hafa
orðið fyrir talsverðum árásum
af uppreisnarmönnum sem líta
á þá sem samverkamenn hvítu
ríkisstjórnarinnar.
skæruliðaforingjanum Nidya
Diaz á sitt vald. Skæruliðar hafa
hótað að drepa fjóra bæjar-
stjóra og þrjá embættismenn
ríkisins verði henni ekki sleppt
úr haldi.
Sjö af bæjarstjórunum eru
félagar í Kristilega demokrata-
flokknum, seni er við völd í E1
Salvador, og sá áttundi var fé-
lagi í hægrisinnuðum llokki
Bandalags republikana. Skæru-
liðar tóku þennan síðastnefnda
bæjarstjóra fljótlega af lífi.
Skæruliðar hafa líka brennt
bæjarráðshúsin í átta borgum
og bæjum í E1 Salvador í vik-
unni.
Þrátt fyrir þetta munu fulltrú-
ar skæruliða og stjórnvalda hitt-
ast að nýju síðar í þessum
mánuði til að ræða leiðir til að
koma á friði. Þetta verða þriðju
friðarviðræðurnar á milli skæru-
liða og stjórnar Duarte forseta.
Friðarviðræðufundurinn verður
haldinn utan E1 Salvador en
ekki hefur enn verið tilkynnt
hver fundarstaðurinn verður.
■ Stjórnarhcrmcnn í E1 Salvador virða fyrir sér vopn sem þeir náðu af skæruliðum á seinasta ári.
Herferð stjórnvalda gegn skæruliðum hefur samt ekki tekist betur en svo að skæruliðar gátu náð átta
bæjar- og borgarstjórum á sitt vald nú fyrir nokkrum dögum.
Eþíópía þakkar 50 ára
aðstoð Rauða krossins
Addis Ababa-Reuter
■ Eþíópía þakkaði í gær
Rauða krossinum fyrir alla hjálp
sem hann hefur veitt landinu
síðastliðin 50 ár eða allt frá
innrás ítala í Eþíópíu árið 1935
til hungursneyðarinnar sem nú
hrjáir níu milljónir manna.
Dawit Zewde, formaður eþí-
ópísku Rauða kross félaganna,
sagði í yfirlýsingu í tilefni 31.
alþjóðlega Rauða kross dagsins
Hermannaveikin í Englandi:
Enn fjölgar sjúklingum
London-Reuter
■ Fimrn manns til viðbótar
þeim sem fyrir þjást af her-
mannaveikinni svokölluðu voru
lagðir inn á spítala í gær. Her-
mannaveikin sem geisar nú um
iðnaðarsvæðin í Mið-Englandi
er sú versta sem urn getur.
Ríkisstjórnin skipaði stjórn-
endum sjúkrahúsa um landið
allt að yfirfara vatnslagnir sínar
eftir að veikinni skaut upp í
borgunum Portsmouth og
Bristol, sem báðar eru í suður-
hluta landsins.
Talsmaður heilbrigðisyfir-
valda sagði að hinir fimm nýju
sjúklingar í Stafford hækkuðu
tölu sjúkra upp í 144 en þegar
hefur 31 látist úr veikinni á
undanförnunt þremur vikum.
Veiki þessi hefur herjað skæðast
á Stafford og er loítræstikerfi
sjúkrahúss í borginni kennt um
upptök hennar.
Dauðsföll af völdum þessarar
tegundar al' lungnabólgu hafa
ekki orðið fleiri síðan henni
skaut fyrst upp árið 1976 á fundi
fyrrverandi hermanna í Phil-
adelphiu í Bandaríkjunum, en
þá létust 29 manns.
í Portsmouth voru 12(3 sjúkl-
ingar settir í sóttkví og sjö
spítaladeilum lokað eftir að lát
konu af völdum veikinnar þar
var staðfest.
Heilbrigðisráðherrann,
Kenneth Clarke, reyndi að
koma í veg fyrir aukna hræðslu
meðal almennings í útvarpsvið-
tali og sagði hann að fólk skyldi
ekki óttast innlögn á spítala.
að læknar Rauða krossins hefðu
komið þjóðinni til mikillar
hjálpar í innrásinni 1935.
Hann sagði ennfremur að
milljónir fórnarlamba þeirra
þurrka sem nú herja á landið
nytu ómetanlegrar aðstoðar al-
þjóðaráðs Rauða krossins og
Bandalags Rauða kross félaga.
Dawit sagði að þessir tveir
hópar hafi séð 2.5 mtlljónum
manna, sem nú líða verstu þurrka
urn 10 ára skeið, fyrir mat,
fötum, skjóli og læknishjálp.
Auk þess ynni Rauði krossinn
nú að þróunarstarfi á Wollo
svæðinu í norðurhluta landsins
og Harrarghe svæðinu í suðaust-
urhluta landsins.
Opinbera fréttastofan í Eþí-
ópíu skýrði frá því í gær að tvær
stofnanir á vegum Sameinuðu
þjóðann, UNICEF og þróunar-
stofnunin, myndu veita Eþíópíu
4.9 milljón dollara aðstoð við
fjögurra ára áætlun ríkisstjórn-
arinnar um bætta heilbrigðis-
þjónustu í sveitum landsins.
Sykur seldur á 4 krónur kg
London-Reutcr
■ Heimsmarkaðsverð á sykri
er nú aðeins um fjórar krónur
kílóið og hefur það aldrei verið
lægra frá því fyrir 15 árum.
Á sykurmarkaðinum í
London er nú hægt að fá tonn af
hrásykri fyrir aðeins 84 dollara
sem er rétt um 3500 ísl.kr. eða
um þrjár og hálf króna kílóið.
Strásykur er nokkru dýrari eða
Minnkandi
atvinnu-
leysi í
Hollandi
Hag-Reuter
■ Atvinnuleysingjum í Hol-
landi hefur fækkað lítillega að
undanförnu samkvæmt tölum
sem félagsmálaráðuneyti Hol-
lands birti fyrir skömmu.
Atvinnuleysingjar í apríl voru
774.300 eftir að tekið hafði
verið tillit til árstíðabundinna
breytinga. Atvinnuleysingjum
hefur þannig fækkað um rúm-
lega fjögur þúsund frá því í
mars þegar þeir töldust vera
778.500 og um sjötíu þúsund frá
því í mars í fyrra en þá voru
atvinnuleysingjar 842.200.
127,50 dollarar tonnið sem er
þó ekki nema um 5.200 krónur
eða rétt rúmar 5 krónur kílóið.
Þetta lága sykurverð kemur
sér ákaflega illa fyrir sykur-
framleiðsluþjóðir sem byggja
afkomu sína á sykurútflutningi.
Ekki eru samt taldar miklar
líkur á þvi að heimsmarkaðs-
verðið lækki mikið á næstunni
þar sem miklar birgðir eru til af
sykri eða tæplega 40 milljón
tonn sem eru 40% af þeim 96
milljón tonnum sem jarðarbúar
neyta árlega af sykri.
Sem betur fer fyrir sykur-
framleiðsluþjóðirnar þurfa þær
ekki að selja allan sykur sinn á
þessu lága verði þar sem meiri-
hluti sykursins er seldur á föstu
verði í samræmi við gagnkvæma
viðskiptasamninga. Það er að-
eins hluti umframframleiðsl-
unnar sem fer á sykurmarkað-
inn í London þar sem heims-
markaðsverðið er reiknað út.
Sykurframleiðendur hafa
mikið rætt um það að nauðsyn-
legt sé að draga úr sykurfram-
leiðslunni en enginn hefur viljað
minnka eigin framleiðslu þannig
að líklega verður áfram of-
framboð á sykri nema óhagstætt
veður leiði til uppskerubrests.
Eitur í ísbjörnum
Yellowknife, Ranada-Rcutcr
■ Skordýraeitur hefur
fundist í lifrum ísbjarna sem
eskimóaveiðimenn drápu á
norðurskautssvæðinu, að
sögn kanadískra vísinda-
manna.
Líffræðingurinn Ray
Schweinsburg sagði að hér
væri um að ræða ýmis hættu-
legustu efni sem til eru, efni
sem ekki eyðast heldur ber-
ast þúsundir mílna og
þrengja sér inn í fæðukeðj-
una í óspilltu umhverfi eins
og norðurskautssvæðinu.
Við rannsókn á lifrum 70
ísbjarna kom í ljós talsvert
magn þungmálma og skor-
dýraeiturs. Vísindamennirn-
ir segja að uppsöfnun slíkra
efna geti haft í för með sér
vandamál við endurnýjun ís-
bjarnastofnsins. Um tveir
þriðju hlutar hinna 20.000
fsbjarna sem til eru eiga
aðsetur í Kanada.
Schweinsburg sagðist telja
að ef mengun af þessu tagi sé
komin á það stig að hún hafi
áhrif á ísbirni sé ekki hægt að
þvertaka fyrir það að hún
muni einnig hafa svipuð áhrif
á mannkynið.
■ Réttarhöldunum yfir Arne Treholt er lokið og má hann nú bíða
dómsins í hálfan mánuð.
Treholt bíður
eftirdómnum
Osló-Reuter
■ Réttarhöldum í máli Arne
Treholt, fyrrverandi starfs-
manni norska utanríkisráðu-
neytisins, sem ásakaður hefur
verið fyrir njósnir fyrir Sovét-
menn og íraka lauk í gær.
Dómsúrskurðar er samt ekki að
vænta fyrr en eftir hálfan
mánuð.
Saksóknari hefur krafist 20
ára fangelsis yfir Treholt en
verjandi krefstsýknunar. í loka-
ræðu sinni sagðist Treholt alla
tíð hafa metið mikils opin sam-
skipti milli fólks án tillits til
flokks, þjóðernis eða hvort það
byggi fyrir austan eða vestan.