NT - 10.05.1985, Side 23
Allir VICON dreifararnir eru búnir sem hér segir:
Stillanleg dreifibreidd, frá 6-12 m. (Dreifir fræi).
Öflugur hrærari í botni.
Hverjum dreifara fylgir reiknistokkurtil nákvæmra
útreikninga á áburðarmagni pr. ha.
'Hleðsluhæð er ótrúlega lág, aðeins 90-100 cm.
Allir hlutir dreifarans, sem koma í snertingu við
áburðinn eru úr ryðfríu efni.
Verð:
PS 302 300 lítra kr. 19.000,-
PS 602 600 lítra kr. 32.650,-
PS 802 800 lítra kr. 35.650.-
Haflð samband við sölumenn okkar og
tryggið ykkur VICON kastdreifara fyrir
vorið.
SSifiSS
G/obus/
LAGMÚLI 5, SlMI 81555
■ f slensku þátttakendurnir á Nordur-
landamóti fatlaðra í sundi í Turku í
Finnlandi um síðustu helgi fengu varm-
ar viðtökur er þeir komu heim til
íslands. Forráðamenn íþróttasam-
bands faltaðra tóku á móti þeim á
Hótel Loftleiðum. Ólafur Jensson for-
maður ÍSF sæmdi þau öll bronsmerki
íþróttasambands fatlaðra, og íþróttafé-
lagið Ösp gaf þeim blómvendi. Þá kom
fulltrúi menntamálaráðuneytisins og
færði hópnum blómvönd. Skálað var í
kampavíni og appelsínusafa og hópnum
bornar hlýjar kveðjur. Hópurinn sést
hér á myndinni að ofan, lengst til
vinstri er Jónas Óskarsson, heimsmet-
hafi í baksundi, en hann var kjörinn
íþróttamaður mótsins í Turku og fékk
í tilefni þess fagurt gullúr að gjöf. í
miðið er ína Valsdóttir, en hún varð
Norðurlandameistari og setti Norður-
landamet.
NT-mynd: Sverrir.
til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og
dísillyftara, ennfremur snúninga og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara.
Flytjum lyftara, varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð
Tökum lyftara í umboðssölu
LYFTARASALAN HF.,
Vitastíg 3, símar 26455 og 12452
Föstudagur 10. maí 1985 31
Iþróttir
Evrópumeistaramótið í júdó:
Báðir féllu úr
■ Reykjavíkurmeistarar Fram í knattspyrnu, eftir 1-0 sigurinn á Val á þriðjudagskvöldið. Á myndinni eru, fremri röð frá
vinstri: Jón Sveinsson, Ormarr Örlygsson, Kristinn Jónsson, Sverrir Einarsson fyrirliði, Friðrik Friðriksson, Guðmundur
Steinsson, Ómar Torfason og Guðmundur Torfason. Aftari röð frá vinstri: Ásgeir Elíasson þjálfari, Guðmundur Baldursson,
Viðar Þorkelsson, Þorsteinn Vilhjálmsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Steinn Guðjónsson, Örn Valdimarsson, Haukur
Bragason, Pétur Ormslev og þrír stjórnarmenn, Vilhjálmur Hjörleifsson, Ástþór Óskarsson og Eyjólfur Bergþórsson.
Formaður Knattspyrnudeildar Fram, Halldór B. Jónsson, vildi ekki vera með á „meistaramynd fyrr en í september“.
NT-mynd: Svcrrir.
■ íslensku júdómennirnir
Bjarni Friðriksson og Kolbeinn
Gíslason úr Ármanni, féllu báð-
ir úr í fyrstu glímum sínum á
Evrópumeistaramótinu í júdó í
Hamar í Noregi í gær. Bjarni
tapaði í fyrstu umferð fyrir
Austurríkismanni, sem tapaði
næstu glímu sinni, og var úr
leik. Kolbeinn var heppnari,
eftir að tapa fyrir Ungverja í
fyrstu umferð fékk hann upp-
reisn, þar eð Ungverjinn komst
í 3. umferð. En Kolbeinn tapaði
þá fyrir Frakka og var endan-
lega úr leik.
Bjarni mætti Austurríkis-
manninum Reiter í 1. umferð
-95 kg flokksins. Reiter skor-
aði koka á Bjarna. Kolbeinn
tapaði á koka fyrir Ungverjan-
um Tolnai í fyrstu umferð +95
kg flokksins. Hann mætti svo
Frakkanum Besse, og tapaði
aftur á koka.
Magnús Hauksson UMFK
glímir í dag í 86 kg flokknum.
- í fyrstu umferð - Kolbeinn
fékk uppreisn en Bjarni ekki
Áburðardreifarar
Enska knattspyrnan:
Everton öruggt með stigamet
- hefur jafnað metið og á fjóra leiki eftir
■ Everton tryggði sér enska meistara-
titilinn í knattspyrnu á mánudaginn
með öruggum sigri á QPR eins og allir
vita.
í fyrrakvöld fengu þeir bikarinn
afhentan á Goodison Park, áður en
leikur liðsins gegn West Ham hófst.
■ Boston Celtics, heimsmeistarar í
körfuknattleik, eins og Ameríkaninn
segir, eru nú alveg við það að komast í
úrslit austurdeildarinnar í NBA,
bandaríska atvinnumannakörfuboltan-
um.
Celtics unnu Detroit Pistons í gær
með 130 stigum gegn 123 og leiða
einvígi liðanna með þremur vinningum
gegn tveimur. Celtics þurfa því aðeins
að vinna einn leik enn til að komast
áfram. Ef svo fer mæta þeir Fíladelfíu
’76-ers í úrslitum austurdeildarinnar.
Los Angeles Lakers eru komnir með
annan fótinn í úrslit vesturdeildarinnar,
þeir hafa þrjá vinninga gegn einum
vinningi Portland Trail Blazers. Lakers
Eins og sönnum meisturum sæmir
burstuðu þeir andstæðingana 3-0. Andy
Grey skoraði fyrsta markið á 12. mín-
útu og Derek Mountfield bætti öðru
við fyrir hlé. Mountfield tryggði svo 28.
leikinn í röð án taps með því að skora
annað mark 12 mínútum fyrir leikslok.
mæta að öllum líkindumMillwaukee
Bucks í úrslitum vesturdeildarinnar.
Bucks þurfa aðeins að vinna Utah Jazz
einu sinni enn til að komast í úrslit.
Utah hefur einn vinning. Það er því
ljóst að Lakers mætir enn einu sinni í
lokaúrslitakeppnina. Spurningin er
hvort Fíladelfía vinnur Boston í úrslit-
um austurdeildarinnar, það gæti orðið
geysilega spennandi keppni því Fíl-
adelfía hefur sennilega sterkara lið nú
en nokkru sinni. Moses Malone er
aldeilis óstöðvandi nú og þeir hafa nýja
leikmenn eins og til dæmis Barkley sem
er gífurlega öflugur. Aðalspurningin
um viðureignir þessara liða er hvort
Larry Bird verður í stuði hjá Boston.
Þá stöðvar hann enginn.
Með þessum sigri komst Everton í 87
stig og hafa þeir því jafnað stigamet
nágranna sinna, Liverpool, eftir 3-stiga
reglunni. Everton á hinsvegar fjóra
leiki eftir í deildinni og liðið er öruggt
með að setja nýtt met.
West Ham er í bullandi fallhættu þó
liðið eigi einum leik meira eftir en
Norwich sem hefur jafnmörg stig.
Norwich er neðar á stigatöflunni vegna
óhagstæðari markatölu.
Annar leikur var í fyrrakvöld í 1.
deild. Þá sigraði Chelsea Luton með
tveimur mörkum gegn engu.
„Valsdagur“
■ Knattspyrnufélagið Valur verð-
ur 74 ára um þessar mundir. Laugar-
daginn 11. maí verður „Valsdagur- .
inn“ haldinn hátíðlegur og verður
kaffísala að Hlíðarenda í tilefni af
því milli kl. 15 og 17 þann dag. 1
Meistarakeppni KSÍ:
■ Meistarakeppni KSI verður í
kvöld á Kópavogsvelli kl. 20:00.
Fram, sem varð í öðru sæti í bikar-
keppni síðast, og Islandsmeistarar
Akraness leika um titilinn „meistar-
ar meistaranna“.
NBA karfan:
Boston vann