NT - 11.05.1985, Síða 2
Laugardagur 1 l.maí 1985 2
Dagskrárstjóri útvarps:
Mætti ekki á útvarpsráðsfund
- í mótmælaskyni við „yf irgang“ gegn sér og dagskrárdeild
■ „Ég mætti ekki á útvarps-
ráðsfundinn í gær í mótmæla-
skyni, en ég hafði sent for-
manninum afrit af bréfi sem ég
hafði ritað útvarpsstjóra, þar
sem ég mótmælti málsmeðferð-
inni á síðasta fundi og þeim
yfirgangi, sem mér og dagskrár-
deildinni var sýndur," sagði
Gunnar Stefánsson dagskrár-
stjóri útvarps í samtali við NT í
gær. Tilefnið er auðvitað deilur
hans og þeirrar deildar sem
hann veitir forstöðu við út-
varpsráð.
„í bréfinu er fjallað um þrjú
atriði, þar sem gengið var gegn
vilja dagskrárdeildarinnar varð-
andi sumardagskrána, og ég
gagnrýni málsmeðferðina á öllu
saman. Pessi atriði eru þáttur
um málefni kvenna, þar sem
útvarpsráð bætti við þriðja um-
sjónarmanni án samráðs við
okkur og truflaði þannig undir-
búningsvinnu deildarinnar. Það
var ráðning umsjónarmanns
síðdegisútvarps, sem sótti um
það starf beint til útvarpsráðs
og þar með var undirbúningur
dagskrárdeildarinnar að engu ^
gerður, og loks ráðning umsjón-
armanns þáttar á laugardags-
morgnum þar sem ráðinn var
fastur starfsmaður dagskrár-
deildar án samráðs við mig í
stað annars starfmanns sem fal-
ið hafði verið að hafa stjórn
hans með hendi, sem er auðvit-
að sérstaklega alvarlegt mál.“
Lög um útvarpsráð munu
hafa verið til umræðu á útvarps-
ráðsfundinum í gær. Ráðstefnu-
fulltrúar bentu á að ákvarðanir
ráðsins frá fyrri viku hefðu fulla
stoð í lögum og létu í ljós þá
skoðun, að ef starfsfólk gæti
ekki sætt sig við löglegar
fíkvarðanir útvarpsráðs, gæti
það ekki starfað við stofnunina.
„Þetta er auðvitað bara undan-
sláttur hjá útvarpsráði," sagði
Gunnar Stefánsson. „Málið
snýst ekki um lögfræði. Það er
klárt að útvarpsráð hefur vald
til að gera það sem það gerði.
Það er málsmeðferðin og yfir-
gangurinn sem málið snýst um,
og ef framhald verður á slíku
eru sjálfstæð vinnubrögð stofn-
unarinnar í stórhættu.
Ég veit að útvarpsstjóri hefur
ákveðið að efna til fundar með
mér, formanni útvarpsráðs og
framkvæmdastjóra útvarps. Ég
bind miklar vonir við að hann
taki skynsamlega á málunum og
takist að búa svo um hnúta að
svona árekstrar endurtaki sig
ekki,“ sagði Gunnar Stefánsson
dagskrárstjóri.
Ummæli Ólafs Þ. Þórðarsonar:
Fréttamenn hjá út
varpinu mótmæla
■ „Stjórn Félags fréttamanna
mótmælir harðlega þeim að-
dróttunum Ólafs Þ. Þórðarson-
ar alþingismanns á Alþingi í
gær, þegar hann segir að það
hvarfli að sér að fréttamenn
ríkisútvarpsins þiggi mútur til
að draga upp glansmynd af
bjórdrykkju, væntanlega í þeim
tilgangi að stuðla að framgangi
bjórfrumvarpsins sem nú er hart
deilt um á Alþingi. Ólafi Þ.
Þórðarsyni hefur verið gefinn
kostur á að endurtaka þessi
ummæli utan Alþingis, þar sem
hann þarf að standa við þau. Því
hefur hann hafnað.
Það er rógur að drótta að
Friðar-
konur
áferð
■ Reykjavík er fyrsti
áfangastaður eins af fimm
friðarhópum kvenna sem
heimsækja allar Evrópu-
þjóðir og hitta ráðamenn
viðkomandi þjóða til að fá
skýr svör frá ríkisstjórnum
þessara landa við nokkr-
um grundvallarspurning-
um um heimsfrið.
Friðarhópur þessi er
væntanlegur til íslands 12.
rnaí og munu konurnar
hitta forsætisráðherra og
utanríkisráðherra að máli,
svo og forseta íslands, en
síðan safnast friðarhóp-
arnir saman í Stokkhólmi
þann 27. maí til að af-
henda svörin fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna á Stokkhólms-
ráðstefnunni. Það eru Sví-
ar sem eiga frumkvæðið
að þessari friðarferð en
öllum þjóðum sem eru
sóttar heim verður boðin
þátttaka í ferðinni og
verða tvær íslenskar
konur, þær Helga Jó-
hannsdóttir og Una
Bergmann, fulltrúar
íslands. Að ári verða aðr-
ar þjóðir innan Samein-
uðu þjóðanna sóttar heim
á sama hátt.
fólki misferli í starfi án þess að
finna þeim orðum stað, hvort
sem þau eru látin falla á Alþingi,
eða annars staðar. I því Ijósi
verður að skoða orð Ólafs Þ.
Þórðarsonar."
Þannig hljóðar samþykkt
stjórnar Félags fréttamanna við
ríkisútvarpið vegna ummæla
Ólafs Þ. Þórðarsonar á Alþingi
í gær.
Ólafur sagði í samtali við NT
í gær að hann hefði ekki fengið
samþykktina í héiidumar, og
því ekki gefist kostur til þess að
kynna sér hana. „Ég hef hugsað
mér að skoða þessa samþykkt
og það má vel vera að ég eigi
eftir að leggja út af henni.“
Aðspurður um hvort hann
vissi um að alþingismenn hefðu
orðið sér úti um bjórumboð,
kvaðst Ólafur ræða það mál úr
ræðustól á Alþingi. Nokkrir að-
ilar hafa tryggt sér umboð fyrir
bjór, en þar með væri hann ekki
að segja að alþingismenn væru
þar á meðal.
■ Skemmtiferðaskipið Svarti prinsinn kom til Reykjavíkur á fímmtudag, á vegum ferðaskrifstofunnar
Úrvals. Svarti prinsinn er fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins en alls er von á 30 slíkum í sumar.
Skipið er norskt og undir stjórn Thor Fleten. Farþegar eru 336, og starfsfólk 136. Skipið er 142
metrar á lengd og 20 metrar á breidd. Skipið fór frá Reykjavík í gærkvöldi. NT-mynd: Árni Bjarna.
Frumvarp til laga á Aiþingi:
Hlutafélag til mark-
aðsfærslu erlendis
- á þekkingu Orkustofnunar á sviði jarðhita
■ Lagt hefur verið fram á Al-
þingi frumvarp til laga um breyt-
ingu á orkulögum, þar sem
iðnaðarráðherra er heimilt að
stofna hlutafélag til að markaðs-
færa erlendis þá þekkingu sem
Orkustofnun ræður yfír á sviði
rannsókna, vinnslu og notkunar
jarðhita, svo og öðrum sviðum
eftir því sem þurfa þykir.
Er gert ráð fyrir að ríkissjóð-
ur leggi hlutafélaginu til stofnfé
allt að jafnvirði 4 milljónir
króna árlega árin 1986, 1987 og
1988.
Á liðnum árum hafa umsvif
Orkustofnunar erlendis aukist
nokkuð og þykir eðlilegt að
sérstakur lögaðili annist þessa
starfsemi, sem er að hluta til
frábrugðin annarri hefðbund-
inni starfsemi stofnunarinnar,
þar sem er um áhætturekstur að
ræða. Því þykir eðlilegt að
stofna hlutafélag um reksturinn,
þannig að ríkið takmarki áhættu
sína af honum með framlagn-
ingu hlutafjár. Með tilliti til
þess að söluvara þessa hlutafé-
lags er sérþekking og reynsla
sem til er í Orkustofnun er gert
ráð fyrir að stjórn stofnunarinn-
ar fari jafnframt með stjórn
þessa hlutafélags, undir yfirum-
sjón ráðherra. Samvinna við
aðra aðila um þessi erlendu
verkefni verður aðalreglan og
er Orkustofnun heimilt að lána
þessu nýja hlutafélagi starfsfólk
til að vinna einstök verkefni.
Gert er ráð fyrir að lög þessi
öðlist gildi hinn 1. júlí á þessu
ári.
90 ár frá því Hjálpræðis-
herinn hóf störf hérlendis
■ Hjálpræðisherinn minnist
þess á næstunni að þanri 12. maí
eru 90 ár liðin frá því að hann
hélt sína fyrstu samkomu hér á
landi. Það var í fundarsal Good-
templara en í októbermánuði
sama ár festi Hjálpræðisherinn
kaup á Hótel Reykjavík í
Kirkjustræti og Herkastalinn,
sem þar stendur nú var reistur
árið 1916.
Margt góðra gesta kemur í
heimsókn í tilefni þessa afmælis
og verða haldnar samkomur
víða um land, m.a. í Reykjavik
og á Akureyri. Stór lúðrasveit
kemur frá Musterinu í Osló og
leika í henni 30 manns en ofurst-
iautinant Enar Madsen og Berg-
ljót kona hans verða aðalræðu-
menn á hátíðarsamkomunum.
Hjálpræðisherinn er í dag með
starfsemi í Reykjavík, á ísa-
firði, Akureyri og Seltjarnar-
nesi, en fer oft á aðra staði til að
halda samkomur, m.a. til Siglu-
fjarðar þar sem herinn á sam-
komusal.
Lagafrumvarp um
þörungavinnsluna
■ Frumvarp til laga um
að heimila ríkisstjórninni
að selja eða leigja hlutafé-
lagi heimamanna í Aust-
ur-Barðastrandasýslu
þörungavinnsluna á
Reykhólum var lagt fram
á Alþingi í gær.
Gert er ráð fyrir að sú
kvöð verði á eignunum að
þær verði nýttar til þör-
ungavinnslu og að kaup-
endunum verði lánað and-
virði eignanna allt að 15
árum og að lánið verði
víkjandi, þannig að greið-
sluskylda verði háð af-
komu hins nýja fyrirtækis,
og að leiga, ef um leigu
verður að ræða, gangi upp
í kaupverð eignanna.