NT - 11.05.1985, Síða 3

NT - 11.05.1985, Síða 3
 fílí -p Laugardagur 11. maí 1985 3 u w' Fréttir Hvernig á ÁTVR að koma bjórpöntunum út á landsbyggðina? Byggðastefna í bjórmálinu - Hjörleifur Guttormsson óttast að „bjórkröfur“ valdi öngþveiti á pósthúsum úti á landi ■ Bjórfrumvarpið kom ekki á dagskrá á aukafundi um bjórinn á næsta deildar- neðrideildar Alþingis í gær eins og búist hafði verið við, --- en nokkurt kapp hljóp í umræðuna er Ólafur Þ. Þórðarson Kópavogur: ■ Innan 6 ára munu bílar á þessum stað væntanlega aka undir gólfi 5 þúsund fermetra verslunarmiðstöðvar sem áætlað er að þá verði búið að byggja yfir gjána samhliða brúnni til vinstri á myndinni. Fyrsti áfangi hinna miklu miðbæjarframkvæmda er hins vegar tvö hús, Fannborg 4 og 6 sem koma framan við Félagsheimili Kópavogs sem við sjáum hér u.þ.b. á miðri myndinni, og munu framkvæmdir á því svæði væntanlega hefjast fljótlega. NT-mynd Ámi lýsti því yfír úr ræðustól að ætla mætti að fréttamenn útvarps og sjónvarps þægju mútur, þannig væri þeirra fréttaflutningur af bjórmáli, og að flutningsmenn frum- varpsins væru með eiginhagsmunapot en væru ekki að hugsa um þjóðarhag með frumvarpinu. Byggja 15.000 fer- metra í 6 áföngum - framhald uppbyggingar miðbæjarsvæðisins Aukafundur var í neðri deild Alþingis á fimmtudagskvöldið þar sem bjórinn var enn til umræðu. Hjörleifur Guttorms- son gerði grein fyrir afstöðu sinni til málsins og sagði að margt mælti með því að stíga þetta skref, en það væru margir þættir málsins sem þörfnuðust frekari skoðunar. Sagðist hann leyfa sér að líta á þetta mál útfrá sjónarmiði landsbyggðarinnar og spurði hvernig landsbyggðar- fólk ætti að nálgast þessa um- ræddu vöru, en í tillögum alls- herjarnefndar er kveðið á um að ATVR skuli annast dreifingu og sölu, hvort sem um er að ræða innilenda framleiðslu eða innflutta. Kvaðst Hjörleifur ekki sjá hvernig þetta yrði ger- legt með núverandi fyrirkomu- lagi og það myndi heldur betur þrengjast um ,á pósthúsum landsins þegar farið yrði að afgreiða bjór þar. Pá spurði hann hvað það myndi kosta þá neytendur aukalega að kaupa bjór, sem ekki byggju á útsölu- stöðum ÁTVR, en það væri yfirlýst stefna að mismuna ekki fólki gróflega í vöruverði eftir búsetu. Kvaðst hann óttast að þetta gæti orðið til þess að ýta undir fólksflutning til þéttbýlis- svæðanna. Þá vék Hjöleifur að áfengis- málum hérlendis og sagði margt hafa farið illa í þeim málum og væru til þess margar ástæður. Þó hefði margt breyst til batnað- ar á síðustu árum og þakkaði hann það starfsemi SÁÁ og opnari umræðu um þessi mál, enda væri pukur ekki til bóta. Sem dæmi um þá skinhelgi sem hefði verið ríkjandi í áfengis- málum nefndi hann félagsheim- ilin, þar sem áfengi væri bannað í orði, en ómælt vín væri að finna undir borðum. Kvaðst hann ekki vilja tefja þetta mál og það væri rétt að höggva á hnút en hann áskyldi sér allan rétt til að íhuga þetta mál og afstaða hans réðist af því hvern- ig greitt yrði úr ýmsum óvissu- þáttum Þá tók til máls Friðjón Þórð- arson, sem er annar tveggja flutningsmanna minnihlutaálits um að fella bjórfrumvarpið. Gerði hann grein fyrir þeirri skoðun sinni að þar sem ríkis- stjórnin hefði kosið sérstaka nefnd til að marka stefnu í áfengismálum, hefði verið eðli- legt að hún fjallaði um þetta mál. Síðasti ræðumaður kvöldsins var Stefán Valgeirsson sem er ötull andstæðingur bjórfrum- varpsins. Gerði hann m.a. að umtalsefni áfengisauðmagnið, sem leggði sitt af mörkum til þess að reyna að koma þessu máli í gegn á Alþingi, en hann hafði ekki lokið ræðu sinni, þegar þingfundi var frestað. Bú- ist er við fjörugum umræðum ■ Forráðamenn Kópavogs- kaupstaðar undirrituðu í gær samning við Húsatækni hf., sem heimilar hinum síðarnefndu byggingarrétt á að segja má öllu miðbæjarsvæði Kópavogs, þ.e. ■ Áfrýjunardómstóll í Was- hington hefur afturkallað allar undanþágur frá nýsettum regl- um um hávaðamengun frá flug- vélum. Þeirra á meðal er undan- þága veitt Flugleiðum. f frétt frá Flugleiðum segir, að hlutaðeigandi flugfélög hafi 30 daga til að endurnýja um- sóknir sínar. Að þeim fresti liðnum hefur bandaríska flug- málastjórnin ótilgreindan um- frá Félagsheimilinu og vestur fyrir Hafnarfjarðarveg og þá yfir gjána sunnan við Hamra- borgina. Um er að ræða 11 húsbyggingar, sex við Fann- borg, frá 6 til 14, og fimm við þóttunartíma til afgreiðslu þeirra. Flugfélögin hafa á með- an heimild til óhindraðs rekstrar þeirra flugvéla, sem sótt hafði verið um undanþágu fyrir. Úrskurður áfrýjunardóm- stólsins kom í kjölfar ákæru nokkurra flugfélaga um meint handahófsleg vinnubrögð við afgreiðslu undanþáguumsókn- anna. Það er þó takið fullvíst, að undanþáguheimild Flugleiða verði endurnýjuð óbreytt. Hamraborg, frá 6 til 10A, sam- tals að gólffleti nær 15 þús. fermetrar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar verði unnar í 6 áföngum á næstu sjö árum. samningurinn var samþykktur í bæjarráði Kópavogs í gærmorg- un og bæjarstjórn síðdegis í gær. „Með þessu verður haldið áfram þeirri uppbyggingu mið- bæjarsvæðisins sem hafin var á sínum tíma, en er búin að liggja niðri óþægilega lengi. Þetta svæði hefur verið sem flakandi sár,“ sagði Ragnar Snorri Magnússon, form. bæjarráðs Kópavogs í gær. „Við trúum því að við séum með þessu að gera góða hluti sem verði bæjarfélag- inu til góðs. Þarna er um að ræða miðbæjarkjarna þar sem við viljum hafa sem blómlegasta starfsemi og iðandi mannlíf.“ Gert er ráð fyrir að mikið af þessum byggingum hýsi verslun- ar og skrifstofuhúsnæði, m.a. verslunarmiðstöð yfir gjánni, en einnig hótel og veitingastaði, félags og þjónusthúsnæði ásamt opinberum byggingum fyrir kaupstaðinn. Jafnframt er áætl- að að með húsunum verði byggð á fimmta hundrað bílastæði, þar af rúmlega hundrað undir þaki. Töluverötir hluti fram- kvæmdanna felst svo í torgum, stígum og tröppum. Nefndar hafa verið 900 milljónir króna í heildarframkvæindakostnað, miðað við núverandi verðlag. Fyrsti byggingarreiturinn, sem framkvæmdir munu vænt- anlega hefjast við á næstunni, et framan við Félagsheimili Kópa- vogs. Þar verða byggð tvö 2 til 3 hæða hús, samtals rúmlega 8.000 rúmmetrar að stærð. Húsatækni h.f. byggir fyrir eigin reikning þau mannvirki sem rísa á svæðinu. Þær fram- kvæmdir sem gerðar eru fyrir bæjarfélagið, svo sem plön og bílastæði, er gert ráð fyrir að bærinn greiði með gatnagerðar- gjöldum af byggingunum og að þau muni nægja fyrir þeim kostnaði. Verslunar-,hótel-og skrifstofuhúsnæði má Húsa- tækni ekki selja skemur á veg komið en fokhelt. Tefjist fram- kvæmdir óeðlilega að dómi bæjarráðs er heimild til riftunar í samningnum. Flugvélahávaði í USA: Allar undanþág- ur afturkallaðar Fínar ferðir í þrjár vikur á eina vinsælustu strönd Spánar: Hvítul ströndina. Benidorm býður upp á fjölbreytta afþreyingu af öllu tagi: Næturklúbba, diskotek, alþjóðlega veitingastaði, kaffihus, skemmtigarða, tívolí, aolfvelli, sjóskíði, dýragarð ... miðalda- veislu. Btthvað fyrir afía. Beint leiguflug og góð gisting á hótelum (með eða án fæðis) eða i ibuðagistingu. Isienskir fararstjórar. Verðdæmi: fbúðagisting frá kr. 23.910.- pr. m. Hjón i íbúð með tvö börn frá kr. 17.932.-pr. m. Brottfarardagar: 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10 FERÐAMIÐSTODIN AÐALSTRÆTI9 SÍMI28133

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.