NT - 11.05.1985, Side 4

NT - 11.05.1985, Side 4
Laugardagur 11. maí 1985 4 Bær barnanna fullorðinn! ■ Kópavogur er annar stærsti bær á íslandi, aðeins höfuðborg- in Reykjavík, sem er næsti ná- granni,er stærri. Eftir því sem best verður vitað eru mannaferðir um Kópa- vog jafn gamlar landnámssög- unni. Landnáma segir frá því er Ingólfur Arnarson sendi þræla sína þá Vífil og Karla „vestur með sjó“ í leit að öndvegissúl- unum. Auðvelt er að gera sér í hugarlund hvert leið þeirra fé- laga hefur legið, framan af Arn- arnesi, inn með Kópavogi, yfir Kópavogslæk, fram Kársnes og inn í Fossvog. Fátt segir af Kópavogi á fyrstu öldum íslandssögunnar. Þó er ljóst að í bæjarlandinu hefur þegar á söguöld verið einn af þingstöðum landsins. Síðar varð þar þingstaður þess svæðis sem nú er almennt nefnt höfuðborg- arsvæðið, miðsvæðis milli Reykjavíkur og Bessastaða. Þegar íslendingar glötuðu sjálfstæði sínu 1262 gengu þeir fyrst í konungssamband við Noreg en komust síðan með Noregi undir Danakonung. Árið 1662 sóru þeir honum eiða sem einvaldskonungi og gerðist það á Kópavogsþingi. Kópa- vogsþing galt nábýlis við kon- ungsvaldið á Álftanesi, sem að öllum líkindum hefur ekki geta beitt sér eins á Alþingi því árið 1574 bauð Friðrik II að Alþingi skyldi flutt frá Þingvöllum til Kópavogs. Þeirri beiðni var aldrei sinnt. Seltjarnarneshreppur hinn forni spannaði yfir Seltjarnar- nes, núverandi Kópavogsland og eyjarnar norðan Reykjavík- ur. Er Reykjavík óx fiskur um hrygg og varð sérstakt bæjarfé- lag rofnuðu hin landfræðilegu tengsl Seltjarnarness og Kópa- vogs. Þrátt fyrir þetta hélst sam- band þessara tveggja hrepps- hluta, hreppsnefndin sat á Sel- tjarnarnesi, en bændur í Kópa- vogi, Fífuhvammi, Digranesi, Vatnsenda, Gunnarshólma og Lækjarbotnum guldu útsvar á Seltjarnarnesi sem fyrr. Það var ekki fyrr en árið 1946 að Kópa- vogsbúar urðu í meirihluta í hreppsnefnd og þá taka miklar breytingar að gerast. Meirihlut- inn barðist fyrir sjálfstæði og skipulagri uppbyggingu Kópa- vogs og árið 1948 varð Kópa- vogur sjálfstæður hreppur, en kaupstaður árið 1955. Þá voru íbúar tæplega 3800 en eru nú 14.600. En hver er ástæða þessarar hröðu uppbyggingar Kópavogs? Við lögðum þessa spurningu fyrir Kristján Guðmundsson, bæjarstjóra. „Það er fyrst í síð- ari heimsstyrjöldinni að byggð fer að þéttast í Kópavogi. Þá flykktist fólk á höfuðborgar- svæðið í leit að vinnu. Húsnæð- isleysi var mikið í Reykjavík á þessum árum og margir renndu hýru auga til hins óbyggða lands í Kópavogi. Eins var mikið úthlutað af erfðafestum til bú- drýginda. Það voru stórhuga menn sem ýttu hér úr vör og það er margt sem sýnir það. Hér varð snemma mikil félagsleg uppbygging, stórt byggingar- samvinnufélag kom til sögunn- ar, átak var gert í heilsugæslu- málum og rekstur strætisvagna hófst hér strax á öðru ári kaup- staðarins. Kópavogur hefur átt dug- mikla og farsæla forystumenn og fólkið lærði fljótlega að vinna saman, það bast böndum og stofnaði samtök sem efldust og styrktu hreppinn og síðan kaup- staðinn. Samkenndin hefur sýnilega ekki minnkað hér í kaupstaðn- um og gleggsta dæmið er að 9 félög hér í bænum tóku sig saman og byggðu hér hjúkrun- arheimili með stuðningi bæjar- sjóðs. Lengi vel var Kópavogur nefndur „Bær barnanna", en aldursdreifingin hefur aukist og nú eru 800 ellilífeyrisþegar í Kópavogi. Fólkið sem er að byggja núna á rætur sínar hér í bænum og er það fyrsta kynslóð- in sem er borin hér og barnfædd. Það er athyglisvert að mitt í örri uppbyggingunni hugsuðu menn líka til menningarmál- anna og þegar kaupstaðurinn varð 10 ára þá var stofnaður hér Menningar- og listasjóður sem að0,5% af útsvarstekjum runnu til. Því er ekki að neita að ýmis- legt hér í Kópavogi ber þess merki að bærinn byggðist svona hratt upp. Má þar sérstaklega nefna gatnakerfið en uppbygg- ing nýrra hverfa breytir mynd- inni og bætir hana. Við höfum nægilegt landrými hér í Kópavogi og lítum fram- tíðina björtum augum. Hérþró- ast öflugt mannlíf og margvísleg þjónusta og nú eru um 600 iðnfyrirtæki í bænum. Við gerum ráð fyrir í aðal- skipulaginu að innan ramma Kópavogs komi til með að búa 40.000 manns á 1400 hekturum lands. Við ætlum að fylgja þess- ari þróun bæjarins eftir og eiga okkur langa framtíð," sagði Kristján Guðmundsson bæjar- stjóri í Kópavogi. ■ Kópavogur í dag er vaxandi miðstöð þjónustu og verslunar; há verslunar-og íbúðarhús rísa beggja vegna „peningagjárínnar“. NT-mynd: Ámi Bjarna. Á innfelldu Illvndinni er Kristján Guðmundsson bæjarstjóri. NT-mynd: Sverrir ■ Landsliðskeppni Bridge- sambandsins fyrir Evrópumótið í sumar, hófst í gærkvöldi í Drangey, Síðumúla 35, og er keppt bæði í opnum og kvenna- flokki. Tíu pör taka þátt í opna flokknum og 16 pör í kvenna- flokknum en í þessum fyrsta áfanga er spilaður tvímenningur með butlersniði þar sem tvö efstu pörin fá rétt til að velja með sér par og spila einvígis leik um landsliðssætin. Þriðja lands- liðsparið verður síðan valið. Evrópumótið verður haldið í smábænum Salsomaggiore á ít- alíu og hefst það í lok júní. Þar verður keppt í opnum flokki og kvennaflokki og tvö efstu sætin í opna flokknum gefa rétt til farar þá Heimsmeistaramótið sem haldið verður í haust. Nú- verandi Evrópumeistarar eru Frakkar í báðum flokkum. Yngri spilararnir fara hins- vegar á Norðurlandamót í sum- ar og ef að líkum lætur er landslið orðið ljóst. Þar var einnig haldin forkeppni þar sem Anton Gunnarsson og Guð- mundur Auðunsson, og Ragnar Magnússon og Valgarð Blöndal, urðu í fyrsta og öðru sæti og fengu því rétt til að velja með sér par. Þessi pör ákváðu að fara saman sem sveit og útlit er fyrir að sú sveit verði sjálfvalin. Landsliðskeppnin hafin Þessir spilarar hafa aldrei keppt áður fyrir íslands hönd á erlend- um mótum. Bridgefélag Breiðholts Firmakeppni félagsins hófst síðastliðinn þriðjudag og er spilaður einmenningur. Spilað er í tveimur 16 manna riðlum. Röð efstu firma er nú þessi: Hreyfill - Jóhann Stefánsson 114 Hólagarður - Guðjón Jónsson 108 Hópferðamiðstöðin - Áxel Lárusson 104 Fatahreinsunin Grímsbæ - Karl Gunnarsson 104 Hreiðrið, Smiðjuvegi - Garðar Hilmarsson 104 Næsta þriðjudag lýkur firma- keppninni. Spilað er í Gerðu- bergi kl. 19.30 stundvíslega. Bridgefélag Akraness Lokaumferð sveitakeppni Bridgefélags Akraness fór fram fimmtudaginn 2. maí s.l. Mikil spenna ríkti um úrslit þar sem tvær sveitir höfðu möguleika á að hreppa titilinn „Akranesmeistarar 1985“. Úrslit urðu þau að sveit Alfreðs Viktorssonar sigraði örugglega og hlaut samtals 239 stig. Auk Alfreðs spiluðu í sveitinni þeir Karl Alfreðsson, Guðjón Guðmundsson, Ólaf- ur G. Ólafsson og Þórður Björgvinsson. Önnur úrslit urðu þessi: Sveit: Jóns Alfreðssonar 223 Guðmundar Bjarnasonar 188 Karls Ó Alfreðssonar 183 Ólafs Guðjónssonar 174 Starfsári B. A. er nú lokið og hefur mikill áhugi ríkt meðal félaga og margir ungir spilarar bæst í hópinn. Líklegt er að meðal næstu verkefna stjórnar verði að finna stærra húsnæði fyrir starfsemina þar sem „Röstin“ rúmar ekki lengur starfsemina. Það mun þó mörgum þykja slæmt að yfir- gefa þetta hús, en þessi starf- semi hefur verið þarna á sama stað í áratugi og höfum við ávalt mætt lipurð og sanngirni í samningum við ráðamenn hússins. Bridgefélag Akureyrar S.l. þriðjudag 7. maf lauk hjá félaginu Minningarmótinu um Halldór Helgason. Keppt var um verðlaunaskjöl og bik- ara sem Landsbankinn gaf til þessa móts, en Halldór starfaði þar lengstan hluta ævi sinnar. Spiluð var Board-a-match sveitakeppni með þátttöku 22 sveita. Úrslit urðu þau að sveit Páls Pálssonar sigraði, eftir að hafa verið í 1.-2. sæti allt mótið. Ásamt honum voru f sveitinni: Frímann Frímanns- son, Páll Jónsson, Þórarinn B. Jónsson, Grettir Frímannsson og Hörður Blöndal. Röð efstu sveita: Páll Pálsson 389 Eiríkur Helgason 368 Anton Haraldsson 365 örn Einarsson 362 Jón Stefánsson 352 Gunnlaugur Guðmundss 351 Á þriðjudaginn kemur 14. maí verður bæjarhlutakeppni á Akureyri. Innbær/Brekkur spila gegn Eyrinni/Glerár- hverfi. Öllum er heimil þátt- taka, en spilað verður í Félags- borgoghefst keppnikl. 19.30. Föstudaginn 17. maí mun Tafl- og bridgeklúbburinn úr Reykjavík, koma í heimsókn. Spiluð verður sveitakeppni á 6-7 borðum á föstudaginn, en á laugardaginn 18. maí, verður opin tvímenningskeppni, sem hefst kl. 13. Spilað verður í Félagsborg. Keppnisstjóri er Albert Sigurðsson. Bikarkeppni Bridgesam- bands íslands 1985: Hin árlega Bikarkeppni Bridgesambands íslands, sem spiluð er yfir sumarmánuðina, hefst í næsta mánuði, júní. Frestur til að tilkynna þátt- töku í þá keppni, til Ólafs Lárussonar hjá BSÍ, rennur út föstudaginn 31. maí n.k. Allt spilafólk á fslandi er hvatt til að taka þátt í þessari skemmtilegu keppni, þar sem sveitir frá öllum landshlutum taka þátt í. Þátttökugjald pr. sveit, er aðeins kr. 3.000,- en þátttökugjaldið rennur að mestum hluta beint í ferða- styrk þeirra sveita sem lengst þurfa að fara vegna spila- mennsku. Nv.bikarmeistarar er sveit Úrvals í Reykjavík. Spilað er um gullstig í keppninni. Frá Bridgedeild Skagfirðinga 30 pör mættu til leiks sl. þriðjudag í Vorbridge Skag- firðinga, sem eru eins kvölds tvímenningskeppnir. Spilað var í tveimur riðlum og urðu úrslit þessi: A) stig Friðrik Indriðason - Örn Þórisson 268 Guðmundur Sv. Hermannsson Guðjón Sigurðsson - Sævin Bjarnason 257 Hreinn Stefánsson - Lárus Jónsson 243 Haraldur Arnljótsson - Sveinn Þorvaldsson 237 B) stig Guðmundur Thorsteinsson - Sigurður Ámundason 210 Anton Sigurðsson - Jean Jensen 184 Hulda Hjálmarsdóttir - Þórarinn Andrewsson 179 Hildur Helgadóttir - Karólína Sveinsdóttir 178 Meðalskor 210 í A og 156 í B-riðlum. Spilað verður að venju nk þriðjudag í Drangey v/Síðu- múla og hefst spilamennska kl. 19.30. Bridgefélag Hafnarfjarðar Starfsári B.H. lauk með 3 kvölda vortvímenningi sem í tóku þátt 15 pör. Úrslit urðu eftirfarandi: Ásgeir Ásbjörnsson - Hrólfur Hjartason 652 Dröfn Guðmundsdóttir - Erla Sigurjónsdóttir 625 Hulda Hjálmtýsdóttir - Þórarinn Andrewsson 623 Þá eru úrslit í firmakeppn- inni orðin ljós. Um 40 firmu voru með að þessu sinni og vill B.H. nota tækifærið og þakka þeim öllum þátttökuna. Staða efstu firmanna varð þessi: Blómabúðin Burkni 118 Börkur h.f. 106 Hafnarfjarðarbíó 105 ísal 104 Hafnarsjóður 103 yélsm. Péturs Auðunss. 103 Útvegsbanki íslands 102 Rafveita Hafnarfjarðar 101 Eimsalt h.f 101 Vélaverkst J. Hinrikss. hf 101 Aðalfundur B.H. verður haldinn föstudaginn 17. maí í félagsheimili Hjálparsveita skáta við Hraunvang. Fundur- inn byrjar kl. 17.30, en á dagskrá eru venjuleg aðalfund- arstörf svo og verðlaunaaf- hending. Er hér með sérstak- lega skorað á þá sem til verð- launa unnu að mæta og taka við verðlaunum sínum á sóma- samlegan hátt. Verðlaunarétt gáfu þrjú efstu sæti í öllum keppnum sem voru lengri en eitt kvöld. Hreyfilsmenn tii Noregs Spilarar frá Bridgefélagi Hreyfils halda á morgun til Bergen í Noregi þar sem þeir ætla að etja kappi við heima- menn í Sporvejens Bridge- klub, en hann skipa leigubíla- og sporvagnastjórar. Þetta er í annað sinn sem Hreyfilsmenn fara til Noregs í þessum erind- um og einu sinni hafa Norð- menn komið hingað. Tíu pör fara héðan til Berg- en og þar spila þau barometer- tvímenning ásamt 12norskum. Undanfarið hafa Norðmenn alltaf átt efsta parið, enda eiga þeir eitt mjög gott par, að sögn Birgis Sigurðssonar formanns B. Hreyfils. Hinsvegar eru ís- lensku pörin jafnari að styrk- leika en þau norsku þegar á heildina er litið. Mótinu lýkur á miðvikudag. Breidgedeild Breiðfirðinga Starfsári félagsins lauk sl. fimmtudag með einmennings- keppni sem 32 spilarar tóku þátt í. Einmenningsmeistarifé- lagsins varð Magnús Halldórs- son, en hann hlaut 121 stig. Annar varð Sigvaldi Þorsteins- son með 112 stig og þriðji Birgir Sigurðsson með 110 stig. Spilarar deildarinnar taka sér nú sumarfrí en hefja keppni aftur um miðjan september ef að líkum lætur.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.