NT - 11.05.1985, Síða 5
■ Aðstandendur „Ærsladraugsins“ eru í efri röð frá vinstri Sólveig, Ævar, Jón, Þórhallur og Arnhildur leikstjóri. í neðri röð eru Sigga,
Margrét, Sigurborg, Margrét önnur og Guðný. NT-mynd: Sven-ir.
Viljum skemmtistað í Kópavog
„ Vagga börnum og blómum,
borgin hjá vogunum tveimur,
risin einn árdag úr eyði -
heill undrunar heimur;“
■ Svona kvað Þorsteinn
Valdimarsson um Kópavog á 10
ára afmæli kaupstaðarins. Það
má segja að Kópavogur var
öðru fremur bær barnanna á
þessum árum og einu sinni gerð-
ist það að fleiri börn hófu hér
skólagöngu í sjö ára bekk held-
ur en í Reykjavík.
Tímarnir breytast og börnin
eldast og nú er aldursdreifing í
Kópavogi orðin jafnari. Félags-
starf aldraðra í Kópavogi er
öflugt og bæjarstjórn hefur ný-
lega ákveðið að stórauka fram-
kvæmdir í íbúðarbyggingum
fyrir aldraða á næstu árum.
En hvar standa unglingarnir í
Kópavogi í dag? Una þeir glaðir
við sitt eða þurfa þeir að sækja
flest til Reykjavíkur?
Við ákváðum að kanna málið
og hittum fyrir nokkra hressa
krakka sem voru að æfa leikritið
„Ærsladraugurinn'1 í Hjáleig-
unni.
Krakkarnir voru sammála um
að það væri gott að búa í
Kópavogi, þar væri stutt í allar
áttir og margt að gera fyrir
unglinga. „Hér er góð íþrótta-
aðstaða og ágætt félagslíf í
skólunum, en við þurfum að
fara til Reykjavíkur til að kaupa
föt og svoleiðis.
Við sækjum helst félagsmið-
stöðina Agnarögn og svo skipti-
stöðina, sem er mjög vinsæl hjá
okkur krökkunum, en eflaust
ekki jafn vinsæl hjá pabba og
mömmu.
Við viljum endilega fá ein-
hvern skemmtistað fyrir ungl-
inga hér í Kópavogi, en vinsæl-
asti staðurinn núna er Traffic í
Reykjavík.
En Kópavogur er toppurinn í
dag,“ sögðu krakkarnir í
kveðjuskyni og héldu áfram að
æfa leikritið.
„Maður varð að nýta sér rigningar vatnið“
- sagði Guðjón Jónatansson frumbyggi Kópavogs
■ Guðjón Jónatansson er 74
ára og hefur búið í Kópavogi í
40 ár. Hann má því með sanni
kallast frumbyggi í Kópavogi og
hefur frá ýmsu að segja frá
fyrstu árum sínum í Kársnesinu.
„Ég fluttist hingað frá Vest-
mannaeyjum árið 1945 með
konu og þrjú börn. Þá voru
ekkert nema sumarbústaðir hér
í Kópavogi og margt frumstæð-
ara en nú er.
Rafmagnið kom hingað árið
sem ég flutti, en ekkert var
vatnið og ekkert frárennsli. Ég
vann þá í Reykjavík sem járn-
smiður og tók með með mjólk-
urbrúsa til að sækja vatn til
heimilisins. Svo reyndi maður
að nýta sér rigningarvatnið.
Ég var nú svo lánsamur að
hafa yfirleitt bíl til umráða en
þegar það brást varð ég að rölta
niður á Hafnarfjarðaveg og taka
strætó. Hann kom stundum og
stundum ekki og oft var hann
svo troðfullur að hann stoppaði
alls ekki fyrir okkur. Þá varð
maður að fara á puttanum til
vinnu og það er nú eins og það
er.
Konan fór stundum með mér
í bæinn á morgnana til að þvo
þvotta og beið svo eftir að ég
færi heim á kvöldin.
Já, þetta voru svo sannarlega
ævintýraleg og skemmtileg ár
og ég vildi ekki hafa misst af
þeim. Þarna þurfti fólk að
bjarga sér sjálft, ólíkt því sem
tíðkast í dag þegar menn eru
alltaf að heimta eitthvað af
öðrum.
Mér líður fjarska vel hérna í
Kópavogi og það er mikið gert
fyrir okkur gamla fólkið hér.
Börnin mín segja stundum í
gamni að ég sé alltaf upptekinn
og það er ég svo sannarlega,“
sagði Guðjón Jónatansson.
Laugardagur 11. maí 1985 5
Kópavogur milli ára
■ Margt hefur breyst á þeim 30 árum sem liðu milli þess að
myndirnar voru teknar.
■ Guðjón Jónatansson hefur búið í Kópavogi í 40 ár. Hann er hér að læra
bókband hjá Kristínu Guðmundsdóttur, en bókbandskennsla er einn hluti
af fjölbreyttu félagsstafi aldraðra í Kópavogi. NT-mynd: Sverrír.
Húsnæóisstofnun
Tæknideild Laugavegi 17. R. Simi 28500.
ÚtboÖ
Vopnafjörður
Stjórn verkamannabústaða, Vopnafjarðarhrepps, óskar eftir tilboðum í byggingu einnar
hæða parhúss, 195 m2 og 673m3.
Húsið verður byggt við ónefnda götu við Vallhoit, Vopnafirði, og skal skila fullfrágengnu
31. okt. 1986.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrifstofu Vopnafjarðarhrepps og hjá
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá þriðjudeginum 14. maí nk., gegn kr. 10.000.-
skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði, eigi síðar en þriðjudaginn 4. júní nk. kl. 13:30 og verða
þau opnuð af viðstöddum bjóðendum.
fh. Stjórnar verkamannabústaóa,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
ríkisins