NT - 11.05.1985, Side 10

NT - 11.05.1985, Side 10
 Veronika Narfadóttir Fáskrúðarbakka F. 1. jan. 1899 D. 30. apr. 1985 ■ í dagerkvödd hinstu kveöju elskuleg móðursystir okkar Veronika Narfadóttir, lengst af húsmóðir á Fáskrúðarbakka í Miklaholtshreppi, en hún andaðist á sjúkrahúsinu á Akranesi 30. apríl s.l. Veronika var fædd að Hall- kelsstöðum í Hvítársíðu 1. jan. 1899 og voru foreldrar hennar þau Þuríður Jónsdóttir fædd að Höll í Þverárhlíð og Narfi Jóns- son frá Efranesi í Stafholtstung- um. Var hún því Borgfiröingur í báðar ættir og í föðurætt af Deildartunguætt. Narfi og Þuríður eignuðust tvær dætur og var sú eldri móðir okkar Halldóra fædd 26. júní 1897. D. 2. júlí 1982. Veronika ólst upp með for- eldrum sínum. Þau fara frá Hallkelsstöðum, þegar hún er um það bil 1 árs gömul, að Elínarhöfða á Akranesi. Þaðan flyst svo fjölskyldan að Grísatungu í Stafholtstungna- hreppi. Þar dvalst Veronika hjá foreldrum sínum, þar til hún giftist, á afmælisdegi sínum, 1920, Kristjáni Guðmundssyni frá Kolviðarnesi í Eyjahreppi, og hófu þau sinn búskap í Grísatungu. Á slíkum býium sem Grísatungu, afskekktu fjallabýli, varö húskapur ekki stór, enda undrast maður í dag, að þar skuli hafa verið hægt að rækta jörð og lifa af. í Grísa- tungu fæðast Veroniku og Krist- jáni tvö fyrstu börnin, Kristín Halldóra og Guðmundur, en alls varð þeim 10 barna auðiðog eru þau: Kristín liúsfrú í Reykjavík, gift Jónasi Sig. Jónssyni, Guð- mundur bóndi að Lýsuhóli, kvæntur Margréti Hallsdóttur, Narfi, bóndi að Hoftúnum, kvæntur Jónfríði Sigurðardótt- ur, Þuríður. húsfrú í Ólafsvík, gift Jóhannesi Jóhannessyni, Guðbjartur. áður bóndi að Lækjarmóti kvæntur Jóhönnu Þ. Emilsdóttur, Oddný, húsfrú að Rauðanesi, í Borgarhreppi, gift Guðjóni Viggóssyni, Gunn- ar bóndi að Fáskrúðarbakka, Sigurvin, bóndi að Fáskrúðar- bakka, kona hans er Steinunn Hrólfsdóttir, Jóhanna Sigríður, lést liðlega 3ja ára gömul, yngst- ur Jóhann Sigurður búsettur í Reykjavík, kvæntur Sigríði Hjálmarsdóttur. Minningar okkar um frænku eru umvaföar birtu og hlýju. því alltaf var hún geislandi glöð og góðvildin skein úr andliti hennar, þannig kynntumst við henni og þannig munum við hana. Bcst kynntumst við henni og fjölskyldu hennar, er hún tók á móti okkur og móður okkar opnum örmum, er viö þurftum á húsaskjóli að halda í júní 1941, en þá voru mörg hús í Skerjafirði flutt vegna lagningar Reykjavíkurflugvallar. Fólk varð að yfirgefa hús sín og þar á meðal okkar fjölskylda. Okkur var boðið að vera hjá þeim Veroniku og Kristjáni eins lengi og við þurftum á að halda eða þar til í nóvember s.á. Innilegt samband var ávallt á milli systranna, þótt fjarlægð skildi þær að. Þær skrifuðust alltaf á, þótt það segi sig sjálft að húsmæður með stóran barnahóp hafa ekki haft mikinn tíma afíögu. Börn Veroniku og Kristjáns dvöldu gjarnan á heimili foreldra okkar og þótti móður okkar eins og það væru hennar eigin börn, enda ekki svo fjarri, þar sem hún ung að árum tók á móti tveimur fyrstu börnum systur sinnar, því oft var þá erfitt að ná til Ijósmóður. Þessa minningu rifjaði frænka okkar upp, er við heimsóttum hana á sjúkrahúsið á Akranesi, nokkrum dögum áður en hún kvaddi þennan heim, og bætti við „það féll aldrei skuggi á vináttu okkar systranna", enda kölluðu þær hvor aðra aldrei með nafni, heldur alltaf „systir“ og segir það sína sögu. En þær fengu ekki tækifæri til að alast upp saman og því fylgdi ávallt söknuður. Móðir okkar var sett í fóstur 4 ára gömul að Fljótstungu í Hvítársíðu og var þar fram yfir fermingu. Veronika hafði sérstaklega létt skap og var alltaf stutt í hláturinn, ef slcgið var á létta strengi. Oft var glatt á hjalla í Akur- holti, sumarið 1941,eðaásumr- inu okkar, eins og við systkinin höfum oft nefnt þáð. Sumarið var einstaklega gott hvað veður snerti, enda kom það sér vel með allan barnahópinn, en þetta sumar voru 18 manns í heimilinu, þar af 13 börn. Á svo stóru heimili sem þessu, var vinnudagurinn oft langur, en aldrci munum við eftir að það væri orðað. Vcrkin voru bara unnin. Fara varð t.d. langa leið með þvottinn. Var farið með hann á hestvagni að Smáragerði þar sem var heitt vatn og þótti þaö mikill munur, l'rá því að ná í allt vatn úr brunni. í Akurholti bjuggu þau Ver- onika og Kristján í 20 ár eða til ársins 1946 að fjölskyldan flyst aö Fáskrúðarbakka í Mikla- holtshreppi og búar þar mynd- arbúi, þar til 1961 að Kristján fellur frá 69 ára gamall. Eftir það taka yngstu synirnir við búinu ásamt móður sinni. Fyrir mörgum árum fór að gera vart við sig hjá Veroniku mikið máttleysi í fótum. Var hún skorin upp og var gerð á lienni aðgerð á hnjánum, en allt kom fyrir ekki og þurfti hún að nota hækjur til fjölda ára, en Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmæl- is- og eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar. hún lét það ekki aftra sér frá að komast áfram. Veronika las mikið og hafði alltaf einhverja handavinnu til að grípa í og stytti það henni stundir, því að hún hélt allgóðri sjón. Annan júlí 1982 skyldi haldið ættarmót, hittust afí<omendur systranna og þeirra fjölskyldur. Móðir okkar var þá orðin heilsutæp, en þráði mikið að hitta systur sína. Mótið var haldið að Lýsuhóli í Staðarsveit. Þarna voru mættir 85 manns. Var þetta einstaklega vel heppnaður dagur í alla staði fyrir einstakan myndarskap fjöl- skyldu Veroniku og nutu syst- urnar samverunnar mjög þenn- an dag. Eigum við systkinin engin orð til að lýsa ánægju okkar yfir framkvæmd þessa ættarmóts. Að leiðarlokum skulu frænku hér færðar hjartans þakkir, frá okkur systurbörnum hennar og fjölskyldum okkar, fyrir allt það sem hún var okkur, hennar viðmót og hjartahlýju. Biðjum við góðan guð að bíessa minn- ingu hennar og vottum börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Guðrún, Jón, Þuríður, Leifur og Narfi. t Þegar hlýr vorblær leikur um vanga, eftir veðurblíðan vetur, vorið á næsta leiti, umhverfið allt öðruvísi en mörg undanfarin vor, blómin sem kulnuðu út í vægum vindum þess vetrar sem nýlega hefur kvatt, erum við áþreifanlega minnt á að líf okk- ar er háð sömu lögmálum og blómin sem uxu í varpanum í fyrra, þau komu og þau fóru. Sá, sem hagsæld okkar hefur í hendi sinni, kallar okkur hvern og einn til sín, þó misjafnlega snemma, en enginn skal þó und- an þessu kalli komast. Alda- mótabarnið og öðlingskonan Vcronika Narfadóttir, húsfrú á Fáskrúðarbakka var kölluð burt úr þessum heimi þann 30. apríl síðast liðinn. Andlát hennar kom okkur, sem þekktum hana ekki á óvart, heilsan búin að vera mjög tæp undanfarin ár. Veit ég fyrir víst að Veronika var þessari hvíld fegin. Hún var þannig manncskja að hún sá ætíð bjartar hliðar á tilvcrunni og hafði mikla ánægju af að ræða um lífið og hin daglegu störf. Hún var sjálf búin að vinna langan vinnudag og vissi því vel hvað trúmennska í starfi var mikils viröi fyrir þann sem vildi lifa lífinu á sem farsælastan hátt. Það er ekki alltaf sem starf konunnar er metið sem skyldi í umræðu, oft vill starf þeirra gleymast og vera minna lialdið á lofti en vera ber, störf konunn- ar, sent eldinn fól að kveldi og blés í glæðurnar að morgni, sem hreytti ull í fat og mjólk í mat, sem ætíð var fræðandi og upp- örvandi og allan vanda leysti í önn og erli dagsins. Þannig er minningin um heilsteypta og hjartahlýja konu, sem ætíð var reiðubúin að rétta fram hjálpar- hönd ef á þurfti að halda. Hei- mili hennar var hennar arinn, þar sem hún varði öllum sínum kröftum. Eflaust hafa lífsþæg- indi til heimilisstarfa verið frum- stæð í þá daga og sömuleiðis húsakynni, en með farsæld og ráðdeild varð öllu breytt til betri hátta, jafnframt og nýjar kröfur um lífsþægindi ruddu sér til rúms. Veronika var Borgfirðingur að ætt, fædd var hún að Hall- kelsstöðum í Hvítársíðu í Mýra- sýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Þuríður Jónsdóttir og Narfi Jónsson, þau bjuggu lengst af sínum búskap í Grísa- tungu í Mýrasýslu. Eina systur átti Veronika. Hún hét Hall- dóra, var hún búsett í Reykja- vík og er látin fyrir nokkrum árum. Ekki mun Veronika hafa lilotið neina skólamenntun um- fram það sem andi þess tíma bauð upp á. En lífið var henni sá skóli, sem dugði og lífið gaf henni þá reynslu, að hún mátti ánægð vera þegar ævikvöldinu lýkur. Veronika var ein þeirra kvenna, sem leit mannlífið með ástúðlegu þeli, móðurlegri við- kvæmni og samúð, sem gerir engan greinarmun á stóru eða smáu. Hún var heilshugar trú- kona, sem sótti sálu sinni ljós og yl í lindir trúarinnar, Guðs orð og bænina. Kom það sér vel fyrir hana er veikindi ásóttu hana, að hún var sterk í stríði með styrka trú. Hún lifði það að sjá börn sín vaxa og vera nýtir þjóðfélagsþegnar, barnabörn og barnabarnabörn hennar er stór hópur sem veitti henni sanna lífsfyllingu. Hinn 1. janúar 1921 giftist Veronika Kristjáni Guðmunds- syni frá Kolviðarnesi í Eyja- hreppi, fór brúðkaup þeirra fram í kirkjunni í Stafholti, Mýrasýslu. Kristján var mikill búsýslumaður og traustur ein- staklingur í bestu merkingu þess orðs. Hann dó 1. feb. 1961. Þeim hjónunum varð 10 barna auðið, þau eru: Kristín Halldóra, húsfrú í Reykjavík, Guðmundur, bóndi Lýsuhóli, Staðarsveit, Narfi Sig- urður, bóndi Hoftúnum, Stað- arsveit, Þuríður, húsfrú í Ólafs- vík, Guðbjartur, bóndi Lækjar- mótum, Miklaholtshreppi, en hann er búinn að dvelja mörg ár á sjúkrahúsi illa farinn á heilsu, Sigurvin, bóndi á Fáskrúðar- bakka, Gunnar bóndi á Fá- skrúðarbakka, Jóhanna Sigríð- ur. dó á fjórða ári og Jóhann Sigurður, verkamaður í Reykja- vík. Öll eru börn þeirra hjóna traust og dugandi fólk. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau í Grístatungu í Mýrasýslu, síðan fluttu þau að Akurholti í Eyja- hrepp, og árið 1945 kaupa þau svo jörðina Fáskrúðarbakka og búa þar uns synir þeirra tóku við búsforráðum þar. Jörðin Fáskrúðarbakki er góðbýli, þar áttu þau sæludaga og nutu þess að bæta og prýða jörð sína. Ég hef tínt hér saman fátæk- leg orð, sem á hugann leita við brottför Veroniku á Fáskúðar- bakka, lífsbók hennar er lögð aftur, engin blaðsíða er þar auð, drengskapur, hjartahlýja og góðvild standa þar. Ég efa ekki að fjölmenni verður við útför hennar frændgarður hennar er stór og vinsemd henn- ar og viðmót var þess eðlis að þeir sem kynntust henni fundu traust hennar og góðvild. Öllum vildi hún svo vel. Ég minnist þess er ég kom hér í sveit, alkominn til dvalar fyrir 36 árum, að ég kom fljótlega að Fáskrúðarbakka. Ég man hlýja handtakið hennar og orðin sem því fylgdi. Það var gott innsigli á það góða nágrenni, sem ætíð hefur verið milli bæja hér, þakka ég nú fyrir það af heilum hug. Ég og kona mín vottum aðstandendum hennar samúð- ar. Guð blessi minningu góðrar konu. Laugardagur 11. maí 1985 10 Hinn almenni bænadagur ■ Guðsþjónustur í Reykja- víkurprófastdæmi sunnudag- inn I2. maí 1985. Árbæjarprestakall ■ Bænaguðsþjónusta í Safnaðarheimili Árbæjar- sóknar kl. 11.00 árd. Organ- leikari Jón Mýrdal. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. Ásprestakall ■ Sameiginleg guðsþjón- usta Ás- og Laugarnessókna í Laugarneskirkju kl. 2.00. Báðir kirkjukórarnir syngja. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson pré- dikar. Sóknarnefndin. Breiðholtsprestakall ■ Messa í Breiðholtsskóla kl. 14.00. Sr. Lárus Halldórs- son. Bústaðakirkja ■ Messa kl. 2.00. Prestur sr. Jón Bjarman. Organleik- ari Guðni Þ. Guðmundsson. Á uppstigningardag verður messa kl. 2.00. Handavinnu- sýning eftir vetrarstarf ald- raðra verður eftir messuna svo og kaffiveitingar. Sóknarnefndin. Digranesprestakall ■ Guðsþjónusta í Kópa- vogskirkju kl. 2.00. Minnst 30 ára afmælis kaupstaðar- ins. Sr. Árni Pálsson prédik- ar, sr. Þorbergur Kritjánsson þjónar fyrir altari. Bæjarfull- trúar lesa ritningarorð. Sóknarnefndin. Dómkirkjan ■ Bænadagsguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Þórir Stephens- en prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hjalta Guðmundssyni. Sr. Þórir Stephensen. Barnaguðs- þjónusta kl. 2.00. Kirkju- skólanum slitið. Börn úr skólanum aðstoða. Sr. Agn- es M. Sigurðardóttir. Ellihcimilið Grund ■ Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson. Fella- og Hólakirkja ■ Guðsþjónusta kl. 11.00. (Ath. breyttan tíma). Sr. Hreinn Hjartarson. Fríkirkjan í Reykjavík ■ Guðsþjónusta kl. 14.00. Fríkirkjukórinn syngur undir stjórn organleikarans Pavel Smid. Eftir messu er kaffi fyrir aldraða í Oddfellowhús- inu í boði Kvenfélags Frí- kirkjunnar. Föstudaginn 17. maí er biblíulestur í kirkj- unni kl. 20.30. Allir vel- komnir. Bænastund í kirkj- unni þriðjud., miðvikud., fimmtud. ogföstud. kl. 18.00 og stendur í stundarfiórð- ung. Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja ■ Messa kl. 11.00 (Ath. breyttan messutíma). Kaffi- sala Kvenfélagsins kl. 3.00. Biblíulestur þriöjudag 14. maí kl. 20.30. Á Uppstigningardag verð- ur kvöldvaka með helgistund fyrir aldraða kl. 20.00. Sr. Halldór Gröndal. Hallgrímskirkja ■ Laugardag: Félagsvist í safnaðarsal kl. 15.00. Sunnudag: Messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigurbjörns- son. Kirkja heyrnarlausra ■ Guðsþjónusta kl. 2.00 í Hallgrímskirkju. Sr. Miyako Þórðarson. Þriðjudag, fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum. Á upp- stigningardag verður messa kl. 11.00. Landsspítalinn ■ Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Hátcigskirkja ■ Messakl. 11.00. Sr.Arn- grímur Jónsson. Kársnesprcstakall ■ Guðsþjónusta kl. 2.00 í Kópavogskirkju. Minnst 30 ára afmælis kaupstaðarins. Sr. Þorbergur Krisjánsson þjónar fyrir altari, sr. Árni Pálsson prédikar. Bæjarfull- trúar lesa ritningaroðr. Sóknarnefndin. Langholtskirkja Kirkjureið ■ Á hinum almenna bæna- degi munu hestamenn koma á gæðingum sínum til guðs- þjónustunnar í Langholts- kirkju kl. 11.00. Listamenn úr röðum þeirra, Ingibjörg Lárusdóttir, Lárus Sveins- son, Gunnar Eyjólfsson, Klemens Jónsson, Jón Sigur- björnsson, Garðar Cortes munu aðstoða kór, organista og prest safsnaðarins við helgihaldið. Aðhald er fyrir hestana og þeirra gætt. Safnaðarstjórn. Laugarneskirkja ■ Laugardag: Guðsþjón- usta Hátúni 10B, 9. hæð kl. 11.00. Sunnudag: Sameiginleg guðsþjónusta Ás- og Laug- arnessókna í Laugarnes- kirkju kl. 14.00. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson pré- dikar. Báðir sóknarprestarn- ir þjóna fyrir altari, báðir kórar safnaðanna syngja undir stjórn organistans Sig- ríðar Jónsdótturog Kristjáns Sigtryggssonar. Þriðjudag 14. maí bænaguðsþjónusta kl. 18.00 og orgeltónleikar kl. 20.30 á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar. Friðrik Stefánsson, Gunnar Gunn- arsson ogSigríður J ónsdóttir leika á orgel kirkjunnar. Snknarprestur. Neskirkja ■ Messa kl. 14.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Mið- vikudag, fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Opið hús fyrir aldr- aða þriðjudag kl. 12-17 og verður þennan mánuð á þriðjudögum. Seljasókn ■ Guðsþjónusta kl. 11.00 í Ölduselsskóla. Fundur í æskulýðsfélaginu Sela þriðju- dagskvöld 14. maí kl. 20.00 í Tindaseli 3. Fyrirbænasam- vera Tindaseli 3, að kvöldi uppstingingardags kl. 20.30. Sóknarprestur. Seltjarnarnessókn ■ Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði ■ Laugardag 11. maí.'Vor- ferð barnastarfsins. Farið frá kirkjunni kl. 13.30. Sunnu- dag, guðsþjónsuta kl. 11.00. Ath. breyttan messutíma. Guðrún Tómasdóttir syngur einsögng. Sr. Einar Eyjólfs- son. Eyrarbakkakirkja ■ Fermingarmessa í Eyrar- bakkakirkju kl. 13.30. Sr. Úlfar Guðmundsson. Keflavíkurkirkja ■ Kirkjudagur Keflavík- ursafnaðar er á sunnudag. Guðsþjónusta kl. 14.00. Systra- og bræðrafélagið annast kaffisölu í Kirkju- lundi að lokinni messu. Rætt verður um ísraelsferðina, en nú fer hver að verða síðastur að tilkynna þátttöku. Sóknarprcstur. Dagbók ■ Kvenfélag Bústaðasókn- ar heldur fund mánudaginn 13. maí kl. 20.30. Kvenfélag Hallgrímskirkju kemur í heimsókn. Félagskonur fjöl- mennið á síðasta fund vorsins. Páll Pálsson, Borg

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.