NT - 11.05.1985, Side 14
Laugardagur 11. maí 1985 14
sjónvarp
Mærin og sígauninn
■ Álaugardagskvöldið verö-
ur á dagskrá sjónvarps breska
bíómyndin IMærin og sígaun-
inn (The Virgin and the Gipsy)
en hún er gerö eftir sögu D.H.
Lawrence.
Tvær prestsdætur snúa heim
til föðurhúsa eftir námsdvöl í
Frakklandi. Önnur þeirra
Yvette, unir illa höftum og
siðavendni á heimaslóðum.
Hún velur sér vini sem ekki
eru föður hennar að skapi og
lætur engar fortölur hefta sig.
Þýðandi er Ragna Ragnars.
Sjónvarp sunnudag kl. 22.20:
Empire Brass Quintet
■ Empire Brass Ouintet lcik-
ur í sjónvarpssal á sunnudags-
kvöldiö kl. 22.20.
Þessi frægi málmblásara-kvint-
ett var stofnaður fyrir tilstilli
Leonard Bernstein í Tangle-
wood 1971. Síöan hafa þeir
unnið sér alþjóölega frægö sem
einn besti málmblásarakvintett
í heimi. Áriö I976 varð kvint-
cttinn fyrsti málmblásarahóp-
urinn til þess aö vinna hin
cftirsóttu Naumberg kamm-
ermúsíkverðlaun og 1980 unnu
þeir Harward Music Associat-
ion verðlaunin.
Efnisskrá þeirra nær yfir alla
tónlist frá renaissancc og bar-
okk til nútímaverka, sem rnörg
hver hafa Veriö sérstaklcga
samin íyrir þá og þeir Itafa
gefið út fjöldann allan af
hljómplötum.
Um kvintettinn hefur verið
sagt „Leik Entpire Brass Qu-
intet vcröur ekki til neins jafn-
að hvaö varðar fegurð, skír-
leika, nákvæmni, jafnvægi og
samspil. Leikur þcirra er hrein
upplifun frá upphafi til cnda."
Verkin sem þeir flytja í sjón-
varpssal eru af ýmsum toga,
frá Bach og Hándel til laga úr
West Side Story og Dixieland-
jazz.
Stjórn upptöku annaðist
Viðar Víkingsson.
■ Empire Brass Quintet: John David Ohanian, horn, Charles
Arthur Lewis, trompct, Rolf Thorstein Smedvig, trompet, Scott
Alvin Hartman, básúna og James Samuel Pilalian, túba.
Hættum að reykja
■ Á mánudagskvöldið efnir
sjónvarpið til námskeiðs fyrir
fólk sem vill hætta að reykja.
Þættir þessir eru gerðir í sam-
ráði viðTóbaksvarnarnefndog
eru ætlaðir til uppörvunar og
leiðbeiningar þeim sem vilja
hætta þessari iðju.
í fyrsta þætti drepa nokkrir
reykingarmenn í síðustu sígar-
ettunni og áhorfendum. sem
vilja fara að dæmi þeirra, gefst
kostur á að læra af reynslu
þeirra fyrstu vikuna og hagnýta
sér leiðbeiningar sérfróðra
manna í þáttunum næstu
kvöld.
Ógnvekjandi staðreyndir
um skaðsemi reykinga eru nú
öllum kunnar og um áramót
tóku gildi ný lög sem eiga að
hamla gegn reykingum. Því
ekki að skella sér með...
Umsjónarmaður er Sigrún
Stefánsdóttir en hún stjórnaði
áður sjónvarpsþáttum með
svipuðu sniði árið 1977.
■ Drepum í.
Sjónvarp mánudag kl. 20.40:
Útvarp sunnudag kl. 13.30:
■ Sigríður Ingvarsdóttir og Sigríður Eyþórsdóttir spjalla um stéttastjórnmálin.
Glefsur úr íslenskri stjórn-
málasögu - síðasti þáttur
■ Sigríður Ingvarsdóttir,
stjórnmálafræðingur verður
með þátt sinn „Glefsur úr ís-
lenskri stjórnmálasögu" á
sunnudaginn kl. 13.30. Þetta
er fjórði og síðasti þáttur í
þessari þáttaröð sern fjallar
um stéttastjórnmálin.
í þessum þætti verðurfjallað
um Tryggva Þórhallsson, for-
sætisráðherni, Alþingishátíð-
ina 1930 og hinar harðvítugu
deilur um þingrofið 1931.
Tryggvi Þórhallsson var
fæddur að Laufási í Reykjavík,
sonur Þórhalls biskups Bjarna-
sonar. Árið 1917 gerðist
Tryggvi ritstjóri Tímans. Því
starfi gengdi hann til þess að
hann varð forsætisráðherra
1927 og gengdi því embætti til
ársins 1932. Með skrifum sín-
um íTímann varð Tryggvi til
þess að vekja og auka trú
manna á framtíð íslenskra
sveita.
Þingrofið 1931 Itafði í för
með sér að niðurbæld gremja
stjórnarandstæðinga braust
fram. mótmælagöngur voru
farnar og lögregluvörð varð að
hafa við bústað forsætisráð-
herra í Tjarnargötu. Hitinn í
þingrofsmálinu kemur ef til
vill best fram í því að sjálf-
stæðismenn ræddu í alvöru
þann kost að gera Reykjavík
að fríríki til þess að losna við
yfirgang framsóknarmanna.
Árið 1932 var Tryggvi Þór-
hallsson bankastjóri við Bún-
aðarbankann og því starfi
gengdi hann til dauðadags
1935.
Lesari með Sigríði Ingvars-
dóttur er Sigríður Eyþórsdótt-
ir.
Laugardagur
11. maí
11.20 Eitthvað tyrir alla
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Hér og nú
15.15 Listapopp - Gunnar Salvars-
son
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Islenskt mál
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njöröur
P. Njarövík.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Á óperusviðinu Umsjón: Leif-
ur Þórarinsson.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Þetta er þátturinn
20.00 Útvarpssaga barnanna;
20.20 Harmonikuþáttur Umsjón:
Siguröur Alfonsson
20.50 „Verðfall" Smásaga
21.30 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Skyggnst inn í hugarheim og
sögu Kenya
23.15 „Zarzuela“
24.00 Miðnæturtónleikar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Sunnudagur
8.00 Morgunandakt Séra Ólafur
Skúlason flytur ritningarorö og
bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir Forustugr. dagbl.
(útdr.)
8.35 Létt morgunlög Ýmsirflytjend-
ur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 Stefnúmót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa í Akureyrarkirkju
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Glefsur úr íslenskri stjórn-
málasögu - Stéttastjórnmálin.
14.30 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands i Háskólabí
ói 9. þ.m.
15.15 „Mín kristni hefur alltaf verið
baratta"
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræði.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Meðánótunum.
18.00 Á vori Helgi Skúli Kjartansson
spjallar viö hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir Tilkynningar.
19.35 Morgunn í maf
20.00 Um okkur
20.50 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.30 Útvarpssagan:
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Iþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur
Hannesson.
22.45 Eiginkonur fslenskra skálda.
23.00 Djassþáttur - Tómas Einars-
son.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
INf
Laugardagur
14.00-16.00 Léttur laugardagur.
Stjórnandi Ásgeir Tómasson.
16.00-18.00 Milli mála. Stjórnandi,
Helgi Már Baröason.
Hlé.
24.00-00.45 Listapopp Endurtekinn
þáttur frá rás 1. Stjórnandi Gunnar
Salvarsson.
00.45-03.00 Næturvaktin Stjórnandi
Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar aö lokinni
dagskrá rásar1.
Sunnudagur
13.00-15.00 Krydd í tilveruna.
Stjórnandi Asta Ragnheiöur Jó-
hannesdóttir.
15.00-16.00 Dæmalaus veröld.
Þáttur um dæmalausa viöburöi
liðinnar viku. Stjórnendur Þórir
Guömundsson og Eiríkur
Jónsson.
16.00-18.00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2.20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi Ásgeir Tómas-
son.
Laugardagur
11. maí 1985
16.30 Enska knattspyrnan
17.45 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson
19.25 Teiknimyndasyrpa Betra er
seint en aldrei, sovésk teiknimynd
og Tvær sögur frá Kirjálalandi,
finnskar teiknimyndir, þýöandi
Kristin Mántylá, sögumaður Sig-
rún Edda Björnsdóttir. (Nordvision
- Finnska sjónvarpið).
19.50 Fréttir á táknmáli
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Hótel Tindastóll Fjóröi þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í sex
þáttum um seinheppinn gestgjafa,
starfslið hans og hótelgesti. Aðal-
hlutverk: John Cleese. Þýöandi
Guöni Kolbeinsson.
21.10 Mærin og sigauninn (The
Virgin and the Gipsy) Bresk bíó-
mynd frá 1970, gerð eftir sögu eftir
D.H. Lawrence. Leikstjóri Christ-
opher Miles. Aöalhlutverk: Joanna
Shimkus, Franco Nero, Honor
Blackman, Mark Burns, Fay
Compton og Maurice Denham.
Tvær prestsdætur snúa heim til
fööurhúsa eftir námsdvöl i Frakk-
landi. Onnur þeirra, Yvette, undir
illa höftum og siðavendni á heima-
slóðum. Hún velur sér vini, sem
ekki eru fööur hennar aö skapi.og
lætur engar fortölur hefta sig. Þýö-
andi Ragna Ragnars.
22.45 Afgreitt mál (Kharij) Indversk
biómynd frá 1983. Leikstjóri Mrinal
Sen. Aðalhlutverk. Anjan Dutt og
Mamata Shanker. Ung hjón í Kalk-
útta taka í þjónustu sína dreng
sem snöggt verður um. Rannsókn
er hafin til að kanna hvaö valdið
hafi dauða drengsins og hvort
nokkur eigi sök á honum. Myndin
lýsir indversku hversdagslifi og er
jafnframt ádeila á þá barna-
þrælkun sem viðgengst á Indlandi.
Þýöandi Veturliði Guönason.
00.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
12. apríl 1985-
18.00 Sunnudagsnugvekja Séra
Pétur Maack flytur.
18.10 Leynilögreglumeistarinn
Karl Biómkvist Endursýning.
Leikrit í tveimur hlutum, gert eftir
sögu. Astrid Lindgrens. Leikstjóri:
Helgi Skúlason. Leikendur: Björn
Jónasson, Siguröur Grétarsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Steindór
Hjörleifsson, Borgar Garöarsson
og fleiri. Frumsýnt í „Stundinni
okkar" í desember 1968. Annar
hluti veröur sýndur sunnudaginn
19. maí.
18.40 Með íkorna á öxlinni Bresk
mynd um íkornann Sammy sem
ólst upp meö kettlingum á heimili
náttúrufræðings eins.
19.00 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón-
armaöur Guðmundur Ingi Kris-
tjánsson.
20.55 Hvaðan komum við? Fyrsti
hluti af þremur. Svipmyndir úr
daglegu lífi á siðuslu öld eftir Árna
Björnsson, þjóöháttarfræöing.
Meö orðum og látbragöi er lýst lífi
og störfum í gamla sveitasamfé-
laginu, þannig aö hvert atriði leiöir
af ööru og kallar á nýja skýringu.
Flytjandi Borgar Garöarsson.
Stjórn upptöku: Þrándur Thor-
oddsen.
21.25 Til þjónustu reiðubúinn
Fimmti þáttur. Breskur framhalds-
myndaflokkur í þrettán þáttum.
Leikstjóri Andrew Davies. Aöal-
hlutverk: John Outtine og Belinda
Lang. Efni síðasta þáttar: Beth
elur tvíbura og David fær aukna
ábyrgö og leggur hart aö sér. Nær
viö liggur aö skólinn veröi eldi aö
bráö. Til starfa tekur lagleg
kennskukona, Júlia, sem kemur
meira viö sögu siöar. Þýðandi
Kristmann Eiösson.
22.20 Empire Brass Quintet Þessi
alkunni málmblásara-kvintett leik-
ur í sjónvarpssal. Vekin eru af
ýmsum toga, frá Bach og Hándel
til laga úr West Side Story og
Dixílanddjass. Stjórn upptöku: Viö-
ar Víkingsson.
22.55 Dagskrárlok.