NT - 11.05.1985, Side 20

NT - 11.05.1985, Side 20
tilboð - útboð Útboð Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum í eftirtalin verk i Reykjanesumdæmi: 1. Slitlög 1985, (lögn olíumalarog malbiks). Verki skal lokiö 15. áoúst 1985. , , 2. Þingvallavegur: Þjóðgarður - Móakotsá (Burðarlag og klæöning). Verki skal lokiö 15. júlí 1985. 3. Þingvallavegur: Móakotsá - Stóralandstjörn. (Undir- bygging, burðarlag og 2 brýr). Verki skal lokið 1. október 1985. Útboösgögn verða afhent hjá Vegagerö ríkisns í Reykjavík (aöalgjaldkera) frá og meö 15. maí nk. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 28. maí 1985. Vegamálastjóri. SAMVINNU TRYGGINGAR ARMULA3 SIMI 81411 Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiöir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. LancerGLX árgerö 1985 Mazda323 árgerö 1980 FordCortina árgerö 1974 Mazda 626 árgerð 1979 Subaru4x4 árgerö 1977 Volkswagen 1300 árgerö 1972 Ford Escort 1.6 XL árgerö 1984 Man 1624 vörubifr. árgerö 1977 Bifreiðirnar verða sýndar aö Höfðabakka 9, mánudaginn 13. maí 1985 kl. 12-17,- Á Höfn í Hornafirði á sama tíma: Lada 1500 Mazda 929 í Borgarnesi á sama tíma: árgerö 1981 árgerö 1976 Galant 1600 árgerð 1979 Á Djúpavogi á sama tíma: Ford Escort 1.3 XL árgerö 1984 Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Ármúla 3, Reykjavík eöa umboösmanna á stöðunum fyrir kl. 13, þriðjudaginn 14. maí 1985. Útboð tilboð óskast í prentun kennslubóka fyrir Námsgagnastofnun. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð veröa opnuð á sama staö kl. 11.00 f.h. 22. maí nk. Innkaupastofnun ríkisins Borgartún 7, Reykjavík, s: 26844 INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844_ Útboð Hafnarstjórn Dalvikur býöur út framkvæmdir viö frágang stálþilsbakka viö Norðurgarð. Steypa skal 94 m langan kantbita og ca. 25002 þekju. Verkinu skal lokiö 15. september 1985. Útboösgögn veröa til sýnis á skrifstofu Dalvíkurbæjar og verða afhent þar væntanlegum bjóðendum gegn 2 þúsund kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á sama staö eigi síðar en kl. 14.00 fimmtudaginn 23. maí nk. og veröa þau þá opnuö þar aö viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Dalvík 8. maí 1985, Bæjarstjórinn tilkynningar Inntökupróf Myndlista- og handíðaskóla Islands fyrir skólaárið 1985-1986 verður haldið dagana 3.-6. júní n.k. Umsækjendur láti skrá sig á skrifstofu skól- ans fyrir 17. maí. Skólastjóri. tilkynningar Vestur- Norðurlönd Samvinnuverkefnið á vestursvæðinu er eitt af hinum norrænu samstarfsverkefnum á sviði byggðamála. Höfuðmarkmið þess að að auka samvinnu milli landa og ekki bara á fagsviðum heldur einnig milli fyrirtækja og einstaklinga. Verksvið verkefnisins er land- fræðilega afmarkað en á engan hátt annan. Samvinnuverkefni þetta nær yfir Færeyjar, ísland og Grænland. Stjórn verkefnisins leitar nú að verkefnis- stjóra. Verkefni hans eru: Að vera ritari stjórnarinnar. Að rannsaka möguleikana á samstarfs- verkefnum á svæðinu, skipuleggja þá og stjórna. Að safna upplýsingum og miðla þeim á svæðinu. Að samhæfa samvinnu milli fyrirtækja. Að efla tengsl atvinnulífs á Vestur-Norður- löndum. Það skal tekið fram að gerð hefur verið rammaáætlun fyrir næstu 5 ár sem nær til allra efnisþátta verkefnisins. Þær kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða faglega kunnáttu, séu hugmynda- ríkir, hafi þekkingu á atvinnulífinu og séu raunsæir. í starf þetta verður ráðið til 3. ára. Laun eru samkvæmt samkomulagi, sem byggir á launakjörum heimalands umsækjanda. Starfið fer fram í löndunum þremur en að meginhluta í heimalandi starfsmannsins. Umsækjendur verða þó að vera tilbúnir að ferðast mikið, innan Norðurlandanna og alveg sérstaklega um Vestur-Norðurlönd. Nánari upplýsingar gefa Bjarni Einarsson, Framkvæmdastofnun ríkisins og Jónas Hall- grímsson, Seyðisfirði. Umsóknir skal senda fyrir 1. j úní til: Vestnordenprojektet Att: Thomas Arabo Höviksvegur 51 3800 Torshavn Færeyjum Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. íbúðalánasjóður Seltjarnarness Auglýst eru til umsóknar lán úr íbúðalána- sjóði Seltjarnarness. Umsóknir skulu send- ast bæjarskrifstofu fyrir 1. júní n.k. Lán úrsjóðnum eru bundin lánskjaravísitölu. Vextir eru breytilegir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka íslands. Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofu. Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi. Laugardagur 11. maí 1985 20 Útlönd Evrópuþingið í Strasbourg: Ræða Reagans rak ýmsa þingmenn út Perth, Skotland-Rcuter: ■ Sir Geoffrey Howe, utan- ríkisráðherra Bretlands, réðst í gær harkalega að þeim meðlim- um Verkamannaflokksins sem gengu út þegar Reagan Banda- ríkjaforseti hélt ræðu sína á Evrópuþinginu í tilefni Sigur- dagsins í Evrópu. I umræðum um erlend má- lefni á árlegri ráðstefnu íhalds- flokksins í Skotlandi sagði Howe aö „þeir" væru að reyna að útbreiða andúð sína á Banda- ríkjunum eins og auðséð hefði verið er þeir drógu minningu Sigurdagsins niður í svaðið á svívirðilegan hátt á Evróp- uþingin og móðguðu „besta bandamann Breta". Um 30 vinstrisinnaðir þing- menn á Evrópuþinginu í Strass- bourg, flestir breskir, gengu út undir ræðu Reagans og báru margir þeirra borða með áletr- unum á borð við: „Engar Cruise og Pershing", „Stjörnustríð: Nei“ og „Látið Nicaragua í friði". Bandaríkin: I fangelsi fyrir að selja Rússum tölvur Boston-Rcuter. ■ Bandarískur kaupsýslu- maöur hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að fiytja bandarísk tölvukerfi, tölvuhluta og varahluti til Kanada, hvaöan flutningnum var framhaldið til Vestur-Þýskalands, Sviss.Aust- ur-Þýskalands og Svoétríkj- anna. Paul BoíJ:her, 53 ára gamall, var í síðasta mánuði sekur fund- inn fyrir að hafa falsað útflutn- ingsskýrslur bandarískra toll- yfirvalda. Fyrirtæki hans var einnig sektað um 25.000 doll- ara. Hann viðurkenndi að hafa sex sinnum sent tölvuvarning til Elmont fyrirtækisins í Sviss sem síðan sendi hann áfram til So- vétríkjanna fyrir milligöngu Elmont skrifstofanna í Kanada. Að sögn ákærandans, Dennis Kelley, hélt Boucher því rang- lega fram að Kanada væri endanlegur ákvörðunarstaður varningsins. Stórbændur í Kína ausa fé í menntun ■ Kínverskir bændur í Shanxifylki hafa safnað sem svarar milljörðum íslenskra króna til menntamála sem er margfalt framlag ríkisins í fylk- inu. Einstakir bændur hafa meira að segja gefið sem svarar mörg hundruð þúsund íslensk- um krónum og jafnvel milljón- um til menntamála. Miklar verðhækkanir land- búnaðarafurða og aukin land- búnaðarframleiðsla í Kína hef- ur komið sumum kínverskum bændum í svo góð efni að þeir vaða bókstaflega í auðæfum. En bændurnirgleyma samt ekki sósíalískum skyldum sínum ef marka má kínverskar blaða- fréttir. Fyrir nokkru skýrði NT frá því að bóndi nokkur í nágrenni Peking hefði byggt elliheimili fyrir eigið fé. Algengara mun þó vera að bændur leggi auðæfi sín í menningar- og menntamál. Bændur í Shanxifylki hafa þann- ig safnað 209 milljón yuönum (3,34 milljarðar íslenskra króna) til að byggja nýja og betri skóla í fylkinu. Þetta mun vera ellefu sinnum hærri upp- hæð en opinberir aðilar verja til menntamála á hverju ári á um- ræddu svæði. Sautján bændur gáfu meira en tíu þúsund yuan hver, þ.e. meira en 160.000 ísl. kr. og einn bóndinn lagði fram hvorki meira né minna en 165.000 yuan, sem er rúmlega 2,6 mill- jónir íslenskra króna, til að byggja þorpsskóla þar sem hann bjó. ■ Skyldu það vera bændur sem hér koma úr heimsókn í Pekingvísindahöllina? Sumir kínverskir bændur eru nú orðnir svo auðugir að þeir vita vart hvað þeir eiga að gera við aurana sína. Þeir hafa því gripið til þess ráðs að fjárfesta í menntun enda eru þeir margir aðdáendur heimspekingsins og menntaspekingsins forna Konfúsíusar sem taldi að flest vandamál mætti levsa með aukinni menntun.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.