NT - 31.05.1985, Page 20
rflr Föstudagur 31. maí 1985 20
LlU Útlönd
Samvinna milli
Comecon og EBE?
Moskva-Reuter.
■ Mikhail Gorbachev hefur
lagt til að Efnahagsbandalag
Evrópu og Efnahagsbandalag
sósíalískra ríkja, Comecon,
hefji samstarf á ýmsum sviðum
en þó sérstaklega á sviði efna-
hagsmála. Hingað til hefur sam-
starf milli þessara bandalaga
ekki tekist, m.a. vegna þess
mismuns sem er á skipulagi
þeirra.
Tilboð Gorba chevs um sam-
vinnu við EBE kom fram í ræðu
sem hann hélt í veislu, sem
haldin var til heiðurs Bettin
Craxi forsætisráðherra Ítalíu í
Moskvu nú í vikunni, en Craxi
■ Mikhail Gorbachev lætur
kommúnismann ekki aftra sér í
því að leita eftir auknu samstarfi
við vestræn ríki sem „báðir
aðilar hafi hag af“.
er jafnframt formaður ráðherra-
nefndar EBE.
Gorbachev sagði m.a. að úr
því að EBE teldi sig pólitíska
einingu væri Comecon tilbúið
til að ræða beint við EBE um
samvinnu á sviði efnahagsmála.
Nú væri tími til kominn fyrir
þessi tvö bandalög að taka upp
samvinnu sem væri hagkvæm
fyrir báða aðila. Hann sagði að
Comecon væri að undirbúa til-
lögu að samstarfsáætlun sem
fljótlega yrði lögð fram.
Það er talið að tillaga Gorbac-
hevs um samvinnu EBE og
Comecon sé liður í þeirri stefnu
hans að auka samskipti við
Vesturlönd.
New York:
Skúffuþjófur í lögreglunni
New York-Kcuter
■ í gjörvallri New York borg
hefur glæpum fækkað fyrstu þrjá
mánuði þessa árs nema á sjálfri
lögreglustöðinni þar sem ósvíf-
inn þjófur gengur laus.
Þótt öryggisverðir umlyki lög-
reglubygginguna á alla vegu
hafa skrifborð lögreglumann-
anna ekki fengið frið fyrir þjóf-
inum sem 15 sinnum á umliðn-
um 10 vikum hefur brotist í
skúffurnar og haft þaðan á brott
sitthvað verðmætt.
Talsmenn lögreglunnar segja
að þjófurinn hafi laumast inn í
skrifstofur yfirstjórnar lögregl-
unnar og hirt úr skrifborðunum
allt það fé er þar fannst, tínt til
alla smápeninga þ.á m. kaffi-
peningana og þessi bíræfni þjóf-
ur hafi heldur ekki getað séð
sparigrís eins lögregluforingjans
í friði.
Talsmennirnir segja að rann-
sóknir á þessu máli standi yfir
innan lögreglunnar en neita að
láta uppi hve stórum upphæðum
hafi verið stolið.
Að öðru leyti hefur glæpum,
þ.á m. innbrotum, ránum og
morðum fækkað um 5,8%
fyrstu þrjá mánuði ársins miðað
við sama tímabil í fyrra en
stöðug hjöðnun glæpa hefur átt
sér stað frá árinu 1981 þegar
glæpir gengu faraldri næst í
borginni.
I ]
BLAÐBERA VANTAR
Blaðburðarfólk óskast
fyrir eftirtalin hverfi
Skipholt, Bólstaðarhlíð,
Hjálmholt
Síðumúli 15. Sími 686300
Vestur-Berlín:
Slegist um smjörgjafir
Vestur-Berlín-Reuter.
■ Almenningur í Vestur-
Berlín slæst bókstaflega um
ókeypis smjörstykki sem ætl-
að er að sníða toppinn af
smjörfjallinu í ríkjum Efna-
hagsbandalagsins.
Fyrir hvert smjörstykki,
sem fólk kaupir, getur það
fengið 250 gramma ókeypis
smjörstykki í viðbót. Alls
verða 900 tonn af smjöri
notuð til þessarar tilraunar
sem hófst fyrir rúmum mán-
uði. Upphaflega var gert ráð
fyrir því að tilraunin skyldi
standa í tíu vikur en smjör-
gjafirnar eru svo vinsælar að
kaupmenn telja að birgðirn-
ar verði uppurnar löngu fyrr.
Kaupmenn eru síður en
svo ánægðir með þessar
smjörgjafir. Þeir segja að
sumt fólk hamstri nú svo
mjög smjör að það rogist
jafnvel með þrjátíu kíló af
smjöri út úr búðunum.
Margir hamstrarar gangi úr
búð í búð og láti skömmun-
um rigna yfir afgreiðslufólkið
ef ókeypissmjörið er búiö í
viðkomandi búð. Sumir
skyrpi jafnvel á búðarfólkið.
Geimkastalar ekki
lengur loftkastalar
París-Keuter
■ Varanleg geimstöð vest-
rænna ríkja er ekki lengur loft-
kastali örfárra draumóra-
manna. Yfirmenn bandarísku
geimferðastofnunarinnar
NASA segja að lokið verði við
að teikna slíka geimstöð á næsta
ári og að framkvæmdir við hana
muni hefjast árið 1987. Geim-
stöðin yrði síðan væntanlega
komin í notkun árið 1994.
Geimferðastofnun Evrópu,
sem ellefu Evrópuþjóðir eiga
aðild að, samþykkti nú fyrir
nokkrum dögum að taka þátt í
undirbúningi að smíði vest-
rænnar geimstöðvar sem
Bandaríkjamenn hafa átt frum-
kvæði að. Áður höfðu Kanada-
menn og Japanir lýst því yfir að
þeir vildu eiga aðild að geim-
stöðvarbyggingunni.
John D. Hodge, sem er einn
af yfirmönnum NASA, ávarp-
aði fund Geimferðarstofnunar
Evrópu sem haldinn var í París,
með aðstoð gervihnattar, en
hann var sjálfur staddur í
Bandaríkjunum. Hann sagði að
geimstöð þessi yrði aldrei notuð
í hernaðarskyni heldur ein-
göngu til vísindarannsókna úti í
geimnum. Hann sagði að varn-
armálaráðuneyti Bandaríkj-
anna gæti að vísu sótt um að fá
að framkvæma rannsóknir í
stöðinni en þá aðeins á sama
hátt og allir aðrir viðskiptavinir.
Hugmyndin er sú að hinir
ýmsu aðilar reki eigin rannsókn-
arstöðvar, sem tengist geim-
stöðinni, auk þess sem ýmisleg
sameiginleg aðstaða verður í
stöðinni. Bæði Evrópumenn og
Japanir hafa látið í ljósi áhuga á
því að byggja eigin geimstöðvar
síðar meir. En það verður ekki
fyrr en eftir einn til tvo áratugi
eða jafnvel seinna. Þangað til
muni þeir hafa samstarf við
Bandaríkjamenn um geim-
stöðvarsmíði.
Nú á mánudaginn munu full-
trúar evrópsku geimferðastofn-
unarinnar undirrita formlegt
samkomulag um þátttöku í
undirbúningsstarfi fyrir geim-
stöðina næstu tvö árin. Áætlað-
ur kostnaður Evrópumanna
vegna þessa samstarfs er sagður
vera 60-70 milljónir dollara.
Upphaflega gerðu Banda-
ríkjamenn ráð fyrir því að
bandarískar geimferjur yrðu
nær eingöngu notaðar við bygg-
ingu stöðvarinnar. En þátttaka
Evrópuþjóðanna verður líklega
til þess að evrópskar Ariane-
eldflaugar verði einnig notaðar.
■ Svona telja Kanadamenn að vestræna geimstöðin muni hugsanlega líta út þótt endanlegar
teikningar liggi ekki ennþá fyrir. Kanadamenn hafa meira að segja merkt sér tilraunastofu í
geimstöðinni.
Grænfriðungar í sudrænan kulda
London-Reuter
■ Fjórir menn í umhverf-
isverndarsamtökum Græn-
friðunga lögðu úr höfn í gær
í langa siglingu til Suður-
skautslandsins í þeim til-
gangi að setja þar á stofn
bækistöð sína.
Pete Wilkinson, stjórnar-
maður í samtökum Græn-
friðunga, sagði í gær á
blaðamannafundi að bæki-
stöðin væri sett á fót í þeim
tilgangi að vekja athygli á
eyðingu náttúrulífs álfunn-
ar.
Hann sagði að dýra- og
jurtalíf álfunnar ætti undir
högg að sækja vegna lævísr-
ar ágengni mannanna
barna, en neitaði að gefa
nánari upplýsingar um
áform samtakanna svo fjöl-
þjóðleg yfirvöld álfunnar
gætu síður undirbúið
mótaðgerðir.
Grænfriðungar hafa
undirbúið þessa aðgerð í 5
ár og fjórmenningarnir hafa
samið yfirlýsingu þar sem
mótmælt er „hervæðingu og
nýlenduvæðingu álfunnar
auk meinstra brota á suður-
heimskautssamningnum“
sem 12 þjóðir undirrituðu
árið 1959 til að tryggja sam-
vinnu sína og varðveislu
náttúrulífs í álfunni.