NT - 05.07.1985, Side 20
~NEWS IN BRIEF
■ Julv 4 - Kcutcr:
1MADRID - Spanish
| Prime Minister Felipe
Gonzalez appointed new
' Finance nd Foreign Min-
I*. isters in a cabinet shakeup
SiJ involving six portfolios
Oc which radically altered the
look of his 31-month-old
^ socialist government.
£
in BEIRUT - Lebanon beg-
an tightening security at
Beirut Airport while
launching a diplomatic
drive against U.S. sancti-
ons provoked by the hi-
! jack of an American airl-
iner and the detention of
hostages.
LOS ANGELES - The
Los Angeles Times said
the Reagan administrat-
ion would consider ki-
dnapping Shi’ite moslem
militants who hijacked a
TVVA airliner if the Le-
banese government did
not extradite them for trial
in the United State.
UJ
s
^ VIENNA - On the eve of
I the OPEC conference, a
! majority of oil ministers
, appeared determined not
to cange their olTicial price
| structure despite difTiculty
^ in selling at present rates.
•
STRASBOURG, France
- West European parliam-
entarians urged the 21 co-
untries of the Strasbourg-
based Council Of Europe
to take urgent action to
combat terrorism and air
piracy.
•
i{j BOMBAY - Trading on
gp the Bombay stock exc-
Cq hange came to a halt when
^ hundreds of tax ofTicials
stormed the offíces of
y brokers in a raid to find
untaxed money.
^ •
LONDON - Registered
unemployment in Britain
dropped to 13.1 per cent
of the workforce in June
from 13.4 per cent in May.
The undcrlying jobless
trend also fell.
•
BONN - West German
Chancellor Kohl said he
would continue to tight
for closer political integr-
ation in the European
Community even at the
risk of a major split among
member states.
•
NEW DELHI - Autopsy
reports suggest an Air
India jumbo jet which
crashed off Ireland explo-
ded before it plunged into
the sea on June 23, the
Indian CivilAviation Secr-
etary said.
•
BAHRAIN - Iraq said its
aircraft attacked a military
camp at Sanandaj in West-
ern Iran in the fírst air raid
it has reported on Iranian
targets since ending a
bombing halt four days
ago.
LONDON - Martina
Navratilova and Chris
Evert Lloyd will mcet in
the women’s singles fínals
at the Wimbledon tcnnis
championship on satur-
day. Navratilova beat
Zina Garrison (US) in the
semifinals (6-4 7-6) and
Lloyd beat Kathy Rinaldi
(US) in the semifínals (6-2
6-0).
NEWSINBRIEFJ
Föstudagur 5. júlí 1985 20
Hefndarhugmyndir:
Ræna Bandaríkja-
menn ræningjum?
Los Angeles-Reuter
■ Bandaríska dagblaðið Los
Angeles Times segir að banda-
rísk stjórnvöld séu nú að kanna
möguleika á því að ræna flug-
ræningjunum tveim, sem rændu
bandarískri flugvél 14. júní síð-
astliðinn á leiðinni frá Aþenu til
Rómar og héldu síðan 39 banda-
rískum gíslum í 17 daga á Beir-
útflugvelli.
Bandarísk stjórnvöld munu
fyrst reyna að fá líbönsku
stjórnina til að framvísa flug-
ræningjunum tveimur. Sleppi
ræningjarnir við refsingu fyrir
gerðir sínar í Líbanon kann svo
að fara að Bandaríkjamenn
sendi hóp sérþjálfaðra manna
til að ræna flugræningjunum til
þess að hægt verði að draga þá
fyrir bandaríska dómstóla.
Bandaríska stjórnin hefur einn-
ig til athugunar að veita 500.000
dollara (21 milljón ísl.kr.) verð-
laun fyrir upplýsingar sem leitt
geti til handtöku þessara tveggja
flugvélaræningja.
Bandarískir embættismenn
eru sagðir sammála um að
eitthvað verði að gera til að
kenna hryðjuverkamönnum að
ekki borgi sig að ráðast á banda-
ríska þegna. Auk hugmynda
um að ræna flugvélaræningjun-
um tveim hafa verið settar fram
hugmyndir um skyndiárásir á
þjálfunarbækistöðvar borgar-
skæruliða í Líbýu eða í Baal-
ebek í Líbanon þarsem Hizboll-
ah öfgasinnar hafa bækistöðvar
en það er talið að flugvélaræn-
ingjarnir séu úr samtökum
þeirra.
Hryðjuverkamenn í Líbanon
telja sig samt ekki þurfa að
óttast alvarlegar hefndaraðgerð-
ir á næstunni þar sem þar eru
enn í haldi sjö Bandaríkjamenn
sem islömsku Jihad-samtökin
hafa rænt á undanförnum mán-
uðum í Líbanon. Hryðjuverka-
menn hóta bandarískum gíslum
sínum „svörtum örlögum“ ef
Bandaríkjamenn reyna að
hefna fyrir flugvélaránið.
■ Flugvélaræningjarnir tveir sem rændu upphaflega bandarísku flugvélinni 14. júní síðastliðinn og
héldu síðan 39 gíslum með aðstoð vina sinna. Þeir notuðuð grímur til að hylja andlit sín. Það var líklega
hyggilegt af þeim þar sem Bandaríkjamenn hyggja nú á hefndir og íhuga meðal annars leiðir til að ræna
þeim. Þessi mynd var tekin af flugvélaræningjunum þegar þeir tilkynntu að þeir myndu láta gísla sína
lausa.
Risaveldasam-
vinna gegn
kjarnorku-
hryðjuverkum
Genf-Reuter
■ Bandaríkjamenn og
Sovétmenn hafa undirrit-
að samning um sameigin-
legar aðgerðir ef hryðju-
verkamenn skyldu ein-
hvern tímann hóta því að
grípa til kjarnorkuvopna.
Sam Nunn öldunga-
deildarþingmaður, sem á
sæti í vopnaeftirlitsnefnd
öldungadeildarinnar, sagði
nú í vikunni að fulltrú-
ar Bandaríkjamanna og
Sovétmanna hefðu undir-
ritað samning þennan 14.
júní síðastliðinn. Samn-
ingnum hefði verið haldið
leyndum að beiðni So-
vétmanna. En öldunga-
dcildarþingmaðurinn
sagðist telja að George
Bush varaforseti Banda-
ríkjanna hefði aflétt
leyndinni með því að segja
um síðustu helgi að risa-
veldin ynnu að því að ná
samstöðu með sem flest-
um um það hvernig bregð-
ast skuli við hótunum
hryðjuverkamanna sem
segðust hafa kjarnavopn.
Þingmaðurinn sagðist
ekki hafa skilið þá afstöðu
Sovétmanna að vilja halda
samkomulaginu leyndu.
r
BLAÐBERA VANTAR
í EFTIRTALIN HVERFI:
ACAKIA I
ÁRBÆJARHVERFI
LANGHOLTSVEG
EINNIG VANTAR BLAÐBERA A
BIÐLISTA í ÖLL HVERFI
r ini'■■•,<*'*' i ■ 11 iii ig.ii ' , JJ ;v
Síðumúli 15. Sími 686300
Filippseyjar:
Skæruliðaárás
á kjarnorkuver
Maníla-Reuter
■ Skæruliðar, sem talið er að
séu félagar í skæruliðaher
kommúnista, gerðu nú fyrir
nokkrum dögum árás á nær
fullsmíðað kjarnorkuver á
norðanverðum Filippseyjum.
Skæruliðarnir notuðuðu dína-
mít til að sprengja fjögur af tólf
háspennumöstrum sem eru fyrir
utan kjarnorkuverið en
skemmdu ekki verið sjálft.
Kjarnorkuverið er 620 mega-
wött. Stefnt er að því að taka
það í notkun á þessu ári. Mikil
andstaða er við þetta kjarnorku-
ver, sem ber nafnið Morong-
verið. Það er byggt í hlíðum
eldfjalls nálægt sprungu. And-
stæðingar kjarnorkuversins
segja mikla hættu stafa af ver-
inu vegna staðsetningar þess.
Fyrir hálfum mánuði tóku
20.000 manns þátt í mótmæla-
göngu gegn Morong-verinu og
verkfall lamaði átta borgir og
bæi í nágrenninu.
Áfengissjúkir Moskvubúar
kaupa leynilega meðferð
Moskva-Reuter ________________
■ Sovéska dagblaðið Moskvu
sannleikur (Moskovskaya Pravda)
hefur skýrt frá því að áfengissjúkl-
ingar í Moskvu þyrpist til meðferð-
arstöðvar í borginni þar sem þeir
geta keypt sér meðferð gegn
áfengissýki án þess að greina frá
nafni.
Að sögn blaðsins greiða áfengis-
sjúklingar hundrað rúblur (um
5000 ísl.kr.) meðferðarnámskeið
sem m.a. felst í dálækningum.
Þetta er dágóð upphæð þegar
tekið er tillit til þess að meðallaun
eru 180 rúblur (um 9000 ísl.kr.) á
mánuði.
Læknisþjónusta er yfirleitt
ókeypis í Sovétríkjunum en þar
sem meðferðarstöðin veitir þjón-
ustu sína án þess að spyrjast fyrir
um nafn og stöðu sjúklinganna
verða þeir að greiða fyrir meðferð-
ina.
Dagblaðið segir að aðsókn sé
svo mikil að meðferðarstöðinnii
að læknar hafi vart undan og
húsnæði sé löngu orðið of lítið
fyrir starfsemina. Stjórnvöld í So-
vétríkjunum leggja nú mikla
áherslu á baráttu gegn áfengissýki
sem er sagt eitt alvarlegasta vanda-
málið í Sovétríkjunum.
Fimmtán daga
útgöngubann á
Palau-eyjum
Agana-Reuter
■ Stjórnvöld á eyríkinu
Palau í Kyrrahafi hafa sett á
fimmtán daga útgöngubann
um kvöld og nætur til heið-
urs Haruo Remeliik forseta
sem var myrtur aðfaranótt
síðastliðins sunnudag.
Að sögn embættismanna
stafar útgöngubannið ekki
af ótta við óeirðir í kjölfar
forsetamorðsins. Ástæður
morðsins eru enn óljósar og
hafa lögreglumenn frá
bandarísku alríkislögregl-
unni verið fengnir til að
rannsaka morðið.'
íbúar á Palau-eyjum eru
um 14.0000. Eyjarnar eru
rétt fyrir norðan miðbaug
um 500 mílum fyrir austan
Filippseyjar. Palau er í
ríkjasambandi við Banda-
ríkin.