NT

Ulloq

NT - 27.07.1985, Qupperneq 3

NT - 27.07.1985, Qupperneq 3
Borgarstjórn: Aukafundur á miðvikudaginn - um kaup á Hafnarbúðum ■ Að ósk allra 9 borgarfull- trúa niinnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur verð- ur aukafundur í borgarstjórn um Hafnarbúðamálið. Borgar- ráð samþykkti í gær með þrem atkvæðum gegn tveim að taka tilboði fjármálaráðherrans um kaup á Hafnarbúðum fyrir 55 milljónir króna, með 5 milljóna króna útborgun og skuldabréfi til 20 ára fyrir afganginum. Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hafa lýst sig andvíga þessum viðskiptum, þeir Páll Gíslason og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og ef báðir sitja fund- inn á miðvikudaginn nægir það til að fella samninginn. í Hafnarbúðum eru 25 rúm fyrir aldraða langlegusjúklinga og dagdeild þar sem 14-15 manns fá hádegismat og tilsögn við föndur og aðra létta vinnu. Hugmyndin er að nýta Hafnar- búðir í framtíðinni fyrir lang- legusjúklinga Landakotsspít- ala, en ríkið yfirtekur rekstur Hafnarbúða samkvæmt samn- ingum og verður hvorki starfs- fólki þar sagt upp né sjúklingum vísað burt. Kristján Benediktsson og Sig- urjón Pétursson greiddu at- kvæði gegn samningum í borg- arráði í gær og sagði Kristján í samtali við NT að hann sæi ekki Skýrsla Fiskifélagsins: Framför hjá bátaflotanum t 2,4% meira í fyrsta flokk nú en í fyrra ■ Hcldur þokar í áttina í gæðamálum. Allur bátafiskur, nema handfærafískur, kom bet- ur út úr gæðamati fyrstu fímm mánuði þessa árs en á sama tímabili í fyrra. 2,4% meira fór í fyrsta flokk. Þetta má lesa úr skýrslu Fiski- félagsins um gæðamál, sem út kom í gær. Að vanda kemur netafiskur verst út úr matinu, með 68,3% í fyrsta flokk, sem er 3% aukning. Af línufiski fór 96% í fyrsta flokk oghandfæra fiski 96,1%. Munurinn var nokkru meiri á handfæra- og línufiski í fyrra. Dragnótin kom best út úr matinu, með næstum 98% í hæsta gæðaflokk. Af trollfiski fór 93,4% í fyrsta flokk, rúmlega 1% meira en í fyrra. Ef litið er á landsfjórðunga er matið á Vestfjörðum og Norðurlandi áberandi best - flestar verstöðvarnar með vel yfir 90% í fyrsta flokk. Þó eru undantekningar eins og Bolung- arvík, Patreksfjörður. Dalvík og Skagaströnd með um eða yfir 80% og enn neðar er til dæmis Þórshöfn með um 74%. Verstöðvar sunnan- og suð- vestanlands, sem byggja mikið á netafiski, koma margar illa út úr matinu. Vestmannaeyingar fá til dæmis rétt rúm 70% í fyrsta flokk, Grindavík enn minna, eða rúm 64%. Þarna á milli eru Þorlákshöfn og Eyrar- bakki. Stokkseyri hins vegar sker sig nokkuð út úr með 87,1% fyrsta flokks; Matið á Austfjörðum er mjög misjafnt. Lakast var það á Stöðvarfirði, 32,6% fyrsta flokks, en um mjög lítið var að ræða. Rétt rúmlega helmingur af bátafiski á Reyðarfirði fór í fyrsta flokk, á Hornarfirði um 65% og á Eskifirði rúm 57%. í honum neina lausn fyrir hvort heldur væri Landakotsspítala eða borgina. í Hafnarbúðum losnuðu aðeins 4-5 rúm á ári og það leysti því ekki vanda Landa- kotsspítala. Á hinn bóginn hjálpaði samningurinn lítið upp á fjárhag borgarinnar og yrði því naumast til að flýta fyrir byggingu B-álmunnar að ncinu marki „Við í minnihlutanum höfum fullan skilning á vanda Landakotsspítala," sagði Kristján, „en við teljum þessar tilfærslur engu breyta. Hið eina raunhæfa væri að ríki og borg sameinuðust um að flýta bygg- ingu B-álmunnar,“ sagði Kristj- án og minnti að lokum á að allir starfsmenn Hafnarbúða hefðu lýst yfir þeim vilja sínum að reksturinn yrði í óbreyttu formi áfram og sama hefðu margir sjúklinganna gert. ■ Þeir eru sakle\ sislegir, þegar þeir eru smáir og undir el'tirliti, en það er óskemnitilegt að la lull- vaxið kvikindi inn i bað- herbergi. • ... irdagur 27. júlí 1985 Óbodinn gestur: Minkur brá sér á baðherbergið ■ Minkur var eitt það síðasta sem maður á von á að sjá á baðherberginu, þegar morgun- snyrtingin fer fram. En maður skyldi aldrei segja aldrei. Auðunn Kolbeinsson 5 ára varð fyrir ógleymanlegri lífsreynslu þegar hann fór fram á bað i gærmorgun til þess að nudda stír- urnar úr augunum, á heimili sínu í Hvítárholti í Hrunamannahreppi. Móðir hans, Helga Auðuns, i sagði í samtali við NT í gær aö hún hefði vaknað við að drengurinn öskraði upp „Mamma mamma það er rotta á baðherberginu." Það varð hlutverk heimilisföðurins áð kanna málið. í Ijós kom að minkur hafði leikið lausum hala í baðherberginu hluta af nóttinni. Mikill sandur og óþrifnaður var á baðinu, og ætlaði Helga að dýrið hefði komið inn um skolplciðslur. Eftir ráðstefnu fjölskyldunnar var ákveðið að reyna að ná dýrinu. Heimilisfaðirinn bjó sig út. Fór í »Lyktin ógeðsleg, sagði húsfreyj var an vaðstígvél, setti upp þykka leður- hanska og vopnaðist plastfötu. Eftir tvísýna viðureign hafði húseig- andinn betur og kom minknum i tunnuna, þrátt fyrir ákafleg mót- mæli þess síðarncfnda. Fyrirhugað var að aflífa dýrið, og innheimta verðlaun fyrir skottið. Þeir peningar gætu senni- lega koniið upp í hreingerningar- kostnað. á baðherberginu. Því eins oghúsfreyjan lýsti aðkomunni þá varð lyktin „ógeðsleg". Aðeins þrír neta- bátar með 100% í fyrsta flokk ■ Aðeins þrír netabátar á landinu öllu fengu hundrað prósent afla síns metinn í fyrsta flokk á vetrarvertíð- inni, samkvæmt tölvuút- skrift Fiskifélagsins. Þeir voru Þorkell Árnason GK, Gunnar Hámundarson GK og Sæljómi GK, sem að vísu fékk aðeins 17 tonn í netin. Á útskriftinni eru um 350 bátar og þar af fcngu aðeins tíu meira en 90 prósent í fyrsta flokk og þá eru þrír ofangreindir meðtaldir. Þrjátíu netabátar voru með milli 80 og 90% mctin fyrsta ílokks, 75 bátar voru með milli 70 og 80% og rúmlega 130 fengu milli 60 og 70% af sínum afla í fyrsta flokk. Afgangurinn var með undir 60 próscnt af aflanum í fyrsta flokki og þar af aðeins fjórir, Sæljón SU. Vöttur SU, Þorkatla GK og Róbert SH, sem að vísu fékk aðeins 18 tonn, voru með undir 50% í fyrsta flokk. ■ Jóhannes Nordal stjórnarformður Lands- virkjunar, Sverrir Hermannsson iðnaðarráð- herra og Halldór Jónatansson forstjóri Lands- virkjunar kynna samninginn um kaup LV á Kröfluvirkjun. NT-mjnd: Róberl Krafla skiptir um eigendur Landsvirkjun greiðir 1170 millj. og ríkissjóður yf irtekur 2 milljarða skuldir ■ Sainningur um kaup Landsvirkjunar á Kröfluvirkjun var undirritaöur í gær af Sverri Hermannssyni iðnaðarráðherra, Albert Guðmundssyni iyármálaráðherra, Jóhannesi Nordal stjórnarformanni Landsvirkjunar og Halldóri Jónatanssyni forstjóra. Kaupverðið er 1170 milljónir króna og greiðist það meö skuldabréfi til 25 ára. Landsvirkjun yfirtekur Kröfluvirkjun til eignar og reksturs þann 1. janúar 1986, að fenginni staðfestingu Alþingis á kaupunum. Þeim fylgir réttur til hagnýtingar á þeirri jarðhitaorku, sem kann að finnast á svæðinu, til raforkuframleiðslu, allt að 70 MW afli. Kröfluvirkjun framleiðir nú 30 MW, en gert er ráð fyrir, að hún geti framleitt 60 MW mcð báðum vélasamstæðum. Það kom fram í máli þeirra Sverris Her- mannssonar og Jóhannesar Nordals á fundi með fréttamönnum í gær, að megin ávinningur- inn með yfirtöku Landsvirkjunará Kröfluvirkj- un, sé að fá hana inn í samrekstrarkerfi Lands- virkjunar. Þeir sögðu einnig, að forsenda eig- endaskiptanna hafi verið, að ekki komi til hækk- unar á raforkuverðinu frá Landsvirkjun, og á að vera tryggt, að svo verði ekki. Kaupsamningurinn gerir ráð fyrir, að ríkis- sjóður muni bæta Landsvirkjun tjón af völdum jarðhræringa, eldsumbrota og annarra náttúru- hamfara, sem er umfram 40 milljónir króna hverju sinni, eða 200 milljónir alls. Minna tjón er á eigin áhættu Landsvirkjunar. Áhætta ríkisins takmarkast þó við ógreiddar eftirstöðv- ar kaupverðsins hverju sinni. Jafnframt verður hægt að láta kaupin ganga til baka. fari svo, að virkjunin verði óstarfhæf af völdum náttúru- hamfara. Eftirstöðvar kaupverðsins falla þá niður. Heildarskuldir Kröfluvirkjunar hinn 1. apríl síðastliðinn námu 3207 milljónum króna, og mun ríkissjóður yfirtaka þær umfram kaup- verðið, eða samtals 2037 milljónir króna. Samfara eigendaskiptunum á Kröfluvirkjun, verður öllu starfsfólki hennar sagt upp frá og með 1. september næstkomandi. Fyrir þann tíma verður þó gengið frá samningum við þá sem verða'endurráðnir, þannig, að starfsmenn þurfi ekki að lifa í óvissu um atvinnu sína. Starfsmenn Kröflu eru nú eitthvað á 3. tuginn. en ekki fékkst uppgefið hversu margir yrðu að hverfa frá fyrirtækinu. Áformað er að kynna starfsmönnunum þessi mál á næstunni. SÉRSTAKT VERD Eigum fyrirliggjandi MARSHALL 704 72 ha. din fjórhjóladrifinn. Með sérstaklega glæsilegu húsi með öllum þægindum. Yfirstærð á kúplingu. 55 lítra tvöföld vökvadæla. Tveir vökva stjórnlokar. Vökvastýri. Sinchro gírskipting. Lyftukrókur. Dráttarbiti. Radíal dekk. 2ja hraða aflúrtak. Ljósabúnaður í sérflokki. Allt þetta er innifalið í verðinu sem er aðeins kr. 670.000.- án söluskatts. Staðgreiðsluverð kr. 638.000.- Staðgreiðsluverð telst vera ef greitt er innan 3ja mánaða. Sýningarvél á staðnum. Vélaborg Bútækni hf. Sími 686655/686680

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.