NT - 27.07.1985, Qupperneq 5
Laugardagur 27. júlí 1985 5
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
fær 500 þús. í styrk:
Hægt að endurnýja
húsið að utan fyrir
veturinn
■ Borgarráð samþykkti í vikunni
að veita Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar styrk að upphæð 250 þúsund
krónur, en áður hafði fjármálaráð-
herra, Albert Guðmundsson, heitið
250 þús. króna styrk til safnsins úr
ríkissjóði að því tilskildu að borgin
legði safninu til sömu upphæð. Ákvörð-
un borgarráðs þýðir því samtals 500
þús. króna styrk til safnsins.
„Þetta þýðir allt fyrir safnið,“ sagði
Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafs-
sonar og eigandi Listasafnsins, þegar
NT ræddi við hana í gær. Nú verður
hægt að hefjast handa urn viðgerð á
vinnustofunni. Pað er búið að gera
úttekt á kostnaði við að skipta um alla
suðurhliðina með gluggum og öllu,
leggja nýtt þak og öðrum frágangi
kringum vinnustofuna. Þessi kostnað-
ur var áætlaður rúmlega 500 þús.
krónur og nú er ekkert að vanbúnaði,
það verður hafist handa um miðjan
ágúst. Ég hef fengið góða smiði og
það verður hægt að ganga frá öllu að
utanverðu fyrir veturinn.“
Birgitta sagði að þegar þessum
framkvæmdum lyki bíði framkvæmd-
ir við salinn sjálfan, vinnustofu Sig-
urjóns, þar sem ætlunin væri að geta
sett upp sýningar á verkum lista-
mannsins og verkfærum, auk þess
sem reynt yrði að búa hann þannig úr
garði að hann geti þjónað sem lítill
samkomusalur í leiðinni. „Ég vona
að ég geti aflað fjár til þess þegar þar
að kemur,“ sagði Birgitta og lýsti
ánægju sinni með ákvörðun borgar-
ráðs.
I Flóabáturinn Baldur flytur ferðalanga til Flateyjar, þar sem starfsmenn
sumardvalarheimilisins taka á móti þeim.
Ferðalag fyrir börn:
Ævintýraferðalag
um Breiðafjörð
■ Börnum á aldrinum 9-13 ára gefst
kostur á að kynnast fjölskrúðugu
dýralífi Breiðafjarðareyja, í fjögurra
daga ferð, sem Bifreiðastöð Islands
og Flóabáturinn Baldur, í samvinnu
við sumardvalarheimilið í Svefneyj-
um skipuleggur.
Ferðatilhögun er á þá leið, að lagt
er af stað frá umferðamiðstöðinni á
föstudagsmorgun klukkan 9. Komið
er til Stykkishólms klukkan 14. Þar er
farið um borð í Flóabátinn Baldur
sem flytur ferðalangana til Flateyjar.
Þar taka starfsmenn sumardvalar-
heimilisins á móti gestunum og m.a.
er eyjan skoðuð. Að kvöldi föstudags
er farið til Svefneyja með sjö tonna
trillu undir stjórn Kristins Nikuláks-
sonar, sem jafnframt er leiðsögumað-
ur um eyjarnar. Þær nætur sem ferðin
stendur yfir, verður gist í Svefneyj-
um. Það sem eftirlifir ferðarinnar er
rennt fyrir fisk, dýralíf skoðað og
m.fl.
Sumardvalaheimilið í Svefneyjum
tók til starfa í sumar. Það eru þau
Baldvin Björnsson og Sigrún Elísa-
betsdóttir sem reka sumardvalar-
heimilið.
Afmælisgjöf tii Reykjavíkurborgar:
Ljósknúin útiklukka
■ Seiko verksmiðjurnar japönsku
og umboðsaðili þeirra á íslandi, þýsk-
íslenska, hafa boðið Reykjavíkur-
borg útiklukku að gjöf í tilefni 200 ára
afmælis borgarinnar á næsta ári og
borgarráð ákvað í vikunni að þiggja
gjöfina. borgarskipulag fjalla nú um
staðsetningu hennar, en ósk gefenda
er að klukkan verði staðsett í útjaðri
borgarinnar, svo hún gefi þeim sem
aka inn í borgina eða eru að yfirgefa
hana nákvæmar upplýsingar um hvað
tímanum líði.
„Þetta er ný tegund af klukkum,
sem Japanir eru farnir að framleiða
og sem ganga fyrir ljósorku,“ sagði
Ómar Kristjánsson framkvæmda-
stjóri þýsk-íslenska í samtali við NT.
Hann sagði, að þrátt fyrir það þyrfti
ekki að óttast áð íslenska skammdeg-
ið legðist illa í nýju klukkuna, hún
væri undir það búin að standast það.
Búvélar á góðu verði
Vélaborg
Bútækni hf. Sími 686655/686680
Heyþyrlur
4rastjörnu 6 arma. Vinnslubr. 5,1 m. Verð kr. 62.900,-
6 stjörnu 6 arma. Vinnslubr. 7,2 m. Verð kr. 85.000.-
Allar vélarnar fyrirliggjandi
GðD greiðslukjör Hafjð samband
Stjörnumúgavélar
Vinnslubr. 1,65 m. Verð kr. 46.800.-
Sláttuþyrlur 10 arma. Vinnslubr. 3,1 m. Verð kr. 51.000.-
PÖTTINGER
STOLL