NT - 30.07.1985, Side 9
BÆNDUR
BÍLAVERKSTÆÐI
OG AÐRIR EIGENDUR
LAND-ROVER BIFREIÐA
ATHUGIÐ!
HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG
BODDÝHLUTA í LAND-ROVER
EINNIG VARAHLUTI í RANGE-
ROVER OG MITSUBISHI
ÞEKKING OG REYNSLA
TRYGGIR ÞJÓNUSTUNA
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
HEILDSALA - SMÁSALA
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Þridjudagur 30. júlí 1985 9
Borgarfjörður ’85:
Ýmislegt í pokahorninu
■ Það gekk heldur trcglega
hjá Ungmennasambandi Borg-
arfjarðar að endurvekja Húsa-
fellsmótið um verslunar-
mannahelgina næstu. Þess í
stað heldur ungmennasam-
bandið mótið Borgarfjörður
'85 á Geirsárbökkum í Reyk-
holtsdal. Þar verður samfelld
dagskrá frá morgni til kvölds
en dansleikirnir verða haldnir
i félagsheimilinu Logalandi á
föstudags-, laugardags og
sunnudagskvöld.
Á útihátíðinni verður söng-
hópurinn Hálft í hvoru aðal-
skemmtiatriðið auk diskóteks-
ins Dísu og sérstakir barna-
dansleikir enda verður reynt
að gera mikið fyrir börnin í
tilefni af ári æskunnar. Á
dansleiknum verður diskó-
tekið Dísa með dagskrá með
leikjum, hópdönsum auk létt-
metis ýmis konar milli atriða.
ÖIl kvöld Borgarfjarðar '85
mun hljómsveitin Grafík spila
undir dansi í Logalandi. Á
dansleikinn kostar500krónur.
Svokallaðir hátíðarpakkar
munu kosta 600-700 krónur og
þá er aHt innifalið nema dans-
leikirnir í Logalandi.
Ómissandi
varðeldur
■ Skátarhaldafjölskyldu-og
skátamót á Úlfljótsvatni um
verslunarmannahelgina og að
sjálfsögðu eru allir velkomnir
þangað.
Á mótinu verður sérstök
dagskrá, bátsferðir, kvöldvök-
ur, gönguferöir, þrautir, ýmis
konar keppni og svo hinn
ómissandi varðeldur.
Það verður hægt að tjalda á
þremur stöðum við Úlfljóts-
vatn, við Fossa, Borgarvík og
við drengjaskátaskálann á Úlf-
ljótsvatni. Rútuferðirverðafrá
BSI á föstudaginn klukkan átta
og á laugardag klukkan eitt.
IJ lL
Kynnast
jafnöldrum
og Jesú
■ Landssamband KFUM og
K ætlar að gefa unglingum
tækifæri til að kynnast hressum
jafnöldrum sínum og Jesú í
Vatnaskógi um verslunar-
mannahelgina.
Það verður gert hlé á sumar-
búðastarfinu en 13 ára og eldri
unglingum stefnt saman í tjald-
búðirnar. Fyrir 300 kall fá þeir
sem mæta á staðinn pláss á
tjaldstæðinu, afnot af hrein-
lætisaðstöðunni og bátum á
vatninu.
Þá verður ýmislegt gert sér
til skemmtunar yfir helgina,
farið í leiki, þrautir, koddaslag
á vatninu, íþróttir ogsvo verða
ómissandi kvöldvökur á
kvöldin, sém enda svo á guðs-
orði.
Rútuferðir verða frá BSÍ
upp í Vatnaskóg á föstudags-
kvöld og til baka eftir helgina
fyrir þá sem það vilja.
Ekkertmálefvilj-
inn er fyrir hendi
■ „París frá Akureyri spilar
á böllunum hjá okkur um helg-
ina. Þeir hafa verið hjá okkur
undanfarin þrjú ár, reyndar
aldrei undir sama nafni en þú
getur sagt að þeir séu stórgóð-
ir. bó svo við berum enga
ábyrgð) á því.“ ívar Ragnars-
son félagsheimilisfrömuður
Birkimels á Barðaströnd hefur
orðið.
Félagsheimilið ætlar að
standa fyrir þremur stórdans-
leikjum í Birkimel á föstu-
dags,- laugardags,- og sunnu-
dagskvöld og það kostar bara
500 krónur inn, „Við setjum
bara upp gangverðið á þessu,
svo verður eitthvað ódýrara
inn á sunnudagskvöldið,“ til-
kynnir ívar.
Við hliðina á félagsheimilinu
er ágætis tjaldstæði með góðri
hreinlætisaðstöðu, að því er
ívar segir. Svo er sundlaug í
fjögurra mínútna labbitúrs-
fjarlægð, ef svo má að orði
komast. Veitingar verða seldar
á staðnum og ekkert mál að
komast á Barðaströndina í
rútu frá Vestfjarðaleið ef vilj-
inn er fyrir hendi.
■ Það hefur greinilega verið fjör í Atlavík í fyrra
þegar Stuðmenn og Ringo og hljómsveitin Fásinna
frá Egilsstöðum spiluðu og sungu auk hinna
mörgu...
Lífsmark með
Eyjaskeggjum
■ Strax á fimmtudagskvöld
fjölmenna Eyjaskeggjar á
upphitunardansleikinn á
Skansinum og í Samkomu-
húsinu í Eyjum. Þar verður
fjör, sem enginn vill missa af,
og því sést svo sannarlega
snemma lífsmark í Eyjum um
verslunarmannahclgina.
Hátíðahöldin í Vest-
mannaeyjum verða með stór-
tækari hætti en „í landi“.
Fyrir 1500 kall fæst tónlist frá
hljómsveitunum Export,
Mannakorni, Blúsbandi,
Lífsmarki auk leiklistar frá til
dæmis leikhópnum Svörtu og
sykurlausu svo eitthvað sé
nefnt.
Það er mikið fyrir þessu
öllu haft. Eyjaskeggjar hafa
unnið í sjálfboðaliðavinnu í
einn mánuð til að hafa allt til
þegar hátíðin hefst. Það þarf
að setja upp heilan helling af
skreytingum og öðrum dýrð-
'um enda von á liði „úr
landi“. A fyrri þjóðhátíðum
hafa verið um 7000 gestir, þar
af um 2000 utan eyjar.
Herjólfur fer sínar föstu
ferðir um helgi verslunar-
manna eins og vanalega en
Ferðaskrifstofa Vestmanna-
eyja býður spes tilboð til
þeírra sem vilja komast á
þjóðhátíðina; flug og að-
göngumiða fyrir rétt rúman
2000 kall.
■ Það er gaman að fá sér léttan snúning í Galtalæk og sýna hvað maður lærði í
dansskólanum í vetur. Eða er það ekki?
Ferðafélagsferðir um Versl-
unarmannahelgi:
2. -5. ágúst
1) Álftavatn - Hólmsárbotnar - Strutslaug. (Fjallabaks-
leið syðri). Gist í húsi.
2) Hveravellir - Þjófadalir - Blöndugljufur. Gist í húsi.
3) Landmannalaugar - Eldgjá - Hrafntinnusker. Gist í
húsi.
4) Skaftafell - Kjós - Miðfellstindur. Gönguutbúnaður.
Gist í tjöldum.
5) Skaftafell og nágrenni / stuttar - langar / gönguferðir.
Gist í tjöldum.
6) Öræfajökull - Sandfellsleið. Gist í tjöldum.
7) Sprengisandur - Mývatnssveit - Jökulsárgljúfur -
Tjörnes - Sprengisandur. Gist í svefnpokaplássi.
8) Þórsmörk-Fimmvörðuháls-Skógar. Gist í Þórsmörk.
Þórsmörk, langar / stuttar gönguferðir. Gist í húsi.
Brottför í allar ferðirnar er kl. 20 föstudag 2. ágúst.
3. -5. ágúst:
Þórsmörk. Brottför kl. 13. Gist i Skagfjörðsskála.
Ferðist um óbyggðir með Ferðafélaginu um Verslunar-
mannahelgina. Pantið tímanlega. Upplýsingar og farmiða-
sala á skrifstofu F.í. Öldugötu 3. í s. 19533 og 11798.
Útivistarferðir eru fyrir
alla, unga sem aldna
Hvernig væri aö koma með um
verslunarmannahelgina, 2.-5. ágúst
í einhverja af eftirfarandi ferðum:
1. Núpstaðarskógur
2. Eldgjá - Langisjór - Landmannalaugar
3. Þórsmörk
4. Dalir - Breiðafjarðareyjar
5. Kjölur - Kerlingarfjöll
6. Hornstrandir - Hornvík
Ath. Félagsmenn greiða lægra fargjald en aðrir.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofu, Lækjargötu 62,
símar: 14606 og 23732 Sjáumst í næstu ferð
Ferðafélagið Útivlst
Leoncie
Martin lætur
í sér heyra
■ Þad verður blátt áfram
rosastuð í Húnaveri um versl-
unarmannahelgina. Stór-rokk-
sveitin Drýsill ætlar að sjá til
þess með hjálp góðra manna
og hljómsveita. Þar framarlega
í flokki verður hljómsveitin
Start með Pétri Kristjánssyni í
fararbroddi, söngkonan
Leoncie Martin lætur í sér
heyra og svo verður diskótek
að sjálfsögðu í gangi.
Snyrting og veitingasala
verður að sjálfsögðu yfir alla
helgina, en dansað verður af
kappi bæði föstudags,- laugar-
dags,- og sunnudagskvöld.
Drýsill heldur auk þess ókeypis
tónleika á laugardeginum. Næg
tjaldstæði eru við Húnaver og
aðgangur að svæðinu ókeypis
svo það ætti ekki að væsa um
gesti í Húnavatnssýslunni.
■ Egill Ólafsson stuðmaður í
stuði á mótinu í Atlavík. Herra
Starr þykir greinilega allmikið
til'ans koma.
Dúkkulísurnar í banastuði á Laugum
■ Sumargleðin er fastur
passi á Laugum um versl-
unarmannahelgina ár
hvert - með öllu sem henni
fylgir. Að þessu sinni
verður þó líka boðið upp
á Dúkkulísurnar frá Egils-
stöðum, sem láta tónlist-
ina dynja á hátíðargestum
Lauga á sunnudagskvöld.
Svo er líka hægt að fara í
sund þarna.
Hátíðahöldin á Laugum
fara aðallega fram í stóra
íþróttahúsinu á svæðinu
en þangað inn kemst ör-
ugglega um 1500 manns,
svo verður hótelið opið
fyrir þá sem leyfa sér þann
munað. Ferðir verða frá
Húsavík og Akureyri og
því ekkert mál að skella
sér á Laugar. Ókeypis
nema tjaldstæðisleigan og
inn á ballið á sunnudag.